Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2000, Qupperneq 15
15
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2000
DV
Memúng
Myndlist
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir
■p.-;
Anna Jóelsdóttir: Húmar á dúkinn, akríl, flass, gvass og blek á striga, 1999
„Þetta er málaralist sem nýtir sér til fulls þaö frjálsræöi sem „blessuöum“
póstmódernismanum fylgir. “
Af minninga-
bókum til-
finninganna
í ljósi fremur einsleitrar málara-
listar á íslandi; einsleitrar að því
leyti að hún gefur sig út fyrir að
vera hlutlæg, alvöruþrungin og
umfram allt nýskapandi, í stuttu
máli módernísk í hefðbundnum
skilningi, er lærdómsríkt að
gaumgæfa málverk íslenskrar
listakonu, Önnu Jóelsdóttur, sem
um nokkurra ára skeið hefur unn-
ið að list sinni vestur í Chicago.
Þessi málverk hanga uppi í
Sverrissal Hafnarborgar; síðasti
sýningardagur er í dag. Ekki svo
að skilja að Anna hafi þegar fund-
ið Qölina sína, eins og sagt er á
handboltamáli, því á sýningu
hennar eru tvö málverk frá árinu
1999, sem gefa til kynna að hún
hafl nýlega söðlað um eftir fremur
ófrjótt landslagstímabil. Og spum-
ing hvort nærvera þessara tveggja
málverka gefi ekki sýningunni
helst til sundurleitt yfirbragð. Sú
málaralist sem hún hefur nú kom-
ið sér niður á virðist fela í sér öllu
meiri möguleika til persónulegrar
þróunar.
Vettvangur á dúk
Þetta er málaralist sem nýtir sér
til fulls það frjálsræði sem
„blessuðum" póstmódernismanum
fylgir. í stað þess að einsetja sér að
stjóma atburðum á myndfletinum
eftir viðteknum reglum og í krafti
ímyndaðrar hlutlægni, eins og
flestir íslenskir starfsbræður
hennar gera, breytir Anna hverj-
um „dúk“ i eins konar opinn vett-
vang sem öll stílbrigði eiga greið-
an aðgang að; mynsturmálverk,
ljóðrænn expressjónismi,
veggjakrot, teiknimyndir og margs
konar frumstæð amerísk tilbrigði
um mannslikamann (Guston, Rot-
henberg, Basquiat o.fl.). Sömuleið-
is er Anna óhrædd við að gera úr
verkum sínum minningabækur
tiifinninganna, og gildir þá einu
hvort þær eru háleitar, óþægilegar
eða broslegar. Öliu er haldið til
haga. Málverk hennar hafa því til
að bera þann heiðarleika sem felst
i því að viðra alla tjáningar-og
túlkunarmöguleika, í stað þess að
halda að áhorfandanum hinum
eina sannleika. Skyldi þetta ekki
einmitt vera það besta við póst-
módemismann?
Tær myndskáldskapur
En þetta er auðvitað einnig upp-
skrift af stjómleysi og óreiðu.
Anna heldur utan um þessa mynd-
sýn styrkum höndum, og kannski
fyrst og fremst með hugmyndinni
um „dúkinn“. Þar er ekki einvörð-
ungu vísað til sjálfs strigans þar
sem ævintýrin gerast, heldur verð-
ur dúkurinn/mynsturmálverkið
eins konar samnefnari fyrir bæði
lífsmynstrið og fjölskyldulífið. Það
er við dúkað borðið, á mynstruð-
um ábreiðum eða með viskustykk-
in á lofti sem sérhver fjölskylda
leikur sitt heimatilbúna drama.
Þessi „drörnu" eru uppistaðan í
þeim ærslakenndu tilbrigðum sem
Anna útlistar með blýanti eða
pensli á dúkum sínum.
En það er hægt að ganga of langt
í slíkri útlistun. Anna fellur í þá
gildru að gefa myndum sínum
löng og lýsandi heiti, sem stund-
um eru svo sérkennileg að þau
beinlínis draga athygli frá því sem
er að gerast á dúkunum. Auk þess
árétta þau hið frásagnarlega í
þessum myndum á kostnað
hreinna myndrænna tilþrifa.
Veigamestu verkin á sýning-
unni eru án efa þau nýjustu,
myndröðin Dialogue I-VI, þar sem
listakonan teiknar og málar á
pappír. Hér verða hvorki heiti né
augljósar vísanir i hið þekkta til
að trufla áhorfandann frá því að
gefa sig á vald hreinum og tærum
myndskáldskap, sem þó einkenn-
ist af leit af einhvers konar vis-
bendingum um hinstu rök og
merkingu hlutanna. Með sama
áframhaldi verða „dúkar“ Önnu
orðnir að stórbrotnum leiktjöldum
að ári.
Aðalsteinn Ingólfsson
LIFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA
Ársfundur 2000
Hi
Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
verður haldinn mánudaginn 10. apríl 2000
kl. 17 í Gullteigi á Grand Hótel.
Vinsamlega athugið breytingu á áður
auglýstum fundardegi.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg ársfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt
til setu á ársfundinum.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík 5. mars 2000
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
UFEYRISSJOÐUR VERZLUNARMANNA
-I’
ym \
Sími: 580 4000, Myndsendir: 580 4099
Netfang: skrifstofa@live.is
M A BJDÐA ÞÉR SÆTI?
OíTiiklO HORNSQFI
SVARTUR'LJOSBRUNN
DÖKKBRÚNN* DÖKKBLÁR
Stærd: 200X245 CM
bak: B6 cm
Ledur á slitflötum
||| TM - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 - Sími 568 6822
- œvintýri likust
VW Polo 1400, 3 d„ skr. 01 '99, vínr.,
ek. 5 þ. km, bsk. V. 1.060 þ.
MMC L-300 4x4 2400Í minibus, árg.
1993, beige, ek. 85 þ. km, bsk., 8
m. V. 1.150. þ.
Subaru Legacy 4x4 2000, 5 d„ skr. 02
'99, hvítur, ek. 18 þ. km, ssk„ álf„
spoil., CD o.fl. V. 2.150 þ.
VW Golf 1600 Comfort, 5 d„ skr. 09
‘98, silfurl., ek. 25 þ. km, bsk„ 16“ álf„
aukadekk. V. 1.460 þ. Ath. 100% lán.
Merc. Benz 420E, árg. 1992, grár, ek.
141 þ. km, ssk„ álf„ sóll., leður, 290
ha. o.fl. o.fl. V. Tilboð.
MIKIÐ OG GOTT URVAL BILA A SKRA
OG Á STAÐNUMVANTAR TJALDVAGNA
OG FELLIHÝSI - MIKIL EFTIRSPURN
OPH) VIRKA DAGA FRA KL.10-12 OG 13-18
LAUGARDAGA FRÁ KL.13-16.
B I L A S A L A
Tryggvabraut 14, 600 Akureyri
461 3020-461 3019
Suzuki Sidekick sport 4x4 1800, árg.
1996, blár, ek. 28. þ. míl„ ssk„ álf„
a/c , ABS, o.fl. V. 1.450 þ.
MMC Pajero 2800 DTI, 5 d„ árg.
1998, beige, ek. 45 þ. km, ssk.
V. 2.850 þ.