Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Blaðsíða 10
26
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 113 "V"
Peugeot 306
Peugeot 306 er þægilegur bíll af þægilegri stærð, hvort sem hann er ætl-
aður fremur til ferðalaga eða þéttbýlissnúninga. Hann er um margt líkur
gamla 405 sem margir þekktu af góðu. 306 er með gott virkt öryggi og er
ágætlega búinn. Hann er þokkalega rúmgóður fyrir ökumann og farþega og
langbak-
urinn sér
í lagi er
með mikið
og gott
farangurs-
rými.
Honda
Civic
Honda hefur oftast
smíðað fallega bíla og
er Civic engin undan-
tekning þar á. Þeir eru
í boði 3-5 dyra með 1,4
til 1,6 lítra vélum. Sú
þeirra sem hefur komið
einna best úr er 1,5
lítra vélin sem þykir
sameina kraft og spar-
semi. Þar er hún með hinum þekkta VTEC-búnaði sem stjómar opnun ventl-
anna og minnkar eða eykur eftir álagi. Allir eru bílarnir byggðir á sama
undirvagni, með sömu sportlegu fjööruninni. Fimm dyra billinn er fram-
leiddur í Bretlandi en hinar útgáfurnar koma frá Japan.
CC NCEPT
Bón- og Mieð
bílahreinsivörur Ö2? ISLAKK HF«
UIIUIIICIM9IVUIUI " cpruprú.m mpfS hnnvnmr
Nýbýlavegi 10 Kópavogi
Sínd 554 2510
Tjónaviðgerðir d
öllum tegundum bíla
Útvegum btlaleigubtla á
tneðan viðgerð stendur yfir
Erum við hliðina á Toyota umboðinu
Skoda
Octavia
Octavia er fyrsti Skódinn sem ber
meiri þýskan keim en tékkneskan.
Segja má að hann sé þýskur bíll á
tékknesku verði. Hann hefur prýði-
lega aksturseiginleika og virðist vel
gerður og er ágætlega rúmgóður.
Hann er til sem stallbakur og lang-
bakur og um þessar mundir er hann
að koma með sjálfskiptingu sem
ætti að falla vel í kramið hjá sjálf-
skiptingarhungruðum íslenskum
bilamarkaði.
Verð
1.300.000 -
1.399.000
1.335.000 Kia Shuma
1.337.000 Skoda Octavia
1.349.000 Peugeot 306
1.358.000 Daewoo Nubira
1.358.000 Renault Mégane
1.360.000 Fiat Bravo/Brava
1.369.000 Toyota Corolla
1.380.000 Renault Kangoo
1.395.000 Honda Civic
1.395.000 Hyundai Elantra
1.395.000 Mazda 323
1.395.000 Mitsubishi Space Star
1.395.000 Volkswagen Golf
Daewoo
Nubira
Nubira kom á síðasta ári með
endurhönnun sem kom þessum fjöl-
hæfa heimilisbíl að flestu leyti til
góða: Nýr framendi, endurbættur
afturendi, og breytt afturfjöðrun jók
rásfestu bílsins til muna og gerði
hann þægilegri ferðabíl. Þá voru
sætin endurbætt og mælaborðið.
Nubira er með allan hefðbundinn
búnað og núna siðustu mánuðina
hafa margir glaðst t.d. yfír hituðum
útispeglum - þeir hafa sannarlega
komið sér vel!
við af Renault
19 sem að
mörgu leyti
var upphaf
nýrra og betri
vinnubragða
hjá Renault.
Mégane var ár
eftir ár mest
seldi innflutti
bíllinn í
Þýskalandi
sem segir
nokkra sögu
því Þjóðverjar
eru vandlátir á bíla. Mégane er fáanlegur allt frá tveggja hurða kúpubak upp
í hefðbundinn langbak. Bílarnir eru þekktir fyrir gott óvirkt öryggi og hag-
kvæman rekstur.
Renault Mégane
Mégane tók
á sínum tíma
Fiat Bravo/Brava
Bravo/Brava eru snotrir bílar í Golf/Corolla-flokknum og tæknilega séð
sami bíllinn; helsti munurinn er sá að Bravo er tveggja dyra en Brava fjög-
urra. Þessir bílar hafa verið rómaðir fyrir gott innanrými, einkum Brava,
en heldur þykir skorta á rými í aftursæti í Bravo. Þeir eru vel búnir, með
fjóra líknarbelgi og læsivarðar bremsur og eru skemmtilegir í akstri.
Toyota Corolla
^ Corolluna
þarf ekki að
kynna, svo vin-
sæll hefur
þessi bíll verið
á íslandi. Hún
fæst nú stærri
og betur búin
en nokkru
sinni áður. Ný-
lega fékk hún
andlitslyft-
ingu, sérstak-
lega að fram-
an, og hún er
með hinni
skemmtilegu VVTi-vél. 1 vél sem er með WTi-búnað stjómar vélartölvan
opnunartíma innsogventlanna eftir ytri aðstæðum, eins og til dæmis snún-
ingshraða og eldsneytisinngjöf. Með því eykst tog á minni snúningshraða
og eldsneytisnýtni eykst en útblástursmengun minnkar. Corolla hefur löng-
um verið vinsæl sem hlaðbakur en er einnig fáanleg sem stallbakur og lang-
bakur.
Renault Kangoo
I sendibílsútgáfu er þetta mest seldi bíllinn á íslandi í sínum stærðar-
flokki. í fólksbílsútfærslu er hann líka hagkvæmur um marga hluti. Öku-
maður og farþegar sitja hátt og vel og það er þægilegt að stíga út og inn. Nú
er hann fáanlegur með rennihurðir á báðum hliðum sem eykur enn á nota-
gildi hans og fjölnýtanlega umgengniseiginleika.
IpnsJS&fcV-v ■ ' v |
1 ”‘i r ■ * | , jyy. ]
Í ’ ^ í ' ? :
►T'' -j
ATHUGUN hf
BÍLASKOÐUN
Aðalskoðanir
Ástandsskoðanir
Breytingaskoðanir
Nýskráningar
Klettagörðum 11 • 104 Reykjavík • Sími 588 6660
Fax 588 6663