Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Blaðsíða 37
JLP"V MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 ! Honda Honda Legend, flagg- skipið í Hondullotan- um, er stílhreinn og fal- legur bill. Fyrir árið 1999 var útliti fram- og afturenda bílsins breytt lítillega. Húddi, grilli, skottloki, Ijósum og stuðurum hefur verið breytt til að gefa bíln- um ferskari andblæ, án þess þó að hann missi sígildan svip sinn. Titringur og veghljóð hefur verið minnkað enn frekar með betri hljóðeinangrun og stífari bitum. Meira að segja þurrkublöðin hafa verið endurhönnuð til að gera rúðuþurrkurnar hljóðlátari. Vélin er úr áli og ein léttasta V-6 vél sem framleidd er. Sjálfskipt- ingin er Grade Logic-skipting og á henni er hægt að skipta milli sport- stillingar og venjulegrar stillingar. Mercedes Benz CLK Þetta er að margra dómi einn glæsilegasti bill sem völ er á. Honum var að verulegu leyti breytt með árgerð 2000, bæði utan og innan. Þessir bílar hafa fengið orð fyrir gott innanrými, skemmtilega aksturseiginleika og sér- staklega fyrir stöðugleika í beygjum. Þeir hafa stinna fjöðrun en ekki hasta og svo er hægt að fá þá nánast með þeim búnaði sem hugurinn helst kann að gimast. Legend Ford Explorer Ford Explorer tók í raun við af Bronco II jeppan- um sem naut vin- sælda hérlendis á árunum milli 1980 og 1990. Hann er stærri og fjögurra dyra og í raun rúmgóður og hljóð- látur lúxus-jeppi. Hann er boðinn hér í svokallaðri Executive-útgáfu sem þýðir að hann er mjög vel búinn, með skriðstilli og sóllúgu, svo nokkuð sé nefnt. Mercedes Benz SLK SLK-sportbíllinn er nú kominn með andlitslyftingu sem meðal annar felst í samlitum stuðurum, nýrri vindskeið og aukastefnuljósum í hliðarspeglum, svo eitthvað sé nefnt. Þessi rennilegi bíll er hlaðinn búnaði eins og ESP- stöðugleikastýringu, öryggispúðum á alla kanta og nú fæst hann með nýjum 4 strokka „Kompressor“-vélum, auk nýrrar 6 strokka vélar. Sex gíra sjálf- skiptingin er með Speedtronic sem gerir ökumanninum kleift að handskipta án kúplingar eins og um beinskiptan bíl væri að ræða sem er góöur kostur í sportbíl. Hægt er að fá hann sem blæjubíl og þá einnig með plasthúsi sem smellt er ofan á hann með örfáum handtökum. Mercedes Benz ML Iveco Daily Turbo Iveco Daily Turbo er í raun gamal- kunnur bíll hér á landi, ekki síst hjá björgunarsveitun- um. Þessi 9 manna bíll er kannski fyrst og fremst framleidd- ur einmitt sem tor- færutæki en þar fyr- ir utan er auðvelt að breyta honum og setja undir hann stór hjól. Hann hef- ur öfluga niðurgírun og þó hann sé ágætlega þægilegur á bundnu slitlagi nýtur hann sín hvað best þegar landslagið gerist úflð. Þessi skemmtilegi jeppi var ný- lega kosinn „Bíll heimsins" af dóm- nefnd 22 bílablaðamanna á bílasýn- ingunni í Genf. Verðlaunin eru veitt þeim bíl sem best er fallinn til akst- urs í öllum heimsálfunum, nema á Suðurskautslandinu, og er óhætt að segja að þessi bíll hæfi vel íslensk- um aöstæðum. Bíllinn hefur verið á markaðinum síðan 1997 í Norður- Ameríku og varð strax vinsæll þar sem annars staðar. Hægt er að fá hann í nokkrum útgáfum, bæði með bensín- og dísilvélum, og þykir nýja 5 strokka dísilvélin í honum sérlega vel heppnuð. Kaupendur geta valið um sex gira beinskiptingu eða sjálf- skiptingu með valskiptingu og hægt er að bæta við einni sætaröð í við- bót og verður hann þá sjö manna. Lexus GS300 GS300 er Qölskyldu- bíllinn frá Lexus enda er mikið lagt upp úr öryggi í þessum glæsi- lega bil. Fyrir utan spólvörn og hemlalæsi- vöm er hann búinn skrikvörn sem gerir ökumanni kleift að ráða við hann við erfið- ustu aðstæður. Stýrið er hraðanæmt og allir speglar eru með endur- kastsvöm sem kemur í veg fyrir að sterk ljós endurkastist í augu öku- manns. Hann er einnig vel búinn eins og lúxusbílar eiga að vera, er til dæm- is með tvöfalda miðstöð fyrir báðar hliðar bílsins og geislaspilara með ðm* diska magasíni. Hann er með sömu þriggja lítra vélinni og RX sem skilar 220 hestöflum. Porsche Boxster Boxster-nafnið er samsett úr tveimur nöfnum, boxer, eins og vélin sem er í bílnum, og roadster sem stendur fyr- ir tveggja sæta blæjubíl. Boxster hefur verið í framleiðslu síðan 1996 og aukast vinsældir hans ár frá ári og jókst sal- an á honum í fyrra um 18,5%, í 18.817 bíla. Hann er með 2,5 1 vatnskældri vél, 204 hestöfl við 6.200 snúninga.og er afturhjóladrifinn með 5 gíra beinskiptingu eða 5 gíra Tiptronic S sjálfskiptingu. Hægt er að velja um þrjár mis- munandi útfærslur, klassísku, tísku-, eða sportútgáfuna. Einnig er hægt að fá áltopp með bílnum. Velahlutir BRAUTARHOLTI 16 • Q 562 2104 Fax 562 2118 • e-mail: kislufell@isholf. Viðurkenndir (original) vélahlutir á góðu verði m i na gapidiii ii I 11 m m II Albarkar. Bensfndælur. Bensínlok. Bensínslöngur. Hjólalegur. Hosuklemmur. Kúpllngar, Kúpllngsbarkar og undirvagnsgormar. Rafmagnsvarahlutir. Topa vökvafleygar vigtabúnaður. Timareimar. Vatnshosur og strekkjarar. Þurrkublöð. varahlutir ...í miklu úrvali Þjónustumfðstöð borgarinnap BRÆÐURNIRI Lágmúla 9 • Sími: 530 2800 • Fax: 530 2820 BOSCH verkstæðið aðkeyrsla frá Háaleitisbraut

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.