Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Blaðsíða 25
DV MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
41
Áhrif breytinga á vörugjaldi:
Honda lækkar um
tæpar tvær milljónir
Breytingar þær á vörugjaldsflokk-
um sem samþykktar voru á Alþingi í
síðustu viku hafa leitt til ýmiss konar
breytinga og lagfæringa á verði bíla
almennt. Fyrir utan það sem breyttir
vörugjaldsflokkar kalla á hafa umboð-
in, að minnsta kosti sum hver, notað
tækifærið til ákveðinna innanhússtil-
tiltekta hjá sjálfum sér og fært bílverð
til, óháð breyttu vörugjaldi. Sumpart
er þetta gert til þess að halda skyn-
samlegu verðbili milli útfærslna eða
einfaldlega til að halda bílum sínum i
svipaðri röð innan viðkomandi fiokka
- stöku tilvikum jafnvel gera þá að-
eins meira aðlaðandi innan flokk-
anna. Enn bætist hér við að um leið
og vörugjaldsbreytingin gekk yfir náð-
ust í sumum tilvikum breytingar á
verði frá framleiðanda, sem flestar
sem DV-bílar hafa frétt af voru til
lækkunar.
í stórum dráttum má segja að breyt-
ing innan flokkanna sé þannig:
Smábílar: óbreytt verð
Minni millistærð: óbreytt verð
Millistærð: 100-150 þúsund króna
lækkun.
Stórir fólksbílar: 50-200 þúsund
króna lækkun.
Lúxus- og sportbílar: algeng lækk-
un um 500 þúsund krónur.
Jepplingar: 100-150 þúsund króna
lækkun.
Jeppar: 700 þúsund króna lækkun
til 100 þúsund króna hækkun.
Skúffubílar: óbreytt verð.
Það sem helst vekur athygli í þess-
ari grófu flokkun eru verðbreyting-
arnar í jeppaflokki. Almenna reglan
er sú að miðlungsjeppar, þeir sem al-
menningur hefur helst getað veitt sér,
hækka í verði. Undantekningarnar
eru þó Suzuki Grand Vitara 2,0 sem
lækkar um 100 þúsund krónur og þó
sérstaklega Mitsubishi Pajero 3,0 sem
lækkar um heilar 475 þúsund krónur.
Galloper stendur í stað.
Metverðlækkun liggur þó í lúxus-
og sportbílaflokknum þar sem Honda
Legend lækkar um nærri tvær millj-
ónir króna. Fyrir breytingu kostaði
Honda Legend 5.475.000 en kostar eftir
breytingu 3.590.000 krónur! Það er
lækkun um 1.885.000 krónur - eða sem
svarar góðum fólksbil í fullri stærð.
Mönnum ber ekki saman um hvaða
áhrif vörugjaldsbreytingin muni hafa
á notaða bíla. Flestir eru þó á því að
þau verði óveruleg, nema í dýrasta
flokknum: þeim bílum sem hafa verið
í 65% vörugjaldi.
-SHH
Hver selur hvað?
Bifreiðar og landbúnaðarvélar
Grjóthálsi 1
575 1200
BMW, Hyundai, Renault, Rover
Bílabúð Benna
Vagnhöfða 23
587 0587
Daewoo, Porsche
Bílheimar
Sævarhöfða 2a
525 9000
Opel, Isuzu
Brimborg hf.
Bíldshöfða
515 7000
Daihatsu, Ford, Volvo
GMÞ
Fosshálsi 27
587 4444
Hummer
Hekla
Laugavegi 170-172
569 5500
Audi, Hyundai Galloper,
Mitsubishi, Skoda, Volkswagen
Honda á íslandi
Vatnagörðum 24
520 1100
Honda, Peugeot
Kia-umboðið
Flatahrauni 31
565 1725
Kia
Ingvar Helgason hf.
Sævarhöfða 2
525 8000
Nissan, Subaru
ístraktor
Smiðsbúð 2
5 400 800
Alfa Romeo, Ferrari, Fiat, Lancia,
Iveco
P. Samúelsson, Toyota
Nýbýlavegi 4-8
563 4400
Toyota, Lexus
Ræsir
Skúlagötu 59
540 5400
Mazda, Mercedes Benz, Chrysler,
Jeep
Suzuki-bílar
Skeifunni 17
568 5100
Suzuki
Allt bílaframboð-
ið á 6 síðum
Eins og undanfarin ár kynnir
DV nú þá fólksbíla og jeppa, sem
vitað er að verða í boði á árinu,
í einni samfelldri töflu með
helstu tæknilegum upplýsing-
um.
Lesendum er bent á að klippa
þessar síður úr blaðinu og
geyma til síðari nota. Það getur
komið sér vel þegar kemur að
bílakaupum sem ef til vill liggja
ekki fyrir einmitt núna.
Að þessu sinni kom vöru-
gjaldsbreyting til skjalanna með-
an þetta blað var í vinnslu,
þannig að verð breyttist eftir aö
umboðin höfðu gefíð það upp.
Það varð til þess að ákveðið var
að sýna í töflunni verðið eins og
það var fyrir breytingu og siðan
eins og það er.
Allt tilgreint verð er lægsta
verð hverrar bíltegundar.
í nokkrum tilvikum er nýtt
verð gefið upp með fyrirvara og
er það merkt með stjörnu.
Eins og gefur að skilja var
skammur tími til aö koma nýju
verði til skila inn í þetta blað, en
á þessari stundu er ekki vitað
annað en þar sé allt eins og það
á að vera. Rétt er þó að minna á
að þrátt fyrir alla miðlunar-
tækni nútímans hefur prent-
villupúkinn ekki verið jarðsett-
ur enn.
Aflt verð er hér gefið upp í
þúsundum króna. Fáeinir Ford-
bílar eru samkvæmt verðskrá
með verð sem ekki stendur á
heilu þúsundi. í þeim tilvikum
eru þeir gefnir upp í næsta þús-
undi fyrir neðan.
Allar upplýsingar eru eins og
þær koma beint frá viðkomandi
umboðum. Nokkuð hefur borið á
undanfarin ár að ósamræmi
væri milli reiknaðra hestafla,
eftir því hvar bílarnir eru fram-
leiddir. Hér er einnig gefln upp
kílóvattatala vélanna og þeim
sem vilja samræma hestöílin
DIN-staðlinum, sem algengastur
er, er bent á að margfalda kíló-
vöttin með 1,36. Það ætti að gefa
sambærilegar hestaflatölur.
Helstu skammstafanir sem
notaðar eru í töflunni eru til-
greindar neðst á hverri síðu.
Eins og sjá má af töflunni er
hún að vissu marki dregin sam-
an, þannig að ekki er sér lína
fyrir mismunandi útfærslur ef
vélarorka og ytri mál eru hin
sömu. Þannig sést í dálkinum
„gírar“ hvort bíllinn er boðinn
með sjálfskiptingu eða aðeins
handskiptingu. Þar skilur ská-
strik milli gírafjölda þannig að
handskiptur kassi er fyrir fram-
an strik en sjálfskiptur fyrir aft-
an. 5/4 í þeim dálki þýðir þannig
að bíllinn er fáanlegur með 5
gíra handskiptingu eða 4 gíra
sjálfskiptingu eftir vali.
Á sama hátt segir dálkurinn
„drifhjól“ til um það hvort bíll-
inn er aðeins með eindrifl, með
aldrifi eða val þar á milli.
Stafirnir f eða a þýða þá að bíll-
inn sé framhjóladrifinn eða aft-
urhjóladrifinn. 4x4 þýöir að
hann sé með aldrif, f/4x4 táknar
að hægt sé að velja hvort hann
er keyptur framhjóladrifinn eða
með aldrifí.
AUKAHLUTIR FYRIR BILA
ALLT FYRIR KEPPNISMANNINN.
á
k' (
\
EITT MESTA AUKAHLUTAURVAL
LANDSINS FYRIR GÖTUBÍLA.
ZIP-KART GO-KART BÍLAR,
ÞRÓAÐIR í SAMVINNU VIÐ McLAREN.
Zip kart
c , 0MP
Felgur
ireen cotton
-Oftsíur Allt fyrir
keppnismannmn
Breytinga-kitt
Spoilerarpú t
Tangarhöfði 8 - 12 / Sími 587 5544
www.ag-car.is
aukahlutaverslun fyrir alla!