Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Blaðsíða 18
34
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 33 "V
Fiat Marea
Marea frá Fiat er hvað vélbúnað snertir sams konar og Bravo/Brava-bil-
arnir frá Fiat en stærri um sig og enn þá rúmbetri. Hér á landi hefur það
einkum verið langbakurinn - kallaður Weekend - sem fallið hefur kaupend-
um í geð. Helstu kostir eru góður búnaður, gott innanrými og góðir akst-
urseiginleikar.
Subaru Impreza
Þessi skemmti-
legi bíll, sem meðal
annars hefur unnið
til íjölda verðlauna
í heimsmeistara-
keppninni i ralli,
er í boði í mörgum
útfærslum og vél-
arstærðum. Allar
nema þær minnstu
eru svokallaðar
„boxer“-vélar þar
sem strokkarnir
liggja 180° hver frá öðrum. Vélarnar eru frá 1,6 lítra, 95 hestafla, upp í 2,2
lítra 280 rokk með túrbínu. 2,0 túrbó-útgáfa hans þykir sérlega skemmtileg-
ur akstursbíll og er rallbUlinn byggður á honum. Sá skýst upp í hundraðið
á 6,3 sekúndum. Hægt er að fá hann bæði sem stallbak og langbak.
Toyota Avensis
Þessi vinsæli fjölskyldubíll tók við af Carina-bílnum frá Toyota. Hann er
í boði í tveimur útgáfum, Sol og Terra, og er með 110 og 120 hestafla vélum
og fjögurra þrepa sjálfskiptingu. I henni er rafeindabúnaður sem samhæfir
eins vel og kost-
ur er afköst og
hagkvæma elds-
neytisnotkun. I
Avensis er lögð
áhersla á að hafa
í boði mikið af
aukahlutum til
að kaupendur
geti lagað bílinn
að eigin smekk.
Hægt er að fá
hann sem stall-
bak, hlaðbak eða
langbak.
Alfa Romeo 145/146
Þessi snaggaralega Alfa í Golf-stærðarflokki, eins og Þjóðverjar kalla
þessa stærð bíla, hefur nú fengið andlitslyftingu og er enn snotrari en áður.
Sá með lægri töluna er tveggja hurða bíll en með þá hærri fjögurra hurða.
Aksturseiginleikar
eru afar skemmti-
legir og bíllinn
frísklegur og ekki
spillir fyrir að bill-
inn er afar vel bú-
inn, með læsivarðar
bremsur og fjóra
líknarbelgi, svo
nokkuð sé nefnt.
Bílnum er auk þess
talið það til tekna
að vera rúmgóður
og þægilegur í um-
gengni.
Daihatsu Terios
Daihatsu Terios er einn minnsti jepplingurinn er á honum sannast að
margur er knár þó hann sé smár - í vetur hafa þeir sem notað hafa Terios
komist að því að hann stenst mörgum stærri jepplingunum snúning í ófærð-
inni. Þó Terios virki ekki stór - og sé ekki stór - er þó furðumikið farang-
ursrými í honum og vandalaust að nota hann til margvíslegra ferðalaga,
lengri sem styttri.
Kia Clarus
Kia Clarus er laglegur millistór langbakur frá Kóreu. Clarus er vel búinn
bíll og flest rafstýrt sem hægt er. Hann er með allan helsta öryggisbúnað
eins og nú er títt og þokkalega rúmgóður bíll. í umsögn í DV-bílum frá því
í haust segir að bíllinn virki frekar þunglamalegur til að byrja með en vinni
fljótt á. Hann er sagður þýður og fara vel með ökumann og farþega.
Verð
1.500.000 -
1.699.000
1.530.000 Alfa Romeo 145-6
1.540.000 Daihatsu Terios
1.542.000 Subaru Impreza
1.589.000 Peugeot 406
1.590.000 Kia Clarus
1.615.000 Nissan Primera
1.620.000 Volkswagen Bora
1.630.000 Fiat Multipla
1.639.000 Toyota Avensis
1.660.000 Opel Vectra
1.678.000 Renault Laguna
1.690.000 Honda HR-V
1.690.000 Volkswagen Passat
1.695.000 Mercedes Benz A
CC NCEPT
Bón- og */ieð
bílahreinsivörur 9»#SBS? |£LAKK HF.
Nissan Primera
Þegar önnur kynslóð Nissan Primera kom á markaðinn haustið 1996 var
áberandi hve mikið hafði verið lagt upp úr því að laga hljóðeinangrum bíls-
ins og auka rýmið í aftursæti. Eftir þá breytingu er Prim-eran þægilegur bíll
til flestra hluta
og hinn snotr-
asti hvort sem
hann er skoðað-
ur innan eða
utan. Hann nýt-
ur þess einnig að
vera á tiltölulega
góðu verði mið-
að við flesta
keppinauta í
svipuðum stærð-
arflokki.
^jarstýðu^
Þjófavarnarkerfi
Bíltækjaísetningar
Fjarstart
Bílarafmagn
Fjarskiptabúnaður
°skr. 24.50° '
o.h.m s.f.
Auðbrekku 1
200 Kópavogur
Sími 565 2500
Fax 565 9600
Við erum fluttir í nýtt og glæsilegt húsnæði að Auðbrekku 1 Kóp.
Volkswagen
Bora
Þó þetta sé áþekkur bíll og Golf
og gerður á sömu grunnplötu er
hann þó hannaður að öllu leyti sem
sjálfstæður bíll með skotti - ekki
bara Golf með farangurskassa aftan
á. Hann fer ágætlega á vegi og er vel
búinn hvort heldur snýr að þægind-
um eða öryggi, virku sem óvirku.
Fiat
Multipla
Multipla er einhver djarfasta
hönnun sem lengi hefur sést á bíl og
flestir þekkja núorðið framendann
sem er sérkennilegur og, að sumum
finnst, ljótur. En þessi tæplega fjög-
urra metra langi fjölnotabíll er með
fullgild sæti fyrir 6 manns og þokka-
legt farangursrými þar fyrir aftan -
innanrými i heild ótrúlega mikið.
Þar við bætist að það er gaman að
aka honum, ekkert síður í langferð-
um heldur en í snattinu innanbæj-
ar.
Peugeot
406
406 tók við af gamla 405 og er lít-
illega stærri en hann og rúmbetri,
enda fær hann orð fyrir sérlega gott
innanrými. Hann er til sem stall-
bakur eða langbakur en í hvorri út-
fiærslunni sem er hefur hann einnig
gott farangursrými. Peugeot 406 er
ágætlega búinn bíll og ánægjulegur
til lengri eða skemmri ferða - jafn-
vel þó vegir séu kannski ekki alveg
nýheflaðir.
Smáauglýsingar
□15
5505000