Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Blaðsíða 14
30 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 3Z>”V Nýr og betri smáauglýsinga- vefur á vísir.is o ww.visir.is 0 „Smáaugl DV“ ©Þú. velur þann smáauglýsinga- flokk sem þú vilt skoða... Smáauglýsingar DV áVísi.is: o ...eða slærð inn leitarorð. 6 Þú lest auglýsing- amar, skoðar myndir þar sem það á við og getur svarað með því að smella á einn hnapp. O Þú getur líka sent smáauglýsingu til vina þinna... DV Bílar, bátar, hjólhýsi, sumarbústaðir, fyrir veiðimenn, fýrirtæki, útgerðarvörur, tónlist, teppi, bólstrun, antik, málverk, jeppar, lyftarar, dýrahald, sjónvörp, Ijósmyndun, garðyrkja, ræstingar, hreingerningar, þjónusta, bókhald, fjármál, fasteignir, byssur, viðgerðir, vélar - verkfæri, gisting, sveit, sport, heilsa, spákonur, líkamsrækt, tölvur, dulspeki - heiiun, hljómtæki, teppi, parket, húsgögn, mótorhjól, fjórhjól, vetrarvörur, flug, kerrur, einkamál, fundir, gefins, þjónusta, skemmtanir, tapað - fundið, matsölustaðir, fatnaður, bækur, hár og snyrting, fornbílar, óskast keypt, heildsala, verslun, húsnæði óskast, barnavörur, útgerðarvörur, nudd, o ...eða pantað birtingu á þinni eigin auglýsingu. piías 1 ®S3L 52=5!£ Zmsz&gf!!^ tðmsiundjr Þfónustt sem birtist líka í DV. te j Issí i§g|ÉM§É?i Sími 550 5000 Nýtt fyrir- komulag ökuskóla - ný námskrá breytir miklu í ökukennslunni Ökuskólinn í Mjódd hóf starfsemi sína í maí 1968, um svipað leyti og breytt var yfir í hægri umferð á ís- landi. Námskeiðin voru fyrir þá sem voru að taka ökupróf í fyrsta sinn, þ.e. almennt bifreiðastjóra- próf, sem heitir B-réttindi í dag og voru tvær til þrjár kennslustundir. Ökuskólinn hét þá Fræðslumiðstöð Ökukennarafélags íslands, en seinna þegar flutt var í Mjóddina breyttist nafnið í Ökuskólinn í Mjódd. Ökuskólinn hefur í gegnum árin haldið fræðilegt námskeið fyrir flesta flokka ökuréttinda. Það má segja að námskeið fyrir ökunema B- réttinda hafa verið haldin nánast vikulega þessi rúmlega þrjátíu ár. Tvískipt nám Með útgáfu reglugerðar í ágúst 1997 var skylda að ökunemar sæktu nám í ökuskóla fyrir B-réttindi, en kom ekki til framkvæmda fyrr en 1. febrúar s.l. með útgáfu námskrár fyrir þennan réttindaflokk. Allir þeir sem ætla að taka ökupróf fyrir B-réttindi eru nú skyldugir að sækja fræðilegt, 24 kennslustunda nám (lágmark) í ökuskóla. Náminu er skipt í tvo hluta sem heita Ö1 og Ö2. Fyrri hlutanum, Öl, er ætlað að sé lokið fyrir æfingaakstur og seinni hlutinn, Ö2, er undirbúning- ur fyrir lokaprófm hjá Ökunáms- deild Umferðarráðs. Þetta fyrir- komulag eru líka aðrir ökuskólar að taka upp. Samkvæmt námskrá get- ur námið gengið þannig að í fyrri hlutanum, Öl, fer nemandinn i öku- skólann eitt kvöld í fyrstu viku, sið- an annað kvöld í næstu viku og síð- an þriðja kvöld í þriðju viku. Á milli námsins í ökuskóla fara fram verklegir ökutímar hjá ökukennara. Þetta fyrirkomulag hefur verið nefnt samþætting. Sama fyrirkomu- lag er í seinni hlutanum, Ö2. Einnig geta báðir hlutar námsins verið teknir á styttri tíma, en það er í höndum ökukennara og nemanda hver námshraðinn er. Ökunámsbók Þá er nýmæli að nota skal öku- námsbók. í bókina er skráð fram- ganga námsins. Ökuskóli staðfestir í bókina mætingu nemans í skólann og einnig er gátlisti, bæði fyrir fræðilega og verklega hluta náms- ins. Verklega hlutann í gátlistanum staðfesta bæði ökukennari og nem- andinn. Námskeið til aukinna öku- réttinda hafa verið haldin í Öku- skólanum í Mjódd síðan 1993. Stundaskráin er þannig byggð upp, að nemandinn getur byrjað nám í hverri viku sem hann kýs á skóla- önninni. Kennt er á hverju kvöldi, virka daga 4-5 kennslustundir og einnig er kennt tvo laugardaga. Námskeið til aukinna ökuréttinda eru haldin frá því um miðjan ágúst fram í júní. Sjö einföld öryggisatriði • Sittu ekki of nærri stýrinu. • Stilltu höfuðpúðana rétt - efri brún þeirra á að vera sem næst í hvirfilhæð þess sem situr í sæt- inu. • Minnkaðu bilið milli höfuðs og höfuðpúða með því að halla sætis- bakinu aðeins mátulega. • Gættu að þvi að ekkert hindri rennsli bílbeltisins og að það sé al- mennilega spennt. Sé hægt að stilla hæð efri festingar bílbeltis- ins er best að stilla hana sem hæst. Það er betra að beltið liggi nær hálsinum heldur en langt úti á öxl. • Haltu góðu bili milli bíla. • Lestaðu bílinn rétt og reyndu að vera ekki með lausan farangur. í öllum bilum sem eru með þannig aftursæti að hægt sé að leggja aft- ursætisbakið niður er öruggast að ýta farangrinum alveg fram að því. Spenntu bílbeltin í aftursæt- inu þó enginn farþegi sé í því. Það dregur úr líkum á því að sætis- bakið skellist fram og farangurinn fyrir aftan það komi fljúgandi fram í bílinn við árekstur. • Fylgstu vel með umferðinni fyr- ir aftan þig í bakspeglinum og útispeglunum. Ef þú sérð fram á að ekið verði aftan á bílinn þinn skaltu leggja höfuðið upp að höf- uðpúðanum og gæta þess að horfa beint fram. Ef höfuðið veit til ann- arrar hvorrar hliðarinnar þegar aftan-ákeyrsla verður stóreykur það líkurnar á hálshnykk. - Heimild: Folksam Viltu aka eins og auli? - lengi er hægt að gera vont ökulag verra Ef þú ert kona er gott ráð að greiða sér og laga andlitsfarðann meðan beð- ið er á rauðu ljósi. Allt í lagi þó að komi grænt ljós á meðan. Það kemur bráðum aftur rautt ljós. Stilltu sætið þannig að þeir sem aka á eftir þér sjái ekki nema í mesta lagi hvirfilinn á þér og hnúana um stýrið. Ef þú ert karlmaður skaltu líta í blað þegar þú kemur að rauðu ljósi eða skoða plögg i möppunni þinni. Þú ert svo snöggur þegar þú sérð að græna ljósið er komið að þú nærð að komast yfir áður en aftur kemur rautt. Þú getur líka alltaf treyst á að einhver flautar ef þú lest langt fram á græna ljósið. Snarhægðu á þér ef þú sérð annan bíl smeygja sér inn á þína akrein fyr- ir aftan þig. Því nær sem bíllinn er því harkalegar skaltu bremsa. Ef þú þarft að spyrja næsta vegfar- anda til vegar skaltu bíða með að gera það þangað til þú hefur bíl á eftir þér sem neyðist til að stansa líka. Reyndu að velja níræðan staðarbúa, heyrnar- lausa manneskju, útlending eða lítið barn til að vísa þér veginn. Gættu þess að fara ekki undir nein- um kringumstæðum yfir miðlímma þegar þú ferð fram úr hjólreiðamanni, jafnvel þótt þú sért á beinum og breið- um vegi og engin umferð á móti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.