Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Síða 13
JO’W MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 ■ {M 29 Bílbeltíð er mikilvægasta öiyggistækið Styrktarbitar Líknarbelgur í huröum Kipplbelti Bílbeltið er mikilvægasta öryggis- tækið í bílnum þegar um er að ræða óvirkt (áreksturs-) öryggi yfirleitt. Þetta er niðurstaða sænska trygginga- félagsins Folksam sem um árabil hef- ur haldið uppi kerflsbundnum rann- sóknum á óvirku öryggi bíla og bún- aði þeirra og fer þá eftir þeim slysum sem raunverulega verða. Spumingar Folksam eru þessar: Hvemig vemda hinar mismunandi tegundir bíla og búnaðar fólkið þegar raunverulega kemur til kastanna? Þeir sem sitja með bílbeltin spennt þegar óhapp verður minnka með því líkurnar á að slasast um helming - 50%. Næstmest slysavörn felst í líkn- arbelg í stýri - líknarbelg ökmanns. Hann bætir 20% við það öryggi sem bílbeltið gefur. Ökumaður sem situr rétt og er með bílbeltið spennt í bíl meö liknarbelg í stýri er þannig býsna vel settur hvað áverkalíkur snertir ef til óhapps kemur. Rétt er að taka fram að þrátt fyrir þessar varúðarráðstafanir er í sjálfu sér ekkert ólíklegt að ökumaðurinn slasist - beinbrotni og annað slikt. En beltið og líknarbelgurinn vemda fyrst og fremst efri hluta líkamans og höf- uðið; þá parta líkamans þar sem mest- ar líkur eru á alvarlegum meiðslum með langvarandi eftirköstum. Líknarbelgur fyrir framan fram- sætisfarþega bætir 5-10% við það ör- yggi sem framsætisfarþeginn hefur af spenntu bílbelti. Höfuðpúðar, hvar sem em í bílnum, gefa einnig 5-10% viðbótaröryggi og sama er að segja um kippibelti. Með kippibeltum er átt við bílbelti sem snöggherða á sér við ákveðið högg og draga þar með úr því að líkaminn kastist eins mikið fram við höggið og ella hefði orðið. Flest kippibelti nú til dags eru einnig með átaksjafnara sem virkar þannig að þegar átak líkamans í kippibeltinu nær vissu hámarki gefur beltið að vissu marki eftir. Með þessu næst há- marksgagn af bílbeltinu með minnst- um líkum á því að verða fyrir meiðsl- um undan beltinu sjálfu. Líknarbelgir á hlið bæta ekki ör- yggið nema 5% og sama er að segja um styrktarbita í hurðum. Rétt er að taka fram að þar sem rannsóknir Folksam taka til raunverulegra slysa eiga þær jafnan við gerðir sem eru þriggja ára eða eldri en á sama tíma tekur að minnsta kosti sumt af nefnd- um búnaði framfórum eftir eðlilegri þróun. Það á t.a.m. við um líknarbelgi á hlið og líklega líknargardínur líka. Varasamt er einnig að einblína á þennan nefnda búnað. Gerð bílsins sjálfs skiptir einnig verulegu máli. Krumpusvæði framan og aftan eru til þess gerð að drepa niður þunga höggs við árekstur þannig að þegar kemur að sjálfri káetunni - yfirbyggingunni sem geymir fólkið - hafi þegar dregið verulega úr höggþunganum. Káetan er yfirleitt mjög rammbyggð og svo til ætlast að hún bjagist sjálf sem minnst. Nú til dags er lagt mikið upp úr því að hægt sé að opna hurðir á slysabíl, jafnvel eftir harðan árekstur. Það skiptir verulegu máli þannig að þeir komist út af eigin rammleik sem enn kunna að vera í ásigkomulagi til þess, eða að utanaðkomandi geti komið þeim til hjálpar án þess að þurfa að tilkalla tækjabíl að klippa ílakið utan af fólki sem situr fast i bilum. Sumir eru smeykir við líknarbelg- ina og tilfærð hafa verið dæmi um að þeir hafi valdið dauðaslysmn. Vissu- lega belgjast þeir út við sprengingu og af miklu afli; því verður ekki á móti mælt. En þó einhver slys megi rekja til þeirra munu þau þó einkum eða alltaf hafa orðið af því að fólk hefur ekki setið rétt eða að barnabílstólar hafa verið settir í framsæti móti ráð- leggingum framleiðenda og slysa- vamafólks. Folksam leggur áherslu á að bamabílstólar eigi aldrei að vera í framsæti bíls sem er með virkan líkn- arbelg fyrir framsætisfarþega. í sum- um tilvikum hafa menn heldur ekki verið í bílbelti heldur aðeins treyst á líknarbelginn - og þá er verr af stað farið en heima setið. BObeltið er núm- er eitt - liknarbelgurinn er aðeins meðvirkandi viðbótartæki við það ör- yggisáhald sem bilbeltið er. Fólki er ráðlagt að sitja ekki of framarlega - sem sagt ekki of nærri líknarbelgnum. Ökumenn eru sem næst réttri stellingu ef þeir halda um stýrið „tiu mínútur yfir tíu“, með handleggina léttbeygða um olnboga. Framsætisfarþegar era yfirleitt ekki miklu framar en ökumennimir og eru þar á góðum stað ef þeir sitja eðlilega. Óráðlegt er að sitja mikið út á hlið og fólki er eindregið ráðið frá að hafa fætur uppi á mælaborðinu - þar sem líknarbelgurinn er undir. Það getur endað með ófyrirsjáanlegum ósköp- um. -SHH Tegund Peugeot406 Laguna Avensis Vectra Passat Vélarstærð 1800 16v PEUGE0T406i.sí lækkar um 106.000*. 1600 16v 1600 16v 160016v 1600 8v Hestöfl Ný lög sem samþykkt hafa verið á Alþingi um lækkun vörugjalds valda umtalsverðri verðlækkun á Peugeot 406, sem er bíll með 1800 vél. Fyrir lagabreytinguna var Peugeot 406 í 40% tollaflokki en fer eftir breytinguna í 30% toll. Það þýðir hvorki meira né minna en 106.000 kr. lækkun. Kröftugi glæsibíllinn Peugeot 406 kostar því aðeins frá 1.589.000 kr. ABS Loftpúðar Hnakkapúðar CD Fjarstýrð hljómtæki Hátalarar Þokuljós Lengd Breidd Verð f rá já 2 5 já nei 4 nei 4,60 m 1,77 m 1.589.000 kr. já 4 5 já já 6 já 4,51 m 1,75 m 1.678.000 kr. já 4 5 nei nei 4 nei 4,49 m 1,71 m 1.639.000 kr. já 2 5 nei nei 6 nei 4,49 m 1,71 m 1.660.000 kr. já 4 5 já nei 4 nei 4,67 m 1,74 m 1.690.000 kr. 112 107 110 101 101 Gunnar Bernhard ehf. Vatnagörðum 24 • s. 520 1100 Sýningar og prufubílar eru einnig á eftirtöldum stöðum: Akranes: Bílver s. 431 1985, Akureyri: Bílasala Akureyrar s. 461 2533, Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Brágginn s. 481 1535, Keflavik: Bílavik ehf. s. 421 7800. PEUGEOT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.