Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Page 23
39
f-
JLÞW MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
Mazda B2500
Mazda býður skúffubíla með einu og hálfu húsi eða
tvöföldu, framleidda í sameiginlegri verksmiðju Mazda
og Ford í Taílandi. Þetta eru í raun sömu bílarnir og eins
búnir og munurinn einn hvort merkið þeir fá, Ford eða
Mazda. í báðum tilvikum eru þetta þægilegir bílar og vel
búnir sem standa vel fyrir sínu, hvort sem á að nota þá í
slark eða fara á þeim í leikhúsið.
Opel Tlgra Sport
Þetta er sportbíll eins og nafnið ber meo sér. Hann er
oft auðkenndur sem 2+2 sem þýðir einfaldlega að hann
sé fjögurra manna bíll. Hann er sagður einstaklega
skemmtilegur i akstri og þar að auki fær hann plúsa
fyrir litla eldsneytisnotkun og lágan reksturskostnað al-
mennt. Allnokkurt vélarhljóð er í Tigra en þannig á það
líka að vera þegar sportbílar eru annars vegar - eða
hvað?
Jeep Wrangler
Jeep Wrangler er svo beinn arftaki „gamla, góða“ herjeppans sem orðið
getur þó fyrirtækið hafi skipt nokkrum sinnum um eignarhald síðan þá.
Enn er hann aðeins tveggja hurða (ef hann er ekki bara alveg opinn) og með
heldur óþægilegt tveggja manna sæti aftur i, en í augum margra er þetta
hinn eini
sanni jeppi
enn í dag.
Hann er með
stutt hjólahaf
og mikla
jeppaeigin-
leika — ekki
sist þegar ís-
lenskir jeppa-
völundar hafa
farið um
hann hönd-
um.
BMW 3-Compact
BMW hefur ekki - ekki enn að minnsta kosti - lagt sig
eftir því að framleiða smábíla. Til þess að komast þó inn
í samkeppnina í þeim stærðarílokki sem oft er kenndur
viö Golf hefur BMW þó á boðstólum svokallaðan
Compact-bíl í 3 línunni; hér á landi aðeins boðinn með
1600 vél. Munurinn á Compact og öðrum 3-línu bílum er
einkum sá að Compact er tveggja hurða og meö styttra
hjólahaf en að flestu öðru leyti er ekki mikill munur á
honum og fullvöxnum 3-línu bílum.
Subaru Legacy
Þennan vinsæla fólksbíl þekkja íslendingar
vel. Hann er þekktur fyrir sítengt aldrif sitt, með
háu og lágu drifl, en er einnig fáanlegur með
spólvörn sem sjálfskiptur. Legacy er með hinum
þrautseigu tveggja lítra „Boxer“-vélum sem skila
115 hestöflum við 5600 snúninga. Legacy hentar
vel stærri fjölskyldum enda er hlaðbakurinn
einn sá rúmbesti á markaðinum.
Chrysler
Stratus
Þetta er einn þeirra amerísku bíla
sem við höfum lítiö haft af að segja á
íslandi. Þetta er fólksbíll f fullri stærð
og er sagður rúmgóður og þægilegur
en enn sem komið er höfum við litlar
upplýsingar um hann umfram þá
tæknilýsingu sem lesa má í töflunni.
Nissan
King Cab
King Cab er í flokki skúffubíla og myndar-
legur sem slíkur. Hann er nú kominn með
svipað grill og Patroljeppinn og allar línur
eru mýkri en var á eldri árgerðum King Cab.
Þetta er f flestu tilliti hefðbundinn hálfkassa-
jeppi og hefur sannað sig við íslenskar að-
stæður sem öflugur vinnujálkur, jafnhliða því
sem hann dugir ágætlega sem fjölhæfur heim-
ilisbíll þar sem þörf fyrir mikla flutningsgetu
og sæti fyrir 4-5 fara saman.
Volkswagen
Beetle
Gamla Volkswagen-bjallan var heimsbíU í þess orðs
fyllstu merkingu og þegar hún gekk sér til húðar í fyll-
ingu tímans eins og flest annað sáu menn dýrðardaga
hennar í þvílíkum hillingum að freistast var til að reyna
að gefa henni nýtt líf í bíl sem þó er tæknilega allt öðru-
vísi. Þessi tilraun hefur ekki gengið vel í Evrópumenn. Þó
þokkalega gaman sé að aka nýju bjöllunni hentar hún afar
fáum, hvort heldur er sem heimilisbíll eða í vinnu.
Ford Mondeo
Mondeo er orðinn sjö ára gamall en ber ald-
urinn vel; þetta er rúmgóður og þægilegur
ferðabíll og gott að umgangast hann. Eins og
vænta má er þetta þrautreyndur bíll og búið
að slípa af honum flesta vankanta, enda fer að
styttast í aö arftaki hans verði frumkynntur,
þó enn sé ár eða meira þar til hans er að
vænta á almennan markað. Þetta eru bílar
sem hafa sýnt sig að vera traustir og öruggir
og hagkvæmir í rekstri.
S0NAX
fæst á öllum
bensínstöðvum