Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Side 24
40
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 JO"V
Fiat Barchetta
Fiat Barchetta er tveggja sæta sportbíll með blæju og öll helstu einkenni
ítalskra bíla, fallega teikningu og skemmtilega aksturseiginleika. Hann er
smíðaður á
sömu grunn-
plötu og Fiat
Punto, með
vélina fram-
an í og flmm
gíra hand-
skiptan
kassa. Þessi
bíll hefur lít-
ið verið á
ferðinni á ís-
lenskum veg-
um.
Audi A4
Audi A4 fékk and-
litslyftingu i fyrra,
eftir aö hafa verið
fjögur ár óbreyttur á
markaðnum. Aðal-
breytingin hvað út-
lit snertir felst í
stuðurum og hurð-
arhúnum í sama lit
og bíllinn er sjáifur,
svo og nýjum
ljósaklösum líkt og
nú eru almennt í
tísku. Að innan felst breytingin einkum í nýjum sætum og hitastýringu (air
condition) á miðstöð sem staðalbúnaði. Þá hefur fjöörun verið endurbætt,
svo og hljóðeinangrun. Hvað öryggi áhrærir má t.d. nefna líknargardínur og
' rafeindastýrða stöðugleikastýringu (ESP). Svo er gripurinn í boði með
aldrifi sem hjá Audi heitir Quattro.
Nissan Vanette Combi
Vanette er
einn af þess-
um bílum
sem þjóna
sitt á hvað
sem sendi-
bílar eða til
v fólksflutn-
inga. I raun-
inni má nota
þá til marg-
víslegra
verka eins
og aðra fjölnotabíla.
Vanettan er liðlegur bíll og frekar í minni kantinum miðað við „van“-bíla
eins og þeir gerast flestir og þess vegna einn af þeim liprustu þar sem þröngt
er fyrir en dugar samt ágætlega til lengri leiða líka.
Gabriel höggdeyfar
fyrir fólksbfia, jeppa og vörubíla
! QSvarahlutir
HAMARSHÖFDA 1 8.687 8744 Fu 667 3703
Fiat Coupé
Fiat Coupé kom á markaðinn er-
lendis fyrir sex árum en það var
ekki fyrr en í fyrra að farið var að
bjóða Coupé á Islandi. Eins og aðrir
kúpubakar er þetta tveggja hurða
bíll og kannski fyrst og fremst fyrir
tvo að ferðast í, en aksturseiginleik-
ar eru, eins og títt er um kúpubaka,
fyrst og fremst sportlegir. Sportlegir
eiginleikar eru enn frekar undir-
strikaðir hvað snertir útlit og inn-
réttingu - og svo eru svona „per-
sónuleg einkenni“, eins og að hafa
sérstakan starthnapp í stað þess að
ræsa með lyklinum!
Saab 9-3
Saab 9-3 er óumdeilanlega með best gerðu lúxusfólksbílum í efri milli-
stærð. Eins og nýlega var sagt frá í DV-bílum komst hann I úrvalsflokk hjá
sænska tryggingafélaginu Folksam, eini bíllinn í sínum stærðarflokki. Hann
fær orð fyrir að vera rúmgóður og afar þægilegur aö ferðast í. Endingu Saab-
bíla þarf almennt ekki að kynna fyrir íslendingum.
Mitsubishi L200
double cab
Þetta er
í raun
sami bíll-
inn og
Mitsubis-
hi Pajero
Sport,
nema
hvað þetta
er vinnu-
billinn í
fjölskyldunni - skúffubiil með tvöfoldu húsi sem getur tekið fjóra farþega.
L200 er ágætlega búinn, með tvo líknarbelgi og rafknúnar rúðuvindur í öll-
um hurðum.
Honda Accord
Þessi sport-
legi lúxusbill
er fáanlegur í
fjölda út-
færslna,
tveggja eða
fjögurra dyra.
Minnsta vélin
er 1,6 lítra,
136 hestöfl, og
í R-gerðinni
er hann með
öflugri 2,2
lítra 212 hest-
afla vél. Accord fékk andlitslyftingu í fyrra og er hlaðinn búnaði, sérstak-
lega í stærri útgáfunum. Þar er hann til dæmis fáanlegur með skriðstilli í
stýri auk annars rafeindaútbúnaðar. Accord er, eins og aðrir bílar Honda,
sportlega byggður með tvöfoldum klofaspyrnum að framan og aftan.
Hyundai Coupé
ÞeáSi fallegi bíll var fyrst kynntur til sögunnar árið 1996 en fékk andlits-
lyftingu í fyrra. Hann er fáanlegur með þremur stærðum bensínvéla, 1,6,1,8
og 2 lítra, þótt tveggja lítra vélin hafi verið vinsælust hér. Sú vél er 16
ventla, með beinni innspýtingu, að grunninum til sama vélin og í Sonata, og
skilar 139 hestöflum. Kúpubakurinn er nokkuð vel búinn og hemlalæsivörn
er staðalbúnaður.
*
SACHS / Þegar gera á bílinn betrí
HOGGDEYFAR /// ~ - w w
Veríð framsýn!
veljið öryggi og endingu
Upprunahlutir i mörgum helstu bilategundum heims
Þekking Reynsla Þjónusta £
FÁLKINN 1
Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík |
Sími: 540 7000 • Fax: 540 7001 |
- Það borgar sig að nota það besta
Mitsubishi
Space
Wagon
Space Wagon er fremur stór
ferðabíll með sítengt aldrif. Hann er
sjö manna fólksbíll en með einu
handtaki hverfur aftasta sætaröðin
niður í gólfið og er hann þá orðinn
rúmgóður fimm manna bíll með
hátt rými aftan aftursætis, líkt og
langbakur. Hann er með tvo líknar-
belgi og læsivarðar bremsur og hef-
ur fengið orð fyrir að vera þægileg-
ur í akstri.
Suzuki
Grand Vit-
ara
Þetta er nýjasti Vitarajeppinn og
vitund stærri en gamla Vitara.
Hann er að flestu leyti betur gerður
og betur búinn, m.a. með fjölbreytt-
ara vélaval og betri innréttingu. Aft-
ursætisbökum má halla á ýmsa
vegu og jafnvel leggja alveg niður ef
sofa þarf í bílnum. Grand Vitara er
fáanlegur þriggja dyra eða fimm
dyra, bensín eða dísill.
Honda
CR-V
Honda CR-V er bíil fyrir þá sem
vilja háan, fjórhjóladrifinn bíl sem
sameinar einnig helstu kosti fólks-
bíls og jeppa. í almennum akstri er
hann framdrifinn en hann tengir
sig sjálfkrafa í og úr fjórhjóladrifinu
eftir veggripi. Þetta gerir hann lipr-
ari í akstri en sídrifsbíl og bens-
ineyðslan verður eins og í fólksbíl
með sömu vélarstærð. CR-V fæst
bæði beinskiptur og með Grade Log-
ic-sjálfskiptingu sem vinnur á ein-
staklega skemmtilegan hátt. Hann
er með sjálfstæða Double Wishbone-
fjöörun á hverju hjóli til að gefa
honum alvöru-fólksbílaeiginleika.