Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Qupperneq 34
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 H>’V
jp 50 fWgp
Alfa Romeo 166
Þetta er fólksbíll í fullri stærð, áþekkur í málum og innanrými og t.d.
BMW 5-línan. Hann er ágætlega búinn, m.a. með fjóra líknarbelgi og svo-
kallaða „Integrated Control System“-aksturstölvu og hitastýringu (air
condition) og í dýrustu bílunum er leiðsögutölva staðalbúnaður. Þessi bíll
fær plús fyrir ágætt innanrými og góðan búnað, ásamt prýðilegum akst-
urseiginleikum sem segja má aðalsmerki allra bíla sem Fiat framleiðir, líka
þegar undirtegundir eins og Alfa Romeo eða Lancia eiga í hlut.
jr
BMW
3-lína
3-lína BMW er til-
tölulega ný og það
er ekki lengra síðan
en í fyrra að 3-lína
kom með kúpubak
og langbak og fyllti
þar með upp í framboðslínuna. Þetta er bíll í meiri millistærð og einkenn-
ist af fágaðri framleiðslu, miklum öryggisbúnaði og akstursöryggi í háum
gæðaílokki og að verða sérlega þægilegur ferðabíll. Þó er eins gott að ekki
séu of margir á ferð saman því rýmið er ekkert sérstaklega mikið, nema
einna helst í langbaknum.
0 l f I v i u I
1
^ Sportbílalakk
á alla bíla ,
BÍLALAKK
ISLAKK
sérverslun með bílalakk
Námskeið ^
tíl aukinna ökuréttínda
hefjast vikulega
Sveigjanlegur námstími (áfangakerfi), próf á rútu, leigubíl, vörubíl og vörubíl
meö eftirvagn. Reyndir kennarar, góðir bílar, fullkomin aðstaða.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar.
ÖKU
3KOUNN
IMJODD
Kennsla og skrifstofa: Þarabakka 3, Mjóddinni, Rvík, sími 567 0 300
Upplýsingar - Sölumaður: 560 3317
ESSO-búðin: 560 3434 —
Olíufélagiðhf
www.esso.is
Alfa Romeo
GTV
Þetta er sportbíll sem meira að
segja er hægt að nota með góðum
árangri hér á íslandi. Hann er frísk-
ur og skemmtilegur þegar á lægri
hraðasviðum - og það er það sem
gildir hérlendis þar sem hvergi má
spretta hressilega úr spori. Þó hann
sé bara tveggja dyra er auðvelt að
umgangast hann og stjórntæki
liggja vel við. Mælaborð og innrétt-
ing bera öll helstu einkenni Alfa
Romeo. Bíllinn er ágætlega búinn
og liðlegur í snúningum.
Lexus
IS200
P. Samúelsson kynnti nýlega þessa
nýju gerð í bílaflóru íslendinga og
var fyrsta bílnum, IS200 vel tekið.
Lexus hefur sett ný viðmiðunar-
mörk í lúxus í bílum i dag og má
meðal annars nefna að hvergi eru
strangari kröfur á vali á leðri í inn-
réttingar bíla eins og einmitt hjá
þeim. IS200 er með 6 strokka línuvél
og drif að aftan sem gerir hann
sportlegan í akstri. Hann er hlaðinn
búnaði eins og spól- og skrikvörn og
hljómtækin eru þau bestu fáanlegu
hverju sinni, í þessum er til dæmis
6 hátalara staðalbúnaður.
Verð
3.000.000 -
3.999.999
3.045.000 Toyota Land Cruiser 90
3.085.000 Isuzu Trooper
3.198.000 Ford Econoline
3.200.000 Fiat Ducato 4x4
3.248.000 Rover 75
3.250.000 Mitsubishi Pajero
3.270.000 Jeep Grand Cherokee
3.295.000 Dodge Ram
3.400.000 Land Rover Discovery
3.490.000 Audi TT
3.535.000 Saab 9-5
3.580.000 Mercedes Benz E
3.260.000 BMW 5-lína
3.640.000 Nissan Patrol
3.655.000 Volvo S 80
3.590.000 Honda Legend
3.770.000 Mercedes Benz CLK
3.958.000 Ford Explorer
Jeep
Cherokee
Cherokee-jeppinn er einn þeirra
bíla sem orðið hafa klassískir. Hann
hefur nú verið framleiddur í nær tvo
áratugi án teljandi útlitsbreytinga þó
margar tæknilegar lagfæringar hafi
verið gerðar á honum gegnum tíðina.
Hann er eini alvörujeppinn sem ekki
er byggður á grind en virðist lítið
gjalda þess; þar fyrir utan er hann
með millikassa með hátt og lágt drif
og tengjanlegt framhjóladrif.
Volvo 70
Langvinsæl-
asti bíllinn í
Volvofjölskyld-
unni er Volvo 70,
enda boðinn í
margs konar út-
færslum: kúpu-
bakur, stallbak-
ur og langbakur.
Helstu kostir eru
mikið rými, afar
þægileg sæti
hvar sem er í
bilnum, mikill
staðalbúnaður og vandaður frágangur. Hér á landi er það ekki síst aldrifs-
bíllinn Volvo V70 AWD Cross Country sem hentar aðstæðum afar vel, hvort
heldur er að vetri eða sumri.
Land Rover Defender
Þennan seiga jeppa
þarf varla að kynna
fyrir íslendingum,
svo vel er hann sam-
ofinn bílasögu land-
ans. Defender er jeppi
fyrir alvöruflallaferð-
ir og þykir henta ein-
staklega vel til breyt-
inga, enda hefur hann
verið vinsæll sem
slíkur hjá hjálpar-
sveitum um allt land.
Hann er með 2,5 lítra
dísilvél sem þykir
toga mjög vel og rúm-
ar 7-9 manns eftir því hvort um styttri eða lengri gerðina er að ræða. Drif-
in í Land Rover eru líka löngu heimsþekkt og driflæsing er staðalbúnaður í
Defender.
Mitsubishi Pajero Sport
Þetta
er jeppi,
byggður
á sömu
grind og
skúffu-
bíllinn L
200 en
hefur
fengið
Qöðrun
við hæfi
og prýði-
lega inn-
réttingu.
Pajero
sport er
fáanlegur
með dísilvél eða bensínvél og er sjálfskipting fáanleg við hina síðarnefndu.
Grunngerðin er ágætlega búin en hægt er að fá sérstaka lúxusinnréttingu
með leðursætum og topplúgu.
Nissan Maxima
Maxima er flaggskipið í bílaflota Nissan-bílanna. Maximan er nú komin
á aðra kynslóð sína í flokki ódýrari lúxusbila. Hún hefur fengið viðbót í
þægindum, rými, öryggi, afli og búnaði, auk þess sem hún var lengd örlítið
og farþegarýmið hækkað. Val kaupenda stendur á milli tveggja lítra vélar
og 24 ventla V6 vélar sem er um það bil 200 hestöfl.
Daewoo
Musso
Musso er nú kominn að fullu
með Daewoo-framenda eftir viss-
an aðlögunartíma frá því að Dae-
woo yfirtók SsangYong fyrir
rúmum tveimur árum. Musso
hefur ekki verið mjög lengi á
markaði á íslandi en er þó orð-
inn algengur bíll á íslenskum
vegum - og óvegum. Eins og litli
bróðir Korando er hann með vél-
ar frá Mercedes Benz og annan
vélbúnað frá ýmsum þrautreynd-
um íhlutaframleiðendum, aust-
rænum og/eða vestrænum.