Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Side 35
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000
Audi A6
Þessi bíll keppir á jafnréttisgrundvelli við hina stóru og dýru lúxusbílana
sem framleiddir eru í Þýskalandi og þykir afar traustur og vel úr garði gerð-
ur. Hann er mjög rúmgóður og býður upp á akstursöryggi í háum gæða-
flokki. Þá þykja vélarnar í honum skemmtilegar, ekki síst sex strokka dísil-
vélin sem fær orð fyrir að vera hljóðlát en um leið afar snörp. í haust kem-
ur fram aldrifs-hlaðbakur af þessari gerð og hefur sá fengið heitið Audi A6
Allroad Quattro.
Ford F-250
Ford F-250 er „stór“ biU, vel búinn og með tvöfalt hús og langa skúffu. Það
er rúmt um ökumann og farþega í framsæti sem er þriggja manna að amer-
ískum sið. Bíllinn er allur stór og hentar ekki vel á þröngum götum en á
þjóðvegum er hann í essinu sínu. Það er líka gott rými fyrir farþega í aftur-
sæti og pallurinn er ekki heldur skorinn við nögl. Þetta er bíll fyrir þann
eða þá sem þurfa að hafa rúmt um sig.
Toyota Land
Cruiser 90
Land Cruiser-jeppinn fagnar hálfrar aldar afmælinu á næsta ári
og alveg síðan hann kom fyrst til sögunnar hefur hann sannað getu
sína utan vega. 90-bíllinn er minni gerð Land Cruiser og hefur fjór-
ar gerðir véla upp á að bjóða, 3 til 3,4 lítra. Driflæsingar á afturöxli
og millikassa gera hann að afburða-torfærutæki við hvaða aðstæð-
ur sem er. Hann hentar því mismunandi yfirborði landsins vel og
er einnig vinsæll til breytinga.
Izusu Trooper
Trooperinn er einn vinsælasti jeppinn á íslenska bílamarkað-
inum i dag. Hann er fánalegur með rúmlega 200 hestafla bensín--w
vél en vinsælastur hefur hann verið með 159 hestafla dísilvélinni
sem þykir hafa reynst vel. Trooper hentar vel til breytinga með
þeirri vél og koma þær vel út á þessum bíl, bæði fyrir bílinn og
budduna. Hægt er að fá hann sjö manna fyrir stærri fjölskyldur
og staðalbúnaðurinn er nokkuð veglegur, m.a. upphituð fram-
sæti.
Ford Econoline
Econoline þarf líklega ekki að kynna i mörgum orðum fyr-
ir landsmönnum, svo vinsæll sem þessi bíll hefur verið.
Hann hefur enda verið notaður fyrir lögreglubíla, sjúkrabíla,
björgunarsveitarbíla, hópferðabíla, skólabíla og svo mætti
lengi telja, fyrir utan hve margir hafa notað hann fyrir einka-
bíl. Hann hefur ekki síst notið þess hve rúmgóður hann er og
hve auðvelt er að hækka hann upp og gera hann aö torfæru-
og fjallabíl.
Fiat Ducato
Fiat Ducato er hentugur bíll fyrir flestar
stærðir fyrirtækja. Hann er fáanlegur í 11
mismunandi útfærslum, með þremur mis-
munandi hjólahöfum, tveimur mismunandi
lofthæðum og fimm mismunandi vélum sem
ættu að henta flestum. Því til viðbótar er
hægt að panta hann i 12 útfærslum á palli
sem henta verktökum einnig vel.
Htigsum i nyjum víddum
Premacy - bíll fyrir
Mazda Premacy er sannkallaður fjölskyldubíll. Við hönnun
hans var kappkostaö við að tryggja ítrasta öryggi, bestu
þægindi, nægilegt rými og fjölbreytta notkunarmöguleika.
nutimafj ölslcyldur
Nú kostar Premacy aðeins kr. 1.749.000
Komdu og kynntu þér hann nánar!
Skúlagötu 59, sími 540 5400 www.raesir.is
Isjfjöröur: Bilatangi ehf. Akureyri: BSA hf. Egilsstaöir: Bllasalan Fell Selfoss: Betri bfiasalan Vestmannaeyjar: Bifreiöaverkstæöi Muggs Akranes: Bllis Keflavik: Bflasaia Keflavlkur Hornafjóröur: Vélsmiöja Hornafjaröar
4s
%
f-