Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2000, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 2000 H>'V
^52
Rover 75
Eini Rover-fólksbíllinn sem boö-
inn er á íslandi. Hann kom nýr á
síðasta ári og þó hann njóti um
margt sambúðarinnar við BMW á
hönnunartímanum er hann ákaf-
lega „breskur" bíll í bestu meiningu
þeirrar lýsingar. Hann fer mjög vel
á vegi og er prýðilega búinn; ber
það með sér að vera hugsaður frá
grunni sem lúxusbíll fyrir þá sem
hafa gaman af að aka.
Verð
4.000.000 -
4.999.999
4.060.000 Mercedes Benz SLK
4.099.000 Mercedes Benz ML
4.400.000 Ivevo Daily Turbo
4.490.000 Lexus GS300
4.468.000 Porsche Boxter
Jeep Grand Cherokee
Meö Grand Cher-
okee var augljóst að
framleiðandinn
vildi njóta nafns -
það er að segja
þeirrar velgengni
sem „klassíski"
Cherokee-bíllinn
hafði notið. Aug-
ljóst er að það tókst
að verulegu leyti.
Grand Cherokee er,
eins og nafnið bend-
ir til, stærri bíll og meiri og meira í hann borið aö flestu leyti. Hann er með
stærri vélar og fæst með margvislegum búnaði til þæginda og öryggis, en
hann hefur á mun styttri tíma en litli bróðir farið í gegnum verulegar breyt-
ingar sem allar hafa verið til bóta.
Dodge Ram
Hérlend-
is þekkjum
við Dodge
Ram fyrst
og fremst
sem skúffu-
bíl með
einu og
hálfu húsi.
Hins vegar
er hann
svo stór að
þetta eina og hálfa hús er álíka rúmgott og á sumum skúffubílum sem kall-
aðir eru „double cabs“ en við köllum gjarnan „hálfkassapikkuppa". Þetta
eru öflugir aldrifsbílar og henta einkum til ferðalaga við erfiðar aðstæður
en fara líka ágætlega á þjóðvegum.
Mercedes Benz E-klassí
E-klassinn er virðulegur en um leið nútímalegur fólksbíll í fullri stærð.
Hann fékk svokallaða andslitslyftingu sem árgerð 2000 en þó segja kunnug-
ir að það þurfi að skoða hann tvisvar til að sjá í hverju þær 1800 breyting-
ar eru fólgnar sem sagt er að gerðar hafi verið á honum. Þessi bíll er afar
rúmgóður og frágangur á honum allur hinn vandaðasti. Billinn fer afar vel
á vegi og stöðugleikastýring er staðalbúnaður.
BMW 5-lína
Bílar af 5-línu BMW
eru löngu orðnir fóst
stærð meðal fólksbila í
fullri stærð sem kallað
er. Þetta eru fyrst og
fremst ferðabílar,
kjörnir fyrir þá sem
þurfa að aka langar
leiðir og komast greitt
leiðar sinnar. Þeir sem
ekið hafa eitthvað sem
heitir á meginlandinu
kannast flestir við aö
BMW-5 línan þarf oft
að komast fram úr þeim og er svo fljót að hverfa. Þetta eru bílar með ein-
staka aksturseiginleika og þægindi í háum gæðaflokki.
I
m
Kúplingasett
í japanska bíla
Hagstætt verð
QSvarahlutir
Hamarshöfða 1,
sími 567 6744, fax 567 3703
9-5 telst flokki ofar en 9-3, með
lúxusbílum, en situr hvað öryggis-
málin snertir í „gulltoppnum" með
litla bróður 9-3. Þessi bíll hefur feng-
ið orö fyrir einstaklega vandaðan
frágang i hvívetna og staðalbúnaður
er með því besta sem gerist. Akst-
urseiginleikar hans eru rómaðir en
jafnframt fær hann orð fyrir að vera
í þorstlátara lagi.
Audi TT
Audi TT er sportbíll með svokölluðu 2+2 fyrirkomulagi sem þýðir aö tveir
geta setið aftur í ef í nauðirnar rekur en í raun er þetta aðeins tveggja
manna bill. Aftur á móti er dágott farangursrými aftur í þannig að þetta get-
ur verið kjörinn ferðabíll fyrir tvo. Audi TT er vel búinn bíll og með gott
árekstursöryggi, m.a. fjóra líknarbelgi.
Land Rover Discovery
Discovery er
nokkurs konar
blendingur jepp-
anna Defender og
Range Rover. í hon-
um fá kaupendur
þægindi og búnað
Range Rover og
seiglu torfæru-
jeppans Defender.
Discovery er rúm-
góður fimm manna
jeppi með mögu-
leika á tveimur
aukasætum aftur í.
Hann er á sjálfstæðri gormafjöðrun allan hringinn og þykir hafa einstaka
mýkt. Hann er í boði með 2,5 lítra, 137 hestafla dísilvél og einnig er hann fá-
anlegur með aflmikilli V8 bensínvél. Spólvörn er staðalbúnaður og hægt er
að fá skrikvörn og loftpúðafjöðrun að aftan svo eitthvað sé nefnt.
Notaðu
vísifingurinn!
visir.is
Notaðu vísifingurinn!
Saab 9-5
^ Sportbílalakk
BILALAKK
á alla bíla ,
ISLAKK
sérverslun með bíialakk
Nissan Patrol
Patrol er í
flokki stærstu
jeppa en er samt
furðu lipur í
snúningum inn-
anbæjar. Hann er
vel fallinn til
breytinga og sum-
ir af verklegustu
fjallajeppum
landsins eru Niss-
an Patrol.
í honum er
flestur staðalbún-
aður sem nauð-
synlegur þykir nú
til dags, tveir
líknarbelgir og
læsivarðar bremsur, svo
sé nefnt.
Volvo
80
Volvo 80 er beinn
keppinautur BMW
5-línunnar eða E-
klassa Mercedes
Benz. Innanrými í
farþegarými er yf-
irdrifið þó farang-
ursrými sé í minna
lagi miðað við
heildarstærð bils-
ins. Þetta er bíll
fyrir þá sem þurfa
að ferðast á lang-
leiðum að staðaldri
og kunna að meta
hljóðlátan og þægi-
legan akstur í afar
vel búnum og vel
smíðuðum bil.
Mitsubishi Pajero
Pajero-jeppana
þekkja allir íslend-
ingar. Þessi vin-
sæli og fjölhæfi
heimilisbíll og
íjallaþjarkur nýtur
þess enn að vera
fyrsti raunverulegi
lúxusjeppinn frá
Japan og óhætt er
að fullyrða að hann
hefur haft meiri
áhrif á gerð og frá-
gang jeppa en
menn gera sér al-
mennt grein fyrir. Hann hefur tekið ýmsum breytingum í gegnum tíðina en
heldur enn þeim sérkennum sínum að leggja megináherslu á að vel fari um
þá sem í honum eru.