Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Page 6
6
Viltu ferðast sjálfstætt?
Fréttir
ÞRIDJUDAGUR 25. APRÍL 2000
DV
Til leigu nokkur
samliggjandi sumarhús
við Torrevieja á Spáni.
Minnst vikuleiga.
Uppl. í síma 692 4802
Ársæll
Suíurhlí£>35 • Simi 581 3300
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Áralöng reynsla.
Sverrir Olsen Sverrir Einarsson
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
ratuga
l
í gerð einangrunarglers
fyrir íslenskar aðstæður.
Glerlxrrgargler er framleitt undir
gæðaeftiriiti Rannsóknastofnunar
liyggingariðnaðarins.
DaJshrauni 5 220 HafnarGrði Sími 565 0000
rulJ'd y
fdínJii) íjiiríjjöí
Silfurkristalskrossinn
Kr: 8.850.-
Gullkross með kristal
Kr: 5.950.-
Framtíðareign.
Komið og sannfærist.
RISTALL
Kringlunni - Faxafeni
Skipstjóri sýknaður af ákæru um slæma umgengni um nytjastofna:
Sjómenn mega
henda smárækju
- sýnt var fram á að hún á góðar lífslíkur sé henni sleppt
Héraðsdómur Norðurlands vestra
hefur komist að þeirri niðurstöðu
að sýkna beri skipstjóra rækjuskips
af ákæru um að hafa í fjórgang hent
hundruðum kílóa af smárækju í sjó-
inn. Skipstjórinn hafði haldið því
fram að ekkert þýddi að koma með
slíkan afla að landi þar sem ekkert
verð fengist fyrir svo smáa rækju og
enginn vildi vinna hana. Niður-
stöðu sína byggir dómurinn að
miklu leyti á því að sýnt hafi verið
fram á að langmestur hluti smá-
rækju sem sleppt sé lifi af og verði
hugsanlega veiddur síðar.
Þegar varöskipsmenn á Óðni fóru
um borð í Neista HU 005 á Miðfirði
í Húnaflóa morgun einn í janúar á
síðasta ári höfðu 300 kg af rækju
verið hífð um borð. 9,2 prósent
reyndust vera yfir leyfilegu há-
marki af smárækju. Hálfri klukku-
stund eftir að varðskipsmenn yfir-
gáfu bátinn varð skipherra Óðins
var viö að skipverjar á Neista höfðu
mokað rækjuaflanum fyrir borð.
Var þá aftur fariö að Neista. Skip-
stjórinn sagði að smárækjunni hefði
verið mokað fyrir borð - slíkt væri
alltaf gert ef um smáa rækju væri
að ræða - hann skráði slíkt í fiski-
dagbók sem hann sendi Fiskistofu.
Við skoðun á bókinni kom í Ijós að
svo hafði verið gert og slík færsla
hafði verið gerð vegna síðasta togs.
Skipstjórinn hélt því fram að rækja
sem hent væri strax í sjóinn lifði
það að mestum hluta af.
Eftir þetta visaði forstjóri Land-
helgisgæslunnar máli þessu til
sýslumannsins á Blönduósi. Ákæra
var síðan gefin út á hendur skip-
stjóra Neista fyrir að hafa í fjögur
skipti hent smárækju fyrir borð.
Hafró-maöur kom fyrir dóm
Fyrir dómi henti skipstjórinn á
að hann hefði alltaf skilið veiðileyfi
sitt þannig að honum væri óheimilt
að koma með of smáa rækju í land;
að honum bæri að sleppa henni.
Með slíkri háttsemi væri hann að
fylgja ákvæðum laga um umgengni
nytjastofna og sjávar. Skipstjórinn
sagði að veiðileyfi hans kvæði á um
aö ekki mættu vera fleiri en 350
rækjur í hverju kílói þess afla sem
komið væri með að landi. Hann
kvaðst hafa verið á rækjuveiðum
frá árinu 1970 og alla tíð hefði smá-
rækju verið sleppt - annað væri
rányrkja.
Sólmundur Einarsson, flskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofnun,
kom fyrir dóminn. Hann sagði að
lífslíkur rækju væru miklar ef hún
væri ekki tekin á dekk og ekki
þrengt mjög að henni í veiðarfær-
inu. Sennilega væru lífslíkurnar allt
að 90 prósentum. Á hinn bóginn
mætti gera ráö fyrir að 90 prósent
dræpust eftir að hafa legið 30 mínút-
ur uppi á þilfari. Sólmundur bar að
Hafró fylgdist ekki sérstaklega með
hvort fiskimenn á Húnaflóa slepptu
rækju.
Hvaó er afli?
í niðurstöðu sinni rekur dómar-
inn m.a. tilurð laga um umgengni
við nytjastofna sjávar - markmiðið
sé að bæta umgengni við þá. Hann
bendir á að lögin kveði á um að
skylt sé að hirða og koma með að
landi allan afla. Þó geti ráðherra
ákveöið með reglugerð að sleppa
skuli lifandi fiski sem er undir til-
tekinni lengd og fæst í ákveðin veið-
arfæri.
Dómarinn bendir síðan á að ljóst
sé að í lögunum, athugasemdum við
frumvarpið eða i umræðum á Al-
þingi hafl hvergi verið reynt að skii-
greina hvað sé afli. Hins vegar hefur
dómurinn hliðsjón af lögunum þegar
hann segir að afla verði að skil-
greina þannig að hann sé fiskur sem
búið er að fanga og drepa eða að
hann eigi a.m.k. ekki lífslíkur. „Að
mati dómsins er verið að skylda
fiskimenn til að koma að landi með
afla sem ekki muni lifa af að fara aft-
ur í sjó,“ segir í dóminum.
í niöurstöðu varðandi sekt eða
sýknu sakbomingsins, skipstjórans,
segir dómarinn:
„Að mati dómsins hefur ákærði
með háttsemi sinni, eins og hann
lýsir henni almennt, hagað sér í
samræmi viö tilgang og markmið
laga nr. 57/1996. Hann hefur fyrir
því vitneskju að langmestur hluti
þeirrar smárækju sem hann sleppir
lifi sleppinguna af og veröi því
hugsanlega veidd síðar. Dómurinn
telur þvi að lifandi smárækja, sem
enn er í trolli við skipshlið og á alla
möguleika á að lifa sleppingu af, sé
ekki afli í skilningi 2. gr. marg-
nefndra laga þannig að skilyrðis-
laust skuli koma með hann að landi
og því refsilaust og raunar í sam-
ræmi viö góða umgengni um nytja-
stofninn að sleppa henni.“
Engar athugasemdir í 20 ár
Dómarinn vísaði til þess í niður-
stöðu sinni að skipstjórinn um-
ræddi hefði í rúm 20 ár skilað veiði-
skýrslu til Hafrannsóknastofnunar
þar sem hann hefur skráð slepping-
ar sínar. Allan þann tíma hafi eng-
ar athugasemdir verið gerðar við þá
háttsemi hans að sleppa rækju. Því
verði ekki annað ályktað en að
ákærði hafi verið í góðri trú.
Með visan til þessa var skipstjór-
inn sýknaður.
Allur sakarkostnaður í málinu
greiðist úr ríkissjóði, þar með talin
málsvarnarlaun verjanda skipstjór-
ans, 160 þúsund krónur.
Halldór Halldórsson, dómstjóri
Héraðsdóms Norðurlands vestra,
kvað upp dóminn. -Ótt
Úr rækjuvinnslu.
Skipstjórí á Neista HU kemur ekki meö smárækju aö landi og hefur alla
tíö frá árinu 1970 sleppt henni í hafiö aftur.
Grundarfjörður:
Kviknaði í verslun
Sót og reykur olli skemmdum þeg-
ar kviknaði í matvöruversluninni
Tanga í Grundarfirði í kringum mið-
nætti aðfaranótt páskadags.
Eldurinn uppgötvaðist fljótt og lík-
legt er að kviknað hafl í út frá raf-
magni. Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar í Grundarfirði, urðu
skemmdir talsverðar á húsi vegna
reyks og sóts. Engin slys urðu en
húsið var mannlaust þegar eldurinn
kviknaði. Slökkviliðið á Grundar-
firði er í næsta húsi og greiðlega
gekk að slökkva eldinn. -SMK/DVÓ
DV-MYND DVÓ
Frá slökkvistarfi
Greiölega gekk aö slökkva eldinn.
Akureyri áfram reynslusveitarfélag fyrir fatlaða:
Nýjar íbúðir fyrir
PV, AKUREYRI:____________________
Nýr þjónustusamningur um fram-
hald reynsluverkefna Akureyrar-
bæjar í þjónustu við fatlaða á Eyja-
fjaröarsvæðinu hefur veriö undir-
ritaður af Páli Péturssyni félags-
málaráðherra og Kristjáni Þór Júlí-
ussyni bæjarstjóra.
Akureyrarbær hefur frá árinu
1996 annast þá þjónustu sem Svæð-
isskrifstofa málefna fatlaðra á Norð-
urlandi eystra annaðist áður. Verk-
efnið er eitt af svonefndum reynslu-
verkefnum bæjarins.
Samiö hefur verið um framhald
verkefnanna til loka ársins 2001 en
þá er áætlað að þjónusta svæðis-
skrifstofa flytjist almennt til sveitar-
félaganna.
í meginatriðum byggist samning-
urinn á núverandi þjónustu en auk
þess eru í honum flárveitingar til
fatlaða
reksturs á 6 nýjum þjónustuíbúðum
fyrir fatlaða sem teknar verða í
notkun í apríl. Þjónusta bæjarins
tekur m.a. til reksturs sambýla fatl-
aðra, stuðnings við sjálfstæða bú-
setu þeirra, aðstoðar á vinnumark-
aði, verndaðrar vinnu og þjónustu á
endurhæfingarvinnustað, þjónustu
á hæfingarstöð og ráðgjöf. Samn-
ingsupphæðin er um 330 milljónir á
ári. -gk
Sandkorn
Wmm • . Umsjón:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
Vilja Villa Þ.
Úr herbúðum
Sjálfstæðisflokks-
ins i borgar-
stjóm heyrist að
stuðningsmenn
Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar
séu farnir að
undirbúa að
i hann leiði lista
flokksins gegn
Reykjavíkurlistanum við næstu
borgarstjórnarkosningar. Margir
telja styttast í að Geir H. Haarde
kunni að taka við Sjálfstæðis-
flokknum og erfitt sé að leiðtogi
flokksins í borginni sé eiginkona
mögulegs forystumanns ríkisstjórn-
arinnar sem borgin á mikil sam-
skipti við. Margir litu til Guð-
laugs Þórs Þórðarsonar en hann
hefur ekki enn náð að lyfta sér úr
léttvigtarflokknum. Þá eru aðeins
Vilhjálmur og Júlíus Vífill Ingv-
arsson eftir. Útlit er því fyrir harð-
an slag...
Össur mildast
Á fundum
þeirra
Tryggva Harð-
arsonar vítt
um landið hef-
ur Össur
Skarphéðins-
son haldið
uppi hörðum
árásum á
Sjálfstæðis-
flokkinn. Þó þetta hafi víðast fallið
í góðan jarðveg voru ráðgjafar Öss-
urar slegnir mikilli skelfingu þegar
þeir heyrðu kjaftbrúk kandídatsins
og munu hafa ráðlagt honum að
milda meðferðina á Sjálfstæðis-
flokknum. Þegar hann kom á fund-
inn í Reykjavík sl. laugardag á
Hótel Sögu var svo kominn miklu
blíðari tónn í Össur sem gagnstætt
Tryggva hafnaði því að útiloka rík-
isstjórn með Sjálfstæðisflokknum...
Biðleikur Framsóknar
Mikil óvissa
ríkir um hver
tekur við sem
varaformaður í
Framsókn á eft-
ir Finni Ing-
ólfssyni en
embættið er yf-
I irleitt ávísun á
formannstign
síðar meir.
Eyjabakkamálið beyglaði Siv Frið-
leifsdóttur til langframa og afmæl-
isveislan á Grenivík setti alvarleg
spurningarmerki við dómgreind
Valgerðar Sverrisdóttur. Harður
slagur virðist því í uppsiglingu
milli Guðna Ágústssonar og Ingi-
bjargar Pálmadóttur. Halldór
Ásgrímsson er þó sagður andsnú-
inn því að lasburða flokkurinn
verði lagður undir slíkan slag og
margir telja því að Jónína Bjart-
marz gæti orðið eins konar bið-
leikur...
Geir og Björn
í Sjálfstæð-
isflokknum
telja menn
ekki
sjálfgefið að
Geir H.
Haarde verði
formaöur
þegar Davíð
Oddsson
hverfur úr
stjómmálum. Töluverð óvissa ríkir
um þróun efnahagsmála og ekki
lengur víst að „mjúk“ lending ná-
ist úr þensluflugi þjóðarinnar.
Slíkt yrði mikið áfall fyrir pólitísk-
an feril Geirs. Bjöm Bjarnason,
sem ekki þorði í Geir þegar kosið
var um varaformann flokksins,
væri þá í sterkri stöðu til að fara
gegn Geir þegar formannsembættið
losnar. Gárungamir segja því að
pólitískt gengi Björns Bjamasonar
muni verða í öfugu hlutfalli við
gengi krónunnar...