Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2000 Skoðun DV Létu reyna á kerfið Þeir Svavar og Björn, vestfirsku sjómennirnir á Vatneyrinni viö bátinn sem landsfrægur varö fyrir veiöi utan kvóta. Greinarhöfundur telur aö í kjölfar Vatneyrardómsins sé boltinn hjá hinu háa Alþingi. Boltinn er h j á Alþingi Spurning dagsins Ferðu reglulega í kirkju? Bryndís Stefánsdóttir nemi: Nei, kannski einu sinni til tvisvar á ári. Hulda Gunnarsdóttir, 9 ára: Nei, kannski einu sinni á ári. Svavar Halldórsson verslunarmaöur: Já, tvisar sinnum á ári. María Ósk Indriðadóttir, vinnur í bakaríi: Nei, aldrei. Berglind Hauksdóttir nemi: Nei, mjög sjaldan. Valdimar Kristinsson, 11 ára: Nei, kannski þrisvar sinnum á ári. Konráð Friöfinnsson skrifar:_____________________________ Nýverið féll dómur í Hæstarétti í svokölluöu Vatneyrarmáli. Um er að ræða skipstjóra og útgerðarmann á Patreksfirði sem sameiginlega ákváðu að halda til hafs á báti sín- um sem var kvótalaus og láta á það reyna hvaða dóm gemingur þeirra fengi i dómskerfmu. Þessir heiðurs- menn vildu kanna hvort verkið stæðist rannsókn dómstólanna og þeir hlytu sýknu aö launum sem vitaskuld hefði merkt endalok kvótakerflsins. Er þeir síðan komu að landi beið þeirra á bryggjunni fríður flokkur einkennisbúinna manna sem gerðu aflann upptækan og lögðu fram kæru á hendur mönn- unum. Niðurstaða Hæstaréttar er að Sigurður Lárusson skrifar: Launamisréttið hér á landi er orðið hrikalegt og fer vaxandi ár frá ári. Allir viðurkenna að þetta geti ekki gengið lengur. En í hvert skipti sem nýir kjarasamningar eru gerðir er það alltaf sama sagan, þeir sem hafa hæstu launin fá mesta hækkun í krónum talið. Öryrkjar, aldraðir og lægst launaða fólkið fær litla sem enga hækkun. Gott dæmi eru samn- ingarnir sem hið svokallaða Flóa- bandalag gerði nú nýlega. Mér skildist á fréttum eftir að samning- arnir voru gerðir að kaupið skyldi hækka um 13% til almennings og um 30% til öryrkja og aldraðra á tímabilinu. Ég talaði nýlega viö „ Vil ég skora á yfi. völd að félla niður sektargreiðslur sem Vatneyrarmönnum var gert að borga. Að gera það vœri fullkomlega sanngjarnt og eðlilegt vegna þess að um prófmál var að ræða sem varðaði kvótakerfið í heild sinni gagnvart stjómarskrá þjóðarinnar. “ kvótakerfið brýtur ekki í bága við stjórnarskrá íslands. Niðurstaðan er léttir að því leytinu til að ákvæði „/ hvert skipti sem nýir kjarasamningar eru gerðir er það alltaf sama sagan, þeir sem hafa hœstu launin fá mesta hœkkun í krónum talið. Öryrkjar, aldraðir og lœgst launaða fólkið fœr litla sem enga hœkkun. upplýsingafulltrúa Tryggingastofn- unar og spurðist fyrir um hver hækkunin yrði til öryrkja og aldr- aðra og svarið var 0,9% á mánuði. Mér finnst það ansi lítil hækkun. Þessi hækkun dugir ekki einu stjórnarskrárinnar héldu. En hún sannfærir menn hins vegar ekki um hvort núverandi kerfi fiskveiði- stjórnunar sé sanngjarnt og réttlátt. Samt er ljóst að mennirnir sem komu kerfinu á héldu sér innan markalínu hennar. Boltinn er nú hjá háttvirtu Alþingi, pólitíkinni. Henni ber að fjalla um efnið og aðgæta hvort kvótinn sé í óeðlilegum mæli að færast yfir á fáar hendur á kostnað efnaminni útgerðarmanna. Að lok- um vil ég skora á yfirvöld að fella niður sektargreiðslur sem Vatneyr- armönnum var gert aö borga. Að gera það væri fullkomlega sann- gjarnt og eölilegt vegna þess að um prófmál var að ræða sem varðaði kvótakerflð í heild sinni gagnvart stjómarskrá þjóðarinnar. sinni fyrir bensinhækkuninni á síð- ustu 12 mánuðum og hvað þá fyrir öllum öðrum hækkunum á sama tíma. Þetta er ljótt fyrir öryrkja og aldraða. Ég vil þó taka fram að mér finnst að lækka eigi tryggingabætur til þeirra sem hafa aðrar tekjur, t.d. þeirra sem fá tugi þúsunda úr lífeyrissjóðum á mánuði. Að lokum vil ég minnast á hversu fráleitt það er að menn geti keypt sér hlutabréf fyrir árslok og með því sparað sér að greiða tugi þús- unda af álögðum sköttum. Mér finnst það alveg forkastanlegt að menn geti tekið sér lán til þess að sleppa að mestu leyti við að greiða opinber gjöld. Hvað tapar ríkissjóð- ur miklu fé árlega á þessu? Varöandi bókina Orð af eldi Erlingur Þorsteinsson læknir skrifar: Viðvíkjandi nýútkominni bók, Orð af eldi, þar sem birt eru bréf er gengu á milli skáldanna Þorsteins Erlingssonar, fóður míns, og Ólafar á Hlöðum, vil ég taka fram að ég hafði ekki hugmynd um tilvist þessa bréfasafhs og undraðist mjög er ég frétti að undirbúningi að útgáfu þess væri því sem næst lokið án þess að haft væri samband við mig, son og eina núlifandi erfingja Þorsteins. Mér var tjáð að Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur sæi um þessa útgáfu að mestu og í DV um daginn var haft eftir honum að hon- um og samverkamönnum hans hefði boðist útgáfurétturinn að þessum bréfum frá ættingjum Þorsteins. Erf- ingjar hans hafa aðeins veriö þrír og eru bæði móðir mín og systir látnar. Ég hef aldrei boðið neinum þennan útgáfurétt þar sem ég var aúsendis ókunnugur tOvist þessara bréfa. Hefði verið leitað til mín um leyfi til þess hefði ég lagt bann við því af þeirri einfóldu ástæðu að bæði skáldin skrifa það í bréfunum að þau fari fram á að bréfin verði brennd. Þorskhaus meö vindil Fríða Björg Ólafsdóttir hringdi: Alveg finnst mér það hörmung hvemig farið er með minningu Auð- ar Auðuns, fyrsta borgarstjóra Reykjavíkur. Aðeins nokkrir mánuð- ir eru síðan þessi góða kona dó, þá heyrir maður um að mynd hennar sé ekki lengur i Ráðhúsinu heldur niðri í kjallara. Ég vil leyfa mér aö efa aö Ingibjörg Sólrún hafi vitað af því að mynd af þorskhaus með vindil í kjaftinum hafi verið sett í staðinn. Sú mynd fmnst mér út af fyrir sig ekki eiga neitt erindi í ráðhúsi borg- arinnar en miklu frekar eiga heima hjá sægreifum. Öll verðum við göm- ul en þeir sem yngri eru verða að koma fram af virðingu fyrir þeim sem eldri eru. Auði Auðuns þekkti ég, ekki síst í seinni tíð þegar hún dvaldi á Droplaugarstöðum þar sem maðurinn minn var. Hún á mikla virðingu skilið. Skila hreinu á sama degi Úðafoss hefur í meira en aldarþriöjung skilaö fötum úr hreinsun samdægurs. Skila fatnaöi samdægurs Pálmi Bergmann hjá fatahreinsuninni Úðafossi hringdi: í Dagblaðinu mánudaginn 17. apr- íl er fjallað um hægagang í fata- hreinsun. í því sambandi finnst mér að rétt sé að fram komi að Fatapress- an Úðafoss er búin að vera með sam- dægursþjónustu allar götur síðan 1965 og býður hana enn og mun gera áfram. Sé fatnaði skilað fyrir kl. 11 verður hann afgreiddur fyrir lokun klukkan 18. Tengdafaðir minn, Jón Guðnason, lagði sig mjög fram um að veita góða þjónustu og vann langan vinnudag við fyrirtækið. Frægt var að stundum lagði hann sig út af í svefnpoka til að hvíla sig í erfiðum störfum. Vélar á þessum tíma voru svo litlar að sífellt þurfti að tæma og fylla. En með dugnaði tókst Jóni að skila þjónustu sem var einstök í þessu fagi og eru margir honum þakklátir fyrir enda hafa margir við- skiptavinir haldið tryggð við Úðafoss allan þennan langa tíma. psyjimilllHP Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang. Dagfarí Kannski er enn von á verkfallsdeilum Verkföll og vinnudeilur eru vart svipur hjá sjón frá því sem áður var. Nú eru menn jafn- vel að leyfa sér að semja til margra ára og allt gert til að halda frið á vinnumarkaði. Undanfarnar vikur hafa mál verið afgreidd nánast á færibandi í herbúðum sáttasemjara rikisins. Flóabandalag, VMSi og guð má vita hvað. Það eru allir orðnir svo skelfilega sátt- fúsir aö það hálfa væri nóg. Maður er t.d. steinhættur að sjá kröfugöngur með rauða fána og skemmtilega orðuð kröfuspjöld á lofti. ísland úr Nató og herinn burt er meira að segja hætt að hljóma um götur og torg í Reykjavik. Ekki það að ísland úr Nató komi neitt launamálum við en einhvern veginn til- heyrði þetta þó allt stemningunni. Hvað er varið í launabaráttu þar sem ekki er tekist almennilega á fyrir opnum tjöldum, svo ekki sé talað um handalögmál. Hér um árið, sællar minningar, þegar BSRB verkfallið fræga var og Félag bókagerðarmanna passaði upp á að landsmenn læsu ekki yfir sig af dagblöðum þá var nú gaman að vera til. Það var svo mikið líf og íjör. Munið þið t.d. eftir þegar BSRB félagar héngu á landfestum strandferða- skipa í Reykjavíkurhöfn, lögðu bílum sínum fyrir vöruskemmudyr og lokuöu Keflavíkurflugvelli. Það var sko eitthvað annað en lognmollan nú til Flugvirkjar, flugmenn og jafnvel flugfreyjur í sokkabuxum hafa í gegnum tíðina sýnt af sér mikinn þokka í verkfallsátökum. dags. Mikið asskoti var skemmtilegt að sjá svip- inn á farþegunum sem voru á leið til útlanda og gerðu sér grein fyrir að allt var stopp. Þeir komust hvorki lönd né strönd, alls staðar voru vigalegir verkfallsverðir í veginum. Þá kom meira að segja til stympinga og raunverulegra átaka. Verst var að almenningur í landinu gat ekki notið þess þar sem hvorki voru út- sendingar í Ríkissjónvarpinu né dagblöð borin til fréttaþyrstra landsmanna. Þeir einu sem gátu notið þeirrar ánægju voru verk- fallsveröi sjálfir, erlendir sjónvarpsgláparar og svo auðvitað farþegar og aðrir þolendur. Já, í þá daga var mikið fiör. Það má því segja að Dagfari hafi komist við á þessum siðustu og verstu þegar fréttist af því að flugvirkjar hefðu fellt nýgerðan kjarasamning. Loksins sýndu einhverjir dug, jú, ekki má heldur gleyma verslunar- mönnum, þar sem vinnuveitendur björguðu því sem bjargað varð með því að henda ný- gerðum samningum út af borðinu. Það er þá kannski ekki öll von úti enn. Flugvirkjar, flugmenn og jafnvel flugfreyjur í sokkabuxum hafa í gegnum tíðina sýnt af sér mik- inn þokka i verkfallsátökum. Þessum stéttum hef- ur iðulega tekist að svínbeygja andstæðingana, svo við ekki tölum um blessaða sjómennina. Það er þó alls ekki öll von úti með Sjómannafélag Reykjavíkur. Þar eru harðir kallar við stjórnvöl- inn sem ekki kalla allt ömmu sína í verkfallsmál- Hrikalegt launamisrétti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.