Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2000, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000
DV
5
Fréttir
Kvóti seldur af stórbúum og svartsýni ríkir:
Lömbin þagna í Borgarfirði
Nokkur svartsýni ríkir í Borgar-
íjarðarsveit vegna þess að verið er
að leggja niður búskap á stórbúum
og kvótinn er á leið úr héraðinu.
Um er að ræða fjögur kúabú, auk
þess að í loftinu liggur að fjár-
búskapur leggist af á nokkrum
jörðum. Það er því ljóst að í það
stefnir að kálfar og lömb þagni á
hinu annálaða landbúnaðarsvæði i
Borgarfirði. Ríkharð Brynjólfsson,
sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar,
staðfesti við DV að Borgfirðingar
væru áhyggjufullir vegna þessa
máls.
„Ég get staðfest að verið er að
leggja niður búskap á stórum kúa-
búum. Það veldur okkur auðvitað
áhyggjum. Þetta snýst auðvitað um
atvinnu og þama er um að ræða að
verið er að fækka þeim stoðum
sem byggðin stendur á. Maður
heyrir mikið talað um að fólk ætli
að selja sauðfjárkvótann en ég veit
ekki hvort fólk hefur látið verða af
því,“ segir Ríkharð.
Hann segir að ekki sé endilega
um það að ræða að fólk sé að flytja
í burtu.
„Sumir snúa sér að öðru. Ferða-
þjónusta blómstrar hér og henni
fylgja mörg atvinnutækifæri. Því
er þó ekki að leyna að þetta er
slæmt,“ segir hann.
- og kálfarnir líka
DV-MYND RT
Kvótalaus fegurð
Það er Ijóst að í það stefnir að kálfar og lömb þagni á hinu annálaða landbúnaðarsvæði í Borgarfirði. Stórbú eru að
leggjast af og kvótinn fer í önnur héruð.
Ríkharð segir skýringar þess að
fólk selur kvóta sína liggja í því að
gott verð fáist fyrir kvótann.
„Það koma upp alls kyns sjónar-
mið. Fólk hefur selt kvótann þar
sem það hefur staðið frammi fyrir
því að endurnýja fjós. Þá hefur fólk
ekki séð fram á að neinn því ná-
tengdur haldi áfram búskap. Þá er
gripið til þess að selja kvótann og
liflbrauðið veröur eitthvað annað
eða einfaldlega lifsverkið," segir
hann.
Aðspurður um það hvert kvót-
inn fari segir Ríkharð að hann fari
„vítt og breitt". Hann segir sveitar-
félagið ekki eiga möguleika á því
að kaupa upp kvóta til að sporna
við því að hann fari úr héraðinu.
Þá hafi mjólkursamlagið í Borg-
arnesi verið lagt niður fyrir
nokkrum árum og því hafi Borg-
firðingar ekki þá vörn að mjólkur-
samlag kaupi upp kvótann.
„Það hefur ekki komið upp inn-
an hreppsnefndar að kaupa kvóta
til að miðla honum til bænda á
svæðinu. Enda er slíkt erfitt þar
sem aðrar atvinnugreinar eiga þá
tilkall til stuðnings ef litið er til
jafnræðisreglu. Það tiðkast viða að
mjólkursamlög kaupa kvóta innan
sinna svæða og miðla til bænda.
Þar eru dæmi um niðurgreiðslur
og hagstæð lán. Þar má nefna
mjólkursamlagið í Skagafirði og
KEA sem hafa fjármagnað kvóta-
kaup bænda. Þessu er ekki til að
dreifa hér eftir að mjólkursamlag-
ið var selt,“ segir Ríkharð. -rt
Morðið í Keflavík:
Málið enn
í rannsókn
„Rannsókn er enn í fullum gangi
og verður um sinn,“ sagði Þórir
Maronson, yfirlögregluþjónn í
Reykjanesbæ, um Keflavíkurmálið
svokallaða,
Rúnar Bjarki Rikharðsson varð
19 ára gamalli Keflavíkurstúlku, Ás-
laugu Óladóttur, að bana á heimili
hennar að morgni 15. apríl sl.
Rúnar Bjarki, sem er 21 árs, var
handtekinn sama dag og játaði hann
verknaðinn við yfirheyrslur. Hann
hefur verið fluttur í gæsluvarðhald
á Litla-Hrauni.
Útför Áslaugar fór fram frá Ytri-
Njarðvikurkirkju á laugardag og
rúmaði kirkjan ekki alla þá sem
kveðja vildu Áslaugu í hinsta sinn.
Lögreglan í Reykjanesbæ hefur
bætt við mannskap til rannsóknar á
málinu en Þórir vissi ekki hversu
langan tíma hún mun taka og sagði
að ekkert nýtt hefði komið fram í
málinu.
Talið er víst að dauði Áslaugar
tengist nauðgunarmáli sem átti sér
stað í Reykjanesbæ í mars.
DV-MYND S
Frá útför Áslaugar Óladóttur
um helgina.
Rúnar Bjarki er sakaður um að
hafa nauðgað fyrrverandi unnustu
sinni og bar Áslaug vitni gegn hon-
um í því máli.
Lögreglan hefur lýst eftir ljós-
hærðum þunnhærðum manni sem
sást á tali við Rúnar skömmu fyrir
verknaðinn en hann hefur ekki gef-
ið sig fram, sagði Þórir. -SMK
Morðmálið í S-Þingeyjarsýslu:
Rannsókn
miðar hægt
- lengingar gæsluvarðhalds krafist
DV, AKUREYRI:________________________
Rannsókn morðsins sem framið
var á bænum Bláhvammi í S-Þing-
eyjarsýslu um miðjan marsmánuð
miðar hægt og var fátt nýtt að frétta
af henni þegar DV ræddi við Sigurð
Brynjúlfsson, yfirlögregluþjón á
Húsavik, i gær.
Sigurður sagði að unnið væri að
rannsókn málsins af fullum krafti,
en óneitanlega færi mikill tími í að
bíða eftir ýmsum gögnum sem væru
til rannsóknar annars staðar. Fram
hefur komið í málinu að 67 ára
gömlum manni var ráðinn bani á
bænum og sonur mannsins, sem er
á þritugsaldri, var handtekinn
skömmu síðar og úrskurðaður í
gæsluvarðhald. Hann hefur við yfir-
heyrslur játað „að hluta" eins og
lögreglan hefur orðað það.
Gæsluvarðhald mannsins rennur
út í dag og hefur lögreglan farið
fram á að gæsluvarðhald hans verði
framlengt.
-gk
Upplagt í eldhúsið
bráðsniðugt í barnaherbergið
hljómar vel í hjónaherbergi
stórgott í stofuna
• Myndlampi Black Matrix • Nicam stereo • 50 stöðva minni
Allar aðgerðir á skjá • Skart tengi • Fjarstýring • íslenskt textavarp
ŒS BEKO á aðeins 18.900 stgr.
QS BEKO á aðeins 14.900 stgr.
ÍORION ............. czzi.
I Myndbandstæki
| • 6 hausa-nicam-LP/SP
I • 2 skart/ RCA tengi fyrir myndbandstökuvél
L
■ Allar aðgerðir á skjá • Myndvaki • NTSC afspilun
B R Æ Ð U R N I R
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is
Flötum 29 Sími 481 3333