Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2000, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2000, Page 22
42 MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ 2000 DV j Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára_______________ Árni Gunnar Pálsson, Heiðarvegi 1, Selfossi. Bjarni Eyvindsson, Dynskógum 8, Hvera- gerði. Bjarni verður aö heiman á afmælisdag- inn. 75 ára______________________________ Óskar Vigfús Markússon, Hvassaleiti 40, Reykjavtk. Unnur Guðmundsdóttir, Holtsgötu 13, Reykjavík. 70 ára______________________________ Elsa Þorsteinsdóttir, Ketilsstöðum, N-Múl. Kristín Sigurrós Jónasdóttir, Suðurhvammi 13, Hafnarfirði. Kristjana Brynjólfsdóttir, Broddadalsá 1, Strand. Sverrir Hallgrímsson, Andakílsárv. Árnesi, Borgarnesi. 60 ára______________________________ Áslaug Halla Vilhjálmsdóttir, Mýrarbraut 4, Vík. Guðlaug Sigurðardóttir, Hvassaleiti 8, Reykjavík. Jóhanna Halldórsdóttir, Hjarðarhaga 38, Reykjavík. Kamma Hansen, Lundarbrekku 2, Kópavogi. Kristín Kalmansdóttir, Minni-Borg, Árn. Páil V. Sigurðsson, Starfsmannabústaður 9 v/Vífilsstaöa- veg, Garðabæ. 50 ára______________________________ Anna María Aðalsteinsdóttir, Rskakvísl 16, Reykjavík. Björn Kristjánsson, Holtabrún 3, Bolungarvík. Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, Hólabraut 22, Skagaströnd. Jóhanna H. Hólmsteinsdóttir, Veghúsum 1, Reykjavík. Liv Gunnhildur Stefánsdóttir, Steinahlíð 7a, Akureyri. Páll Bergmann Reynisson, Byggðarholti 33, Mosfellsbæ. Sigríður Davíðsdóttir, Einarsnesi 10, Reykjavík. Sigurbjörn Sigurðsson, Njarövíkurbraut 24, Njarðvík. Steinunn Jóhanna Pálsdóttir, Vesturgötu 37, Reykjavík. Þorgerður Björnsdóttir, Fagrahjalla 14, Vopnafirði. 40 ára______________________________ Bergþór Baldvinsson, Melbraut 29, Garði. Bryndís Hlíf Maríasdóttir, Viöarási 39a, Reykjavík. Emelía Þórðardóttir, Hjallavegi 12, Isafirði. Gísli Klemensson, Hrisateigi 37, Reykjavlk. Lára Einarsdóttir, Hábergi 38, Reykjavík. Valborg Huld Elísdðttir, Brekkubæ 17, Reykjavík. Þorsteinn Arnar Einarsson, Furuhlíð 4, Hafnarfirði. Tilkynning Björgvin Þór Jó- hannsson, Vestur- vangi 40, Hafnarfirði, skólameistari Vél- skóla íslands verður sextugur á fóstudag- inn kemur, þann 5.5. 2000. Kona hans er Katrín Bára Bjamadóttir og munu þau hjónin taka á móti gestum í Oddfellowhúsinu í Hafnarflrði, Staðarbergi 2-4, föstudaginn 5. maí á milli klukkan 18.00 og 20.00. Útför Málfríðar Þóru Guðmundsdóttur, frá Nesi, Selvogi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli, fimmtudaginn, 27.4. sl., fer fram frá Fossvogskapellu á morgun, fimmtudaginn 4.5. kl. 13.30. Grétar Ðalhoff Magnússon, sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir aöfaranótt miövikudagsins 26.4. sl., verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni I Reykjavík á morgun, fimmtudaginn 4.5. kl. 13.30. Ásta Steingrímsdóttir, frá Vestmannaeyjum, verður jarösett frá Seltjarnarneskirkju I dag, miövikudaginn 3.5. kl. 15.00. Blóm afþökkuð, en bent er á heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands. Þórólfur Alvin Gunnarsson, Höfðabraut 19, Hvammstanga, verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju föstudaginn 5.5. kl. 14.00. folk i frcttum Jörmundur Ingi Hansen allsherjargoði Mikil fjölgun hefur átt sér stað í Ásatrúarfélaginu það sem af er ár- inu. Hefur umsóknum sérstaklega fjölgað eftir yfirlýsingar biskups og annarra kristinna manna um félag- ið undanfarna daga. Allsherjargoði er Jörmundur Ingi Hansen. Starfsferill Jörmundur fæddist í Reykjavík 14.8. 1940. Hann lauk landsprófi 1956, prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík 1957, stundaði síðan nám við tækniskóla í Kaupmannahöfn, í höggmyndalist hjá Ásmundi Sveins- syni og Ragnari Kjartanssyni og nám í ungversku, grísku, sanskrít og indóevrópskri samanburðarmál- fræði við HÍ á árunum 1975-78. Jörmundur vann við húsateikn- ingar á árunum 1962-66, lengst af á vegum húsameistara ríkisins, stundaði síðan verslunarstörf við fyrirtæki föður síns og síðan eigið fyrirtæki og hefur jafnframt lagt stund á ýmiss konar hönnun. Jörmundur var í framboði fyrir Framboðsflokkinn 1971, var einn af stofnendum Ásatrúarfélagsins 1972 og hefur verið þar Reykjavíkurgoði síðan. Hann hefur meðal annars staðið fyrir málþingi á Þingvöllum um landnám og uppruna íslendinga. Fjölskylda Systkini Jörmundar eru Eiríkur, f. 30.5. 1942, matreiðslumaður í Keflavík; Geirlaug Helga, f. 11.8. 1947, fangavörður í Reykjavík; Skúli, f. 23.12. 1950, matreiðslumað- ur í Reykjavík; Ingibjörg Dóra, f. 23.1.1955, innanhússarkitekt í Hafn- arflrði; Ragnheiður Regína, f. 4.7. 1963, bankastarfsmaður í Reykjavík. Foreldrar Jörmundar: Jörgen F.F. Hansen, f. 16.11. 1916, d. 1991, verslunarmaður í Reykjavík, og Helga Eiriksdóttir, f. 4.9. 1917, hús- móðir. Ætt Jörgen var sonur Jörgen I. Han- sen, framkvæmdastjóra í Reykja- vík, sonar Jörgens Hansen, kaup- manns í Hafnarfirði, frá Súnder- borg í Als en móðurbróðir hans var Johan Johnsen, kaupmaður í Flensborg, faðir Jóhanns Johnsen, útvegsb. í Eyjum, langafa Ríkharðs Pálssonar tónlistarmanns, Skúla Johnsen, héraðslæknis Reykjavík- urlæknishéraðs, Gísla Ástþórsson- ar blaðamanns, Árna Johnsen alþm. og Áma Sigfússonar fyrrver- andi borgarstjóra. Móðir Jörgens framkvæmdastjóra var Henriette, systir Hans Linnet bókara, afa Regínu Þórðardóttur leikkonu. Henriette var dóttir Hans A. Linn- ets, kaupmanns í Hafnarflrði, bróður Caroline, langömmu Gimn- ars Bjamasonar ráðunautar og langalangömmu Jónasar Kristjáns- sonar ritstjóra. Móðir Hans var Regine Magdalene Seerup. Móðir Regine var Gotfrede Elisabeth Jakobæus, dóttir Holgers Jakobæ- us, kaupmanns í Keflavík, Johans- son Jakobæus, prests í Ledöje, Hol- gerssonar Jacobæus, háskólarekt- ors og dómara í hæstarétti í Kaup- mannahöfn. Móðir Johans var Anna, dóttir Thomasar Bartholin, háskólarektors í Kaupmannahöfn, og konu hans, Else Christofersdótt- ur, borgarstjóra í Kaupmannahöfn, Hansen. Móðir Jörgens verslunarmanns var Inga, systir Guðbjargar, langömmu Margrétar Skúladóttur Sigurz, fyrrverandi fegurðar- drottningar íslands. Bróðir Ingu var Tómas, afi Sigurdórs Sigur- dórssonar blaðamanns. Inga var dóttir Skúla, b. á Ytra-Vatni, Jóns- sonar og Guðrúnar Tómasdóttur. Helga er dóttir Eiríks, b. á Orms- stöðum í Breiðdal, Guðmundsson- ar, og Geirlaugar, systur Erlings grasalæknis, föður Ástu grasa- læknis. Geirlaug er dóttir Filippus- ar, silfursmiðs í Kálfafellskoti, Stefánssonar. Móðir Geirlaugar var Þórunn, grasalæknir og ljós- móðir, Gísladóttir, b. á Ytri-Ásum í Skaftártungu, Jónssonar, bróður Eiríks, langafa sandgræðslustjór- anna Páls Sveinssonar og Runólfs, föður Sveins landgræðslustjóra. Annar bróðir Gísla var Jón, langafi Ragnars í Smára, föður Jóns Óttars, fyrrv. sjónvarpsstjóra og umboðsmanns Herba life. Móðir Þórunnar var Þórunn ljósmóðir Sigurðardóttir, b. í Steig í Mýrdal, Árnasonar. Móðir Þórunnar var Þórunn ljósmóðir, langamma Steinunnar, langömmu Jóhönnu Sigurðardóttur alþingismanns. fimmtui' Guðrún Porbjörg Guðmundsdóttir verslunarmaður Guðrún Þorbjörg Guðmundsdótt- ir verslunarmaður, Fellsmúla 19, Reykjavik, áður til heimilis að Hóla- braut 22, Skagaströnd, er fimmtug í dag. Starfsferill Guðrún er fædd og uppalin á Hvammstanga. Hún lauk gagn- fræðaprófi frá Reykjanesskóla árið 1967. Hún starfaði á Kristnesspítala árið 1967 og á sjúkrahúsinu á Hvammstanga frá 1968 til 1970. Árið 1970 var hún sjúkraliði á Biopebjerg Hospital í Kaupmannahöfn. Hún flutti til Skagastrandar árið 1971 og var handavinnuleiðbeinandi við Höfðaskóla á árunum 1971 til 1975 og frá 1984 til 1986. Guðrún setti á stofn félagsstarf fyrir aldraöa í Höfðahreppi 1984 til 1997 og var for- stöðumaður og leiðbeinandi þar. Frá 1977 til 2000 rak hún hannyrða- verslunina Guðrúnu og hefur staðið fyrir fjölda námskeiða í hinum ýmsu hannyrðum um allt land fyrir ýmis félög og félagasamtök. Guðrún er sérhæfð í japönskum listsaumi (pennasaumi) sem versl- unin flytur inn beint frá Japan. Guðrún rekur nú verslunina Kilju við Háaleitisbraut. Hún var kosin í Sjóminja- og sögunefnd Sögusafns Skagastrandar og var formaður hennar árin 1990 til 1997. Hún hefur setið í náttúru- vemdamefnd Austur-Húnvetninga frá 1988 og var formaður nefndar- innar frá 1994 til 2000. Árið 1999 starfaði hún meö áhugahóp sem sá um að merkja allar húsarústir á Kálfshamarsvík á Skaga. Einnig hefur Guðrún unnið mikið að nátt- úruvemdarmálum. Fjölskylda Guðrún giftist þann 18.8. 1972, Áma Birni Ingvarssyni, f. 7.5. 1948, sjómanni. Hann er son- ur Ingvars Jónssonar, f. 8.1. 1917, smiðs og konu hans Elínborgar Ásdisar Árnadóttur, f. 22.2. 1920, d. 7.4. 1979. Böm Guðrúnar og Áma eru tví- buramir Þröstur, f. 5.3. 1975, trommuleikari, búsettur á Blöndu- ósi, í sambúð með Vigdísi Þorgeirs- dóttur; Svanur, f. 5.3.1975, sjómað- ur, búsettur á Skagaströnd og Elín- borg Ásdís Ámadóttir, f. 22.4.1986. Systkini Guðrúnar era Ingimar Steindór, f. 17.10.1948, bóndi; Gunn- ar Þorsteinn, f. 17.10. 1948, verka- maður; Kristin Helga, f. 19.6. 1951; Garðar Þór, f. 17.11. 1952, gröfumaö- ur; Edda Heiða, f. 13.2. 1955; Inga Mar- grét, f. 18.2. 1960, verslunarmaður; Anna María, f. 28.11. 1962 og Davíð Eggert, f. 15.4. 1964, bifreiða- stjóri. Faðir Guðrúnar var Guðmundur S. Guðjónsson, f. 17.7. 1923, d. 17.6. 1997, bifreiðastjóri. Móðir hennar er Gunnhildur Vigdís Þorsteinsdóttir, f. 31.7. 1931, saumakona á Hvamms- tanga. Guðrún ætlar að halda upp á tímamótin í júlí í Kálfshamarsvík á Skaga með léttum veitingum og leiösögn Kristins Jóhannssonar um staðinn og sögu hans. Nánar auglýst í Glugganum. Mcrkir Isloinlíiiíí-ir Jónas Jónsson fæddist í Hriflu í Bárðar- dal 1. maí 1885 og var hann jafhan við þann bæ kenndur. Foreldrar hans voru Jón Kristjánsson bóndi og kona hans Rannveig Jónsdóttir. Jónas lauk gagnfræðaprófi á Akureyri 1905. Árin 1906 til 1909 dvaldist Jónas er- lendis við nám og kynnti sér þar að auki skólamál í Þýskalandi, Frakk- landi og Englandi með styrk úr Landsjóði. Hann var kennari við Kennarskólann í Reykjavík 1909-1918. Jónas hafði með fleiram forgöngu um stofnun Framsóknar- flokksins 1916. Hann var skólastjóri Samvinnuskólans 1919-1927 og 1932-1955. Jónas var dóms- og kirkjumálaráðherra 28. Jónas Jónsson ág. 1927 til 20. ap. 1931 og að nýju 20. ág. sama ár fram til 3. júni 1932. Hann var formaður Framsóknarflokksins 1934-1944. Jónas var í bæjarstjóm Reykjavíkur 1938-1942. Jónas gegndi miklum Ijölda trúnaðarstarfa í nefndum og ráðum, má t.d. nefna setu í menntamálaráði 1934-1946. Hann lét af þingmennsku 1949 en pólitískur áhugi hélst til æviloka. Jónas var kvæntur Guðrúnu Stef- ánsdóttur og eignuðust þau hjónin tvær dætur. Guðjón Friðriksson sagn- fræðingur skrifaði ævisögu Jónasar sem kom út í þremur bindum fyrir nokkrum áram. Andlát ^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmj Kristjana Káradóttir, Skjólbraut ia, Sður til heimilis I Melgerði 26, Kópavogi, lést að morgni mánudagsins 1.5. sl. Elísabet Waage, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli að morgni þriðjudagsins 2.5. sl. Gunnlaugur Kristjánsson, kerfisfræðingur, Laufengi 136, Reykjavík, lést á heimili sínu 30.4. sl. Líney Kristinsdóttir, lést mánudaginn 1.5. sl. Baldur Baldursson, Klapparstíg 10, Njarðvík, lést af slysförum sunnudaginn 30.4. sl. Sigríður Birna Guðmundsdóttir, Skeljatanga 21, Mosfellsbæ, lést á Landsspítalanum, Fossvogi, sunnudaginn 30.4. sl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.