Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Side 4
4
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
Fréttir
DV
Fyrirhuguð Kárahnúkavirkjun:
Víðtæk umhverfisáhrif
„Þetta er stærsta virkjunarfram-
kvæmd sem ráðist hefur verið í á ís-
landi og því er eðlilegt að spurningar
vakni. Við leggjum því áherslu á að
vinna fyrir opnum tjöldum," sagði
Friðrik Sophusson, forstjóri Lands-
virkjunar, á blaðamannafundi í vik-
unni en þá var kynnt tillaga um mat
á umhverfisáhrifum Kárahnúka-
virkjunar. Hún er fyrsta skrefið í
matsferlinu en umhverfísmatið verð-
ur byggt á skýrslunni sem kemur út
í mars á næsta ári. Endanleg ákvörð-
un um hvort ráðist verður i verkefn-
ið á að liggja fyrir 1. febrúar 2002.
í svokölluðu Noral-verkefni er
stefnt að byggingu 360.000 tonna ál-
vers við Reyðarfjörð en forsenda
þess og aflgjafi yrði Kárahnúka-
virkjun, auk Jökulsár- og Hrauna-
veitna sem gæfu allt að 700 MW afl.
Landsvirkjun er framkvæmdaað-
ili en áhersla er lögð á að mat á um-
hverfisáhrifum verði ferli í samráði
við stofnanir, hagsmunasamtök, fé-
lög og almenning. Því hefur verið
komið á fót vefsíðu þar sem hægt er
að fylgjast með gangi mála. Slóðin
er www.karahnukar.is
Kárahnúkavirkjun er viðamikið
verkefni sem felur í sér margvísleg
umhverfisáhrif frá
Vatnajökli og til sjávar
í Héraðsflóa. Virkjunin
yrði þrefalt stærri en
Búrfellsvirkjun og
hluti Dimmugljúfra
yrði virkjaður. Stífla á
Jökulsá á Brú við
Kárahnúka fremri og
mynda þannig miðlun-
arlónið Hálslón sem
verður 57 ferkilómetr-
ar. Stíflan verður um
190 m há og 770 m löng
en einnig verður um 2
minni stíflur að ræða.
Meðal þeirra svæða
sem fara undir vatn er
beitar- og burðarsvæði
hreindýra og eins
verpa heiðagæsir á
bökkum Jökulsár á
þessum slóðum. Ef fer
sem horfir hefjast
virkjanaframkvæmdir
sumarið 2002 og rekst-
ur Kárahnjúkavirkjun-
ar verður að veruleika
árið 2006.
-HH
Með veitu úr Jökulsá í Rjótsdal
Aöalstífla svokallaös Hálslóns verðuryfir syösta hluta Dimmugljúfra, vestan í Kárahnúk
fremri. Stíflan veröur um 190 m há þar sem hún er hæst. Vatnasviöiö veröur um 2.410 fer-
kílómetrar og raunafl virkjunar 680 MW. Vatniö veröur leitt í 40 km lönggöng aö stöövarhúsi
sem veröur neöanjaröar. Meöal áhrifa virkjunar er aö rennsli Lagarfljóts eykst og farvegur
þess veröur því víkkaöur neöan Egilsstaöa.
Á blaðamannafundi Landsvirkjunar
Á fundinum var kynnt tillaga aö mati á umhverfisáhrifum Kárahnúkavirkjunar sem veröur, ef af veröur, mestu virkjunarframkvæmdir sem íslendingar hafa ráöist í.
Fyrirhugað álver á Reyðarfirði og Kárahnúkavirkjun:
Afglöp og skammsýni
- segir Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur
„Tíminn til mats og rannsókna á
umhverfisáhrifum Kárahnúkavirkj-
unar er of stuttur og ekki raunhæf-
ur með mál af þessari stærð,“ segir
Hjörleifur Guttormsson, náttúru-
fræðingur og fyrrverandi alþingis-
maður, en hann telur að matið verði
ekki tilbúið fyrr en eftir nokkur ár.
„Þetta er mesti hemaður gegn
landinu sem nokkurn tím-
ann hefur verið ráðgerður.
Verði ráðist í virkjana-
framkvæmdir og álver er
um að ræða tvöföldun
þeirrar orku sem íslending-
ar framleiða í dag. Þetta er
mikil skammsýni, auk þess
sem orkulindir okkar eru
takmarkaðar. Svæöið er
stærsta ósnerta víðerni Evr-
ópu með mikla þýðingu fyr-
ir atvinnulíf framtíðarinn-
ar, þá m.t.t. ferðaþjónustu
og útivistar," sagði Hjörleif-
ur. Hann telur að engar end-
Hjörleifur anlegar ákvarðanir um að
Guttormsson. ráðast í þessa stóriðju verði
teknar fyrr en í fyrsta lagi eftir
kosningar 2003 og þá af ráðandi
meirihluta. „Skoða verður hlutina í
samhengi og ég tel það hrein afglöp
að setja niður risaálver á Reyðar-
firði, samfélagslega og umhverfis-
lega séð.“ Ekki náðist i Siv Friðleifs-
dóttur umhverfisráðherra vegna
málsins. -HH
Allsherjargoði á faraldsfæti
Endurhelgunarferöin um alla fjórð-
unga landsins er farin í framhaldi af
athöfn á hálendinu miöju fyrir einu
og hálfu ári. Allsherjafþing heiöinna
manna er á Þingvöllum 24. júní.
Heiðin þúsöld
hafin
- segir allsherjargoðinn
„Kristin þúsöld er liðin og nú er
að hefjast hin heiðna þúsöld, um
það eru mörg teikn á lofti, bæði hér
og erlendis,“ segir allsherjargoðinn.
Það var einmitt í gær sem Jörmund-
ur Ingi hóf hringferð sína um land-
ið sem farin er til að endurhelga það
og endurheimta fyrir landvættirn-
ar. Komið er við i öllum íjórðungum
og kyntir eldar og sá fyrsti var
kveiktur í Reykjavík í gær. Meðal
viðkomustaða eru Borgarfjörður,
Helgafell, Hraunhafnartangi, Egils-
staðir, Hjörleifshöfði og loks Þing-
vellir þann 24. júní þar sem hringn-
um er lokað en þar er allsherjarþing
ásatrúarmanna, að venju þegar sól
er hæst á lofti. Með í for verður
tökulið þýskrar sjónvarpsstöðvar
sem vinnur að heimildamynd um
Ásatrúarfélagið.
Viku eftir þing heiðinna manna á
Þingvöllum hefst þar Kristnihátíð.
„Ég hef svo sem lítið um það að segja
annað en það að þetta verður aldrei
hátíð þjóðarinnar allrar. Okkur, sem
og öðrum trúfélögum, er haldið utan
við hátíðina, okkur var ekki boðið en
var þó frjálst að koma,“ segir Jör--
mundur. „1 stað þess að minnast
sögulegs samkomulags heiðinna og
kristinna manna verður þetta sigur-
hátíð þjóðkirkjunnar." -HH
Bílvelta við
Borgarnes
Betur fór en á horfðist þegar bíll
valt við bæinn Brennistaði skammt
frá Borgamesi um hálftvöleytið í
gærdag. Kona sem í bílnum var
missti stjórn á honum er hún leit af
veginum í augnablik til þess að
sinna barni sínu. Konan var í bíl-
belti og bamið í bílstól og sakaði
hvorugt í veltunni, en bíllinn er
talsvert skemmdur. -SMK
V&ftrfó t kvolfi
Sóteiffiwgwr ofí &)hmr?o}!
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 23.53 00.29
Sólarupprás á morgun 03.01 01.54
Síödegisflóö 13.35 17.68
Árdegisflóö á morgun 01.59 06.32
Slíýi'ingaf á ve6urtákrm&:
'■!**«* ViNDÁTT 10 11 -10 ^XVINDSTVRKUR S rfHítrum á sokiimfu °, HITI 1° *NFROST Ífr HÐÐSKÍRT
ifc-íD €> ;o';:
l&rrSKýjAD HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
Bjart á Suðvesturlandi
Það verður norðaustan 5-10 m/s og rigning
eða þokusúld um norðan- og austanvert
landið. Bjartviðri á Suðvesturlandi. Hlýjast í
innsveitum norðanlands og vestan, en veöur
fer kólnandi á morgun.
mm w ígé
RIGNIN0' SKÍIRIR SLYDDA SNJÓKOMA
:W ■u W =
ÉUA0AN6UR þRUMU- SKAF FOKA
VEÐUR RENNINGUR
T»«! frjóoff!
—
Frjókorn, býflugur og blóm
Nú er sá tími árs runninn upp þegar alll
er í blóma og þá gerir frjóofnæmi vart
við sig hjá sumum. Frjómælingar eru
unnar fimm mánuöi ársins og sýna
frjótölu sem er meöalfjöldi frjókorna
sem mælist í einum rúmmetra
andrúmslofts á sólarhring. Upplýsingar
um frjótölur má finna á Netinu á síðum
Veðurstofu og Náttúrufræöistofnunar.
Skúrir sunnanlands
Gert er ráð fyrir norðan og norðaustanátt 5-10 m/s. Rigning eða súld
norðaustan- og austanlands, skýjað með köflum annars staðar, hætt viö
síðdegisskúrum sunnanlands. Hiti á bilinu 5 tii 12 stig.
Vindun r$ff!
5—10 m/s
Htii 6° itf 14°
Austlæg átt, víöast 5-10
m/s og rignlng um
sunnanvert landiö.
Heldur hlýnandi
noröanlands.
Þri&jutiggaf'-
Vindur: r"'
5-10 ,„/»
Hiti 6° til 14°
Noröaustlæg átt og
vætusamt, elnkum
noröaustanlands. Hltastlg
svipaö og hlýjast
noröanlands.
Mióvikiit?
Vindun
5-10 Rl/S
Hiti S° til 15°
Áfram noröaustlæg átt
5-10 m/s og dálftll
úrkoma, mest
noröaustanlands. Hltl á
blllnu 5-15 stlg.
1 Vbðrið k!c 3L2 i gm...
AKUREYRI alskýjaö 7
BERGSTAÐIR alskýjaö 5
BOLUNGARVÍK alskýjaö 6
EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 9 12
KEFLAVÍK skúrir 9
RAUFARHÖFN þoka 5
REYKJAVÍK skúr 10
STÓRHÖFÐI alskýjaö 8
BERGEN iéttskýjaö 17
HELSINKI skúrir. 20
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 17
OSLÓ skýjað 20
STOKKHÓLMUR ÞÓRSHÖFN skúrir 19 10
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 13
ALGARVE léttskýjað 22
AMSTERDAM léttskýjað 26
BARCELONA hálfskýjað 24
BERLÍN léttskýjaö 25
CHICAGO heiöskírt 21
DUBUN rigning. 13
HALIFAX alskýjaö 12
FRANKFURT léttskýjaö 27
HAMBORG léttskýjað 26
JAN MAYEN alskýjaö 3
LONDON rigning 17
LÚXEMBORG léttskýjaö 26
MALLORCA léttskýjaö 29
MONTREAL alskýjaö 13
NARSSARSSUAQ skýjaö 12
NEW YORK alskýjað 22
ORLANDO mistur 24
PARÍS skýjað 26
VÍN heiöskírt 27
WASHINGTON léttskýjaö 19
WINNIPEG léttskýjaö rtTO'.iihw.uni 12 dLWi3