Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Side 20
20
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
Helgarblað
I>V
Félag fráskilinna og einhleypra:
Makalausir göngugarpar
- skokka sér til skemmtunar og fá afslátt af hótelgistingu
Að búa einsamall eða lifa lífinu
einn er lífstíll sem á æ meir upp á
pallborðið í nútímaþjóðfélagi þar
sem allt gengur út á hraða, óper-
sónuleg samskipti fyrir milligöngu
tölvunnar, hörku, heimshornaflakk
o.s.frv. Enginn virðist lengur hafa
tíma til að rækta sambandið við ná-
ungann og sambönd flosna upp.
Menn sjá frelsið í hillingum og eru
seinni til að festa ráð sitt og fljótari
að hlaupast undan ábyrgðinni.
Margir sjá hreinlega þann kost
vænstan að búa einir til að standast
kröfurnar sem samfélagið leggur á
herðar okkur. í stórborgum erlend-
is er víða svo komið að þeir sem
búa einir eru hlutfallslega fleiri en
þeir sem búa með maka og fjöl-
skyldu. Á íslandi hefur sama þróun
átt sér stað. íslenska stórijölskyldan
er eftir sem áður sterk en sundrung
inncm fjölskyldna æ tíðari. Kostir og
gallar eru augljósir. Þeir sem búa
einir - annaðhvort af því að þeir
kusu sér það eða eiga að baki erfið-
an skilnað eða makamissi, tala flest-
Blaa loniö. Her sitja nokkrir úr hópnum aö spjalli eftir sundsprett í Bláa lóninu.
Fremrí röö frá vinstri: Sigríöur Haröardóttir og Sólveig Jóhannsdóttir. Aftari röö frá vinstri: Ómar Jónsson og Hilmar L. Sveinsson.
vf>' © >> & ■S'' \ \> m # \ © ^ >> m # %. © •*" \> «3 V§' \ © •I' yfr m & \
#*'
JtSíí
fgr'
Reynisvatn - útivistarperla Reykjavíkur er í ósnortnu umhverfi aðeins 2 km. frá Grafarvogsvegamótum.
í vatninu er gnægð Bleikju, laxa og regnbogasilunga, veiði við allra hæfi frá landi eða af báti.
Reynisvatn er oþið frá kl. 9-23:30 yfir sumartímann. Veiðileyfi kostar 2.950 kr. og fýlgir 5 fiska eignakvóti
Öll fjölskyldan getur nýtt sama veiðileyfið.
V/Í4
Verð 11.700 kr. á viku. Hægt er að panta I - 11 vikur, 19. júní I. september
Takmarkaður fjöldi, pantið sem fyrst í síma 861 6406 Kristín námskeiðsstjóri og 854 3789 (Reynisvatn)
Ævintýranámskeið að Reynisvatni í allt sumar
fyrir börn frá 7 ára aldri.
Vikunámskeið hefjast 19. júní og standa alla virka daga frá kl. 9-17.
• Veiðikennsla frá grunni • Reiðkennsla
• Bátsferðir • Gönguferðir - ratleikir
• Umönnun dýra • íþróttaleikir
(hesta, heimalninga, kanína) • Umhverfiskennsla
10 barna hópar (skipt eftir aldri) með fullorðnum
leiðbeinendum og þjálfuðu starfsfólki Reynisvatns.
Hollur matur innifalinn í verði, morgunkaffi, hádegisverður og síðdegiskaffi.
Rútuferðir (innifaldar í verði) frá BSÍ. Viðkomustaðir á Miklubraut,
Ártúnsbrekku ogVesturlandsvegi.
3$ v\- \ &*r {:z
ir um allan þann tíma sem þeir hafa
skyndilega fyrir sjálfa sig. Annað er
öryggisleysið sem fylgir því að
koma heim í tóma íbúð að loknum
vinnudegi þegar makinn beið
manns þar áður fyrr. Vinamissirinn
er einnig augljós. Hjón eignast oft
sína bestu vini í gegnum hjónaband-
ið og skilnaðir valda því að vinun-
um fækkar. Að fara út á meðal fólks
verður ekki jafnsjálfsagt og það var
áður fyrr og lítið gaman að því að
drattast með sem þriðja hjólið. Það
er þvi mikið gleðiefni að til eru
lausnir. Og lausnin fyrir einhleypa
gætu einmitt verið samtök ein-
hleypra.
Keyrir frá Selfossi og gengur
um Heiðmörk
Félag einstæðra og einhleypra á
íslandi hefur verið starfrækt um tíu
ára skeið. Það var fyrir tíu árum að
Hrafnkell Tryggvason auglýsti í
dagblöðum eftir fólki sem byggi eitt
og vildi koma saman og ræða lífsins
gagn og lystisemdir en þó aðallega
einsemdina. Sex manns mættu á
fyrsta fundinn.
Tíu árum síðar hefur félagið
margfaldast. Að sögn Sólveigar Jó-
hannsdóttur, sem situr í stjórn fé-
lagsins, fer fram blómleg starfsemi
á vegum þess þar sem allir finna
eitthvað við sitt hæfi. Sólveig nefnir
helstu viðburði, svo sem leikhús-
ferðir, bíóferðir, Júróvisjón-kvöld
og síðast en ekki síst skemmtigöng-
umar um Elliðaárdal og Heiðmörk
sem eru farnar tvisvar í viku allan
ársins hring.
„Á vetuma höfum við haft fyrir
venju að ganga um Elliðaárdalinn
og enda á Pizza Hut þar sem við
spjöllum yflr kaffibolla. Á sumrin
höfum við hins vegar gengið um
Heiðmörk. Hvoru tveggja hefur
heppnast einstaklega vel,“ segir Sól-
veig og nefnir sérstaklega í þessu
sambandi að göngumar séu með því
vinsælasta sem hópurinn geri sér til
skemmtunar. Einn úr hópnum, sem
býr á Selfossi, keyri meira að segja
í bæinn til að taka þátt í göngunum.
Samtökin hafa um árabil verið
með aðsetur í Risinu á Hverfisgötu
og þar fara fram fundir hálfsmánað-
arlega. Á fundum er dagskrá næsta
mánaðar skipulögð og svo er bara
hist til að spjalla yfir kafflbolla. Sól-
veig tekur líka fram að aðal samtak-
anna sé einmitt að þau séu ekki að
rembast við að vera fomileg að
neinu leyti eða hagsmunasamtök
eins eða neins. Fólkið úr hópnum sé
einfaldlega góðir vinir og ef eithvað
bjátar á sé gott að geta hringt í ein-
hvem úr hópnum og hittast utan
fundartíma.
Dýrara að vera einn
En þótt samtökin séu ekki að
neinu leyti hagsmunasamtök er
augljóst að það er dýrara aö búa
einn en með maka og fjölskyldu.
Tökum til dæmis matarinnkaupin.
Það er ótækt að kaupa mikið fyrir
lítið. Brauðið myglar bara fyrir vik-
ið, mjólkin súmar og í mörgum til-
fellum líta einstæðir svo á að það
taki því ekki að elda fyrir sig einan.
Þetta kallar á aukin útgjöld, bæði i
skyndibitakaup og eins í rétti fyrir
sjálfstæða sem hægt er að skella inn
í örbylgjuofn. Það er dýrara að
leigja, kynda, reka bíl o.s.frv. á
haus. Það er dýrara að gera nánast
allt sem lýtur að heimilisrekstrin-
um og vafalaust lítið við því að
gera. Hins vegar er ánægjulegt frá
því að segja að ferðaskrifstofur era
margar hverjar famar að bjóða gist-
ingu í ákveðnum ferðum á ákveðn-
um tímum til einstæðra á sama
verði og fyrir þann sem ferðast með
maka. Ekki svo að skilja að eitt-
hvert sérstakt prógramm sé skipu-
lagt þar sem einstæðir fá tvær grísa-
veislur fyrir eina eða húkkaraball á
spánska vísu. Það er þó mál manna
að viðhorfsbreyting sé að eiga sér
stað og að einhleypir séu ört vax-
andi hópur í einhvers konar við-
skiptasamhengi. -KGP
Skokkhópur Félags fráskilinna og einhleypra aö lokinni síöustu göngunni í
Elliöaárdalnum i vor áöur en skipt varyfir í Heiðmerkurgöngurnar.