Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
29
Helgarblað
Grímsson, Mugabe,
Mandela og Moussaieff
- álit Indverja á ástamálum forseta íslands
DV-mynd GVA
Þetta síðasta er óhætt að setja
spurningarmerki við samkvæmt
því sem DV hefur eftir bestu heim-
ildum. Þó einhver aldursmunur sé á
Ólafi Ragnari Grimssyni og Dorrit
Moussaieff fer því fjarri að hann sé
svo mikill að réttlátt sé að slá fram
fullyrðingum eins og þeim að hún
geti verið dóttir hans. -PÁÁ
Efnt verður til ævintýranámskeiða
fyrir böm á Reynisvatni í allt srnnar:
Á þessum námskeiðum, sem
ætluð eru bömum, 7 ára og eldri,
verður m.a. lögð áhersla á
veiðikennslu frá grunni, bátsferðir,
reiðkennslu fyrir byrjendur,
umönnun dýra sem dveljast við
Reynisvatn í sumar og umhverfis-
kennslu sem felst í fræðslu um
dýralíf og gróður við vatnið.
Námskeiðin standa viku í
senn, virka daga kl. 9-17, og eru
rútuferðir frá og til BSÍ með
viðkomu á Miklubraut, Ártúns-
brekku og Vesturlandsvegi.
Bömunum verður skipt í litla hópa
eftir aldri og hefur hver hópur
fullorðinn leiðbeinanda en auk
þess starfar við námskeiðin fjöldi
starfsmanna Reynisvatns með
sérkunnáttu á hinum ýmsu
sviðum. Skráning er í símum 861
6406 og 854 3789. Reynisvatn er nú
opið almenningi áttunda sumarið
í röð og hefur þar verið byggð upp
ágæt aðstaða til veiði og annarrar
útivistar. I vatninu er gnægð
bleikju, laxa og regnbogasilunga
og veiðast nú um 20.000 fiskar á
ári, mest 1-5 punda, en stærsti
fiskurinn i vatninu mun vera 57
punda lax sem sleppt var þar fyrir
þremur árum og hefur sést af og
til síðan.
Veiðileyfi kosta 2.950 krónur
og fylgir því 5 fiska eignarkvóti
sem hægt er að nýta út árið en
fiskur undir pundi er fr ír og utan
kvóta. ÖIl fjölskyldan getur nýtt
sama leyfið, þ.e. foreldrar og böm
innan 16 ára. Reynisvatn er opið
alla daga yfir sumarið frá kl. 9 aö
morgni til miðnættis.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og Dorrit Moussaieff tilkynna þjóðinni þann ásetning sinn að heitbindast.
Ólaf Ragnar Grímsson, sem hann
kallar reyndar aðeins Ragnar
Grimsson, og segir síðan:
Án þess að depla auga
„Sjáið ísland, þetta kalda, af-
skekkta land. Forseti þess, Ragnar
Grimsson, hefur tjáð þjóð sinni án
þess að depla auga að aðeins fáum
mánuðum eftir andlát konu sinnar
hafi hann fundið hamingjuna með
hinni ungu og aðlaðandi Dorrit
Eldri menn og yngri konur
Næst dregur höfundur af þessu
öllu saman þá ályktun að það kunni
alls ekki góðri lukku að stýra að
rosknir eða miðaldra menn giftist
sér mun yngri konum og nefnir
meðal annars máli sínu til stuðn-
ings hrakfarir Rollingsins góð-
kunna, Micks Jaggers, í ástamálum
í kjölfar þess að hann skreið upp í
til brasilískrar fyrirsætu.
Niðurlag greinarinnar fjallar síð-
Það er áreiðanlega engin ofrausn
að fullyrða að íslendingar hafa
áhuga á því hvernig er fjallaö um ís-
lensk málefni í erlendum blöðum -
sérstaklega þegar um er að ræða
málefni sem við erum sjálf í hálf-
gerðum vandræðum með hvernig
skuli ræða og hvort sé viðeigandi að
ræða um yfirleitt.
DV rakst á sérstæða grein um
ástamál Ólafs Ragnars Grímssonar
og Dorritar Moussaieff í dagblaði
sem heitir Independent Bangladesh
og er gefið út í samnefndu Asíuríki.
Þar fjallar dálkahöfundurinn Syed
Badrul Ahsan um ástina i lífi þjóð-
höfðinga. Sérstaklega verður hon-
um tíðrætt um það hvort mögulegt
sé og viðeigandi að þjóðhöfðingjar
sem missa eiginkonu sína á valda-
tímanum kvænist aftur eða taki upp
samband við aðra konu. Ahsan slær
þann vamagla strax í upphafi máls
síns að erfitt sé að fjalla um ástina
því enginn viti nákvæmlega um
hvað hún snýst eða hvað hún yfir-
leitt sé. Ljóst er af tóninum i grein-
inni að Ahsan finnst yfirleitt frekar
ósmekklegt að giftast aftur og alveg
sérstaklega ólekkert þegar þjóðhöfð-
ingjar eiga í hlut. Lítum aðeins á
upphaf greinarinnar:
Hjartað réð för
„Þegar Játvarður VIII upplýsti
Breta um að hann væri ástfanginn
af amerískri fráskilinni konu en
væri tilbúinn að afsala sér völdum
fyrir ástina var ljóst að hann lét
hjartað ráða fór. Einnig er ljóst að
bæði Juan Perón og Winston
Churchill voru afar ástfangnir af
konum sínum. Nærtækt dæmi frá
okkar tímum er ódauðleg ást Mik-
haíls Gorbatsjovs á Raisu, konu
sinni, sem augljóslega nær yfir gröf
og dauða.
Ástin átti greinilega ekki sterk
ítök í hjarta Hússeins, konungs
Jórdaníu. Hann giftist breskri konu
og gerði hana að drottningu sinni.
Þau áttu einn son en síðan skildi
hann við hana og giftist Aliyu. Þeg-
ar hún lést á hörmulegan hátt sneri
hann sér fljótlega að Lisu Halaby
sem hann gaf nafnið Noor. Það er
ljóst að Hússein elskaði aldrei kon-
ur sínar.“
Havel og Netanyahu
Höfundur snýr sér þessu næst að
því að fjalla um ástamál núlifandi
þjóðarleiðtoga og nefnir fyrst
Vaclav Havel sem hann segir hafa
gifst aftur einhverri konu sem
aldrei náði neinum vinsældum í
Tékklandi. Meðal annars leyfði hún
sér að reka lækni Havels og framdi
ótal önnur „hræðileg afbrot“. Ann-
að dæmi um misheppnaða seinni
eiginkonu nefnir Ahsan Söru Net-
anyahu, eiginkonu Benjamíns Net-
anyahus, fyrrverandi forsætisráð-
herra ísraels, sem hann telur hafa
átt sinn þátt í að koma eiginmanni
sínum frá völdum.
Ahsan nefnir næst sem dæmi
„Sjáið ísland, þetta kalda,
afskekkta land. Forseti
þess, Ragnar Grimsson,
hefur tjáð þjóð sinni án
þess að depla auga að að-
eins fáum mánuðum eftir
andlát konu sinnar hafi
hann fundið hamingjuna
með hinni ungu og aðlað-
andi Dorrit Moussaieff.
Kona þessi er dálkahöf-
undur fyrir Tatler og, það
sem meira er, hún er sam-
kvœmisfiðrildi afþeirri
tegund sem fákœn samfé-
lög festa oft dálœti á.“
Moussaieff. Kona þessi er dálkahöf-
undur fyrir Tatler og, það sem
meira er, hún er samkvæmisfiðrildi
af þeirri tegund sem fákæn samfé-
lög festa oft dálæti á. Moussaieff hef-
ur ekki lýst yfir ást sinni á forsetan-
um. Kannski er hún feimin og dul
en kannski ætlar hún að slíta hann
af sér snögglega. Hinir ungu vilja
ekki endilega láta binda sig við hina
gömlu.
Þetta sýnir að vegir hjartans eru
órannsakanlegir. Þetta henti einnig
Robert Mugabe sem lenti í slæmu
hjónabandi í síðara skiptið. Nelson
Mandela getum við skilið því
Winnie, eiginkona hans, var ekki
góð eiginkona og hann átti því skil-
ið að taka saman við Gracha Mand-
ela. Ekki fór vel fyrir Andreasi Pap-
andreou, fyrrverandi Grikklands-
forseta, sem giftist flugfreyju sem
olli honum aðeins vandræðum."
an enn um ástamál forseta íslands
og þar segir:
„Kannski ætti að hrósa Grims-
syni forseta fyrir hreinskilni sína
en getur maður elskað tvær konur í
senn? Getur hann snúið baki við
gröf fyrri eiginkonu og stikað rak-
leitt í fang nýrrar konu? Og þvílíkr-
ar konu. Moussaieff gæti sem best
verið dóttir hans.“
Ólafur Ragnar á ýmisiegt sameiginlegt með eftirtöldum þjóðarleiðtogum:
Vaclav Havel, Benjamin Netanyahu, Nelson Mandela og Robert Mugabe.