Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Síða 57
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000
65
Tilvera
Afmælisbörn
Hurley 34 ára í dag
Hvort sem Hugh Grant eða Elizabeth Hurley
eru skilin eða ekki þá á þokkadísin Hin-ley af-
mæli í dag, verður hún 34 ára gömul. Það kem-
ur svo í ljós í kvöld hvort Hugh Grant er boðið í
afmælisveisluna eða ekki. Elizabet Hurley er
bæði ljósmyndafyrirsæta og kvikmyndaleikkona
og sómir sér vel á báðum vígstöðvum þó yfírleitt
hafi ekki reynt mikið á hana sem leikkona. Hún
hefur aðallega leikið tálkvendi í myndum á borð við Austin Powers-mynd-
imar tvær og My Favorite Martian. Sem fyrirsæta er hún ein sú tekjuhæsta
í heiminum og prýðir oft forsíður tískutimarita.
Gene Wilder 65 ára á morgun
Gamanleikarinn góðkunni Gene Wilder er að verða
65 ára gamall og kemur það sjálfsagt mörgum á óvart.
Einhvern veginn hefur honum tekist að halda sér eins
í útliti allt frá því hann sló í gegn í fyrstu kvikmynd-
um Mel Brooks. Hver man ekki eftir honum í The
Producers eða Blazing Saddles þar sem hann fór á
kostrnn. Hann hefur einnig leikstýrt kvikmyndum en
ekki haft erindi sem erfiði. Wilder giftist á sínum tíma
gamanleikkonunni Gildu Radner og var það mikið
áfall fyrir hann þegar hún greindist með krabbamein
og lést hún 1989. Um sama leyti veiktist alvarlega einn
besti vinur hans og kollegi, Richard Pryor, og hefur
hann verið rúmfastur í nokkur ár.
Stjörnuspn
■■
Gildir fyrir sunnudaginn 11. Júní og mánudaginn 12. júní
Vatnsberinn (20. ian.-lfi. fehr.l:
Spá sunnudagsins:
Ef þú skiptir þér of
mikið af málum ann-
arra gæti það haft í for
með sér deilur. Þér gengur betur
að vinna einn en f stórum hópi.
Spa mánudagsins:
Þú umgengst nágranna þína mik-
ið á næstunni og kynnist þeim
mun betur. Félagslífið er fyrir-
ferðarmikið.
Hfúturinn (21. mars-19. april):
Félagslífið er fremur
rólegt um þessar
^ mundir og þér kann að
leiðast. Ef þú eyðir meiri tima
með fjöiskyldunni lifnar yfir þér.
Spá mánudagsins:
Ástvinum hættir til að lenda upp
á kant og reyndar er víða einhver
pirringur í loftinu. Þú færð mjög
óvæntar fréttir.
Tvíburamir /2i. maí-21. iúnn:
Spa sunnudagsins:
MKl
M M^ Þaö sem er mest áber-
wl/ andi þessa dagana er það
sem gerist án þess að þú
getir nokkuð að gert. Reyndu að
horfa á björtu hliðamar á tílverunni.
Spá mánudagsins:
Þú hefur óþarfa áhyggjur sem þú
lætur draga þig niður. Bjartari
horfur eru fram undan hjá þér en
verið hefur lengi.
Liónið (23. iúlí- 22. ágúst):
Spa sunnudagsms:
' Félagslífið er með
mikluin blóma um
þessar mundir og róm-
antíkin liggur í loftinu. Þú átt
skemmtilegt kvöld fram undan.
Spá manudagsins:
Ef þú ert að fást við eitthvað sem
þarfnast sérfræðiþekkingar er
réttast að leita ráðleggingar hjá
þeim sem eru vel að sér.
Vogln (23. sept.-23. okt.i:
Oy Þér finnst eitthvað undar-
legt vera á seyði í kring-
' J um þig en áttar þig ekki
alveg á þvi hvað það er. Líklega er
þetta ekkert til að hafa áhyggjur af.
Þér berst óvænt tilboð sem kemur
róti á hug þinn. Ef rétt er á mál-
um haldiö getur þú hagnast veru-
lega í meira en einum skilningi.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.l:
Spa sunnudagsms:
" Aðstæður verða dáhtið
óvenjulegar i dag og
þú munt eiga afar ann-
ríkt. Það reynir talsvert á þig að
koma því nauðsynlegasta í verk.
Eitthvað er að vefjast fý'rir þér sem
ekki sér fyrir endann á á næst-
unni. Ástfangnir eiga góða daga og
kvöldið verður rómantískt.
Rskamir(19. febr.-20. marsl:
Spa sunnudagstns:
*Þér græðist fé á ein-
hvem hátt en þó er
ekki um verulegar
fjárhæðir að ræða. Grunur þinn í
ákveðnu máli reynist réttur.
Spá manudagsins:
Þú kemst að raun um að greiðvikni
borgar sig ekki alltaf. Varaðu þig á
einhveijum sem er að reyna að
notfæra sér hjálpsemi þína.
Nautið (20. apríl-20. maí.):
Samband þitt við ást-
vin þinn er mjög gott
en einhveijir árekstrar
verða milli þin og náinna ætt-
ingja. Það jafiiar sig þó fljótt.
Spá mánudagsins:
Gamalt fólk verður f stóra hlut-
verki í dag og hjá þeim sem eru
komnir af léttasta skeiðinu verð-
ur mikið um að vera.
Krabblnn (22. iúní-22. iúii):
Spá sunnudagsins:
I Þú átt erfitt með að
einbeita þér fyrri hluta
dagsins og verður fyrir
óþægindum vegna óþolinmæði
annarra. Kvöldið verður rólegt.
Gættu þess að vera ekki of auð-
trúa. Það getur verið að einhver
sé að reyna að plata þig. Happa-
tölur þínar eru 2, 24 og 32.
Mevian (23. áeúst-22. sept.i:
Spá sunnudagsins:
Þú hefur í mörgu að
^^^►■snúast bæði heima og
’ heiman. Félagslífið er
fyrirferðarmikið og þykir þér
raunar nóg um.
Spá mánudagsins:
Miklar breytingar eru fyrirsjáanlegar
hjá þér á næstunni. Einhver er að
reyna að telja þér hughvarf í máh
sem þú hefiir þegar tekið ákvörðun í.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l:
Spá sunnudagsins:
Það sem i fyrstu virð-
jist áhugaverð hug-
I mynd gæti reynst illa
þegar á hólminn er komið. Happa-
tölur þínar eru 8, 21 og 22.
Spá mánudagsins:
Fyrri hluti dagsins verður fremur
strembinn hjá þér en þú kemur
hka heilmiklu í verk. Kvöldið
verður hins vegar fremur rólegt.
Stelngeitln (22. des.-19. ian.i:
Spá sunnudagsins:
Þér kann að leiðast
eitthvað sem þú telur
þó að nauðsynlegt sé
að koma frá þér. Ekki gera neitt
vanhugsað.
Spá mánudagsins:
Þú verður fyrir einstöku happi í
dag. Ekki er þó víst að um fjár-
hagslegan ávinning sé að ræða.
Félagslífið er fremur fjörugt.
Björn Þór Vilhjálmsson er umsjónarmaður þáttanna Ab baki hvíta tjaldsins
„Viðfangsefni þeirra er saga bandarískra kvikmynda frá því fyrir síðustu aldamót til dagsins í dag. Sérstök áhersla er
lögð á sögulegan og menningarlegan bakgrunn kvikmyndaiðnaðarins. “
Ný þáttaröð um bandarískar kvikmyndir:
Áhersla á tengsl kvik-
mynda og samfélags
- segir stjórnandinn, Björn Þór Vilhjálmsson
Síðastliðinn fimmtudag hófst á
Rás 1 ný átta þátta syrpa um banda-
ríska kvikmyndasögu sem nefnist
Að baki hvíta tjaldsins. Áhugasam-
ir lesendur þurfa þó ekki að ör-
vænta því fyrsti þátturinn verður
endurtekinn klukkan níu í kvöld.
Það er ætlan útvarpsins að halda
uppi hefð níubíósins á laugardags-
kvöldum og má gera ráð fyrir að
kvikmyndaunnendur taki þeirri ný-
breytni opnum örmum. Það er bók-
menntafræðingurinn Bjöm Þór Vil-
hjálmsson sem hefur útbúið þessa
þáttaröð.
„Viðfangsefni þáttanna er saga
bandarískra kvikmynda frá því fyr-
h síðustu aldamót til dagsins í dag.
Sérstök áhersla er lögð á sögulegan
og menningarlegan bakgrunn kvik-
myndaiðnaðarins. Ég mun skoða
tengsl kvikmynda og samfélags -
hlutina sem hafa mótað iðnaðinn að
baki tjaldsins. Þar á meðal verður
farið í afskipti hins sögufræga upp-
finningamanns Edisons af kvik-
myndarekstri; grimmileg valdaátök
við upphaf stúdíókerfisins; afskipti
vitundavarða af Hollywood og ber
þar katólsku kirkjuna hæst. Þegar
nær dregur okkur í tíma verða viö-
fangsefnin kunnunglegri: Kommún-
istaofsóknir, kvikmyndagemling-
amir, metsölumyndin, heimsveldið
Hollywood o.s.frv."
Kvikmyndatónlist og viðtöl
Bjöm Þór viðurkennir að við-
fangsefnið sé víðfeðmt og því í mik-
iö lagt. Hann hefur sniðið efnið að
því rými sem hann hefur og reynir
að nýta eiginleika útvarpsins til
hins ýtrasta: „Ég hef verið að sanka
að mér ýmsu efni á borð við kvik-
myndatónlist og viðtöl. Mætti þar
nefna samtal við blökkumanninn
William Walker sem upplifði það í
æsku að sjá stórvirki D.W.Griffiths
The Birth of a Nation í kvikmynda-
húsi fyrir blökkumenn. Myndin sú
er uppfull af kynþáttafordómum og
m.a. er meðlimum Ku Klux Klan
lýst sem sönnum hetjum er koma
hvíta manninum til bjargar gegn of-
ríki blökkumanna í kjölfar borgara-
stríðsins. Tilfmningaþrungin lýsing
Walkers sýnir ótvírætt áhrif kvik-
myndanna." Bjöm nefnir einnig til
sögunnar útvarpssamræður milli
Orson Welles og H.G.Wells frá 1940
eða stuttu fyrir frumsýningu Cit-
izen Kane. Til að krydda þættina
enn frekar les leikkonan Brynhild-
ur Guðjónsdóttir textann á móti
Bimi.
Væntanleg frumsýning
Bjöm segir það enn fremur mjög
jákvætt að Rikisútvarpið sé að
vakna til vitundar um að kvik-
myndir tilheyri menningunni og
bindur vonir við að dagskrárliður-
inn 9-bíó sé kominn til að vera. Þess
má geta að þegar flutningi þáttanna
Að baka hvíta tjaldsins lýkur í end-
aðan júlí verða þættir Sigríðar Pét-
ursdóttur kvikmyndafræðings Para-
dísarbióið endurfluttir.
Bjöm Þór er þó ekki aðeins mik-
ill kvikmyndaspekúlant því hann
skrifaði handritið að myndinni Góð
saman, sem Herbert Sveinbjömsson
hefur leikstýrt, og stendur til að
frumsýna hana 17. júní. Þá verður
þáttaröðið Að baki hvíta tjaldsins
komin á blússandi siglingu. Kvik-
myndaáhugamenn em hvattir til að
leggja við hlustir.
-BÆN
Baráttuleikur
Komið og sjáið stjörnuljónin
berjast til sigurs
á Stjörnuvelli í Garðabæ
í dag kl. 16.00.
Stjarnan til sigurs
UmU 4^75* SJÓVÁ&j^ALHENNAR