Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2000, Qupperneq 64
almeka
NY NISSAN ALMERA
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Lögreglan á Blönduósi:
Spjöldum
dreift viö
» vegaeftirlit
Lögreglan á Blönduósi og Rauði
kross íslands hafa látið útbúa spjald í
sambandi við sérstakt umferðarátak
lögreglunnar í sumar. Á spjaldinu er
fólk hvatt til þess að komast hjá því að
þurfa að eiga samskipti við lögreglu og
sjúkralið og gera sitt besta til þess að
komast heilt heim. Fimm þúsund
spjöld voru prentuð og verður þeim
dreift við venjulegt vegaeftirlit lögregl-
unnar í sumar. Lögreglan á Blönduósi
er með umferðarátak í gangi í sumar
sem mun að stórum hluta til felast í
auknum hraðamælingum. -SMK
Bíll valt á Vopna-
^ fjarðarheiði
Bíll valt á Vopnaijarðarheiði á
fimmtudagskvöldið. Konan sem ók
bílnum missti stjóm á honum er
sprakk á framhjóli. Hún var í örygg-
isbelti og slapp ómeidd en bíllinn er
mikið skemmdur. -SMK
Smáauglýsingadeild DV er lokuð
laugardaginn 10. júní og hvítasunnu-
dag. Opið verður mánudaginn annan í
hvítasunnu frá kl. 16-22.
Blaðaafgreiösla DV er opin frá kl.
06-14 í dag. Lokað verður hvítasunnu-
dag og annan í hvítasunnu. Opið verð-
ur þriðjudaginn 13. apríl frá kl. 06-20.
Lokað er á ritstjóm í dag og hvíta-
sunnudag. Vakt verður á ritstjóm DV
frá kl. 16-24 á annan í hvítasunnu.
Sími fréttaskots er 550 5555.
Dv-MYND ORV
Söngvari The Kinks á Islandl
Ray Davies, fyrrum sðngvari The Kinks, var glaðbeittur við komuna til íslands í gær. Hann mun nota tímann á íslandi til þess að kynna sér íslenska tónlist og
íslenskar hljómsveitir með mögulegt samstarf í huga. Sjá viðtal á bls. 2.
Ungmenni drápu og stálu óvenjuverðmætum klakfiskum hjá Hafró:
5 lúður á 14 milljónir
Sælurum m/ uuddi
90 - 97 un Veró I2G.M.0
Gæði og glæsileiki
smort
Csólbaðsto f~að
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
Fyrsta blað eftir hvítasunnu kemur
út eldsnemma að morgni þriðjudags-
ins 13. júní.
Gleðilega húiið!
- öll okkar starfsemi byggist á þessu, segir talsmaður Fiskeldis Eyjafjarðar
Fiskeldi Eyjatjarðar hefur lagt
fram rúmlega 14 milljóna króna
skaðabótakröfu á hendur flmm ung-
mennum í Grindavík, öllum innan
við tvítugt, fyrir að hafa stolið,
drepið eða sært 5-6 óvenjuverðmæt-
ar eldislúður í kví Hafrannsóknar-
stofnunar á Stað í Grindavík á síð-
asta ári. Samkvæmt heimildum DV
er málið komið á ákærustig.
Mál þetta á sér vart nokkra hlið-
stæðu. Samkvæmt upplýsingum DV
fóru ungmennin á bíl að kvöldlagi
að aðsetri Hafró að Stað skammt
vestan Grindavíkur. Hugmyndin
var að verða sér úti um vænan eld-
isfisk til að selja á veitingastöðum.
Unga fólkið fór að kvi hjá Hafró
þar sem Fiskeldi Eyjafjarðar leigir
aðstöðu fyrir afar verðmætar
klaklúður sem höfðu verið í eldi um
árabil. Áður en yfír lauk voru 4-5
lúður komnar út í bíl unga fólksins
sem var ekið af stað áleiðis til
Grindavíkur. Vaktmaður hjá Is-
landslaxi varð var við grunsamleg-
ar ferðir unga fólksis og lét hann
lögreglu vita sem kom og handtók
fólkið.
12 ára starf að baki þessum
fiski
„Þetta var fiskur sem búið var að
taka fjölda mörg ár að venja til að
við gætum stjómað hrygningu á.
Öll okkar starfsemi byggist á að við
höfum þennan fisk,“ sagði Ólafur
Halldórsson, framkvæmdastjóri
Fiskeldis Eyjatjarðar. „Þessi fiskur
sem við áttum í Grindavík var
varafiskur ef eitthvað gerðist fyrir
norðan - til að hafa ekki öll eggin i
sömu körfu. Öll okkar seiðafram-
leiðsla og rannsókna- og þróunar-
starf undanfarin 12 ár hefur byggt á
að þessi fiskur væri til staðar. Ef
við missum okkar klakfisk þá tekur
það 3-5 ár að byggja upp slíka
stofna. Á meðan yrði engin starf-
semi i fyrirtækinu."
- Er hver fiskur metin á um 3 millj-
ónir króna?
DV-MYND TEITUR
Klakfiskar
Lúðan í Grindavík er talin afar
verðmæt.
„Hver fiskur er mjög dýrmætur.
Samtals 14 milljónir í þessu sam-
bandi segja ekkert upp í það tjón ef
við missum klakfiskinn. Þetta er
mjög verðmætur fiskur og ómögu-
legt að meta tjónið. Það er hægt að
reikna sig upp í milljarða króna
verðmæti ef menn vilja. Ég held að
þetta sé afskaplega lítil bótakrafa í
þessu máli. Þama voru líka særðir
fiskar þó þeir hefðu ekki drepist.
Þetta var verðmætur klakfiskur
sem var búið að vinna og halda í
mörg mörg ár, fiskur sem starfsemi
Fiskeldis Eyjafjarðar byggist á.
Þetta var okkar varafiskur sem við
ætluðum að geta nýtt ef eitthvað
kæmi upp á en getum nú ekki,“
sagði Ólafur Halldórsson.
Hafró hefur einnig farið fram á
skaðabætur frá unga fólkinu vegna
skemmda á kvíum. Hafró hefur
einnig haldið því fram að ungmenn-
in hafi skrúfað fyrir vatn að þorsk-
kví með þeim afleiðingum að fiskar
þar drápust úr súrefnisskorti. -Ótt
Teitur Jónasson hf. fékk samþykkt lögbann á verkfallsaðgerðir Sleipnis:
Oréttlatt og olyðræðislegt
- segir Óskar Stefánsson, formaður Sleipnis, og spáir löngu verkfalli
„Þetta kemur mér algerlega á óvart
og mér þykir þetta afar óréttlátt," seg-
ir Óskar Stefánsson, formaður Bif-
reiðastjórafélagsins Sleipnis, um lög-
bannsúrskurð sýslumanns á verkfalls-
aðgerðum félagsins gegn Teiti
Jónassyni hf. og Austurleið-SBS.
Óskar segir lögbannið ólýðræðislegt
þar sem honum hafi ekki verið gefmn
nógur timi til að kynna sér gögn.
„Okkur var ekki gefinn neinn kostur á
að halda uppi vömum í þessu máli og
málsmeðferðin var vægast sagt óeðli-
leg,“ segir hann.
Að sögn Óskars munu þeir virða
lögbannsúrskurðinn en að öðm leyti
hafi þetta ekki áhrif á verkfall Sleipn-
is. „Við erum í löglega boðuðu verk-
falli og munum halda því áfram
fílefldir og þetta mun ekki koma til
með að stytta verkfallið, nema síður
sé, og ég spái verkfalli fram á mitt
sumar," segir hann.
í samtali við DV sagði Teitur Jónas-
son úrskurðinn eðlilegan þar sem
Sleipnismenn hafi verið að brjóta lög.
„Þetta var að vissu leyti kómísk staða
þar sem Sleipnismenn vom að þvinga
bílstjóra í öðrum félögum, sem ekki
vora í verkfalli, til að hætta að vinna,“
segir Teitur Jónasson, nýkominn frá
Selfossi að sækja bifreið fyrirtækisins
sem verkfallsmenn höfðu stöðvað.
Minna var um meint verkfallsbrot í
gær en á fimmtudag. Klukkan níu í
gærmorgun var rúta Austurleiðar-SBS
stöðvuð á Miklubraut þar sem Sleipn-
ismenn töldu bílstjórann gegna starfi
félagsmanns bifreiðastjórafélagsins.
Einnig vora rútur kyrrsettar af verk-
fallsvörðum við Víkurskála í Vík í
Mýrdal í gær.
Fjölmiðlum var í gær send fréttatil-
kynning frá Verkalýðsfélaginu Hlíf í
Hafnarfirði, þess efnis að það styddi
aðgerðir Sleipnis í baráttunni fyrir
bættum kjörum.
-HHAjtr