Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
Fréttir
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um reynslusveitarfélög:
Upphafleg markmið
hafa ekki náðst
- höldum okkur á jörðinni, segir Kristján Þór
Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri
í skýrslu Ríkisendurskoðunar um
árangur af reynslusveitarfélagi í
Akureyrarbæ, sem kom út á dögun-
um, kemur fram að nokkuð skortir
á að upphafleg markmið með
reynslusveitarfélaginu hafi náðst.
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri Akureyrarbæjar, segir verk-
efnið vera stórt og að ekki sé hægt
að ætlast til þess að fullkomin
reynsla náist eftir 3 til 4 ár.
„Menn verða að halda sig
á jörðinni þegar gagnrýni
kemur fram og gagnrýni er
ætlað að bæta hlutina og
koma þeim í sem best lag.
Ríkisendurskoðun er ekki
öfundsverð að hafa jafnt
erfitt verkefni og þessi
skýrsla var og það vantaði
úttekt á stöðinni þegar lagt
var upp með þetta verkefni.
Kristján Þór
Júlíusson.
Það má taka undir þessa
skýrslu sem sjónarmið því
viðmið um gæði og magn
þjónustu sveitarfélagsins
vantar. Við erum að vinna
með manneskjur og þetta er
verulega flókið og vanda-
samt verkefni og til þess
verður að taka tillit," segir
hann.
Kristján segist bjartsýnn
á framtiðina hvað varðar flutning á
milli ríkis og sveitarfélaga.
„Ég fagna þessari skýrslu og hún
er mjög jákvætt skref i því að kom-
ast að þvi hvernig best sé að standa
að flutningi verkefna á miili ríkis
og sveitarfélaga," segir hann.
Aðspurður sagðist Páll Pétursson
félagsmálaráðherra ekki hafa séð
téða skýrslu og vildi því ekki tjá sig
um innihald hennar. -jtr
Virkjunaráform Rafmagnsveitna ríkisins:
Héraðsvötn
stífluð
- jarðhiti virkjaður í Grænadal við Hveragerði
Rafmagnsveitur ríkisins fyrir-
huga að stífla Héraðsvötnin í
Skagafirði til móts við Villinganes,
um 2 kílómetra neðan við ármót
Austari- og Vestari-Jökulsár.
Heildarlengd jarðstíflu verður
um 900 metrEir en mesta hæð henn-
ar yfir árbotni verður um 60 metr-
ar. Lónið sem myndast verður um
1,7 ferkílómetrar að flatarmáli. Gert
er ráð fyrir því að virkjunin verði
30-40 megavött að afli og orku-
Leiðrétting:
Davíö lofaði ekki
I fréttaljósi DV um bætur eftir
Suðurlandsskjálfta laugardaginn 21.
júlí siðastliðinn kom fram að Davíð
Oddsson forsætistráðherra og aðrir
ráðamenn hefðu sagt að enginn íbúa
á tjónsvæði Suðurlandsskjálftans
myndi verða fyrir skaða af völdum
jarðskjálftans og að allir þeir sem
misstu hús sitt fengju tjón sitt bætt
Þetta er ofsagt en raunveruleg
ummæli forsætisráðherra voru á þá
leið að hann muni af ríkisins háifu
reyna að sjá til þess að eftirleikurinn
verði mönnum eins hagfelldur og
hagstæður og verða kann. Þessu er
hér með komið á framfæri.
vinnsla verði allt að 200 gígavatt-
stundir á ári.
Ekki hefur enn verið lokið vinnu
við mat á umhverfisáhrifum Vill-
inganesvirkjunar en reiknað er
með að henni ljúki síðar á árinu.
„Við erum að undirbúa tvær virkj-
anir, annars vegar við Villinganes
og hins vegar í Grænadal í Hvera-
gerði, þar sem við virkjum jarðhita.
Báðar þessar virkjanir eru á um-
hverfismatsstigi en úrskurðar er
vænst seinni part ársins," segir Ei-
ríkur Briem, framkvæmdastjóri
Rafmagnsveitnanna.
í ársreikningum RARIK fyrir síð-
asta ár kemur fram að eignir fyrir-
tækisins nema tæplega 14 milljörð-
um króna sem er aukning um rúm-
lega hálfan milljarð frá árinu 1998.
„Ársreikningamir sýna hagnað
eins og er en þaö stafar af óreglu-
legri færslu vegna leiðréttingar á
lífeyrisskuldbindingum fyrirtækis-
ins.
Annars er viðvarandi taprekstur,
enda erum við með mestallt af óarð-
bæra dreifikerfinu í dreifbýlinu.
Reksturinn er erfiður en þessar nýj-
ustu virkjanir koma til með að
byggja upp fyrirtækið," segir Eirík-
ur Briem, framkvæmdastjóri
RARIK. -jtr
Goðdafó-^
frá ársskýrslu RARIK1999
Rannsókn enn í fullum gangi.
Lögreglan í Reykjavík rannsakar enn
lát Hallgríms Elíssonar, 47 ára gam-
als Reykvíklngs sem var ráöinn bani
síöastliöinn sunnudag aö Leifsgötu
10. Maöur og kona hafa veriö úr-
skuröuö i gæsluvaröhald þar sem
þau eru talin tengjast dauöa hans.
Leifsgötumálið:
Enn unnið
að rann-
sókn morðs
Lögreglan í Reykjavík vinnur enn
að rannsókn morðsins á Hallgrími
Elíssyni, 47 ára gömlum Reykvík-
ingi sem fannst látinn i íbúð að
Leifsgötu 10 aðfaranótt síðastliðins
mánudags.
„Lögreglan, að svo komnu máli,
telur ekki ástæðu til þess að upp-
lýsa nákvæmlega um að hverju
rannsóknin beinist en mun gera það
áður en langt um líður,“ sagði Ómar
Smári Ármannsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn rannsóknardeildar
lögreglunnar í Reykjavík.
Hallgrimur hafði verið gestkom-
andi í íbúðinni og leiddi krufning í
ljós að honum var ráðinn bani. Um
það leyti sem lík hans fannst hand-
tók lögreglan í Reykjavík eiganda
íbúðarinar, mann á sjötugsaldri, og
38 ára gamla konu, sem einnig hafði
verið gestkomandi í íbúðinni. Þau
voru úrskurðuð í gæsluvarðhald;
maðurinn þar til í dag en konan
fram á mánudag. Hún hefur komið
við sögu lögreglunnar áður.
Að sögn Ómars Smára var ekki
búið að taka ákvörðun um það í
gærdag hvort gæsluvarðhald yfir
fólkinu yrði framlengt.
Síðastliðna daga hefur lögreglan
yfirheyrt fólk sem talið er geta varp-
að ljósi á atburðarásina sem leiddi
til dauða Hallgríms. Þar á meðal er
leigubOstjóri sem talinn er hafa
ekið Hallgrími að Leifsgötunni á
sunnudaginn.
Mismunandi óstaðfestar sögur um
það hvemig dauða Haralds bar að,
sem og ferðir hans daginn sem hann
dó og reiðufé í vösum hans hafa
heyrst í fjölmiðlum síðastliðna daga
en lögreglan vill ekki staðfesta neina
þeirra enn sem komið er. -SMK
Ve&ríð í kvöW;
Þokuloft á annesjum
Það verður aðgerðalítið veöur áfram í kvöld,
norðlæg eöa breytileg átt, 3-5 m/s, og víða
léttskýjað en þokuloft skríður sums staöar inn
á annesin norðan- og austan til. Hiti verður 8
til 18 stig, hlýjast til landsins.
Séfargangtrr og sjávarföif;
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld Sólarupprás á morgun Síðdeglsflöö 22.41 13.41 17.05 22.43 05.54 21.385
Árdegisflóö á morgun 05.32 10.05
Skýrjjigor á yeðuriókmiin ^VINDÁTT 10°S-HIT1 -10° N/INDSTYRKUR Nvcroct 1 metrum á sekúndu 1 HEIÐSKÍRT
LÉTTSKÝJAÐ o HÁLF- SKÝJAÐ e> SKÝJAÐ Ö AtSKÝJAO
w RIGNING SKÚRIR w SLYDDA Q SNJÖKOMA
ÉUACANGUR ÞRUMU- VEÐUR i* SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Atltef
Sumartími
Frávik frá staðaltíma að sumri til,
svonefndur sumartími, tíökast í um það
bil þriðja hverju ríki I heiminum. Er
klukkunni þá yfirleitt flýtt um eina
klukkustund aö vori og seinkaö aftur aö
hausti. Á íslandi voru slíkar reglur í gildi
árin 1917-1918 og síöan aftur árið
1939 til 1968. Haustið 1968 var
klukkunni ekki seinkaö aftur heldur var
sumartíminn látinn gilda áfram.
Breytileg átt
Norðlæg eða breytileg átt, 3-5 m/s. og víða léttskýjað en þokuloft á
annesjum noröan- og austan til, hiti 8 til 18 stig, hlýjast til landsins.
Éöis!
Vindur: (
2-5
Hiti O'tii -0°
Þtn&jjCJKdl
iöílSÍ
Vindur: (
2-5 „//V
Hiti O'tii -0°
'Æ-ú
Vindun
3-8
RV’S
Hiií 0°til
;.e
Gert er ráö fyrlr hægu
veörl um allt land. Einnlg
veröur Iftlll vindur og bjart
og mllt veöur.
Áfram er búlst vlö hægum
vlndl um land allt, björtu
og mlldu veörl.
Vestlæg átt og dálrtll væta
vestanlands, en þurrt fyrir
austan.
AKUREYRI skýjað 11
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK skýjaö 12
EGILSSTAÐIR 11
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 11
KEFLAVÍK hálfskýjaö 13
RAUFARHÖFN rigning 9
REYKJAVÍK léttskýjað 15
STÓRHÖFÐI þokumóöa 13
BERGEN skýjaö 17
HELSINKI alskýjaö 13
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 21
ÓSLÓ léttskýjaö 19
STOKKHÓLMUR 21
ÞÓRSHÖFN skýjaö 11
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 20
ALGARVE heiöskírt 29
AMSTERDAM hálfskýjað 20
BARCELONA léttskýjaö 26
BERLÍN skúr 20
CHICAGO léttskýjaö 22
DUBLIN skýjaö 21
HALIFAX skúr 21
FRANKFURT skúr 21
HAMBORG rigning 15
JAN MAYEN skýjað 6
LONDON skúrir 20
LÚXEMBORG skýjaö 18
MALLORCA léttskýjað 29
MONTREAL léttskýjaö 20
NARSSARSSUAQ skýjaö 11
NEW YORK skýjaö 19
ORLANDO hálfskýjaö 25
PARÍS skýjaö 22
VÍN skúrir 21
WASHINGTON heiöskírt 19
WINNIPEG léttskýjaö 20