Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
I>V
Rústir einar
Taliö er aö tveir hjóibaröanna hafi
sprungiö á meöan vélin var
enn á flugbrautinni.
Upptök eldsins
ekki í hreyflum
Eldurinn sem varð til þess að
Concorde-flugvél hrapaði skammt
fyrir utan París á þriðjudag með
þeim afleiðingum að 113 manns
biðu bana átti ekki upptök sín i
hreyflum vélarinnar, að því er
rannsóknamefnd flugslysa í Frakk-
landi, BEA, greindi frá í gær.
BEA sagði að að einn eðahugsan-
lega tveir af fjórum hjólbörðum á
vinstri helmingi vélarinnar hefðu
hefðu eyðilagst. Áður hafði verið
greint frá því að tægjur úr dekkjun-
um hefðu fundist á víð og dreif við
flugbrautina. Enn hefur ekkert brak
fundist úr innanverðum hreyflun-
um sem þykir renna stoðum undir
kenningu rannsóknarmannanna.
Norður-Kórea inn
úr kuldanum
Yfirvöld í Norður-Kóreu og á
Nýja-Sjálandi hafa samþykkt að
koma á stjómmálatengslum milli
landanna. Utanrikisráðherra Nýja-
Sjálands, Phil Goff, og utanríkisráð-
herra Norður-Kóreu, Paek Nam-
sun, undirrituðu samkomulag þar
að lútandi í Bangkok í gær.
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna og Nam-sun
áttu fund saman í Bangkok í gær en
hann er fyrsti formlegi fundur ríkj-
anna síðan í Kórestríðinu. Var eink-
um rætt um nýtt hlutverk landsins
eftir 5 áratuga einangrun. EB
greindi svo frá þvi að N-Kórea hefði
óskað eftir nánari samvinnu.
Högni Hoydal
Högni segir viöræöur ríkjanna
enn á frumstigi.
Kanna þarf póli-
tískan vilja fyrst
Forsætisráðherra Danmerkur,
Poul Nyrup Rasmussen, getur
vænst þess að fá afsvar við beiðni
um að skipaðar verði smærri nefnd-
ir í viðræðum Færeyinga og Dana
um sjálfstæðismál Færeyja. For-
sætisráðherrann hefur lagt til að
færri aöilar komi að viðræðunum
en hingað til hafa verið og einbeiti
sér að einstökum málum.
„Frá því að við hófum viðræðurn-
ar höfum við lagt á það áherslu að
pólitiskur vilji sé fyrir hendi. Þegar
hann er til staðar má ræða einstök
mál í þaula,“ segir Högni Hoydal.
86 hryöjuverkamönnum sleppt úr fangelsum á Norður-írlandi:
Maze-fangelsið
næstum tómt
Nokkrum af alræmdustu og ill-
ræmdustu hryðjuverkamönnum á
Norður-írlandi var i gær sleppt
lausum úr Maze-fangelsinu í Belfast
á Norður-írlandi og öörum fangels-
um sem hýsa skæruliða. Lausn gísl-
anna er liður í því að liðka fyrir
lausn á friðarferlinu á Norður-ír-
landi og er hluti af samþykkt sem
kennd er við „góðan fóstudag“ og
undirrituð var árið 1998 milli stríð-
andi aðila og stjórnvalda um að
leggja niður vopn. Nokkrir af hættu-
legustu hryðjuverkamönnum IRA
og sambandssinna voru meðal
þeirra 86 fanga sem gefið var frelsi í
gær en margir hverjir höfðu aðeins
afplánað lítinn hluta refsingarinn-
ar.
Einn þeirra var James McArdle
úr IRA sem var dæmdur til 25 ára
fangelsisvistar fyrir að hafa átt þátt
í sprengjuárásinni við Dockland í
Lundúnum árið 1996.
Annar var Martin Mines, skytta
Sean Kelly
Drap 9 manns í sprengingu
áriö '93.
úr IRA, sem lét þau eftirminnilegu
orð falla „sjáumst að 18 mánuðum
liðnum" er hann gekk út úr réttar-
salnum í fyrra eftir að hafa verið
dæmdur í 50 ára fangelsi fyrir aðild
að morði og fyrir að hafa vopn und-
ir höndum.-
Talsmaður IRA-fanga í Maze fang-
elsinu, Jim McVeigh, sem sjálfur
hafði afplánað 31 árs fangelsi fyrir
aðild að morði og fyrir að hafa vopn
undir höndum, las úr sameiginlegri
yfirlýsingu fanganna.
„Við göngum frjálsir út úr þessu
fangelsi eins og félagar okkar á und-
an okkur, stoltir sambandssinnar,
óbeygðir og óbugaðir."
Hryðjuverkamenn sambands-
sinna gengu út úr fangelsinu á und-
an lýðveldissinnum til að forðast
átök mannafjölda sem hafði safnast
saman til að fylgjast með lausn
þeirra. Af 86 gíslum sem voru látnir
lausir komu 78 úr Maze; 46 lýðveld-
issinnar og 33 sambandssinnar.
Stutt í kosningar
íbúi í Caracas í Venesúela gengur fram hjá kosningaptakötum sem sýna Hugo Chavez, forseta landsins, en kosningar
fara fram í landinu á morgun.
SÞ sjá um aö landamæri ísraels og Líbanons séu virt:
Landsvæði til baka
eftir 22 ára
Friðargæsluliðar Sameinuðu
þjóðanna byrjuðu að taka sér stöðu
við „ný“ landamæri ísraels og Lí-
banons í gær. Fóru friðargæsluliðar
inn á tvö svæði sem tilheyrðu áður
fyrrum hemumdum svæðum sem
ísraelar tóku af Líbönum í stríði
fyrir 22 árum en skiluðu aftur fyrir
skömmu.
Áætlað er að friðargæsluliðar
komi sér varanlega fyrir á alls sex
svæðum við landamærin. Vitni sáu
friðargæsluliða taka sér stöðu á
tveimur svæðanna áður en þeir
numu staöar og biðu frekari fyrir-
mæla.
Nýju landamærin
Fáni SÞ blaktir nú þar sem fáni
ísraets stóö áöur.
Forsætisráðherra ísraels, Ehud
Barak, fagnaði hlutverki friðar-
gæsluliða á landamærunum og
sagöist vona að þetta markaði ný
tímamót í samskiptum ísraels og Lí-
banons. Yfirvöld I Líbanon hafa sak-
að ísraela um að virða ekki nýju
landamærin og hyggjast ræða málið
innan líbanska hersins og við frið-
argæsluliða SÞ. Þá hafa Líbanir í
hyggju að fara fram á skaðabætur
frá ísrelska ríkinu fyrir að hafa
haldiö líbönsku landsvæði
hemumdu siðastliðin 22 ár. Engin
viðbrögð hafa borist frá
ísraelsstjórn vegna þessa.
Stuttar fréttir
Fundar með iðnrekendum
Vladímír Pútín,
forseti Rússlands,
átt fund með helstu
kaupsýslumönnum
og iðnjöfrum Rúss-
lands i Moskvu í
gær en markmið
fundarins var að
draga úr spennu
sem hefur stigmagnast að undan-
fórnu á milli stjómvalda og stórra
fyrirtækja vegna lagabreytinga
ríkisstjórnarinnar.
Afdrifarík fegrunaraðgerð
Átján ára bresk stúlka, Gemma
Danielson, var nær dauða en lífi eft-
ir að hafa látið gera gat á tunguna á
sér. Stúlkan missti 2 lítra af blóði á
skömmum tíma og var flutt í skyndi
á sjúkrahús. Líðan hennar er eftir
atvikum.
Sprenging í Þýskalandi
Níu innflytjendur, þar af 6 gyð-
ingar, létust I sprengjuárás á lestar-
stöðinni í Dússeldorf í Þýskalandi í
gær. Talið er að árásin geti tengst
kynþáttafordómum.
Fram til forseta
Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, lýsti þvi formlega yfir í
gær að hann myndi gefa kost á sér
til embættis forseta landsins. Þing-,
forseta-, héraðs- og borgarstjómar-
kosningar fara fram í landinu 24.
september nk.
Saddam greiði skuldirnar
Rússar sögðust í
gær kæra sig koll-
ótta rnn gagnrýni
Bandaríkjamanna á
fundi sem Pútín
hefur að undafömu
átt með aðstoðarfor-
sætisráðherra
íraks, Tareg Aziz.
Rússar hafa alla tíð verið andvígir
refsiaðgerðum gegn Irökum en
Rússar vonast til að geta endur-
heimt eitthvað af skuldum íraks við
Sovétríkin sálugu.
Allsherjarverkfall boðað
Stærstu verka-
lýðssamtök
Simbabve boðuðu
til allsherjarverk-
falls í gær til að
þrýsta á forseta
landsins, Robert
Mugabe, til að láta
af ofbeldi gagnvart
stjórnarandstæðingum og hverfa frá
landtöku svartra á jörðum hvítra.
Stálu einkunnum
Tölvuþjófar á Kýpur gerðu heldur
betur usla í menntamálaráðuneyti
Kýpur í gær þegar þeir komust yfir
upplýsingar um einkunnir rúmlega
7000 stúdenta sem þreyttu inntöku-
próf i háskóla þar í landi.
12 drepnir í Kasmír
Tólf manns létust í átökum að-
skilnaðarsinna og öryggissveita í
Srinagar i indverska hluta Kasmirs
í gær. Þar af létust 6 í skotbardaga
þegar öryggisvörður féll í valinn.
Hinir sem létust fómst er sprengja
sprakk á Alamgari-markaðnum í
miðbæ Srinagar. Að sögn lögreglu
hefur enginn lýst tilræðinu a hend-
ur sér.