Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 10
10
Skoðun
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
DV
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aðstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, simi: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf.
Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endur-
gjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fýrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Gleðilegar fréttir
Niðurstööur nýrrar rannsóknar á áfengis- og tó-
baksneyslu grunnskólanema benda til þess að annað
árið í röð hafi dregið úr neyslunni. Rannsóknin Ungt
fólk 2000 bendir til að 16% unglinga í 10. bekk reyki dag-
lega miðað við 23% á liðnu ári. Og þó svipað hlutfall img-
menna hafi smakkað áfengi fækkar þeim sem orðið hafa
drukknir. Þetta eru gleðilegar fréttir og vert að óska
grunnskólanemendum til hamingju. Fréttir af þessu tagi
gefa fyrirheit um bjartari framtíð.
Umrædd könnun bendir einnig til að neysla á ólögleg-
um fíkniefnum hafi dregist saman meðal grunnskóla-
nema en með einni undantekningu. E-pillan virðist vera
í sókn enda sölumenn dauðans duglegir við að sannfæra
ungmenni um að pillan sé ekki annað en hættulaus
gleðigjafi. Trúgjöm ungmenni hafa farið flatt á því að
leggja eyrun við þeim fagurgala.
Nauðsynlegt er að gera sérstakt átak í baráttunni gegn
e-pillunni og þar skiptir mestu að fá unga fólkið sjálft
með i baráttuna. Forvarnir og löggæsla skipta miklu en
ráða ekki úrslitum ef unglingarnir fást ekki til að taka
þátt í stríðinu við sölumenn dauðans.
Á undanfórnum mánuðum og misserum hefur verið
nokkur umræða hér á landi og víða annars staðar á
Vesturlöndum um hvort ekki sé rétt að leyfa sölu og
dreifmgu á eiturlyíjum og þá sérstaklega á kannabisefn-
um. Stjórnmálamenn jafnt sem fjölmiðlar hafa í
nokkrum tilfellum tekið undir þessa skoðun. Margir
hafa haldið því fram að með því að aðhyllast lögleiðingu
eitursins sýni menn ákveðna dirfsku, kjark og raunsæi
að horfast í augu við raunveruleikann. Ekkert er fjarri
sannleikanum. Allt tal um lögleiðingu fíkniefna er ekki
annað en uppgjöf fyrir miklum vanda og einum mesta
ógnvaldi æskufólks. Skilaboð þeirra, sem gefist hafa upp
í baráttunni gegn eitrinu, til ungs fólks eru nöturleg.
Mörkin sem dregin hafa verið á milli áfengis annars
vegar og annarra vímuefna hins vegar eru skýr og er
engin ástæða fýrir íslendinga að breyta þeim. Rök lög-
leiðingarsinna um að gróði af ólöglegum fikniefhavið-
skiptum hverfi með lögleiðingu eru léttvæg enda fæstir
sem eru tilbúnir að ganga svo langt að vilja gera öll
fíkniefni lögleg.
Einhver mesta ógnun sem steðjar að íslensku samfé-
lagi eru fíkniefni, ekki síst vegna þess að fómarlömb
þeirra eru fyrst og fremst ungt fólk sem er að stíga sín
fyrstu skref á hálli braut lífsins. Eiturstríðið mun ekki
vinnast með hálfkáki heldur með sameiginlegu átaki
allra, foreldra og barna, lögreglu og skóla, atvinnulífsins,
heilbrigðiskerfisins og stjórnmálamanna. Þeir sem
skemmta sér við leit að rökum fyrir lögleiðingu fíkni-
efna gera ekki annað en skemmta skrattanum.
Þœgilegt
Ólíkt erlendum olíufélögum hafa íslensk olíufélög ekki
lækkað verð á bensíni í takt við þróun á heimsmarkaði.
Skýringin er sú, að sögn forráðamanna íslensku olíufé-
laganna, að sveiflurnar á bensínverði koma fram síðar
hér á landi en annars staðar, hvort heldur verðið hækk-
ar eða lækkar. Þess vegna verða íslendingar að sætta sig
enn um sinn við hátt verð á bensíni á meðan frændur
okkar í Svíþjóð hafa notið verðlækkana níu sinnum í
þessum mánuði. Það hlýtur því að vera ólíkt þægilegra
að reka olíufélag á íslandi en í Svíþjóð þar sem stöðugt
þarf að breyta verði, allt eftir því hvemig vindar blása á
heimsmarkaði. óli Björn Kárason
Varaforsetaefniö á aö bæta
upp þunna afrekaskrá
Hvað þarf til að að verða forseti
Bandaríkjanna? Þetta er erfið spurn-
ing. Einhver kynni að halda því fram
að fjármagn væri það sem máli skipti,
en ekki getur það dugað eitt og sér. Þá
hefði hinn drepleiðinlegi Steve Forbes
klárlega átt að vinna síðustu kosning-
ar. Steve Forbes er miiijónamærmgur-
inn sem sóttist eftir útnefningu
Repúblikanaflokksins fyrir forseta-
kosningar 1996, án árangurs þó að fjár-
munir hans væru, að því er virtist,
ótakmarkaðir.
Ótakmarkað fjármagn er ekki nóg -
það þarf fleira tÚ - en hvað skyldi það
vera. Nú gæti maður haldið að ein-
hverjir persónulegir eiginleikar
kynnu að skipta máli, til dæmis vits-
munir, orðsnilld eða stjómunarhæfi-
leikar i bland við reynslu og afrek til
aö státa af. Það er ekki ósennilegt að
einhverjir þessara eiginleika í ríkum
mæli ættu að einkenna þá persónu
sem milljónir manna kjósa tO að fara
með æðstu völd í eina stórveldinu sem
enn er einhver töggur í.
En George W. Bush, frambjóðandi
repúblikana í forsetakosningum vest-
anhafs síðar á árinu, mun sýna það og
sanna, sigri hann í kosningunum, að
forseti getur maður orðið án nokkurra
slíkra eiginleika. Sigur hans hlyti að
kollvarpa endanlega þeirri tilgátu að
ekki hver sem er geti orðið forseti
Bandaríkjanna.
Ekki hver sem er
Nú er Bush yngri auðvitað ekki
hver sem er. Hann er sonur Bush eldri
sem fyrst var varaforseti Bandaríkj-
anna og svo forseti þeirra í fjögur ár.
Hann gekk i alla sömu skólana og fað-
ir hans og reyndi í hvívetna að fylgja
fordæmi hans. Eins og Bush eldri
gerðist hann orrustuflugmaður þó að
ekki ætti fyrir honum að liggja að
vinna stríðsafrek. Hann hefur einnig
lagt sig mjög eftir íþróttum, eins og
faðir hans, og svo hefur hann stundað
olíuviðskipti með ágætum hagnaði.
Munurinn á feðgunum er þó sá að
Bush yngri hefur alls ekki skarað
fram úr á þeim sviðum þar sem hann
hefur látið til sín taka. Þvert á móti
hefur hann yfirleitt alltaf verið kom-
inn upp á náð og hjálpsemi vina og
vandamanna og geti hann þakkað
frama sinn einhverju þá er það líklega
því að hann skuli vera sonur fóður
síns og bera nafn hans. Blgjamt fólk
hefur jafnvel gengið svo langt að segja
að Bush yngri sé „apaútgáfan" af Bush
eldri og er þá líklega vísað til ólíks
vaxtarlags þeirra feðga.
Afrekaskráin
Helsta afrek Bush má segja að hafi
verið yfirburðasigur hans í rikis-
stjórakosningum í Texas fyrir tæpum
Dick Cheney, varaforsetaefni
Repúblikanaflokksins.
tveimur árum. En gagnrýnendur hans
gera litið úr afrekum hans á rikis-
stjórastóli. Völd og umsvif ríkisstjóra í
Bandaríkjunum eru mismikil eftir
ríkjum og í Texas hvað minnst. í
Jón
Ólafsson
heimspekingur
JÍÍl
Erlend tíðindi
valdatið sinni hefur Bush beitt sér fyr-
ir skattalækkunum og telur sér ekki
síst til tekna að hafa stuðlaö að mikl-
um lækkunum á eignasköttum. Hann
hefur fyrst og fremst komið fram sem
verndari stórfyrirtækja og hefur beitt
sér fyrir lögum sem gera erfiðara að
sækja fyrirtæki til saka.
Aðalstyrkur hans kemur frá stórfyr-
irtækjunum. Hins vegar verður því
ekki heldur á móti mælt að hann hefur
náð meira fylgi meðal svartra og
spænskumælandi kjósenda í ríki sínu
en flestir repúblikanar í landinu. Ekki
þykir minnst um vert að Bush hefur
lagt á sig að læra spænsku, nóg til þess
að geta spjallað við spænskumælandi
kjósendur sína. Alþýðuhylli er vafa-
laust sá kostur Bush sem fjársterkir
stuðningsmenn hans telja að geti
fleytt honum alla leið í Hvíta húsið.
Sú hugmynd um Bush sem smám
saman verður sterkari er að hann sé
í raun lítið annað en fulltrúi þeirra
afla sem leggja fé sitt í hann. Sú póli-
tik sem hann hefur fram að færa er
þunn blanda af hófsamri hægri-
mennsku á bandarískan mæli-
kvarða og því sem hann hefur sjálf-
ur kallað brjóstgóða íhaldssemi. í
henni felst að þótt því sé hafnað að
þeir sem minna bera úr býtum eða
hafa orðið undir í þjóðfélaginu eigi
rétt á bótum eða greiðslum frá hinu
opinbera eigi samt að sýna fátækum
ákveðið umburðarlyndi og skilning.
Öruggt varaforsetaefni
Bush er svo sigurviss fyrir kosn-
ingamar í haust að jafnvel nánum
samstarfsmönnum hans þykir nóg
um. Það réði vali hans á varaforseta-
efni, sem tilkynnt var um nú í vik-
unni, að hann vildi taka sem
minnsta áhættu og kaus því mann
sem hann taldi engar líkur á að gæti
skaðað framboð sitt. Fyrir valinu
varð fyrrum samstarfsmaður fóður
hans Dick Cheney sem var varnar-
málaráðherra á meðan á Persaflóa-
stríðinu stóð og er almennt vel þokk-
aður. Sá annmarki sem sumir sjá á
Cheney er þó einkum sá að hann er
mun íhaldssamari í afstöðu sinni til
ýmissa félags- og velferðarmála en
Bush sjálfur. Hann er til dæmis ein-
dreginn andstæðingur fóstureyðinga
sem eru eitt mesta deiluefni í banda-
rískum stjórnmálum. En Cheney bæt-
ir hins vegar Bush upp ýmsa bresti
sem menn hafa séð á framboði hans.
Eitt er einstök fávísi Bush um alþjóða-
mál, eins hefur Cheney áratuga
reynslu af stjórnkerfinu í Washington.
Bush er fremri Quayle
Kosningabarátta þeirra Bush og A1
Gore, frambjóðanda demókrata, hefur
þótt vera með fágaðasta móti miðað
við þann drulluslag sem hefur ein-
kennt bandarisk stjórnmál öðru frem-
ur undanfarin ár. Ástæðan fyrir þessu
er sjálfsagt ekki sist sú að margt er
líkt með frambjóðendunum. Þeir boða
engar róttækar breytingar og eru báð-
ir fæddir inn í pólitíkina, en faðir Gor-
es var um árabil öldungadeildarþing-
maður og áberandi sem slikur.
Að einu leyti hefur Bush þó öruggt
forskot á keppinaut sinn: Frá honum
streymir slíkur fjöldi mismæla og
klaufalegra tilsvara að hinn mislukk-
aði varaforseti fóður hans, Dan Qu-
ayle, hefur ekki tærnar þar sem Bush
hefur hælana. Ágætt safn slíkra til-
svara er að finna á veftímaritinu
Slate.com undir fyrirsögninni „bus-
hisms“.
Martha Smith velur ekki rétta tímann til að
nýta sér Internetið til að versla „óvarin“l