Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 12
12
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
DV
Fréttir
Varaforsetaefni repúblikana, Dick Cheney, er umdeildur fyrir störf sín:
Úlfur í sauðargæru
og lengst til hægri
Aftan úr grárri fbmeskju og góðir saman
Bush hefur fyrirskipaö fleiri aftökur en nokkur annar ríkisstjóri í Texas, eöa rétt rúmiega 100 af 192 aftökum frá því
aö þær voru teknar upp aftur í fylkinu áriö 1982. Cheney hefur hins vegar veriö sakaöur um aö vera andvígur jafnrétti
kynjanna og lausn Nelsons Mandela úr fangelsi á sínum tíma. Sex sinnum greiddi hann atkvæöi gegn því aö
refsiaögeröum yröi beitt gegn Suöur-Afríku á tímum aöskilnaöarstefnunnar.
Síðastliðinn þriðjudag tilnefndi
George W. Bush Dick Cheney sem
varaforsetaefni sitt fyrir komandi
forsetakosningar sem fram fara í
Bandaríkjunum 7. nóvember nk.
Dick Cheney er langt frá því að vera
að stíga fyrstu skref sín í banda-
rískum stjórnmálum og er reyndar
gamall fjölskylduvinur Bush-fjöl-
skyldunnar. í stjómartið Bush eldri
var Cheney einn af lykilmönnunum
á bak við Persaflóastríðið auk þess
sem hann gegndi stöðu vamarmála-
ráðherra. Sögusagnir um að Cheney
yrði beðinn að fara fram sem vara-
forsetaefni höfðu þegar kvisast út í
siðustu viku og því kom fáum á
óvart þegar Bush og Cheney kynntu
fyrirhugað samstarf sitt á sameigin-
legum blaðamannafundi fyrr í vik-
unni. Cheney hafði meira að segja
gengist undir ítarlega læknisskoðun
sem átti að skera úr um hvort hann
væri líkamlega í stakk búinn til að
bjóða sig fram en hann hafði átt við
heilsuleysi að stríða, gengist undir
hjartaskurðaðgerð fyrir réttum ára-
tug.
Blæs á gagnrýnisraddir
Cheney er í dag laus við öll ein-
kenni hjartaáfallanna sem hann
fékk frá lokum áttunda áratugarins
og fram undir lok þess níunda.
Cheney, sem er 59 ára, er sagður lifa
mjög heilbrigðu líferni og í Larry
King Show á CNN á þriðjudag sagð-
ist hann reyna að gæta sín þótt
hann væri veikur fyrir mat. Hann
bætti við að hann væri hættur að
reykja, æfði íþróttir reglulega og
tæki inn lyf sem hjálpuðu honum að
halda niðri kólesterólmagni í blóð-
inu.
Hann blæs á allar gagnrýnisradd-
ir sem efast um að fyrrum hjarta-
sjúklingur geti valdið jafn ábyrgðar-
miklu embætti og varaforseta
Bandaríkjanna.
„Ég vil minna fólk á að ég fór i
hjartaaðgerð og tók síðan aö mér
stöðu vamarmálaráðherra og hafði
yfirumsjón með Persaflóastriðinu.
Ég get ekki imyndað mér meiri
streituvaldandi aðstæður en þær,“
sagði Cheney i spjallþætti Larrys
Kings.
Besta pókerfésið í bænum
Cheneys er helst minnst fyrir
frammistöðu sina sem varnarmála-
ráðherra Bandarikjanna í Persaflóa-
stríðinu í stjórnartíð Bush eldri.
Það var t.a.m. Cheney sem fékk yf-
irvöld í Sádi-Arabíu til að sam-
þykkja að Bandaríkjamenn sendu
herafla sinn til landsins og eins var
það Cheney sem tók þá afdrifaríku
ákvörðun að senda ekki bandaríska
landgönguliða inn í írak.
Þá átta mánuði sem stríðið stóð
kom Cheney ávallt fyrir sjónir
manna sem yfirvegaður og skyn-
samur yfirmaður varnarmála, jafn-
vel þótt hann hefði oft háð harða
rimmu á bak við tjöldin við Colin
Powell, hershöföingja og yfirmann
sameinaða heraflans fyrir botni
Persaflóa. Áður en Cheney tók að
sér embætti vamarmálaráðherra
haföi hann setið á þingi sem full-
trúi repúblikana í Wyoming-fylki
og þar á undan hafði hann verið í
starfsliði Geralds Fords forseta.
I bókinni Krossförin frá árinu ‘93
fjallar höfundurinn, Rick Atkinson,
um Persaflóastríðið og segir þar
m.a. um Cheney að hann sýni
sjaldnast önnur svipbrigði en eilitið
bros eða örlitla grettu. Kollega
Cheneys og aömiráll hjá vamar-
málaráðuneytinu, Joseph Lopez,
bætir um betur þegar hann segir
Cheney vera með „besta pókerfésið
í Washington".
Þrátt fyrir að allt hcdi virst eðli-
legt á yfirborðinu þegar Persa-
flóastríðið var að bresta á kraumaði
ósætt æðstu ráðamann undir niðri.
Þegar írak réðst inn í Kuveit árið
1990 efaðist Powell um mikilvægi
þess að Bandaríkjamenn segðu írök-
um stríð á hendur og vildi þess í
stað einbeita sér að Sádi-Arabíu og
tryggja öryggi hennar. Cheney var
hins vegar á því að mikilvægt yrði
að verja Kuveit meö hliðsjón af ör-
yggi Sádi-Arabíu og sá þar með inn-
rás íraka sem fyrsta skrefið í út-
þenslustefnu þeirra.
Þrátt fyrir mikla reynslu Cheneys
af þjóðaröryggismálum og störfum
innan Pentagon sinnti hann sjálfur
aldrei herskyldu og sótti um undan-
þágu frá henni árið 1960 þegar hann
var við háskólanám og nýorðinn
faðir.
Eiginkonan berst gegn fram-
andi menningarstraumum
Eiginkona Cheneys, Lynne Chen-
ey, er um margt lík Hiiiary Clinton
að því leyti að hún hefur náð að
kveða sér hljóðs í þjóðmálum um
leið og hún stendur sem klettur á
bak við eiginmanninn. Lynne hefur
verið lýst sem manneskju með mjög
sjálfstæðan persónuleika en ekki
bara komu háttsetts stjómmála-
manns. Hún hefur skapaö sinn eig-
inn orðstir sem leiðandi íhalds-
manneskja í félags- og menningar-
málum og þekktust er hún fyrir
harða afstöðu sína í menntamálum
þjóðarinnar og baráttu gegn innreið
framandi menningarstrauma í
bandarískar skólastofur. Þrátt fyrir
róttæka afstöðu í menntamálum
hefur hún engu aö síður það orð á
sér að eiga gott með samskipti við
fólk, hvort heldur repúblikana eða
demókrata. Fullvíst má telja að
Jesse Jackson
Hann segir Repúblikanaflokkinn
iengst til hægri meö Cheney og
Bush í broddi fylkingar.
Lynne muni áfram láta að sér kveða
í mennta- og félagsmálum í fram-
tíðinni og ekki spillir fyrir að eigin-
maöur hennar hefur verið skipaður
sem varaforsetaefni Bush í komandi
kosningum. Andstæðingar hennar
eru engu að síður fjölmargir og
barátta hennar fyrir hreinræktaðri
bandarískri menntastefnu fer fyrir
brjóstið á mörgum.
Vinur olíubarónanna
Eitt af því sem oftast hefur borið
á góma frá því að ljóst var að Chen-
ey færi fram með Bush eru tengsl
hans við bandariska olíuiðnaðinn.
Olíframleiðendur hafa fagnað inn-
komu Cheneys í forsetaslaginn og
vona að þar með verði bundinn
endi á ýmis höft sem demókratar
hafa sett á olíuiðnaðinn að undan-
fomu. Cheney hefur einkum unnið
sér það til frægðar að hafa breytt
Hallibum Co. olíufyrirtækinu í eitt
umsvifamesta olíufyrirtækið á
heimsvisu. Cheney hefur gegnt
stöðu forstjóra og framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins frá árinu '95 og
á þeim tima hefur hann einkum
markað stefnu fyrirtækisins á sem
breiðustum grundvelli og greitt göt-
una að innlendum olíufyrirtækjum
sem hafa áhrif á olíumarkaðinn um
leið og hann hefur fært út kviarnar
á erlendri grund. Um 2/3 hiutar
rekstrarins byggjast á starfsemi fyr-
irtækisins erlendis. Cheney hefur
nú sagt stöðu sinni hjá fyrirtækinu
lausri og hefur David Lesar verið
skipaður eftirmaður hans.
Úlfur í sauðargæru
Engum dylst að Cheney er af-
burðagóður stjórnandi og sigrar
hans í olíugeiranum bæta að
margra mati fyrir umdeildar
ákvarðanir sem hann átti þátt í að
taka í Persaflóastríðinu. Munar þar
mestu um afskipti Bandaríkja-
manna af innrásinni í Kuveit sem
jafnfrant var frumforsenda þess að
stríðið hófst. Andstæðingar Chen-
eys vildu margir að beðið yrði með
afskipti af málinu þar til ljóst yrði
hvort innrás Husseins væri bundin
við Kuveit eingöngu. Ef að þeim til-
lögum hefði veriö gengið hefði stríð-
ið fyrir botni Persaflóa jcifnvel
aldrei orðið að veruleika. Cheney
kaus hins vegar að láta ekki reyna
á þá óvissu.
Fleiri umdeildar ákvarðanir hafa
skyggt nokkuð á pólitískan feril
Cheneys. Mannréttindafrömuður-
inn, séra Jesse Jackson, sagði í vik-
unni að val Bush á Cheney ylli því
að stjóm repúblikanaflokksins væri
að færast enn þá lengra til hægri.
Sagði Jackson að Jesús hefði „varað
okkur við úlfum í sauðargæru" og
að Cheney væri einn slíkur. Cheney
hefur að mati Jacksons verðskuldað
þennan titil fyrir að hafa í gegnum
tíöina greitt atkvæði gegn ýmsum
tillögum sem gert var að jafna stöð-
una í jafnréttis- og mannréttinda-
málum í heiminum. Sagði Jackson
aö Cheney hefði greitt atkvæði gegn
tillögum um að virða bæri jafnrétti
kynjanna og sex sinnum hefði hann
greitt atkvæði gegn því að refsiað-
gerðum yrði beitt gegn Suður-Afr-
íka á tímum aðskilnaðarstefnunnar.
Þá sagði Jackson að Cheney heföi
greitt atkvæði gegn tillögu um að
knúið yrði á um lausn Nelsons
Mandela úr fangelsi á sinum tíma.
Heimildir: Reuter, AP, New York
Times o.fl.
Colin Powell hershöfðingi ásamt Cheney
Powell og Cheney háöu oft haröa rimmu á tímum Persaflóastríösins.