Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Blaðsíða 13
13
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
DV
Helgarblað
Djasshátíðin í Kaupmannahöfn:
Deilur um menningargildi Djasshátíðarinnar í Köben
Sumarið er tími djasshá-
tíða víða um heim. Djasshá-
tíðin í Kaupmannahöfn í júlí
ár hvert er ein þeirra og
mörgum Islendingum að
góðu kunn. Á hátíöinni sem
lauk þann 16. júlí var boðið
upp á fjölda tónleika í tíu
daga. Nokkrar deilur risu
raunar um menningargildi
djasshátíðarinnar.
Of mikið af frægum
nöfnum
Peter H. Larsen, tónlistar-
stjóri hjá Danska útvarpinu
og stjórnandi stórsveitarinn-
ar þar á bæ, og Niels Henn-
ing 0rsted Pedersen lýstu því
yfir að of mikið væri gert út
á vinsældir og áhrif frægra
nafna á kostnað gæða og
framsýnnar tónlistar. Vildu
þeir meina að stjórn hátíðar-
innar gerði sér að góðu þá
listamenn sem bandarísk út-
gáfufyrirtæki vilja helst
koma á framfæri við Evrópubúa.
Auðvitað mótmæltu forsvarsmenn
hátíðarinnar þessu, viðurkenndu að
vísu nauðsyn þess að bjóða upp á tón-
leika með frægum flytjendum en
sögðu engan veginn slegið af kröfun-
um. Engu að síður myndu Natalie
Cole, Tony Bennett og Diana Krall,
sem öll voru með útitónleika i Tívoli,
helst höfða til þeirra sem njóta þess
að þefa af djasstónlist af og tiL En vert
er að nefna að einnig var hægt að
hlýða á Ray Brown, Kvartett Michaels
Breckers og Pats Methenys, Tríó Roys
Haynes, Michels Camilos og marga
fleiri og að auki fjölda danskra lista-
manna á borð við Palle Mikkelborg,
Thomas Clausen og söngkonumar
Lise Norgaard, Katrine Madsen og
Niels Henning Orsted Pedersen.
Susi Hyldgaard.
Gagnrýnendur reyndust svo þegar
til kom ekkert yfir sig hrifnir 'af of
menningarlegu efni. Til að mynda
kvartaði gagnrýnandi BT undan
skorti á „idyl“ og sveiflu hjá Umo-
stórsveitinni finnsku og Boris Rabin-
owitch lét meira að segja sér fátt finn-
ast um Finnana í Politiken. Gítartríó-
ið Triad frá Finnlandi vakti hins veg-
ar hrifningu beggja.
Tilþrif á kontrabassa
Sá er þetta ritar hafði einn dag af-
lögu í borginni við sundin i miðju
sumarfríi og var svo lánsamur að
komast á tónleika með Tríói McCoy
Tyners. Klukkan sjö hófust tónleik-
arnir í Sirkushöllinni. Strax í fyrsta
laginu, Trane-Like eftir
Tyner, sem tileinkað er John
Coltrane, sýndi Chamett
Moffet þvílík tilþrif á kontra-
bassann að maðm- hélt hann
hafa spilað út öllum tromp-
um sínum svona undireins.
En í ljós kom að hann hafði
meira uppi í erminni þegar
hann axlaði rafbassa og bætti
strax um betur í lagi númer
tvö, In The Tradition, eftir
Stanley Clarke.
A1 Foster lék á trommurn-
ar og sló algerlega í gegn með
frábærri tilfinningu fyrir
samspili og mikilli hug-
myndaauðgi. Mikill húmor
var í leik hans enda brosið
næstum eins og límt á andlit-
ið allan tímann.Mögnuð
spilamennska og sveiflan var
með eindæmum. Hér var um
að ræða djassskemmtun í
hæsta gæðaflokki. Eftir hlé
var fluttur konsert sem
nefndist Kind of Blue þar
sem trompetleikarinn Wallace Roney
og píanistinn Bennie Green ásamt
sextett íluttu tónlistina af samnefndri
plötu Miles Davis sem löngu er orðin
klassísk. Verður að segjast að eftir
hvirfilbylinn fyrir hlé virkaði þessi
hluti tónleikanna hreint ekki nógu vel
þótt vel væri spilað.
Djúp og hás Diana
í Tívolí, „pá Plænen", var nýjasta
stórstimi djassins, söngkonan og pí-
anóleikarinn Diana Krail, að hefja
leikinn um tíuleytið. I Fall in Love too
Easily söng hún djúpri og hásri
röddu. Raddsviðið er ekki mikið en
vel fer hún með, sérstaklega eru bail-
öðumar fluttar af innileik sem vart á
sinn lika. Nema ef vera skyldi hjá
Shirley Horn. Þær eru ótrúlega líkar
og báðar fínir píanistar. Enda dregur
fröken Krall ekkert úr því hve mikið
hún á Hom að þakka. Hún fór troðn-
ar slóðir í lagavali, enda yfirlýst
stefna að flytja eingöngu standarda.
Þetta var djass i sparifótunum eins og
verið hafði hjá Tony Bennett á sama
stað kvöldið áður. Nýjasti geisladisk-
ur Díönu, When I look in Your Eyes,
var tilnefndur til síðustu Grammy-
verðlauna en Carlos Santana hafði þá
sigur sem kunnugt er.
Skrif um menningu eða ómenningu
hafa svo sem enga þýðingu i sjálfu
sér. Skoðanaskipti eru þó af hinu góða
og vekja athygli á tónlistinni. Það er
gott að bjóða upp á sem fjölskrúðug-
asta flóru flytjenda á djasshátíð. Öll
góð músík er góð (sic) og engin ein
tegund betri eða verri en önnur.
Hins vegar er ljóst að samruni
flestra stíla og stefna djassins eins og
hann fullkomnast hjá McCoy Tyner
tríóinu er mun skemmtilegri en líf-
vana uppvakningur eins stílbrigðis á
borð við Kind of Blue-konsertinn, med
fyllstu virðingu fyrir þeirri annars
ágætu tónlist.
Ingvi Þór Kormáksson
... ... :
MAX
- heilsárs torfærutæki -
• Siglirávatni
• Frðbærrísnjó, mýrlendi.
þöfum og breHHum
• Drifáöllum hjölum
• Mjöh fjöörun
• Tveggja srrohha fjörgengisvél
• Vmiss auhabönaöurfáanlegur
s.s. prutönn. bein, blæja.
drátrarspil. herrur o.m.fl.
• Verðfrákr. 706.800 ánvslr.
-Gagni------------------
Tungusíða 21 • Pósthólf 24 • 602 Akureyri
Sími: 461 4025 • Fax: 461 4026 • Netf.: gagni@centrum.is
' ’.'.M Sr :
bókunarsími 00 44 12 79 66 63 88
250 kr. aukaafsláttur ef
bókað er á www.go-fly.com
miðast við eftirspurn samkvæmt skilmálum nýja lágfargjaldaflugfélagið í eigu british airways flýgur til stansted
london stansted • alicante • barcelóna • bilbao • bologna • kaupmannahöfn • edinborg • faro • ibiza • lissabon • madrid • malaga • mílanó • napolí • palma • prag • róm ■ feneyjar