Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 15
15 LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000 DV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað Ekki bara hjón Ótafur Ragnar og Guörún Katrín Þorbergsdóttir greiöa atkvæöi í forseta- kosningunum 1996. kjör Ólafs Ragnars að flytja forseta- skrifstofumar úr Stjómarráðshús- inu yfir á Sóleyjargötu 1 svo þeir tveir þyrftu ekki að deila húsi sam- an. Þá lenti forsætisráðherra i vand- ræðum með að hrópa ferfalt húrra tyrir forsetanum við þingsetningu og reyndi við illan leik að útskýra fyrir þjóðinni að hann væri í raun að hyfla fósturjörðina en ekki for- setann sérstaklega með þessum húrrahrópum. Forsætisráðherra beitti sér einnig fyrir breytingu á þeirri skipan að handhafar forseta- valds þyrftu alltaf að fylgja forsetan- um út á flugvöfl er hann færi úr landi. Með því tókst Davíð Oddssyni að spara sér margar ferðir suður til Keflavíkur til þess eins að kveðja forsetann sem flaug oftar út en tíðkast hafði meðal forvera hans í embætti. Sigurinn í höfn Forsetahjónin á svölum Aiþingishússins fyrir fjórum árum. Gerður Kristný ritstjóri: Afhjúpun „Forsetinn hefur veriö þjóð sinni til eintómrar gleöi þann tíma sem hann hefur setió í embœtti. Ég varö vitni aö því þegar hann afhjúpaöi styttu á Snœfellsnesi á dögunum. Honum fórst það afar vel úr hendi og var það mál manna aö sjaldan heföi önnur eins afhjúpun fariö fram. Og ekki á Dorrit eftir aö standa sig síö- ur vel. “ kringum sig og kunni til verka í kosningum og pólitískum leikflétt- um. Vandað var til verka á meðan sjálfstæðismenn runnu út á tíma og enduðu með frambjóðanda sem aldrei hafði möguleika gegn Ólafi. Um skelfingu sjálfstæðismanna vegna góðra undirtekta sem fram- boð Ólafs Ragnars fékk þegar i upp- hafi segir sjáifstæðismaöur þessa sögu úr hanastélsboði þar sem Dav- íð Oddsson og Vigdís Finnbogadótt- ir voru meðal gesta: „Þama lögðust Davið Oddsson og fleiri menn á Vigdísi og þrýstu mjög á að hún sæti eitt kjörtimabil i við- bót. Þrýstingurinn var settur fram sem létt gaman en engum duldist al- varan. Þá treysti Davíð Oddsson sér ekki í slaginn en málin horfðu öðru- vísi við ef Vigdís sæti eitt kjörtíma- bfl í viðbót. Hún hefði þá verið í far- arbroddi i landafundahátíðahöldun- um öllum og hefði hætt núna sem alþjóðleg stórstjama. Á þetta var henni bent í samkvæminu og ef hún hafði látið til leiðast þá hefði Davíð Oddsson farið fram í ár og líklega unnið átakalítið þær forsetakosn- ingar.“ Davíð bregst við En Vigdís Finnbogadóttir lét ekki segjast og þar með var brautin rudd fyrir Ólaf Ragnar. Sjálfstæðismenn hafa aldrei sætt sig við nýjan for- seta enda lét forsætisráðherra það verða eitt sitt fyrsta verk sitt eftir Skrikar fótur Þrátt fyrir andstöðu pólitískra andstæðinga og hrakspár þeirra um framgöngu fyrrum formanns Al- þýðubandalagsins og Þjóðviljarit- stjórans í æðsta embætti þjóðarinn- ar hefur Ólafi Ragnari tekist að sinna skyldum forsetans með þeim. ágætum að 90 prósent þjóðarinnar styðja hann til áframhaldandi verka ef marka skal niðurstöður skoðana- kannana. Mótframboð gegn honum nú í vor hefði verið óhugsandi og aðeins til hneisu þeim er hefði reynt. Þrisvar hefur honum þó skrikað fótur svo eftir hafi verið tekið og þykir ekki mikið á fjórum árum: í upphafi forsetaferils síns fór Ólafur Ragnar ásamt Guðrúnu Katrínu í heimsókn til Vestfjarða. Ók hann þar viða um í forsetabif- reið sinni sem fór ekki varhluta af holum í vegum þar vestra. í viðtali gat forsetinn ekki á sér setið og lét svo um mælt að kominn væri tími til að lagfæra vegina í fjórðungnum. Þeir væru varla færir. Þáverandi samgönguráðherra, Halldór Blön- dal, reis þá upp á afturfæturna og benti forsetanum á að það væri ekki hlutverk hans að tjá sig um ástand vega eða frammistöðu Vegagerðar- innar. Heyrðist ekki meira í forset- anum um það og vegirnir fyrir vest- an eru í svipuðu ástandi og áður. Ráðherrann reiður Verra þótti þó þegar Ólafur Ragn- ar fór að tjá sig um og túlka utan- rikisstefnu íslendinga í samtali við sænskan blaðamann er hann var í opinberri heimsókn í Svíþjóð á sið- asta ári. Þá hrikti i utanríkisráðu- neytinu og Halldór Ásgrímsson varð reiður, eða, eins og einn starfs- maður utanrikisþjónustunnar orðar það: „Það hefur ekki verið hlýtt á milli utanríkisráðherra og forset- ans. Ráðherrann fer ekki með for- setanum til Kanada nú á næstunni og tæpast heldur til Indlands. Hall- dór varð brjálaður þegar Ólafur Ragnar fór að túlka utanríkisstefnu hans.“ Forsetinn var harkalega Egill Helgason blaðamaður: Tildur „Hafi Ólafur Ragnar Grímsson vilj- aö gera eitthvað við embœtti sitt þá hef- ur þaö gjörsamlega mistekist. Strax og hann reynir eitthvaö aö opna munninn lemja sjálfstœöismenn og Mogginn hann í hausinn svo hann þorir sig hvergi aö hrœra. Þess vegna er Ólafur Ragnar fastur í finheitamennsku og tildri sem fer honum mjög illa. Þó ég hafi kunnaö betur vió þann gamla Ólaf Ragnar sem alltaf var í leöjuslagnum þá má hann eiga þaö aö meó embcettis- fœrslu sinni hefur hann undirstrikaö betur en nokkur annar innihaldsleysi forsetaembœttisins. “ gagnrýndur í þremur leiðurum í Morgunblaðinu vegna málsins og hefur ekki tjáð sig um utanríkismál síðan. Nú síðast er það ræða sem forsetinn flutti í samkvæmi fyrir bandaríska kaupahéðna í Los Áng- eles í fyrra mánuði sem veldur deil- um. Þar lofaði forsetinn íslenska þjóð af svo miklu kappi að auðveld- lega má túlka sem háð. Sorgfn og ástin Það er nýr heimur sem blasir við Ólafi Ragnari Grímssyni þegar hann stígur fram á svalir Alþingis- hússins á þriðjudaginn og heilsar þjóð sinni. Margt fór öðruvísi en hann hafði ætlað á fyrsta kjörtíma- bili hans í embætti forseta íslands. Eftir tæpt ár á Bessastöðum veiktist Guðrún Katrín forsetafrú og við tók löng og ströng læknismeðferð hér heima og erlendis. Forsetafrúin lést svo á sjúkrahúsi vestur í Bandaríkj- unum haustið 1998 og var mikill harmur kveðinn að forsetanum, fjöl- skyldu hans, svo og allri þjóðinni. Landsmenn syrgðu Guðrúnu Katrínu með forsetanum og dætrum hans og því vakti það mikla athygli þegar ljóst varð að ástin hafði aftur látið á sér kræla í hjarta forsetans. Síðastliðið haust óskaði Ólafur Ragnar Grímsson eftir því við þjóð sína í sjónvarpsviðtali að hún veitti sér tilfinningalegt svigrúm til að þróa tilfinningasamband við nýja manneskju sem sér væri kær. Dor- rit Moussaieff var komin til sögunn- ar og varð um tíma eitt helsta frétta- efni íslenska fjölmiðla. Fundum þeirra bar fyrst saman daginn eftir að Pólland gekk í NATO, 1. apríl 1999. Þar var Ólafur Ragnar við- staddur og að loknum hátíðahöldum í Póllandi flaug hann til Lundúna þar sem hann sat kvöldverðarboð þarlendra vina sinna. í því matar- boði hitti hann Dorrit Moussaieff fyrst og varð þegar hlýtt á milli þeirra. „Dorrit er um margt lík Guðrúnu Katrinu," sagði einn af aldavinum forsetans þegcir hann var spurður út í konurnar tvær i lífi forsetans. „Þær eiga það sameiginlegt að vera Jónína Benediktsdóttir líkamsræktarkona: Gullmoli „Forsetinn hefur gert margt vel. Kannski hefur hann sett sjálfan sig á stall sem ég átti ekki von á aö hann geröi. Ég vona bara aö hann veröi ögn mannlegri í framtíöinni og komi fram sem þjönn þjóöarinnar og hœtti aö predika eins og hann á vanda til. En mér sýnist Dorrit vera gullmoli. “ ákveðnir dugnaðarforkar sem láta sér fátt fyrir brjósti brenna. Báðar unnu þær við hönnun. Guðrún Katrín hannaði til dæmis öll föt sín sjálf og Dorrit hefur sem kunnugt er hannað skartgripi. Hér er um að ræða tvær sjálfstæðar, vel gefnar konur sem alls staðar láta til sín taka. Ólafur Ragnar laðast að svona konum. Sjálfur er hann nákvæmur fræðimaður sem nýtur þess að ræða málin ofan í kjöl. Konurnar í lífi hans eru eins og gluggi út á við. Þær eru í raun tengsl hans við fólk- ið.“ Eins og barnakennari Annar gamall kunningi forseta- hjónanna dregur ekki dul á að kon- ur hafi alltaf skipt forsetann miklu máli. Ekki síst pólitískt: „Ólafur Ragnar er í eðli sínu kennari og hagar sér oft eins og bamakennari sem er að segja börn- um til. Munurinn á honum og bamakennara er hins vegar sá að þegar bamakennarinn gengur út úr kennslustofunni hættir hann að kenna. Ólafur Ragnar hættir aldrei. Hann heldur áfram að sveifla kenn- araprikinu og leiðrétta allan þann miskilning sem hann telur vera í gangi. Þannig er hann bara. Kon- umar í lífi hans bæta það upp sem hann vantar. Þær eru víddin sem hafa gert honum kleift að ná þangað sem hann ef til vill ætlaði sér alltaf - til Bessastaöa." -EIR Falliö Dorrit Moussaieff hlúir aö forsetanum eftir að hann féll af hestbaki í útreiöartúr í Landsveit síöastliöiö haust. Fall forsetans vakti heimsathygli og íslenska þjóöin varö í fyrsta sinn vitni aö þeim kærleik og gagnkvæmu ást sem ríkti á milli forsetans og unnustu hans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.