Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Síða 17
17
LAUGARDAGUR 29. JÚLf 2000__________________________
I>V __________________________________________________________________ Helgarblað
Þaö eru margir sem gætu hugsað
sér að ganga í það heilaga með
Claudiu Schiffer.
Claudia
fær
spænskt
bónorð
Móðir ofurfyrirsætunnar Claudiu
Schiffer fékk frekar undarlega
heimsókn um daginn þegar 44 ára
gamall spænskur maður hringdi
dyrabjöllunni á sumarhúsi þeirra á
Mallorca. Um leið og móðirin
opnaði dyrnar kastaði maðurinn
giftingarhring til hennar og hróp-
aði: „Ég vil giftast dóttur þinni!“
Móðir ofurfyrirsáetunnar kallaði
strax á öryggisverðina sem komu og
tóku manninn sem hefur áður kom-
ið við sögu lögreglunnar vegna
álíkra mála. Biðillinn, sem var með
annan giftingarhring á sér og stór-
an rósavönd, hefur víst áður beðið
aðrar stjörnur um að giftast sér
samkvæmt upplýsingum The Sun.
Það þýddi allavega lítið að biðja um
hönd Schiffer þar sem hún er nú
þegar trúlofuð og það hinum vel efn-
aða breska viðskiptajöfri, Tim
Jeffries. Sjálf var Claudia að heim-
an þegar hið spánska bónorð var
borið upp.
Börnin
horfa á
mömmu
strippa á
leiksviðinu
Ofurfyrirsætan Jerry Hall frá
Texas mun fletta sig klæðum fyrir
framan bömin sín á sviði í London
í næsta mánuði þegar hún tekur við
hlutverki frú Robinson í The
Graduate.
Breska blaðið Daily Mail skrifar
að Jerry hafði boðið James, sem er
14 ára, og Elizabeth, 15 ára, að fylgja
föður sínum, Mick Jagger, og
fóðurafa sínum, Joe, á
frumsýninguna. Haft er eftir
leikhúsmanni að ekki myndu allir
vilja afklæðast fyrir bömin sín og
tengdaföður. Jerry Hall sé hins
vegar óvenjuleg kona. Fyrirsætan
ætlar þó að láta yngstu bömin,
Georgiu, sem er 8 ára, og Gabriel, 2
ára, vera heima.
Ólánið eltir Ally McBeal:
Anorexia og eiturlyfja-
misnotkun í Ally McBeal
í Hollywood ræða menn hvort
það sé hugsanlegt að bölvun hvíli
yfir AUy McBeal-sjónvarpsþættin-
um. Þá er ekki verið að tala um
áhorf eða vinsældir þar sem Ally
er einn vinsælasti sjónvarpsþáttur
heims. Leikaramir virðast ekki
þola álagið sem frægðinni og vin-
sældunum fylgir. David E. Kelley,
framleiðandi þáttanna, segist hafa
áhyggjur af leikurunum sem hver
af öðrum lendir í rugli af einhverju
tagi.
Framleiðendm- þáttanna höfðu
ekki reiknað með að þátturinn
yrði svo vinsæll sem raun bar
vitni og aðalleikkonan, Calista
Flockhart, léttist stöðugt. Hún neit-
ar þó öllum sögusögnum um anor-
exíu þótt flestir áhorfendur séu
ekki í vafa. Calista hefur verið beð-
in um að vera ekki í stuttermabol-
um í þáttunum svo þvengmjóir
handleggir hennar sjáist ekki.
Portia orðin veik
Önnur leikkona í þættinum, hin
ljóshærða Portia de Rossi, hefur
lent í því sama að undanfornu og
er orðin svo þvengmjó að fólk hef-
ur áhyggjur. Hún þykir hafa lést
meira og hraðar en Calista.
Portia hefur þó ekki þurft að
hætta um tíma eins og Lisa Nicole
Carson sem leikur herbergisfélaga
Ally.
Hún er í meðferð geðlækna á
sjúkrahúsi og veitti viðtal þaðan
þar sem hún sagði frá þvi sem
reynt hafði verið að fela. „Ég hef
verið talin klikkuð, geðveik og
þunglynd allt frá því að ég var lítil
stelpa," sagði hún.
Lisa var flutt á sjúkrahús eftir
átta daga áfengis- og eiturlyfja-
sukk.
Courtney Thorne-Smith, sem
leikur hina giftu Georgiu, hefur yf-
irgefið þáttinn en neitar því að það
hafi eitthvað með erfiðleikana að
gera.
David E. Kelly er ekki á þvi að
öll athygli sé af hinu góða og hann
hefur áhyggjur af sögusögnunum
og líðan leikaranna. „Að leikarar
þurfi að þola að föt þeirra, hár-
greiðsla eða þyngd sé stöðugt til
umfjöllunar er ekki eðlilegt. Eng-
inn myndi þola það til lengdar og
þegar einkalíf leikaranna fær
meiri athygli en sjálflr þættirnir
efast ég stundum um starf mitt.“
Jay Leno
ánægður
með launin
Á hverju kvöldi horfa um 6,5
milljónir manna á Tonight Show
með Jay Leno. Það eru 2 milljónum
fleiri en áhorfendur Late Show með
David Letterman.
Jay er með tekjur í samræmi við
áhorflð og þénar stjarnfræðilega
háar upphæðir fyrir þættina sina en
svo græðir hann líka fúlgur á því að
koma fram i svokölluðu stand up.
Leno fær 9 milljónir fyrir hálftíma
langa skemmtun. Leno hlær að mál-
tækinu sem segir að peningar geri
manninn ekki hamingjusaman. í
nýlegu viðtalið segir hann: „Ef mað-
ur er hamingjusamur fyrir gera
peningar mann enn hamingjusam-
ari.“ Samtímis því sem heimurinn
hlær að bröndurum Lenos hlær
hann að launaumslaginu.
Gríska eyjan Æ
Krrt
Sólríkasta feröanýjungin
Krít hefur það allt
Ægifögur náttúra, átakamikil saga,
heillandi mannlíf, frábært loftslag og
óviðjafnanlegur sólarsjarmi gera Krít
að langvinsælustu sumarleyfis-
staónum á Grikklandi!
2ja vikna ferð 21. ágúst
Prófaðu tvo bráðskemmtilega kosti á
Krít. Fyrri vikan í íbúó við Chania.
Seinni vikan á hóteli vió Rethymnon.
Eigum einnig laust í tvær vikur:
íbúðir á llianthos Village,
herbergi á Hótel Panorama
og herbergi á lúxushótelunum Creta
Palace, Porto Rethymno
og Rithymna Beach.
^rÚRVAL-ÚTSÝN
Lágmúla 4: *íml 585 4000, gr»nt númar: 800 6300,
Kringlan: slmi 585 4070, Hafnarfirfti: slmi 585 4100,
Keflavík: sími 4211353, Akureyri: sími 462 5000,
Seifoss: sfmi 482 1666
• og hjá umboðsmönnum um land allt.
www.urvalutsyn.is