Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
Helgarblað
Heitasta par
Hollywood:
George
Clooney +
Lucy Liu
Heitasta pario í Hollywood þessa
stundina eru George Clooney og
Lucy Liu. Sjarmörinn Clooney varö
fyrst þekktur fyrir leik sinn sem dr.
Ross í Bráðavaktinni en er nú aö
leika í myndinni „A Perfect Storm“.
Lucy Liu er aðallega þekkt frá þátta-
röðina um „Ally McBeal“ en er
einnig að leika í myndinni
„Charlie’s Angels" ásamt m.a. Drew
Barrymore. Það var einmitt Drew
sem kynnti Lucy fyrir sínum gamla
félaga Clooney samkvæmt Globe.
Þau féllu strax hvort fyrir öðru og
sjást æ oftar á keleríi á kafíihúsum
Hollywood.
... og George.
Sendillinn Steindór Gunnar Steindórsson:
Berar
bossann
út um
allan bæ
- allt í nafni leiklistarinnar
Auglýsingaspjöld fyrir leikritið Með
fullri reisn, sem er sýnt í Tjarnarbíói
um þessar mundir, hafa vakið mikla
athygli. Á spjaldinu er hópmynd af
leikurunum sem taka þátt í sýning-
unni og er einn þeirra með bossann
beran. Sá sem á bossann heitir Stein-
dór Gunnar Steindórsson og fer hann
með eitt af aðalhlutverkunum í sýning-
unni sem fjaliar um hóp manna sem
ákveða að vinna fyrir sér með nektar-
dansi.
„Þessi mynd var bara tekin i fífla-
gangi, auglýsingin átti eiginlega að
vera allt öðruvísi," segir Steindór sem
greinilega er með blendnar tilfínning-
ar yfir útkomunni.
„Við strippum reyndar í lokaatrið-
inu en það er nú ekki alveg það sama
að hafa rassinn á sér hangandi út um
ailan bæ og það að fækka fótum á svið-
inu,“ upplýsir hann. Vinir og kunn-
ingjar Steindórs hafa tekið plakatinu
vel enda strákurinn með flottan aftur-
enda eða eins og Steindór orðar það:
„Það hefur helst verið mamma sem
hefur verið að hlæja að mér.“
Annt unt sitt heilagasta
Steindór, sem er tvítugur, hefur
ekki komist hjá því að sjá plakötin, og
það oft á dag, þar sem hann vinnur
sem sendiil fyrir RÚV og er því mikið
á ferðinni. Hann hefur töluvert leikið
áður og stefnir ótrauður á frekari af-
rek á því sviði og gæti vel hugsað sér
að fara í Leiklistarskólann þegar hann
klárar FB um jólin.
„Ég er að stefna á leiklistina en ekki
stripparann enda er mér annt um mitt
heilagasta, ef hægt er að orða það
þannig," segir Steindór en strákamir í
leikritinu fara úr öllu í lok sýningar-
innar svo er nema von að blaðamaður
spyiji hann um stefnu hans í þessum
málum.
Sýnir allt
Þegar strákamir fækka spjörum í
Tjamarbíói verður allt vitlaust.
„Þvi eldri sem þú ert þeim mun
meira gargaröu á sýningunni," segir
Steindór, giottir, og tekur það skýrt
fram að þeir sýni „allt“.
„Þegar ég er up^i á sviði að strippa
í leikritinu þá lít ég ekki á mig sem
einhvem nektardansara enda er þetta
bara leikrit. Maður hefúr oft séð menn
á typpinu í leiksýningum og bíómynd-
um og þeir era ekki flokkaðir sem ein-
hverjir stripparar. Strippið er ekki at-
vinnan heldur er ég að leika karakter
sem strippar og það er ekki ég sjálfur,"
segir Steindór.
Sjálfur hefur Steindór enga sérstaka
skoðun á nektardansi í Reykjavík enda
aldrei farið inn á stað sem býður upp á
Rottur rass
Steindór er stoltur af afturendanum sem hann berar í nafni leiklistarinnar fyrir
sýninguna Með fullri reisn í Tjarnarbíói.
svoleiðis.
„Ætli ég eigi ekki einhvem tíma eft-
ir að fara inn á eitthvað af þessum
nektarstöðum hér f Reykjavík enda
líklega jafn forvitinn um þessi mál og
hver annar Jón Jónsson," segir Stein-
dór sem mun sýna bossann út ágúst-
mánuð og jafhvel lengur í Tjarnarbíói.
-snæ
Heygarðshornið
. , **. 'v - v >
ggjcro
Hi .
Þjóðir eiga sér iðulega ein-
kennisdýr, skepnu sem fólk-
inu þykir vænt um og finnst
sem holdgeri það besta úr eig-
in þjóðarsál á einhvern máta:
rússneski björninn, banda-
ríski örninn era steigurlát-
ustu dæmin um þetta.
Hvert skyldi vera ást-
sælasta dýr íslendinga? Ef við
leiöum hjá okkur sauðkindina
og hið margbrotna og flókna
samband hennar við íslensku
þjóðina þá getum við sagt sem
svo að það hljóti að vera fugl
því „fuglamir era svo fallegir
og fjöragir og skemmtilegir og
bjóða svo góðan þokka af sér,“
eins og Jónas Hallgrímsson
orðaöi það í Yfírliti sínu yfir
fuglana á íslandi árið 1835. Og
einn er sá fugl sem landsmenn
Með stélið sperrt
hafa um aldir unnað heitar en ,, . ,
öðrum dýrum og það er lóan - **»“’.*• ■*
ööra nafni heiðlóa, heiló,
heylóa, heyló, eða þeyló. Hún
'WiÞ$lPWÍm'
'be. •;
'
varð þjóðinni ástsæl löngu fyrir daga
auglýsingastofa og atburðahönnuða
þannig að sú ást er einlæg og sprottin
af indæli lóunnar. Enda ekki að ósekju
því að lóan er fullkominn fugl, hvar
sem á hana er litið: um hana segir í
Þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar: „Þeg-
ar hún syngur dýrðin dýrðin, er hún
að lofa skaparann. En dí-hljóð hennar
á haustin er saknaðarsöngur, er hún
verður að fara af landinu." Og í sínu
undursamlega riti Fuglar í náttúra ís-
lands segir Guðmundur Páll Ólafsson:
„Hún er falleg, góðleg, á fegurstu ung-
ana, mestu lofkvæðin og síðast en ekki
síst kemur hún með vorið og dásamar
Islands dýrðarinnar-dýrð.“
Á alvöru fjölmiðlum er það helsta
frétt vorsins að lóan sé komin og hún
vekur kenndir umfram aðra fugla.
Lóan táknar þolgæði og viðkvæmni,
fegurð og láúeysi, vinnusemi, von-
gleði, birtu, yl, gróður, söng: hún tákn-
ar allt það góða á íslandi, hún er and-
stæða þess ljóta og vonda. Hún gargar
ekki. Hún er fuglinn okkar og góðum
íslendingi verður óglatt við
það eitt að heyra að hún sé
snædd.
****
Hafí Kristnihátíð leitt eitt-
hvað i ljós þá væri það
kannski helst það að hug-
myndin um ísland er að breyt-
ast. Gamla hugmyndin um
einn siö í einu landi hjá einni
einhuga þjóð dó þessa daga og
landsmenn vita ekki alveg
hvemig þeir eiga að líta á sig:
era þeir vinnusöm og sann-
kristin smáþjóð, stoltir kot-
ungar, dyggðug hjú, fjallræöu-
fólk? Lóan er fugl þessarar
sjálfsmyndar: hún hefur sagt
mér að vaka og vinna. Hún
hreykir sér ekki.
Eða eru Islendingar landa-
fundamenn næsta árþúsunds?
Menntaðasta, gáfaðasta, hug-
kvæmasta, skemmtilegasta,
sérkennilegasta, úrræðabesta,
fundvísasta og sókndjarfasta fólk sem
gengið hefur um á jörðunni? Þjóð í far-
arbroddi heimsviðskiptanna, hert af
aðstæðum, afburða þjóð, útvalin þjóð?
Óneitanlega hafa slíkar sjálfsmyndar
bumbur verið barðar á þessu ári hins
mikla þjóðarskrams og ekki þarf lengi
að leita i túristaskrani því sem íslend-
ingar bjóða erlendum gestum upp á til
að finna einkennisfugl þessarar sjálfs-
myndar, hinn nýja einkennisfugl ís-
lands.
Það er lundinn.
Gu&mundur Andri Thorsson
skrifar í Helgarblaö DV.
„Á alvöru fjölmiðlum er
það helsta frétt vorsins
að lóan sé komin og hún
vekur kenndir umfram
aðra fugla. Lóan táknar
þolgœði og viðkvæmni,
fegurð og látleysi, vinnu-
semi, vongleði, birtu, yl,
gróður, söng: hún táknar
allt það góða á íslandi,
hún er andstœða þess
Ijóta og vonda. Hún garg-
ar ekki. Hún er fuglinn
okkar og góðum íslend-
ingi verður óglatt við
það eitt að heyra að hún
sé snœdd. “
Túristaskran er yfirleitt ljótt, nán-
ast hvar sem komið er, að minnsta
kosti meðal þjóða af evrópskum upp-
rana - það er helst á Indlandi sem
maður hefur rekist á fagra smámuni
ætlaða túristum. En sé það á ein-
hverju sviði þar sem við íslendingar
sláum öllum öðrum þjóðum við þá er
það í framleiðslu á nauðaljótu túrista-
skrani. Ekkert er ömurlegra en ís-
lenskir leirvíkingar með homahjálma
- andspænis litlum styttum af Björk
sem seldar era í virðulegum túrista-
búðum rennur manni kalt vatn milli
skinns og hörunds. Og yfir og allt um
kring, upp um alla veggi, allir þessir
lundar.
Útlendingum finnst það að sögn
merkilegt að hér skuli vera milljónir
af lundum og við því hefur snarlega
verið bragðist með því að gera þennan
fugl að opinberam einkennisfugli
landsins, og þess eflaust skammt að
bíða að hann verði settur í skjaldar-
merkið. Kannski að hann henti vel i
þessu nýja hlutverki sínu eftir allt
saman og endurspegi það sem íslend-
ingum finnst mest til um í eigin fari:
því lundinn er skrautgjam og yfir-
borðslegur, sjálfumglaður og steigur-
látur og duglegur við að taka sig út:
hann er að vísu hálfgerður klaufi að
fljúga og magalendingar hans era ekki
einskært augnayndi en enginn fugl
jafnast á við hann í því að ganga um
með stéhð sperrt.
Lundinn er líka sá fugl sem
auðveldast er að veiða í net.