Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Side 28
28
Helgarblað
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
I>V
Sara Dögg Ásgeirsdóttir er ómenntuð en upprennandi leikkona:
Besta viðurkenningin
er manns eigin
Ung íslensk stúlka, Sara
Dögg Ásgeirsdóttir, hlaut
nýlega verðlaun fyrir
besta kvenaðalhlutverk á
Intemational Fantasy
Film kvikmyndahátíð-
inni í Puchon í Kóreu
fyrir leik sinn í mynd
Hrafns Gunnlaugssonar,
Myrkrahöfðingjanum.
Það kom líklega mörgum
á óvart þar sem Myrkra-
höfðinginn fékk ekki
góða dóma gagnrýnenda
hér á landi.
„Ég lagði ekki af stað til Kóreu
með neinar væntingar, mér fannst
ég eiginlega bara vera að fara í hálf-
gerða túristaferð og vissi svo til
ekkert um þessa kvikmyndahátíð.
Þegar ég fékk verðlaunin fékk ég
hálfgert samviskubit yfir að hafa
tekið verðlaunin frá einhverjum
öðrum, kannski vegna þess að ég er
ekki leiklistarmenntuð en þama
var mikið af hæfileikaríkum leikur-
um.“ Þetta segir Sara Dögg Ásgeirs-
dóttir sem er nýkomin heim frá al-
þjóðlegri kvikmyndahátíð í Kóreu
með ekki ómerkari titil en besti
kvenleikari í aðalhlutverki fyrir
leik sinn í kvikmyndinni Myrkra-
höfðingjanum. Þetta er frumraun
Söru á leiklistarsviðinu og stelpan
því aldeilis óþekkt í augum íslensku
þjóðarinnar.
Feimin sveitastúlka
„Ég er 23 ára sveitastúlka, fædd
og uppalin á Klettum i Gnúpverja-
hreppi," segir Sara þegar Helgar-
blað DV ákvað að forvitnast nánar
um uppruna og líf þessarar ungu
leikkonu og ekki síst tildrögin að
tilnefningunni í Kóreu.
Segja má að leiklistaráhugi Söru
hafi kviknaði á unglingsárunum í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
sem hún tók á þremur árum því
henni lá svo á að fullorðnast.
„Mig langaði alltaf til þess að fara
í leiklistarfélagið í skólanum en var
of feimin til þess að láta verða af
því. Á þessum árum var ég mikið
fyrir mig og hálf til baka. Þessi
draumur og áhugi blundaði í mér
en það var bara eins og það væri
ekki tímabært," segir Sara sem að
stúdentsprófi loknu var hálft ár i
málanámi i Frakklandi.
Greidd upp úr frosnu vatni
Þegar Sara kemur til baka haust-
ið 96 fer hún að vinna í versluninni
Gallerí Evu. Haustið eftir byrjar
hún í sálfræði í Háskólanum eftir
að hafa tekið einhver leiklistamám-
skeið.
„Mér fannst reyndar vera mun
meiri sálfræði í því sem ég var að
gera í daglega lífmu en því sem ég
var að gera í skólanum. Mér fannst
námið einfaldlega vera of þurrt,“
segir Sara Dögg sem hafði séð aug-
lýsingu í blaði fyrir hlutverkið í
Myrkrahöfðingjanum mánuði áður
en skólinn byrjaði og sótt um.
„í byrjun október fæ ég að vita að
hlutverkið er mitt en fram að þeim
tima hafði ég þurft að ganga í gegn-
Sveitastúlka úr Gnúpverjahreppi
„Sveitin hefur veriö mikiö akkeri hjá mér. Ég þrífst ekki í stórborg í iangan tíma í
einu, “ segir Sara Dögg sem hefur mikinn áhuga á reiömennsku og jóga.
Ófeimln
„Þegar ég las handritið sá ég að það yrðu einhver nektaratriði og ég spurði mig hvort ég ætlaði að láta þau koma í
veg fyrir að ég tæki þátt í þessari mynd og gengi í gegnum þessa reynslu. Ég héit nú ekki. “
um alls konar próf. Hrafn var
greinilega að athuga hvort viljinn
hjá mér væri nægur fyrir hlutverk-
ið og það tók virkilega á taugamar
að vera að æfa á fullu án þess að
vita nokkurn skapaðan hlut hvort
eitthvað yröi úr þessu,“ segir Sara
sem var í sálfræðinni fram að ára-
mótum en hætti eftir jólaprófin.
„Öll þessi sjálfsskoðun sem svona
hlutverk felur í sér var bara miklu
meiri sálfræði en það sem var í boði
í skólanum. Ég ákvað að einbeita
mér eingöngu að hlutverkinu enda
sá ég það að ef ég ætlaði að gera
annaðhvort vel þá yrði ég að fórna
öðru hvoru," segir Sara en tökurnar
hófust í janúr 98. Byrjað var á úti-
tökunum sem reyndu, að sögn Söru,
mikið á hana.“ Hárið á manni var
greitt upp úr ísköldu vatni, maður
var látinn vaða Þjórsá, ríða yflr
Kúðafljót og það í 16 stiga frosti."
Hvaö meö nektaratriöin, voru þau
ekkert mál?
„Þegar ég las handritið sá ég að
það yrðu einhver nektaratriði og ég
spurði mig hvort ég ætlaði að láta
þau koma í veg fyrir að ég tæki þátt
í þessari mynd og gengi í gegnum
þessa reynslu. Ég hélt nú ekki. Ef ég
hefði gert það þá hefði mér fundist
ég vera alveg ofboðsleg tepra. Ef
nektin var eitthvað sem ég átti að
gera til þess að fá þetta hlutverk var
það ekki málið, enda hafði hún líka
tilgang í myndinni. Auðvitað var
það mál þannig séð en það var bara
að stilla sig inn á það að það væri
ekkert mál. Svo þegar kom að nekt-
aratriðunum þá tók ég mig bara úr
sambandi og gerði það sem ég þurfti
að gera og þá var það í rauninni
ekki ég heldur hún Þuríður sem var
nakin,“ útskýrir Sara.
Yfináttúrlegir atburðir
í Myrkrahöfðingjanum fer Sara
Dögg með aðalkvenhlutverkið í
myndinni, hlutverk Þuríðar sem er
vinnukona á bæ séra Jóns, sem er
aðalsöguhetjan í myndinni, leikin af
Hilmi Snæ.
„Hennar þróun í myndinni er sú
að í byrjun myndarinnar er hún
ung og saklaus og kannski svolítið
naív og einlæg og glaðvær stúlka.
En í lok myndarinnar er hún orðin
harðsvíraður kvenmaður," segir
Sara
og bætir við: „Við vorum kannski
ekki svo ólíkar, ég varð kannski
ekki harðsvíraður kvenmaður að
tökum loknum en ég fann samt
hvemig ég þroskaðist og var alls
ekki söm eftir þessa reynslu, alveg
eins og hún breyttist í myndinni.“
Hvaö er eftirminnilegast frá töku-
tímanum?
„Ætli það sé ekki þessi ótrúlegi
kraftur sem leystist úr læðingi á
þessum tíma. Það fundu það allir
sem komu nálægt þessari mynd að
það lá eitthvað í loftinu. Jafnvel
eitthvað yflmáttúrlegt því það var
alltaf eitthvað að koma upp á, enda-
laus slys og óhöpp. Þetta var mjög
spúkí en viðfangsefnið var líka svo
sterkt og á þessum yfimáttúrlegu
nótum,“ segir Sara sem vill hvorki
né getur komið með einhverjar nán-
ari útskýringar á því hvað var
þama í gangi.