Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.2000, Qupperneq 49
57
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ 2000
DV
Tilvera
ÍT
Afmælisbörn
Dorff á afmæli í dag
Hinn eitursvali Stephen Dorff er
27 ára í dag. Hann sló í gegn sem
fimmti bítillinn Stuart Sutcliffe í
myndinni Backbeat. Að vísu hefur
honum ekki gengið vel að fylgja
þeirri mynd eftir en hefur þó sýnt
sig í myndunum I Shot Andy War-
hol, Space Truckers, Blood and Wine
og Blade. I þeirri síðastefndu lék
hann vampíruóþokka með miklum
stæl.
Arnie lukkulegi
Hinn magnaði svipbrigðaleikari
og hjartaknúsari Amold
Schwarzenegger er 53 ára í dag og
ekki verður annað sagt en að hann
beri aldurinn vel. Hann vann hug
og hjörtu almennings er hann lék
rómantíska folann í Conan the Bar-
barian, hlutverk sem hann var eins
og fæddur til og lék því aftur og aft-
ur í myndum sem Commando,
Predator, The Running Man, Total
Recall, Terminator og End of Days.
Stjörnuspá
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
Spa sunnudagsins
Allt virðist ganga þér í
haginn um þessar
mundir og vegna þess
gæti gætt öfúndar í þinn garð. Þú
getur ekkert að þvi gert.
Þú verður var við illt umtal og
ættir að forðast í lengstu lög að
koma nálægt þvi. Það gæti haft
leiðinlegar afleiðingar.
Hrúturinn (21. mars-19. aprill:
Spá sunnudagsms
Atburðir dagsins gera
Ji þig líklega bjartsýnan
en þú verður að gæta
hófs, sérstaklega í peningamálum.
Ekki vera kærulaus.
Þér verður vel tekið af fólki sem
þér er ókunnugt og þú færð
óvænt hrós. Áhyggjur sem þú hef-
ur eru ástæðulausar.
Tvíburarnir m, mai-21. iúní):
Spá sunnudagsíns
rEinhver vandamál
koma upp en þegar þú
kynnir þér málið nánar
sérð þú að þú þarft ekki að hafa
áhyggjur. Fáðu hjálp ef þú getur.
Staðfesta er mikilvæg í dag. Þú
ert vinnusamur og eitthvað sem
þú gerir vekur athygli fólks í
kringum þig.
Liónið (23. iúlí- 22. ágústl:
PÞú þarft að einbeita þér að
einkamálunum og rækta
samband þitt við ákveðna
manneskju sem þú ert að fjarlægjast.
Rómantíkin kemur við sögu í dag.
Líf þitt er stöðugt um þessar
mundir og þú ættir að vera já-
kvæður og bjartsýnn. Happatölur
þínar eru 5, 16 og 25.
Vpgin (23. sent.-23. okt.l:
Spa sunnudagsins
Eitthvað sem þú vinnur að
/ um þessar mundir gæti
valhð þér hugarangri.
Taktu þér góðan tíma til að íhuga mál-
ið. Þú færð fréttir sem gleðja þig mjög.
Spá mánudagsins
Dagurinn einkennist af streitu og
timaleysi gæti haft mikil áhrif á
vinnu þína. Haltu ró þinni því seinni
hluta dagsins getur þú slappað af.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.i:
Spá sunnudagsins
Gildir fyrir s unnudaginn 30. júlí og mánudaginn 31. júlí
Fiskamir (19. febr.-20. marsl:
\ !HBHI
iltu þig við áætlanir
m þínar eins og þú getur og
| vertu skipulagður. Þér
bjóðast góð tækifæri í vinnunni og
skaltu fremur stökkva en hrökkva.
Ljúktu við skyldur þfnar áður en
þú ferð að huga að nýjum hug-
myndum sem þú hefúr fengið.
Heimilisliflð verður gott í dag.
Nautið (20. april-20. mai.l:
Spá sunnudagsins
r Viðbrögð þín við því
sem þér er sagt eru
mikUvæg. Þú mátt
ekki vera og gagnrýnin það gæti
valdið misskilningi.
Ferðalög eru ef til vill á dagskrá í
nánustu framtíð. Það borgar sig að
hafa augun opin í dag og hlusta
vel á ráðleggingar annarra.
Krabbinn (22. iúní-22. iúlil:
Spá sunnudagsins:
IDagurinn verður viðburð-
■ arríkur og þú hefur
meira en nóg að gera.
Varaðu þig á að vera ekM of tortrygg-
inn. Happatölur þínar eru 5, 9 og 35.
Notaðu kraftana til að leysa vandamál sem
þú hefúr lengi ætlað að leysa. Það verður
lfklega einhvejrum erfiðleikum háð að
komast að niðurstöðu í stórum hópi fólks.
Mevian (23. áeúst-22. sept.):
Fréttir sem þú færð
•æru ákaflega ánægju-
legar fyrir þfna nán-
ustu. Hætta er á smávægilegum
deilum seinni hluta dagsins.
Spá mánudagsins
Vonbrigði þróast yfir í ánægju
þegar þú færð fréttir frá vini eða
ættingja. Samband þitt við ákveð-
inn einstakling fer batnandi.
Sporódreki (24. okt.-2i. nðv.l:
Spá sunnudagsins
V^j^yTaktu ekM mark á fólM
sem er neikvætt og
I svartsýnt. Kvöldið verð-
ur afar skemmtilegt í góðra vina
hópi. Happatölur þínar eru 5, 8 og 23.
Þú þarft að sætta þig við að aðrir fá
að mestu að ráð um framvindu mála
sem þú ert flæktur í. Gáta sem þú
hefur velt fyrir þér leysist óvænt.
Þótt þú sért ekM fylli-
plega ánægður með
ástandið eins og er er
það ekM endilega ástæða tíl að
íhuga miMar breytingar.
Spá mánudagsms
Þér flimst alit ganga hægt í byrj-
un dagsins en það borgar sig að
vera þolinmóður. Kvöldið verður
ánægjulegt.
Steingeitin 122. des.-19. ian.i:
Spá sunnudagsins
Taktu ekki meira að
þér en þú ræður við.
Þú vUt vinna verk þin
vel og er þvl afar mikUvægt að þú
náir góðri einbeitingu.
Þú ræður sjálfur miMu um fram-
vindu dagsins og ættir að treysta
á dómgreind þína. Hegðun ein-
hvers kemur þér á óvart.
Óvenjulegt dýrahald í Hátúninu:
Öndin Þórey gerir sig
heimankomna
„Það hefur verið skemmtUegt að
hafa öndina héma og margir íbú-
anna hafa gaman að þessu bram-
bolti í okkur,“ sagði Guðlaugur
Harðarson, húsvörður í Hátúni, en
hann hefur ásamt syni sínum,
Herði, og Þór Jónssyni húsverði
komið upp lítiUi tjöm fyrir önd sem
slæddist tU þeirra fyrr í sumar.
„Þetta byrjaði nú með því að hér
var andapar sem hélt sig norðan við
blokkina. Þór, vinnufélagi minn, er
vanur að umgangast fugla og hon-
um tókst að lokka parið í tjömina.
Andaparið var orðið mjög hænt að
Þór og fylgdi honum jafnvel þegar
hann var við störf utandyra. Svo
gerist það einn morguninn að parið
er á bak og burt en í staðinn er
komin þessi önd. Þetta er augljós-
lega ófleyg aliönd og við höfum ekki
græna glóru um hvemig hún komst
hingað,“ segir Guðlaugur en öndin,
sem þeir kaUa Þóreyju í höfuðið á
skrifstofustjóranum, hefur eignast
tvo unga í poUinum.
„Það hefur verið töluverð vinna
að halda mávinum frá og við urðum
að setja net til þess að vemda önd-
ina og ungana. Við vitum ekki hver
steggurinn er, hann yfirgaf hreiðrið
og hefur ekki sést lengi. Hann kæm-
ist hvort eð er ekki inn fyrir netið
og því má segja að hún Þórey okkar
sé einstæð móðir,“ segir Guðlaugur
og bætir við að þeir félagar hafi hug
á að reisa lítið hús fyrir Þóreyju og
ungana til þess að dvelja í þegar vet-
ur gengur í garð. -aþ
Draugaferð í Flóanum:
Móri enn á ferli
Draugaspekúlantar skeggræða við Þuríðarbúð
Þór Vigfússon skólameistari, séra Baldur Kristjánsson og rétt griilir i
Bjarna Harðarson, ritstjóra Sunnlenska.
Hópferðir Guðmundar Tyrfings-
sonar h/f. bjóða upp á draugaferðir
í nágrenni Selifoss, undir leiðsögn
Þórs Vigfússonar, fyrverandi skóla-
meistara og núverandi draugafræð-
ings. Ferðin tekur rúma Mukku-
stund og liggur um slóðir Kamp-
hólsmóra frá Selfossi, um Flóann til
Stokkseyrar og aftur á Selfoss.
Kamphólsmóri var mjög illvígur
draugur á sínum yngri árum og átti
það til að drepa menn ef þeir voru
einir á ferli. Sagt er að Móri sé enn
á ferli en hafl mildast nokkuð með
aldrinum og í dag er hann aðallega
þekktur fyrir smáhrekki sem tengj-
ast bílum. í ferðinni er stoppað í
Þuríðarbúð á Stokkseyri og rifjað
upp dularfullt fyrirbæri sem þar
átti sér stað fyrir rúmum hundrað
árum þegar svört móða eða flikki
hélt mönnum vakandi vikum sam-
an.
Að sögn Benedikts Tyrfingssonar
eru fastar ferðir á miðvikudögum
fyrir túrista með leiðsögn á ensku
en einnig er hægt að panta ferðir
fyrir hópa með leiðsögn á öðrum
tungumálum. Benedikt segist von-
ast til að þessi tilraun takist vel því
að það sé greinilegur áhugi á þess-
um málum, bæði hjá íslendingum
og útlendingunum.
-Kip
www.romeo.is
Stórglæsileg netverslun
meö ótrúlegt úrval af
unaösvörum ástarlífsins
fyrir dömur og herra.
Frábært úrval myndbanda.
Frábær verö, ótrúleg tilboð.
Utanborðsmótorar
r YAMAHA
Stærðir: 2-250 Hö
Gangvissir, öruggir
og endingargóðir
éS
'wr
i