Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2000, Blaðsíða 12
12
MIDVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 2000
Skoðun i>v
Klúbburinn Geysir
Samtökim
GAGNKVÆMAN STl ’DNING
GUÐSJI'KKA
(t'cvAir Uvúur
uj>p 4 ný úrr.t'öi h* ir tulk
«ati -ctgá Vjö, cfo IwÍ'j i« vi.
AiVutuM.
Klúhhíintm í-r cUi' cmluT)i«ttit£.ircv»t mrit, 1idt!ú
fctúbUír vfni írýggir ,i ji'tiTiVjftAröi Fouuuiu Hut
Klubtximm ('.i’ssir turúr ctm alj’jíKVh'i'ri
ÚurmyiHÍ, IxHtmaiu I Ktutr. v tvi.iýTti var rcyinl
i Bjrtviirikjmiuin Nú crti itjiUmh um 35u
UúWvjt í 22)^Umíuu\. Klúbln.ntm Geym
vcröut jötli jö al}>4Óri|t'y*uni vtunivkum Fourruut
Huutc !Ci:U (inieruuotul Ccriicr !or Ouliiiom
IMvIopmcm) vm mun IwÍj ctiulii mcö ^tdimt
Markmtö klúbbnny cr JiúKru m.Tjmbnb tch,
ttl jvV uki l’itt i úmtcbynm ctiii ^cörjctu tn.-<
iHrttj cr j*cri tivö ÍcÍ4|;sk):tt vwnvcut ug virku
SKKM í.N rr I SAMTÉLAGID
rtti> klúbbmn et
Skrctiö út»samtcljjiw' cr.mót£
umcrfiu |>cpr tV.lk lietur wru
bgðuf út trá vmnu og v
aDut'aö fimwt iö {k-hu v.
> Jn.,it*f4 sc {mhí
á samciumk'títnn tuuihun
l'ÚI-A(,SADll.D IiR ÍA KIK
AI.IA MliD GliDK.■■F.N
VANDAMAI.
KlúWmrmn cr riliom ojnnn vm.
jú (ukt e&i cijy vjö ^-.Vjúkiíúm
Tóik jscnjstr i klúbbmn jMrialsm
a.hlil cr ckk. bií' Dciiium rintjuk
lcb^i ru.>4 hvvrtuu þctr irit.. »ör
Uppbyggileg starfsemi
Geysir er klúbbur þeirra sem hafa átt viö geösjúkdóma aö stríöa.
Spurning dagsíns
Finnst þér mjkið um
unglingadrykkju á íslandi?
Enzo Rinaldi yfirkokkur:
Já, alltof mikiö, þetta er alls
ekki eölilegt.
Irma Díaz þjónn:
Já, en ekkert til aö æsa sig yfir.
Rodrigo Vanela:
íslenskir krakkar kunna ekki
aö drekka, þeir drekka
sig strax blindfulla.
Höröur Sigurbjörnsson:
Já, vitanlega, þaö drekka allir ungling-
ar, svo eru þaö eiturlyf og allt annað.
Oddný Hrafnsdóttir, vinnur hjá Össuri,
og Dagmar Siguröardóttir:
Já, þaö má alveg fara aö athuga þetta.
Sigurður G. Steinþórsson gullsmiöur:
Ég held aö hún hafi nú minnkaö hér
í miöbænum.
Olafur iakobsson
skrifar:
„Við erum ekki ein“, nefndust þau
sem erjuðu þá jörð sem Fountain
house módelið er sprottið upp úr og
hefur nú skotið rótum í yfir 20 lönd-
um þar sem starfrækt eru meira en
300 hús sem byggja á þeirri hug-
myndafræði að flest þráum við að
gera gagn, flest viljum við vera hluti
af hóp án þess að við þurfum að tapa
sérstöðu okkar sem einstaklingar.
Inngönguskilyrði í Geysi eru
ströng þar sem það að eiga sér sögu
um geðsjúkdóm er nokkuð sem, sem
betur fer, er ekki algengara en það er
og flestir vilja forðast. Þó er það svo
að þótt veikindasaga okkar sé
óskemmtileg er ekki þar með sagt að
við þurfum í kjölfar hennar ávallt að
vera einskis nýt. Nútímalyf og lækn-
ingaaðferðir geta hjálpað okkur að
ná áttum en síðan er okkar eigin
þáttur eftir að út af vernduðu um-
hverfi sjúkrahúss er komið. Hann
fær helst blómstrað innan veggja
Klúbbsins Geysis.
Okkar Geysisgos átti sér stað í
Langholtskirkju seinasta vetur þar
sem tónlistarfólk sýndi sínar bestu
hliðar. Klúbburinn er til húsa að Æg-
isgötu 7 þar sem við búum yfir
nokkrum tölvum. Klúbbmenn unnu
það þrekvirki að koma upp heima-
síðu og er netfangið: geys-
ir@centrum.is Veffang:
http// www.centrum.is/klubburinng-
eysir
Skortur er á fleiri tegundum starf-
semi Klúbbsins Geysis. Sumir eru
líkamlega sinnaðir og gæti langað til
að smíða, mála eða stunda aðrar þær
aðdyttingar sem húsnæði þarfnast
alltaf. Við eldum mat í hádeginu og
eldamennska er vinna og ekki má
gleyma því að allt húsnæði þarf að
þrífa.
Klúbbnum til frekari framgangs
þarft þú að láta sjá þig, þú sem ert að
Stjáni
skrifar:
Pólitík er eflaust ein sú langdregn-
asta klisja sem til er. Hún skaut upp
kollinum á íslandi fyrir svona hund-
rað árum og hefur átt sér staö í
hjörtum íslendinga síðan. Þetta
stjómkerfi, sem allir virðast vera
með eða á móti, er úreltara og bilar
jafnvel oftar en Windows stýrikerfið.
Við fengum nú samt pólitíkina
þýdda yfir á íslensku fyrir 50 árum.
Hin hefðbundna pólitík hentar ís-
lendingum engan veginn, hvað sem
við eða þingmenn gerum fáum við
enga lausn á vandamálum okkar
frekar en hundleiðir notendur
Windows stýrikerfisins. Margir og
góðir þingmenn, ráðherrar, banka-
stjórar og aðrir pólitískir menn
„Þó er það svo að þótt
veíkindasaga okkar sé
óskemmtileg er ekki þar
með sagt að við þurfum í
kjölfar hennar ávdllt að
vera einskis nýt. “
útskrifast af geðdeild eða þú sem átt
þér sögu um geðsjúkdóm. Við erum
með sima 551 5166. Starfsfólk klúbbs-
ins er tvær konur og von okkar er að
með haustinu verði hægt að ráða
þann þriðja, helst karlmann.
Einn er sá þáttur í starfsemi
klúbbsins sem ekki hefur alveg geng-
ið upp, það er „Ráðning til reynslu".
Það er eitt sem ég hef lœrt
af hœstvirtum, stoltum,
hœgri og vinstri þingmönn-
um vorum. Það er að nota
á mér munninn. “
grípa svo innilega oft til eigin að-
gerða en því miður eru þær aðgerð-
ir ekki nógu góðar eða eiga bara alls
ekki við, þeir enda oftast með því að
framkvæma ólöglega aðgerð. Ég á
við sama vandamál að stríða,
kannski ekki í sama geiranum þó
þeir séu nákvæmlega eins.
Það er tölvan mín sem ég skil
ekki, þegar ég reyni að framkvæma
eitthvað mögulegt þá fer yfirleitt
allt til helvítis og á skjánum mynd-
Hún er ætluð þeim félögum sem vilja
vinna í hálfu starfi eða minna á al-
mennum markaði. Klúbburinn
ábyrgist 100% mætingu og þá sér
hver maður að ekki getur einn félagi
staðið á bak við það. Geti viðkom-
andi ekki mætt fer annar félagi í
hans stað og ef um allt þrýtur leysir
starfsfólk Klúhbsins málið.
Atvinnurekendur hafa verið hik-
andi að nýta sér þennan kost og því
vaknar sú spurning hvort fordómar
gagnvart okkur sem höfum veikst
eru enn svo miklir að erfitt er að
komast yfir þá staðreynd að við höf-
um þurft að leita læknis. Enn er
langt þar til við verðum tekin í hóp
þeirra sem önnur veikindi hafa herj-
að á.
ast skilti sem segir Illegal operation,
ólögleg aðgerð. Ég veit nú ekki hvað
gerist frekar en hæstvirtir þing-
menn. Ég er ekki beinlínis stoltur af
því að vera tölvuidijót því það er
mjög erfitt að leita sér hjálpar með
bilaða tölvu. En þegar slíkt kemur
fyrir þá á ég nú aldeilis ekki í vand-
ræðum með að redda mér. Það er
eitt sem ég hef lært af hæstvirtum,
stoltum, hægri og vinstri þingmönn-
um vorum. Það er að nota á mér
munninn. Alltaf þegar ég fer með
tölvuna mína í viðgerð þá lýg ég
mig út úr því hispurlaust; segist
hafa slökkt á tölvunni einum of
snemma eða eitthvað, því ég veit
svo sannarlega ekkert um það
hvemig ég gat farið að því að fremja
ólöglega aðgerð.
Microsoft, hægri eða vinstri?
Dagfari
Glaðningurinn kominn
Nú hefur skattstjóri loksins sent Dagfara
hinn árlega glaðning. Nú veit Dagfari hvað
hann á raunverulega að borga í sameigin-
legan sjóð landsmanna en ólíkt Guðna
Helgasyni, skattakóngi íslands, borgar Dag-
fari ekki með glöðu geði það sem sagt er að
honum beri að greiða. Dagfari veit nefni-
lega um fullt af fólki sem lifir miklu hærra
og betur en Dagfari hefur leyft sér að
dreyma um, hvað þá meira, en borgar
helmingi minna og rúmlega það en flestir
aðrir til Geirs Haarde. Samt fær þetta fólk
sömu þjónustu og jafnvel betri og meiri
sem greidd er úr sameiginlegum sjóði.
Dagfari er því yflrleitt svekktur þegar
álagningarseðillinn berst inn um bréfalúg-
una. Dagfari hefur alla tíð staðið skil á sínu
en síðan rifjast það upp í byrjun ágúst á
hverju ári að svo er ekki um alla. Þetta erg-
ir Dagfara sem og flesta aðra landsmenn
sem hafa enga möguleika á að lauma ein-
hverju undan langri hendi Geirs H. Haarde.
Skattmann hefur líka mestan áhuga á almennum
launamönnum og hvemig hægt sé að koma i veg
fyrir að launamaðurinn komist sem best út úr
samskiptunum við hann. Þó einhverjir ágætlega
stæðir einstaklingar sleppi er aukaatriði og
einn þeirra sem sleppur vel á hverju ári.
Hann á líka jeppa og BMW, fer í sólar-
landaferðir með fjölskylduna á hverju ári,
borgarferð meö konuna á haustin og á fal-
legan sumarbústað, fer út að borða að
minnsta kosti einu sinni í viku og heldur
magnaðar veislur. Þá eru laxveiðiferðimar
ótaldar. Þannig lifir kunningi Dagfara og
finnst ekki athugavert við að ríkissjóður
(eða skattgreiðendur) greiöi brúsann.
Og kunningi Dagfara ætlar að standa
þétt við bakið á Heimdellingum sem ætla
að meina forvitnum fjölmiðlum og ná-
grönnum að „njósna" um skatta annarra.
Heimdellingar eru taldir prinsippmenn -
hugmyndaríkir sem vert er að styðja til
frekari afreka.
Dagfari á hins vegar erfitt með aö skilja
Heimdellinga og af hverju þeir leggja ofur-
kapp á að koma í veg fyrir aö almenningur
fái aðgang að álagningarskrám. Einu sinni
töldu Heimdellingar þaö skyldu sína að
berjast gegn útþenslu ríkisvaldsins og ofbeldi
skattmanns, en sú tíð virðist að baki. Þess í stað
telja Heimdellingar betra að verja tíma sínum í
annað en berjast við fjármálaráðherra. ^ n
Þetta ergir Dagfara sem og flestra aðra
landsmenn sem hafa enga möguleika á að
lauma einhverju undan langri hendi
Geirs H. Haarde.
skiptir litlu enda sú hefð fyrir löngu orðin ríkj-
andi og viðurkennd við skattheimtu að berja á
þeim sem sist skyldi.
Kunningi Dagfara hefur aldrei skilið reiði al-
mennings í upphafi ágústmánaðar, enda er hann
Uppáskrifta-
gleði á geðlyf
Ónefndur hringdi:
Ég undrast það hvað geðlæknar
hér á landi gefa óhóflega stóra
skammta af geðlyfjum. Ég hef fengið
Litíum við þunglyndi bæði hér
heima og erlendis og skammtar í út-
löndum eru miklu minni. Hver er
ástæðan fyrir þessari ofnotkun á
geölyfjum? Er það enn eitt dæmið
um uppáskriftagleði íslenskra
lækna? Hins vegar vil ég þakka þeim
læknum sem hafa reynst mér vel.
Frá Grundarfirði
Líflegur bær og þjónusta frábær.
Grundarfjörður
frábær
Þorbergur Jónsson hringdi:
Við hjónin vorum í Grundarfirði
á hátíðinni á Góðri stundu um sein-
ustu helgi sem lukkaðist einstak-
lega vel. Hátíðin var frábær og við
fórum einnig í sund í Grundarfirði.
Sterfsfólkið í lauginni er einstak-
lega lipurt og skemmtilegt. Okkur
langar að koma á framfæri þakklæti
til allra Grundfirðinga því dvölin
var einstök.
Ljúfmeti í
Brydebúð
Sigrún skrifar:
Ég átti leið um Mýrdalinn um
daginn og í stað þess að fara í vega-
sjoppima þá var okkur bent á gam-
alt uppgert hús í Víkurþorpi þar
sem rekið væri kaffihús og nokkurs
konar safn. Þar urðum við ekki fyr-
ir vonbrigðum, stúlkumar í Upplýs-
ingamiðstöðinni og í afgreiðslunni
voru sérlega kurteisar og bakkelsið
gott. Þama eru margir skemmtileg-
ir munir og falleg listaverk á veggj-
um. Ég stoppa aftur í Brydebúð.
Þetta er kærkomin viðbót á ferð um
Suðurland.
SVR
Klukkutíma biö eftir strætó.
Góður og
slæmur strætó
Hildur skrifar:
Venjuiega er þjónusta SVR prýði-
leg og því finnst mér leiðinlegt að
horfa upp á þessi vandræði hjá fyr-
irtækinu upp á síðkastið. Ég sá í
sjónvarpsfréttum að forstjóri SVR
taldi að launakjör bilstjóranna
væru ekki ástæða þess hversu erfið-
lega gengi að fá þá til starfa. Hver er
ástæðan þá? spyr ég nú bara. Að
þiggja þessi bílstjóralaun er mann-
skemmandi. Það er líka ekki for-
svaranlegt að vagnamir gangi á
klukkustundarfresti eins og gerist
þegar ferðir falla niður.
DVI Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíða DV,
Þverholti 11, 105 ReyKjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.