Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Side 2
2
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
JOV
Fréttir
^ Orð Alfreðs Þorsteinssonar í DV yfirheyrslu valda titringi:
Óskhyggja um brest í
stjórnarsamstarfinu
- segir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
Alfreð Þorsteinsson, framsóknar-
maður og borgarfulltrúi R-lista, var
með harðar yfirlýsingar í yfir-
heyrslu í DV í gær. Sagði hann
m.a. að ríkisstjórnin væri komin á
leiðarenda og gagnrýndi sjálfstæð-
ismenn harðlega fyrir tvöfeldni í
samkeppnismálum. Þá gagnrýnir
hann líka Friðrik Sophusson fyrir
að vinna gegn samkeppni í orku-
málum.
Orð Alfreðs hafa vakið mikla at-
hygli og greinilegan titring innan
rikisstjórnarflokkanna. Þá hafa
þau gefíð sögum um bresti í stjóm-
arsamstarfinu byr undir báða
vængi.
Alrangt hjá Alfreð
Sturla
Böðvarsson.
„Það er alrangt
að ég sé á móti
samkeppni á sviði
fjarskipta. Ég hef
þvert á móti reynt
að tryggja að sam-
keppni kæmst á,
samanber nýju fjar-
skiptalögin," sagði
Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra.
„Það er því af
og frá að halda
þessu fram. Al-
freð verður því að
eiga það við sig
og sina samvisku
hvernig hann tal-
ar um pólitíska
andstæðinga.
Hins vegar er
ég ekkert viss um
að maður úr hans
umhverfi sé lik-
legur til að hafa
mikla tilfinningu
fyrir samkeppn-
isumhverfi eða
þeim viðskipta-
háttum sem þurfa
að viðhafast á fjarskiptamarkaði.
Aðalatriðið er þó að því ber að
fagna að borgarfyrirtæki taki þátt
í uppbyggingu fjarskiptafyrir-
tækja sem geta þá komið inn á
markaðinn og tekið þátt í þjón-
ustu og samkeppni.
Það er heldur ekki nokkur
brestur í stjórnarsamstarfinu og
orð Alfreðs eru bara einhver ósk-
hyggja."
Alfreö Þorsteinsson
Ekki til höf-
uös Línu.Neti
„Mér sýnist í
fljótu bragði að
þetta sé framlag
Alfreðs Þorsteins-
sonar inn i stjórn-
málabaráttu sína
innan og utan
Framsóknar-
flokksins," segir
Friðrik Sophus-
son, forstjóri
Landsvirkjunar.
Það er óravegur
irá því að Stikla
ehf. sé stofnuð á
nokkurn hátt
Línu.Neti til höf-
uðs. Það liggur fyr-
ir að Lína.Net kom
ekkert nálægt
Tetra-bransanum
fyrr en mörgum
mánuðum síðar.
Það er þó vissu-
lega fallega gert af
honum að minnast
mín í þessu viðtali. Friðrik
Hann gerir mér allt Sophusson.
of hátt undir höfði að halda að ég
stjómi stefnu ríkisstjómarinnar í
orkumálum eins og hann gefur í
skyn.“
Enginn brestur
„Það er ósköp lít-
ið hægt að segja
um framtíðina og
stj ómar samstarf.
Það skýrist þegar
nær dregur hvem-
ig þróunin verður í
pólitíkinni. Um-
mæli Alfreðs verða
auðvitað að skoðast
í ljósi þess að það
fer að styttast í
borgarstjórnarkosningar,“ segir
Kristinn H. Gunnarsson alþingis-
maður.
„Ég get ekki tekið undir að það
sé farið að hrikta í stjómarsam-
starfinu. Auðvitað eru einhver mál
sem stjórnarflokkamir eru ekki
sammála um en það er bara eins og
gengur. Það er þó svo sem ekkert á
stefnuskrá Framsóknarflokksins að
vera ætíð í stjómarsamstarfi við
Sjálfstæðisflokkinn.“ -HKr.
Samfylking á fundi í Ólafsfirði:
Fjarvinnslumálin
stór minnisvarði
- um gjaldþrota byggöastefnu
ÐV, DALVIK:___________________________
„Ráðherrar hafa ekki sinnt fyrir-
mælum Alþingis í byggðaáætlun til
ársins 2001 um stefnumótun varðandi
fjarvinnslu innan ráðuneyta sinna. Því
mun Samfylkingin strax í þingbyrjun
leggja fram þingsályktunartillögu um
að verkefni sem hægt er aö vinna með
fjarvinnslu verði skilgreind, fjármagni
verði veitt til að gera hagkvæmniat-
huganir á flutningi flóknari verkefna,
og verkefhum verði
útdeilt með útboði,“
sagði Össur Skarp-
héðinsson, formaður
Samfylkingarinnar,
á blaðamannafundi á
Ólafsfirði í gær.
„Það er engin til-
viljun að við boðum
til þessa fúndar hér á
Ólafsfirði því hér hefur verið reistur
hvað stærstur minnisvarði um þá
gjaldþrota byggðastefnu sem stjómvöld
hafa rekið að undanfomu, innantóm
loforð en engar efndir," sagði össur.
Össur sagði að það væm frekar fyr-
irtæki í einkageiranum sem hefðu flutt
starfsemi út á land. Til að örva einka-
geirann enn frekar í þessum efnum
mun Samfylkingin leggja fram tvö
þingmál í haust þar sem boðnar verða
timabimdnar skattaívilnanir.
Samfylkingin telur að jafn aðgangur
að fjarskiptanetinu, án tillits tO búsetu,
sé forsenda virkrar byggðastefnu í
framtíðinni. Upplýsingahraöbrautina
eigi að skOgreina sem sameign allra
landsmanna, með sama hætti og t.d.
vegakerfið, þar sem aOir eiga jafnan að-
gang á svipuðu verði. Dreifikerfi
Landssímans hf.
þarfþvíaðskOjafrá
samkeppnisrekstri,
mynda um það sér-
stakt hlutafélag í
eigu ríkisins sem
ekki verði selt komi
að boðaðri einka-
væðingu Landssím-
ans hf. Þessa stefnu
mun Samfylkingin leggja fram á Al-
þingi i formi sérstaks þingmáls. össur
sagði að ekki væri meirihluti fyrir því
á þingi að selja dreifikerfið, framsókn-
armenn væru ekki hlynntir því en hins
vegar væri spumingni sú hvort sjálf-
stæðismönnum tækist að valta yfir þá í
þessu máli eins og svo mörgum öðrum.
-hiá
DV-MYND HALLDÓR INGI
Samfylkingin á Ólafsflröi.
Bókmenntaverðlaun:
AM 00 fékk Tómasinn
Hjörtur Marteinsson hlaut bók-
menntaverðlaun Tómasar Guðmunds-
sonar sem veitt voru í fjórða sinn í
gær. Borgarstjórinn í Reykjavík af-
henti verðlaunin en Hjörtur hlýtur þau
fyrir skáldsögu sína, AM 00, sem gerist
í Kaupmannahöfn á fyrri hluta 18. ald-
ar og segir sögu Áma Magnússonar
handritasafnara, Mettu, konu hans, og
skrifara hans, Grunnavíkur-Jóns.
Hjörtur Marteinsson er 43 ára Reyk-
vOcingur og hefur áður sent frá sér
ljóðabækumar Ljóshvolfið og Myrkur-
bO. AOs kepptu 50 handrit um bók-
menntaverðlaun Tómasar Guðmunds-
sonar í ár en verðlaunaféð nam 600
þúsund krónum. -EIR
Verölaunin
Hjörtur Marteinsson tekur viö verö-
iaununum úr hendi Ingibjargar Sól-
rúnar borgarstjóra.
í úrvalsdeild
Hermann Hreiöarsson skrifaöi í gærmorgun undir fimm ára samning viö
ensku úrvalsdeildarnýliöana Ipswitch Town. Kaupveröiö er fjórar milljónir
punda (480 milljónir) en getur hækkaö í fjóra og hálfa milljón punda ef Her-
mann spilar 50 leiki. Þetta gerir Hermann aö dýrasta knattpyrnumanni fs-
lenskum ásamt Eiöi Smára Guöjohnsen. Á myndinni er Hermann á æfingu
meö nýja liöinu sínu í gær.
Mikilvægt framlag
Kári Stefánsson,
forstjóri íslenskrar
erföagreiningar, legg-
ur áherslu á að fram-
lag íslenskra öldran-
arlækna hafi verið
mjög mikOvægur
þáttur í kortlagningu
vísindamanna ÍE á
erfðavísi sem hefúr áhrO' á myndun
Alzheimer-sjúkdómsins. Vísir.is sagði
frá.
Skartgripaþjófur í haldi
RannsóknardeOd lögreglunnar í
Reykjavík hefur í haldi útlenskan karl-
mann sem grunaður er um að vera
skartgripaþjófur. RÚV sagði frá.
Gegn kísilgúrnámi
Umhverfisverndarsinnar era mjög
andvígir áframhaldandi kísOgúr-
vinnslu úr Mývatni og er áhugi fyrir
hendi á að bindast samtökum gegn
henni. Náttúrarannsóknastöðin við
Mývatn hefur kært úrskurð skipulags-
stjóra um kísOgúrvinnslu i Mývatni.
Nú hafa Náttúruvemdarsamtök ís-
lands líka sent inn stjómsýslukæra
vegna sama máls. Dagur sagði frá.
Vonir við bíólögin
Einar Þór Gunn-
laugsson kvOcmynda-
framleiðandi tekur
undir með Friðriki
Þór Friðrikssyni um
að nauðsynlegt sé að
eyða þeirri óvissu
sem upp er komin i
íslenskum kvik-
myndaiðnaði. Nýju lögrn sem ESA hef-
ur hafnað í óbreyttri mynd hafa sett
samninga I uppnám og gert kvik-
myndafólki erfitt fyrfr. Dagur sagði frá.
Féll úr stiga
Maður á sextugsaldri var í gær flutt-
ur meö sjúkrabO á slysadeOd Landspít-
alans - háskólasjúkrahúss i Fossvogi,
eftir að hann féO úr stiga þar sem hann
var að mála húsþak. Maðurinn kenndi
eymsla i baki og á hálsi en er ekki lífs-
hættulega slasaður. Slysið átti sér stað
laust eftir klukkan þrjú í Blesugróf í
ReykjavOc. Mbl.is sagði frá.
Raddir Evrópu í Reykholti
Hópur evrópskra ungmenna á aldr-
inum 16-23 ára er nú saman kominn í
Reykholti í Borgarfjarðarsveit. TOefiúð
er lokaáfangi undirbúnings að tónleOc-
um kórsins Raddir Evrópu, viðamesta
verkefiii sem aOar menningarborgir
Evrópu árið 2000 standa að sameigin-
lega. Vísir.is sagði frá.
Ránstilraun
Ránsferð á tannlæknastofu á Höfn á
Homafirði skOaði ekki tOætluðum ár-
angri því þjófurinn varð að skOja pok-
ann með þýfinu eftir þegar hann forð-
aði sér á hlaupum undan laganna vörð-
um aðfaranótt fimmtudags. Rannsókn
málsms stendur yfir en maðurinn
reyndi að hafa á brott með sér hijóm-
flutningstæki og bréfsíma, auk ýmissa
lauslegra hluta. Tækin era óskemmd.
Mbl.is sagði frá.
Lenging skólaársins?
Lenging skólaárs-
ins gæti verið ein af
helstu áherslum
Reykjavíkurborgar í
næstu kjarasamning-
um við kennara.
Borgarstjóri tekur
undir orð mennta-
málaráðherra um að
bæta þurfi kjör kennara, það þurfi þó
að gera í áfóngum. RÚV greindi frá.
Enn leitað
Seint í gærkvöld hafði leitin að konu
á níræðisaldri, sem hvarf frá heimfli
sínu í Fossvoginum í fyrrakvöld, engan
árangur borið. Konan er alzheimer-
sjúklingur og imnu um 70 manns við
leitina í gær. í nótt héldu leitarmenn
áfram með þrjá sporhunda sér tO að-
stoðar. Leit verður haldið áfram og ein-
beita leitarmenn sér að Fossvoginum
og nágrenni. -mir