Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Blaðsíða 14
14 ___________________________________________________________________________________________LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000 Fréttir TÞ’MT Stóraukinn munur á iögjöldum mótorhjólatrygginga og tjónagreiðslum: Snúast peninga mótorhjól á svörtum lista tryggingafélaganna Mótorhjólatryggingar og svimandi há iðgjöld á þeim hafa verið nokkuð í fréttunum að imdanfórnu. Þegar tölur um kostnað og slys eru skoðaðar kem- ur í ljós að tjónakostnaður bifhjóla hefur hækkað sexfalt á flmm árum þrátt fyrir að flöldi slysa sé á niður- leið. Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, hafa bent á þá staðreynd að slysum hafi fækkað og spurt um leið af hverju tryggingar hækka en fátt hefur orðið um svör, fyrir utan yfirlýs- ingu SÍT á dögunum. En hvers vegna er þá tjónakostnaðurinn orðinn svona mikill? Getur það verið að slysin séu orðin svona miklu dýrari vegna breytts tryggingakerfls og þeirrar staðreyndar að flóra þeirra sem á og ekur mótorhjól er að breytast og með- alaldur að hækka? Eyða tryggingafé- lögin einhveiju í forvarnir vegna mót- orhjólaslysa og skilar þessi áróður sér? Getur það verið að í mótorhjóla- tryggingum séum við að sjá dæmi um mjög óréttlátar tryggingar þar sem meira máli skiptir hversu margar tryggingar viðkomandi hefur hjá sínu tryggingafélagi heldur en hvaða reynslu hann hefur? Njáll Gunnlaugsson blaðamaður Svar tryggingafélaganna Samband íslenskra tryggingafélaga (SlT) sendi frá sér yfirlýsingu á dögun- um þar sem fram kemur að iðgjöld mótorhjóla nægja ekki fyrir tjónum þeirra. Ástæður yfirlýsingarinnar voru sagðar yfirlýsing- ar forsvarsmanna Sniglanna um óheyri- lega há vátryggingar- iðgjöld í viðtali í frétt- um á Stöð 2 og Bylgj- unni. í viðtalinu var einnig geflð til kynna að iðgjöldin væru of há miðað við tjón og að slysum færi fækk- andi. SÍT segir allar þessar fullyrðingar rangar i yflrlýsingu sinni. Loks var sagt að tryggingafélögin hefðu einu sinni styrkt bif- hjólafólk í slysavama- átaki sinu en ekki vilj- að halda því áfram þar sem það hefði ekki skilað sér eins og ætl- ast var til. Slysum fækkar en bætur hækka I yfirlýsingu SÍT kemur fram að iðgjöld tryggingafélaganna af mótorhjólum 1995-99 hafa verið 143 miiljón- ir króna en tjóna- kostnaður þeirra á sama tímabili 316 milljónir. Með öðrum orðum töpuðu trygg- ingafélögin á þessu. tímabili 173 milljónum í mótorhjólatrygging- um. SÍT fullyrðir jafn- framt að tjónum hafl ekki fækkað á sama tímabili og tjónakostnaður auk- ist margfalt, eða úr rúmum 22 milljón- um árið 1995 í rúmlega 130 milljónir í fyrra. Sú fullyrðing að slysum hafi ekki fækkað er reyndar ekki rétt því árið 1995 var skráð 41 mótorhjólaslys en 39 á árinu 1999. Á þessum árum 'X Alls: 40 slasaðir 1 látinn 30 Alls: 49 slasaðir 24 Fjöldi 1995 Aiis: Látnir og slasaðir fiátinn0" ~ á vél- og bifhjólum 40 -------------------------- Alls: 38 slasaðir Tlátinn Alls: 27 30 slasaðir 16 Jí- Ma. 1996 1997 1998 Fokdýrar tryggingar Sigrún Erna Guðjónsdóttir er 25 ára og vinnur hjá World Class. Hún á Honda CBR 600, 1992 módel, og borgar 380.448 kr. á ári og er með 65% bónus. Hún hefur ekki efni á að tryggja lengur en 1-2 mánuöi á ári. flölgaði samt skráðum bifhjólum um rúm 200, úr 1881 árið 1995, í 2084 í fyrra, þannig að þrátt fyrir fleiri bif- hjól verða færri slys. Meðaltal áranna 1980-94 var 60,3 slys á ári. Dýrari kúnnar? í stuttu máli má því segja að þrátt fyrir svo tfl óbreytt ástand i mótor- hjólaslysum á síðustu fimm árum hef- ur tjónakostnaður vegna þeirra sexfaldast og því hljóta menn að verða að spyrja út af hverju. Hluta af því má eflaust rekja til ástæðna sem raktar eru i skýrslu Talnakönnunar hf. um ið- gjaldaþörf í ökutækjatryggingum. Öku- tækjafloti landsmanna hefur aukist og þar með verðmæti hans, auk þess sem laun hafa hækkað, en það hefur áhrif á bætur vegna örorku. Þessar ástæöur taldi flármálaeftirlitið nægja til að rétt- læta 30% hækkun tryggingafyrirtækj- anna á bflatryggingum. En hvað veldur þá sexfaldri aukningu tjónagreiðslna í mótorhjólatryggingum? Því er ekki auðsvarað en ein hugsanleg ástæða gæti verið að verðmæti bifhjólafólks sé að aukast með hækkuðum meðalaldri þeirra sem eiga og tryggja mótorhjól. með neinar aðrar trygg- ingar en mikla reynslu lent i þvi að-fá svimandi hátt iðgjald þar sem hann er ekki í aðstöðu til að semja neitt um það. Sanngirnin í því er ekki mikil enda virðast mótorhj ólatry ggingar meira snúast um pen- inga en nokkuð annað. Eitt slys getur reynst óðrum dýrt spaug Tökum upphugsað dæmi til útskýringar um hátekjumann sem lendir í slysi. Hann er úti að aka á nýja hjólinu sínu, missir vald á því í beygju og fell- ur við. Þetta er ekki óal- geng orsök slíkra slysa en samkvæmt tölum Sjóvár- Almennra frá 1992-4 eru 60% slysa ökumannsslys. Skemmdir á hjóli eru kannski minnsti hlutinn, ca hálf milljón. Gefum okkur það að hann slasist illa á fæti (algeng meiðsl) og sé frá vinnu í eitt ár - ca 8 milljónir. Hann verð- ur fyrir 25% örorku og er eftir málaferli úthlutað 11,5 mflljómun í miska- bætur. Þetta gerir 20 milljónir sem tryggingafé- lag hans, sem seldi hon- um lágmarksiðgjald upp á 70 þúsund krónur, þarf að punga út. Hvað gerist svo? Hækka þarf iðgjald 5 slys á hver ÍOOO hjól D 1992 var gefið út umferðarátak Snigla sem skilaði sér í því að slysum fækk- aði um næstum þriðjung á einungis tveimur árum. Tækninefnd trygg- ingafélaganna styrkti það átak um hálfa milljón króna og sparaði þar með tryggingafélögunum tugmilljónir í tjónabætur. Samt segir SÍT í yfirlýs- ingu sinni að þrátt fyrir styrk þennan hafl þessi viðleitni þeirra ekki borið þann árangur sem vænst var. Hálf milljón á einum áratug er ekki mikill peningur miðað við þær upphæðir sem eytt er í forvamir tryggingafélag- anna vegna bílatrygginga. Þú ert það sem þú keyrir Norsku mótorhjólasamtökin NMCU hafa verið dugleg við að láta gera slysarannsóknir á sínu fólki og þá sérstaklega með það í huga hverj- ir valda slysunum, hvemig og þá hvers konar fólk lendir i slysum. Á tveggja ára fresti gera þeir viðamikla rannsókn og virðast afgerandi þættir í því vera reynsla ökumanns og hvemig mótorhjól hann keyrir en ekki hversu öflugt það er. Til dæmis er sá sem ekur 120 hestafla Kawasaki 600 ZX6R kappaksturshjóli tiu sinn- um líklegri til að lenda í slysi en sá sem ekur næstum 200 hestafla Kawa- saki ZX12R. Ræður þar mestu hvem- ig fólk kaupir hvaða gerð hjóla, þ.e. hætta á slysum fer eftir hæfni, við- horfl og reynslu viðkomandi. Einnig virðast slys þar sem einungis mótor- hjólið er þátttakandi, þ.e. ökumaður þess míssir vald á því og dettur, vera algengust, en þegar þau lenda í árekstri við annað ökutæki eru þau oftar en ekki í rétti. Hér á íslandi virðist það vera nóg fyrir tryggingafé- lögin að vita að þú ekur mótorhjóli til að setja þig á svartan lista. Svo er mkkað samkvæmt því en lítill áhugi virðist vera á því að skoða hverjir það eru sem valda slysum eða hvem- ig má koma í veg fyrir þau. Það er ekki síður siðferðileg skylda trygg- ingafélaganna að gera sitt tfl að fækka slysum þvi að tryggingin, sama hversu há hún er, er skyldu- trygging sem viðkomandi kemst ekki hjá því að taka, óháð því hversu dýr hún er. Fjöldi slysa á mótorhjólum 1995-9: Ár Skráö hjól* Skráö slys 1995 1881 41 1996 1950 49 1997 2047 53 1998 1906 30 1999 2084*** 39 1999 FJöldl mikiö og lítiö slasaöra frá 1995-99. Á því tímabili létust aðeins þrír í mótorhjólaslysum. Málari sér rautt Björn Þóröarson, rúmlega tvítugur málari, á Suzuki GSX 600 F1989. Hann borgar 381.555 kr. í tryggingar á ári þrátt fyrir 60% bónus. Hann er ævareiður enda „ógeöslega dýrt“. Svimandi há iðgjöld Ársiðgjald jnótorhjólatryggingar án nokkurs bónuss hjá einu trygg- ingarfélaganna skiptist þannig: Ið- gjald 193 þúsund krónur og SÖE ið- gjald (slysatrygging ökumanns og eiganda) 279 þúsund. Þetta gerir heildariðgjald upp á krónur 452 þúsund. Heyrst hefur jafnvel af ið- gjöldum sem fara yfir hálfa milljón þrátt fyrir fullan bónus. Þetta verð- ur að teljast hátt iðgjald, meira að segja fyrir íslendinga sem vanir eru háum iðgjöldum. Með bónuskerfi getur þetta iðgjald lækkað nokkuð en margir láta líka bjóða í iðgjald sitt í heild sinni og fá þar með aukaafslátt. Þeir sem eru í þeirri aðstöðu að geta samið þannig um iðgjöld sin eru auðvitað þeir sem hafa um eitthvað að semja, þ.e. þeir sem eru með margar tryggingar hjá sama trygginafélaginu og hafa þar af leiðandi góðar tekjur, en það get- ur einmitt reynst tryggingafélaginu dýrt að borga því fólki þegar að því kemur að það lendir í slysi. Hins vegar getur einhver sem er ekki 50 slys á hver ÍOOO hjól j luLi/iJiii'jjÍJ u D L) ’iH0 JjuuIUjl Þessar tölur frá Noregi segja okkur í raun meira um ökumenn hjólanna en hvaöa hjól eru hættulegri en önnur. mótorhjólatrygginga hjá þessu félagi til að mæta tapinu en hjá félaginu tryggja 200 manns hjólin sín. Það þarf því að hækka tryggingu hvers og eins um 100 þúsund krónur á haus til að eiga fyrir tapinu - allt út af einu slysi. Áróöur skilar árangri 1991 var eitt versta ár í sögu mótor- hjólaslysa á íslandi: 88 slys, 93 slasað- ir, þar af flórir sem létust. Því var ákveðið að aðgerða væri þörf og árið Munur iðgjalda og tjónagreiöslna á mótorhjólum —1995—1999 140 * Tölur frá Skráningarstofu. ** Slysatölur frá Umferöarráöi. *** Þar af 1508 þung bifhjól. Fjöldi mótorhjóla í umferö er aö aukast og á bessu ári er þegar búiö aö skrá 116 ny mótorhjól. 120 100 20 m.kr.!----- 3 1995 1996 1997 1998 1999 Á þessu línuriti má sjá hvaö tjónkostnaður umfram fögjöld hefur rokið upp úr öllu valdi á síðustu fimm árum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.