Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Síða 18
18
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
Helgarblað
I>V
Hlaupa 5000 kíló-
metra á 50 dögum
í dag er Reykjavlkurmaraþonið
hlaupið og flestum finnst að sú vega-
lengd sem maraþonið er hljóti að vera
með því erfiðara sem menn glími við í
heimi hlaupanna. En hvað myndi þá
fólk segja við þvi að hlaupa ekki bara
eitt heldur svona eins og 2 til 3 mara-
þon á dag og þá ekki bara í einn dag
heldur í 7 til 8 vikur? Ef mönnum
finnst þetta ótrúlegt er rétt að koma
þvi á framfæri að í síðustu viku lauk
lengsta keppnishlaupi veraldar þar
sem hlauparamir sem tóku þátt keppt-
ust við að hlaupa 3.100 mílur á sem
skemmstum tíma. 3.100 mílur sam-
svara rétt tæpum 5000 kílómetrum en
það er þrír og hálfur hringvegur. Það
jafngildir því að við tækjum okkur til
og hlypum 65 sinnum frá Reykjavík til
Keflavíkur og til baka.
Hlaupið sem hér um ræðir heitir
einfaldlega Sri Chinmoy 3.100 mflur, í
höfuðið á þeim manni sem átti hug-
myndina að því, Sri Chinmoy (frbr. srí
tsjinmoj), en það er Sri Chinmoy-mara-
þonliðið (SCML), hlaupasamtök sem
hann stofnaði, sem ber hitann og þung-
ann af hlaupinu.
Það er haldið í New York og þetta er
fjórða árið sem það fer fram en undan-
fari þess, 2.700 mflna hlaup, var haldið
- ofurmannleg afrek
1996. Reyndar má rekja rætur þess
lengra aftur í tímann þvi SCML byrj-
aði á 1.000 mílna hlaupi 1985 og allar
götur síðan 1987 hefúr verið keppt á
hveiju ári í „últratríóinu" svokallaða,
700, 1.000 og 1.300 mflna hlaupum, en
það má örugglega fuflyrða að það sé af-
reksverk að klára hvert þeirra um sig.
Staðreyndir um
hlaupið
3.100 mílur jafngilda tæpum 5000
kílómetrum sem er þrir og hálfur hring-
vegur eða 65 sinnum Reykjavík-Kefla-
vík-Reykjavík.
Brennsla á dag er um 8.000 til 10.000
hitaeiningar og til að mæta þessari orku-
þörf þurfa hlaupararnir að borða sem
svarar 100 bönunum, 3,6 kílóum af hun-
angi eða 36 snickers á dag.
Þeir þurfa að drekka 8-10 lítra af
vökva á dag til að vinna upp á móti
vökvatapi.
Hiaupararnir fara í gegnum 3-5 pör af
hlaupaskóm í hlaupinu.
Þeir sofa 5Cl tíma að jafnaði á sólar-
hring.
á óskalista
SMí'ísm
frit.27.930 stgr.
KitchenAid
mest selda heimilisvélin í 60 ár!
• 5 gerðir hrærivéla í hvítu, svörtu, bláu,
rauðu, gulu eða grænu.
1 Fjöldi aukahluta
1 íslensk handbók með uppskriftum íylgir
■ Lágvær og þrælsterk - endist kynslóðir
1 Sérstök brúðkaupsgjöf: Öll brúðhjón
fá glæsilega svuntu með ísaumuðum
nöfnum sínum og brúðkaupsdegi.
Þú gefur ekki gagnlegri gjöf!
| KitchenAid einkaumboð á íslandi
MmgS Einar Farestveit &Co.hf.
BORGARTUN 28 - S: 562 2900 & 562 2901
Til hvers í ósköpunum?
En hvað er það þá sem fær fólk til að
leggja á sig þolraun sem þessa sem
flestir myndu telja að væri komin út
yfir öll „velsæmismörk"? í þessu felst
auðvitað viss áskorun um að sjá
hversu langt er hægt að komast, hvort
einhver takmörk séu í rauninni fyrir
því hvað við komumst langt. Og þeir
sem til þekkja segja að þetta sé einmitt
þungamiðjan í boðskap Sri Chinmoy
og ástæðan fyrir því að byrjað var á
þessu hlaupi, að yfirstíga í sífellu eigin
takmarkanir, að ná stöðugt nýjum
hæðum innri og ytri fuflkomnunar.
Eins og gefúr að skilja eru þátttak-
endur ekki margir í hlaupi sem þessu,
flestir eiga jú fullt í fangi með „stutt“
hlaup eins og maraþon. En þau voru
fjögur sem tóku þátt í hlaupinu í sum-
ar, kona og þrir karlmenn. Þau komu
afls staðar að, tvö þeirra voru frá
Bandaríkjunum, einn hlaupari frá
Júgóslavíu og einn frá Finnlandi.
Hlaupið byrjaði þann 18. júní síðast-
liðinn, daginn eftir þjóðhátíðarfógnuð
okkar íslendinga, og lauk um síðustu
helgi þegar síðasti hlauparinn kom í
mark. Til að vera „gjaldgengur" í
hlaupinu og ná settum tímatakmörk-
unum sem er 51 dagur verða menn að
ná að meðaltali rétt rúmum 60 mílum
á dag sem eru rétt tæpir 100 km. Menn
gátu hlaupið frá ki. 6 á morgnana tfl kl.
12 á kvöldin og það var hlaupinn
hringur sem er 883 metrar að lengd
sem gerir hvorki meira né minna en
5.649 hringi og 688 þúsundustu úr
hring.
Pekka vann
Sigurvegari hlaupsins var frændi
okkar frá Finnlandi, Pekka Aalto.
Hann hljóp þessa vegalengd á 47 dög-
inn +13:29:55 sem er þriðji besti tíminn
frá upphafi. Hann bætti um betur og
bætti við 13 hringjum til að klára 5000
kflómetrana og hljóp þá á 47 dögum +
16:05:13.
DV náði til kappans þar sem hann
var enn þá staddur í New York og ný-
kominn af
ströndinni
en hann hef-
ur mikla
ánægju af
þvi að sigla
brimbrett-
um. Pekka
er 29 ára
gamall og
því má segja
að ferifl
hans sem
últra-
hlaupara sé
rétt að hefj-
ast. Finnar
eru sem
kunnugt er
miklir hlauparar og hafa löngum getað
státað af hlaupurum á heimsmæli-
kvarða. Má þar nefiia Paavo Nurmi og
Lasse Viren en Paavo Nurmi sat einn
að flestum guflverðlaunum á Ólympíu-
leikum þar til Carl Lewis jafnaði met-
ið 1996.
láKar sig með því að bera út
Pekka sagði í samtalinu við DV að
þetta væri án nokkurs vafa það erfið-
asta sem hann hefði nokkum tíma gert
um ævina. í styttri hlaupum sem mað-
ur kláraði á 10 dögum eða skemur sæi
maður fyrir endann á hlaupinu en hér
væri endirinn bara ekki í sjónmáli.
Mánuður eða einn og háflúr væri bara
svo langur tími að maður þyrfti að búa
sér til styttri markmið og þá reyni á
einbeitinguna. Pekka ber út blöð á
morgnana í Finnlandi og hefúr gert
undanfarin 10 ár. Hann sagði að undir-
búningur sinn fyrir þetta hlaup hafi
falist í hlaupunum á morgnana með
blöðin og síðan fór hann lika út að
hlaupa seinni partinn. En þetta er ekki
alveg í fyrsta sinn sem Pekka reynir
sig við þessi miklu langhlaup.
Pekka að hlaupa einn hring. Hringurinn var 883 metrar að lengd og
hringirnir voru hvorki meira né minna en 5.650.
og á þessu tímabili missti Pekka for-
ystrma).
En þessi reynsla í heild sinni rís
hátt og er eitt það besta sem ég hef far-
ið í gegnum á ævinni. Mér finnst ég
vera orðinn miklu sterkari á öllum
sviðum eftir þessa reynslu, sterkari
persóna."
Með fæturna I saltvatni
Hvemig var með mat og svefii og
svoleiðis, er það ekki allt öðruvísi á
meðan á svona hlaupi stendur?
Pekka sagði að hann hefði sofið 5 'An
tíma að jaftiaði sem væri mun minna
en hann svæfi venjulega en hann sefur
venjulega 8 tíma. Þetta væri jú keppn-
ishlaup og menn gætu ekki bara eitt
öllum tímanum í að sofa.
„En þrátt fyrir minni svefn var ég
ekkert þreyttari en venjulega, einstaka
sinnum varð ég syfjaður seinni part-
inn en ekkert að ráði, maður heldur jú
bara áfram að hlaupa. Hvað varðar
matinn, þá léttist ég reyndar í hlaup-
inu um ein 2 kfló, fór úr 55 kílóum nið-
ur í 53 kíló en þau em að koma aftur.“
Pekka sagðist vera grannur og létt-
ur að eðlisfari eins og menn sæu og
það hjálpaði sér ömgglega mikið á
langhlaupunum varðandi álag á öll
liðamót. Gerði hann eitthvað sérstakt
á meðan á hlaupinu stóð til að halda
sér við?
„Ég lét fætuma liggja í saltvatni um
7 mínútur á dag þar sem mig verkjaði
nokkuð undir tánöglimum og reyndi
að nota tímann til að hugleiða. Auk
þess var aðstaða fyrir hlauparana til
að fara í nudd sem við notuðum
óspart."
Hvemig er líðanin núna eftir hlaup-
ið?
„Hún er mjög góð. Ég er að miklu
leyti búinn að jafiia mig og er búinn að
vera niðri á strönd núna í dag að sigla
brimbrettum.“
Sigurvegarinn Pekka Aalto kláraði hlaupið á 47 dögum +
13:29:55. Þetta er lengsta keppnishlaup í heimi og jafngild-
ir rúmlega 118 maraþonum.
„í fyrra tók ég þátt í 700 mflna
hlaupi (eitt af hlaupunum í últratríó-
inu) og síðan hefur hann tekið þátt í
Appalachian trail og Pacific Crest
Trail, fjallahlaupum þar sem menn
fara 50 km á dag eða meira í sex vik-
ur.“
Var veikur í eína viku á
hlaupunum
En hvað upplifa menn í svona löngu
hlaupi? Var eitthvað sérstaklega eftir-
minnilegt við svona gríðarlega langt
hlaup? „Ekki beinlínis," sagði Pekka.
„Það byggist upp mjög gott samband
við hina hlauparana og þá sem era að
hjálpa hlaupurunum og það er gott að
tala við þá, það verður til svona stemn-
ing þar sem skapast eins og nálægð við
alla, gott að hafa aðra til að vera með
sér í þessu. En hver dagur er líkur öðr-
um, maður vaknar, fer að hlaupa,
borðar, hleypur meira og svo fer mað-
ur að sofa um nóttina. Maður glimir
við leiðindi, minni háttar verki og
þreytu en ég þjáðist af magakveisu i
eina viku og gat lítið borðað og þar af
leiðandi fór dagsleiðin eitthvað niður,
niður í um 50 mílur (það era um 80 km