Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2000, Síða 58
66
________________________________LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 2000
Tilvera I>V
Bernhöftstorfan
Elsta húsaröö bæjarins setur svip sinn á miöbæinn.
Vorið 1973 tók hópur fólks sig saman um að mála húsin í Bernhöftstorfunni:
Þau breyttu yfir-
bragði borgarinnar
Menningarnótt
í Reykjavík
í dag er Menningamótt í Reykja-
vík. Fyrsti dagskrárliður hátíðar-
innar hefst kl. 12 á hádegi og sá síð-
asti rúmlega 12 á miðnætti. Sjá nán-
ar dagskrá á bls. 53 og á visir.is
Krár
■ JAGUAR A VEGAMOTUM Rándýr
in í Jagúar spila fönk. Félagarnir
verða við íþrótt sína á Vegamótum
langt fram á Menningarnótt en tón-
leikarnir hefjast á miðnætti.
■ SVARTIR í H)NÓ Hljómsveitin í
->; svörtum fötum verður í svörtum föt-
' um í Iðnó á Menningarnótt.
1 ■ EINSI Á STRÆTÓ Elnar, bur
l Jóns, ætlar að plokka strenginn og
er betri en enginn á Kaffi Strætó.
Mætiö snemma til að fá sæti.
Böll
■ HARMONIKUBALL A UTITAFL-
INU I tilefni Torfudags og Menning-
arnætur veröur slegiö upp harm-
oníkuballi á útltaflinu kl. 21.30.
Léttsveit Harmoníkufélags Reykja-
víkur leikur fyrir dansi.
■ SELMA & TODMOBILE í LEIK-
' HUSKJALLARANUM Tónleikarööin
Svona er sumariö í Leikhúskjallar-
anum heldur áfram. í kvöld ætla
Selma og Todmobile að stíga á
* stokk.
Djass
1 GITARDJASS Í NORRÆNA HÚS-
INU Norræna húsið og Jazzhátíð
Reykjavíkur byrja Menningarnótt
kl. 16. Boöið verður upp á úrvals
djass meö tveimur úr hópi bestu gít-
arleikara Norðurlanda, Rune
Gustafsson og Odd-Arne Jacobsen. -
■ TRÍÓ ÓSKARS Á JÓMFRÚNNI
l Tólftu sumartónleikar Jómfrúarlnnar
^viö Lækjargötu fara fram í dag, kl.
* 16. Tríó saxófónleikarans Óskars
Guðjónssonar leikur.
■ ÓNPIN í BANASTUÐI Á KAFFI
VÍN Frá klukkan 22.00 og fram eftir
menningarnóttu mun dixíbandið
Óndln halda árlega tónleika sína á
Kaffi Vín, Laugavegi 73.
■ DJASSTÓNLEIKAR Tríó Robins
Nolans er meö tónleika í Deiglunni í
kvöld.
Klassík
■ HORNAFLOKKUR I tilefni Torfu-
dags Torfusamtakanna mun horna-
flokkur frá Lúðrasveit Reykjavíkur
leika á blettinum viö styttu sr. Frið-
riks Friðrikssonar kl. 14.00. Lúðra-
sveitarmenn munu klæðast elstu
búningunum.
■ SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÞÝSKS
, ÆSKUFOLKS Sveitin heldur
þrenna tónleika á landinu. Þeir
fyrstu eru í Hafnarborg, Hafnarfiröi,
kl. 20 í kvöld. Sveitina skipa 74
hljóðfæraleikarar frá 9 Evrópulönd-
um, allir á aldrinum 15-24 ára. Á
efnisskrá eru Enigma-tilbrigöin eftir
Elgar og píanókonsert í a-moll eftir
Grieg. Aðgangseyrir er kr. 1000 en
500 kr. fyrir börn, nemendur og eldri
borgara.
■ TÚMA í HALLGRÍMSKIRKJU
Tékkneski orgelleikarinn Jaroslav
Túma leikur a hádegistónleikunum í
Hallgrímskirkju á dag, kl. 12. Hann
er fulltrúi menningarborgarinnar
Prag á tónleikum Sumarkyölds við
orgellð á morgun kl. 20. Á efnisskrá
hádegistónleikanna eru þrjú verk.
Fyrst leikur Jaroslav Túma hina
þekktu Passacaglíu í d-moll eftir J.S.
Bach. Hin verkin eru tékknesk.
Konsert-fantasía úr „Vysehrad"
(Heimalandiö mitt eftir Smetana),
sem Josef Kllcka skrifaði, og Postlu-
dium úr Glacolitísku messunni eftir
Leoc Janácek.
, Sjá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísi.is
Um 1970 voru fáir íslendingar
sem létu sig varða gömul hús. Al-
mennt viðhorf var á þá leiö að
gömlu bárujámshúsin i Reykjavík
gæfu borginni óæskilega þorpslegan
blæ. Viðhald húsanna var í sam-
ræmi við þessi viðhorf. Þau voru
flest í bágu ástandi, illa máluð og
mörg með illa farið og ryðgað báru-
jám.
Stjórnarráö á Torfuna
Bemhöftstorfan var í niðurníðslu
og setti vissulega svip á miðbæinn.
Rætt var um niðurrif húsanna
gömlu og ýmsar hugmyndir voru
uppi um nýtingu lóðanna og gengu
hugmyndir ríkisins út á að reisa
stjórnarráðsbyggingu á Torfunni.
Ekki vom þó allir þeirrar skoðunar
að rífa ætti húsin. Einkum voru þaö
arkitektar og listamenn sem létu sig
málið varða og gekkst Arkitektafé-
lagið fyrir hugmyndasamkeppni
árið 1971 um endurlífgun Bemhöfts-
torfunnar. „Guðrún Jónsdóttir var
aðaldrifljöðrin í þessu,“ segir Magn-
ús Tómasson myndlistarmaður sem
ásamt Jóhönnu Ólafsdóttur ljós-
myndara sendi tillögu í hugmynda-
samkeppnina. Hún snerist um hvað
væri hægt að gera við húsin með lit-
um og í henni fólst að mála Bern-
höftstorfuhúsin i jarðlitum sem
mögulega hefðu getað verið á þeim
um það leyti sem þau voru byggð.
Torfusamtökin voru stofnuð 1.
desember 1972 í þeim tilgangi að
vemda gömlu húsin í Bemhöftstorf-
unni og var Guðrún Jónsdóttir
fyrsti formaður þeirra.
Aögeröir skipulagöar
I lok apríl 1973 kviknaði í
austasta húsi Torfunnar, gamla
JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR
Bruninn 1977
/ mars 1977 kviknaöi í Bernhöfts-
torfunni aftur.
landiæknishúsinu og uröu þá radd-
ir sterkari um að rífa þyrfti húsin
sem fyrst. Eftir brunann var hald-
inn fundur í Torfusamtökunum þar
sem rætt var um aðgerðir til bjarg-
ar Bernhöftstorfunni. Menn voru
sammála um að hugsanlega gæti
það breytt viðhorfi manna til hús-
anna að sjá þau máluð í fallegum lit-
um. „Þama vom grandvarir menn
sem vildu fá leyfi yfirvalda til að
mála húsin en svo voru þarna lika
anarkistar eins og ég sem vildu
bara mála,“ segir Magnús.
Undirbúningur aðgerðanna var
mikill en fór fremur hljótt. „Máln-
ing hf. gaf málninguna og Helgi
Kristinsson litasérfræðingur vann
litablöndunina ásamt mér. Við Sig-
urður Harðarson smíðuðum 10 eða
Líkan af Torfunni
/ apríl 1977 kynntu Torfusamtökin
hugmyndir sínar um nýtingu Bern-
höftstorfunnar. Líkaniö er eftir Sig-
urö Örlygsson.
Júní 1970
Svona leit húsalengjan út sumariö 1970.
20 stiga og Sigurður Örlygsson
smíðaði fleka sem málaðir voru eins
og gluggar og settir í húsin þar sem
gluggar voru brotnir og illa farnir."
Aðgerðin hófst snemma morguns
þann 19. maí, um þremur vikum eft-
ir brunann. „Mig minnir að veðrið
hafi verið mjög gott og húsin voru
orðin skínandi fogur um hádegi,"
segir Magnús.
Borgarprýði
Aðgerðin vakti mikla athygli og
óhætt er að segja að viðhorf margra
til Bemhöftstorfunnar og gamalla
húsa yflrleitt hafi snúist næstu ár.
Einnig gengu litimir, sem húsin í
Torfunni höfðu verið máluð í, aftur
í fjölmörgum bárujárnshúsum í
Þingholtunum, vesturbænum og
Eftir brunann 1973
Þaö þurfti bjartsýnisfólk í upp-
bygginguna.
víðar mörg ár á eftir og eimir jafn-
vel eftir af því enn. Það má því segja
að þessi grasrótarhreyfing, sem
ákvaö að flikka upp á Bernhöftstorf-
una í skjóli nætur, hafi lyft
Grettistaki.
Sögunni var þó ekki lokið því í
mars 1977 kviknaði í Torfunni og
við það vaknaði aftur hugmyndin
um að rífa húsin. Þá gengu Torfu-
samtökin fram fyrir skjöldu og
kynntu ýmsa möguleika á nýtingu
húsanna og 1979 tóku samtökin
Torfuna á leigu og hófust hana við
gagngera endurbyggingu hennar.
I dag er það skoðun flestra að
Bernhöftstorfan setji fallegan svip á
miðbæinn og raddir um að húsin
verði rifin virðast þagnaðar. Öll
húsin hafa verið gerö upp eða end-
urbyggð og starfsemi í þeim er afar
blómleg.
Torfusamtökin efna í dag til
Torfudags í tilefni menningamætur
og í samvinnu við Reykjavík menn-
ingarborg Evrópu árið 2000. Hátíðin
hefst á Bernhöftstorfunni kl. 14.00.
Meðal dagskráratriða má nefna að
kl. 15.00 setur götuleikhúsflokkur-
inn Hópur fólks á svið málun Torf-
unnar og kl. 16.00 verður málþing
um húsvemd á Komhlöðuloftinu.
Kl. 21.30 verður svo harmoníkuball
á útitaflinu framan viö Torfima.
-ss