Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
Fréttir
DV
Vegageröin segir ekkert í vegi þess að afhenda lægstbjóðendum ferjurekstur:
Ferjur á nýjar hendur
- kröfum um nýtt útboð vísað á bug og endanleg ákvörðun kynnt á næstu dögurn
Engar hömlur eru á afnotum
rekstraraðilanna að ferjunum
tveimur og geta þeir þess vegna
siglt þeim allan sólarhringinn án
sérstaks endurgjalds til rikissjóðs
sem á skipin. „Það má þó segja að
leigugjald þeirra felist í því að við
fáum væntanlega lægra tilboð,“
segir Gunnar.
Fá fund en ekki pappíra
Fyrirtækin tvö sem urðu undir í
útboðunum og sem staðið hafa að
rekstri ferjanna tveggja áratugum
saman hafa bæði krafist þess að fá
aðgang að kostnaðarútreikningum
Vegagerðarinnar.
„Viö munum á fundi i Vest-
mannaeyjum á morgun (í dag) fara
yflr málið i heild sinni með stjóm
Herjólfs og fulltrúum Vestmanna-
eyjabæjar. Það er spuming hvort
við afhendum eitthvað af áætlun-
um okkar en viö munum að ein-
hverju leyti gera grein fyrir því
hvemig við byggðum upp okkar
kostnaðaráætlun. Að sjálfsögðu
munum við fara yfir málin á sama
hátt með þeim sem buðu í rekstur
Baldurssegir Gunnar Gunnars-
son. -GAR
Hundar
brunnu inni
Tveir hundar brunnu inni er eldur
kom upp í kjallaraíbúð á Álfhólsvegi í
Kópavogi í gær. Heimilisfólk var ekki
heima er eldurinn kviknaði og komust
hundamir ekki út af sjálfsdáðum.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi
skemmdist íbúðin mikið. Eldurinn
kviknaði í sófa í íbúðinni og rannsak-
ar lögreglan nú eldsupptök. -SMK
Féll ofan af þaki
Rúmlega fimmtugur karlmaður féll
ofan af þaki á húsi við Lokastíg í
Reykjavik um sexleytið í gærkvöldi.
Maðurinn hafði verið að gera við þak-
ið þegar honum skrikaði fótur og
hann féll fyrst ofan á bakhýsi og svo
ofan á þvottasnúrur. Hann var fluttur
með sjúkrabíl á slysadeild Landspítal-
ans í Fossvogi en var ekki talinn al-
varlega slasaður. -SMK
Dagar Sólons íslandusar taldir vegna hörkudeilu um húsaleigu:
Okrari eða ekki okrari
Eldur í Kópavogi. dv^iynd s
Tveir hundar drápust er eldur kom upp í kjallaraíbúö í Kópavogi um hádegisbiliö í gær.
Að sögn Gunnars Gunnarssonar,
framkvæmdastjóra stjórnsýsludeildar
Vegagerðarinnar, stendur ekkert í
vegi þess að gengið verði að tilboðum
lægstbjóðenda í rekstur Breiöaíjarðar-
ferjunnar Baldurs og Vestmannaeyja-
ferjunnar Herjólfs. Gunnar segir að
endanleg ákvörðun í málinu verði
kynnt öðru hvoru megin við næstu
helgi.
Gunnar segir Vegagerðina munu
hafna kröfu fyrirtækisins Breiðaíjarð-
arferjunnar Baldurs hf. (BB) um að
gefm tilboð í rekstur Baldurs verði
metin með það í huga að samkeppnis-
rekstri sé haldið fjárhagslega aðskild-
um frá ríkisstyrktum rekstri eða að
útboðið veröi endurtekið ella.
„Það er ekki grundvöllur fyrir
þeirri kröfu. Það er alveg skýrt tekið
fram í útboösgögnum að bjóðendum
sé heimilt að nota skipið í annan
rekstur utan áætlunartíma. Við hefð-
um ekki sett þetta inn í útboðsgögnin
ef við hefðum talið að það bryti sam-
keppnislög,“ segir Gunnar.
í kröfu sinni til Vegagerðinnar vís-
ar BB til úrskurðar Samkeppnisstofn-
Herjólfur
Samskip fá Vestmannaeyjaferjuna.
unar frá árinu 1994 þar sem rekstrar-
aðila ferjunnar Fagraness í ísafjarðar-
djúpi var gert að halda ríkisstyrktum
rekstri áætlanasiglinga aðskildum frá
öðrum rekstri skipsins.
„Það ætti rektstraraðili Baldurs að
geta gert á sama hátt ef hann þá þarf
þess. Ég er ekki viss um að þetta séu
sambærileg mál því að í okkar útboðs-
gögnum er í raun gert ráð fyrir - með
því að heimila þeim sem fær verkið
að nota skipið í annað - að fá lægra
tilboð í styrkinn og fara þannig betur
með ríkisfé. En í tilviki Fagranessins
var kannski veriö að nota hluta af rík-
isstyrknum til að styrkja einkarekst-
urinn. Þetta snýst í raun við. Ég full-
yrði ekki að það sé í lagi en að
Baldur
Siglir sinn sjó á Breiöafiröi með
nýrri útgerö.
minnsta kosti ætti þeim sem fær verk-
ið að vera í lófa lagið að aðskilja þessa
rekstrarþætti ef Samkeppnisstofnun
fer fram á það. En það er hennar að
fylgja því eftir en ekki okkar,“ segir
Gunnar
Mega sigla allan sólarhring-
inn
Gunnar segi að sams konar ákvæði
um frjáls afnot rekstraraðilans af skip-
inu hafi gilt í útboðinu um Herjólf,
enda hafi Vegagerðin með því vonast
til að þurfa að greiða lægri styrk með
sjálfum áætlunarsiglingunum. Hann
segir hins vegar að Vegagerðinni sé
ekki kunnugt um að tilboðsgjafar í þvi
útboði hafi uppi áform um slíkt.
- það er spurningin, segir Pétur Björnsson leigusali og ítalskur konsúll
Eitt stærsta og
þekktasta kaffihús
höfuðborgarinnar er
aðeins opið á kvöld-
in og um helgar
vegna heiftúðugrar
deilu rekstraraðila
og eigenda húsnæð-
isins á horni Banka-
strætis og Ingólfs-
strætis um húsa-
leigu. Leigusamn-
ingur rennur út á
laugardaginn og þar
með eru dagar Sólons íslandusar
taldir, en kaffihúsið hefur verið
starfrækt frá árinu 1992 af hópi
þekktra einstaklinga úr reykvísku
menningarlífi. Leigusalar eru Pétur
Björnsson, ítalskur konsúll á íslandi,
og Svava Björnsdóttir myndlistar-
kona, systir hans, en þau eru barna-
börn Péturs Guðmundssonar í Mál-
aranum, sem átti húsið á sinni tíð og
rak þar málningarverslun.
Kvartaö sáran
Pétur og Svava eru í forsvari fyrir
„Hús málarans", sem er félag sem
rekur fasteignir sem voru í eigu Mál-
arans, en aðrir hiuthafar eru úr hópi
erfingja Péturs heitins i Málaranum.
„Það hefur
verið óþarfa
stirðleiki í sam-
skiptum okkar
við stjóm hluta-
félagsins sem
rekið hefur Sól-
on íslandus.
Málið er á við-
kvæmi stigi en
ætti að skýrast
um helgina,"
sagði Pétur
Bjömsson í
gær. „Við gerð-
um hlutafélag-
inu tilboð um
mjög sanngjarna leigu en því tilboði
var hafnað. Ég staðhæfi að þar lágu
ekki viðskiptaleg rök að baki.“
Eigendur Sólons íslandusar hafa
allt frá upphafi kvartað sáran yfir
hárri húsaleigu í Bankastrætinu,
kallað hana okur, en Pétur Bjömsson
segir hana sanngjama og í takt við
það sem gerist í miðbænum: „Okrari
eða ekki okrari. Það er spurningin.
Þumalputtareglan í húsaleigu er sú
að leigan er einn tíundi af verömæti
eignarinnar og ég veit ekki hvers
virði húsið er fyrr en ég sel það. Sjálf-
ur hef ég ekki á takteinum hver leig-
an er. Svava
systir min inn-
heimtir hana
alltaf," sagði
Pétur Björns-
son.
Húsaleigan
hefur alltaf
staðið rekstrin-
um á Sóloni Is-
landusi fyrir
þrifum og fyrir-
tækið fyrir
bragðið ekki
skilað hluthöf-
um sínum sjálf-
sögðum arði
sem flestir bjggust við að fá út úr fjár-
festingu sinni. Rekstaraðilar kaffi-
hússins segja leiguna alltaf hafa verið
að hækka og þegar hún var farin að
sleikja milljón á mánuði hafi menn
gefist upp
Neita aö fara?
„Ég tjái mig ekki um húsaleiguna
eða annað. Þetta skýrist á næstu dög-
um,“ sagöi Árni Þór Ámason, for-
maður stjórnar Sólons íslandusar,
sem sér nú fram á að þurfa að hætta
rekstrinum í Bankastræti. Hann neit-
ar einnig að ræða hugmyndir nokk-
Pétur
Björnsson
Húsaleigan
sanngjörn.
Sólon Islandus
Tekist á um húsaleigu sem alltaf hefur staö-
iö rekstrinum fyrir þrifum.
urra félaga sinna
um að neita að rýma
húsnæðið þegar
leigusamningurinn
rennur út um helg-
ina og sitja sem fast-
ast. Er þetta til
marks um hörkuna
sem hlaupin er í
samskipti eigenda
húsnæðisins og
leigutaka.
Svava
Björnsdóttir
Innheimtir leig-
„Hús málarans" á una.
homi Bankastrætis “
og Ingólfsstrætis er á fjórum hæðum.
Sólon íslandus hefur rekið veitinga-
sali á tveimur hæðum, auk þess að
vera með eldhús og gestasnyrtingu í
kjallara. Á efstu hæðinni hefur ís-
lenska óperan leigt skrifstofuhúsnæði
og mun svo verða áfram.
„Ef þeir neita að yfirgefa húsnæðið
tek ég á því þegar þar að kemur en ég
hef enga ástæða til að ætla að svo
fari,“ segir Pétur Bjömsson, sem
sjálfur hyggst hefja veitingarekstur á
homi Bankastrætis og Ingólfsstrætis
ásamt systur sinni þegar Sólon ís-
landus hverfur á braut. „Það er ljóst
að þarna verður áfram kaffishús. I
hvaða formi kemur í ljós þegar ég
opna.“ -EIR
Útilokar ekkl lögsókn
Ragnar H. Hall,
lögmaður Ágætis,
hefur ritað Land-
læknisembættinu
bréf þar sem hann fer
þess á leit að fá i
hendur öll skjöl sem
tengjast rannsókn á
þvi hvórt grænmeti
frá Dole hafi valdið salmonellufaraldr-
inum að undanfórnu. RÚV sagði frá.
Skógræktin missir Hvamm
Skógrækt ríkisins
hefur verið með jörð-
ina Hvamm í Skorra-
dal á leigu í 30 ár.
Jörðin hefur verið
auglýst til sölu því
ekki náðist sam-
komulag um endur-
nýjun leigusamnings-
ins þar eð eigendur jarðarinnar vilja
selja jörðina. Verðiö er of hátt fyrir
Skógræktina að sögn skógræktarstjóra.
Dagur sagði ffá.
Styttist í Alþingi
Alþingi kemur saman á mánudag og
veröur fjárlagafrumvarpið þá lagt
fram. Mörg stórmál eru fram undan.
Visir.is sagði frá.
Engin veltuaukning
Stóraukin verslunarvelta virðist nú
liðin tíð og kreditkortaveltan jafnvel
farin að minnka. Velta í smásöluversl-
un, bíla- og bensínsölu frá janúar til
ágúst í ár er nær ekkert meiri en á
sama tímabili í fyrra, samkvæmt Hag-
vísum Þjóðhagsstofnunar. Dagur sagði
frá.
Mikii fækkun matvöruverslana
Fyrirtækjum í matvöruverslun á
höfuðborgarsvæðinu fækkaði um hátt í
40% á umliðnum áratug, eða úr nær
140 árið 1990 niöur í rúmlega 90 á síð-
asta ári, samkvæmt upplýsingum í
Hagvísum Þjóðhagsstofnunar. Dagur
sagði frá.
Faraldsfræöin dugar
Að sögn sviðsstjóra matvælasviðs
Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur er far-
ið eftir ákveðnum reglum um birtingu
upplýsinga. „Þegar almannaheill krefst
skal öllum nauðsynlegum upplýsingum
komið á framfæri. Slíkar upplýsingar
geta verið nöfn ákveðins framleiðanda,
innflytjanda eða söluaðila," segir hann.
Bætur án dóms
Kolbeinn Sveinbjömsson hjá Þing-
vallasiglingum segir að lögmaður hans
telji möguleika á því að hægt verði að
ná samkomulagi við ríkið um greiðslu
skaðabóta án þess að þurfa að fara með
málið fyrir dóm. Hann segir málið öðr-
um þræði spumingu um grundvallar-
réttindi sín. Dagur sagði frá.
Ekki hlutafélagaumræða
„Það hefúr engin
formleg umræða far-
ið fram milli stjómar-
flokkanna um að gera
Ríkisútvarpið að
hlutafélagi. Ég hef
heldur ekki heyrt um
að það sé inni í
myndinni að hefja slíkar viðræður nú,“
segir Hjálmar Árnason, þingmaður
Framsóknaiílokksins. Dagur sagði frá.
Verða af átta milljörðum
Viðskiptastofa Landsbanka- Islands
telur að sókn lífeyrissjóða til útlanda
hafi kostað þá átta milljarða ávöxtun
frá því sem verið hefði ef féð hefði ver-
ið ávaxtað hérlendis. RÚV sagði frá.
Kvikmyndahátíðarvefur
Opnaður hefur verið á Vísi.is vefur í
tilefni af Kvikmyndahátíð í Reykjavik
sem hefst á fóstudag. Á vefnum er að
finna alla dagskrá hátíðarinnar og um-
fjöllun um ailan þann fjölda mynda
sem sýndur verður á hátíðinni. Vísir.is
sagði frá. -GAR