Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Side 4
4
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
Fréttir
DV
Bullandi óánægja með flugútboð Ríkiskaupa:
Handónýtt mála-
myndaútboð
- hannað til að þjóna ákveðnum aðila, segja minni flugrekstraraðilar
Pétur Pétursson, verkefnastjóri
hjá Ríkiskaupum, kynnti væntan-
legum tilboðsgjöfum á fundi í gær
útboð vegna reksturs áætlunar- og
sjúkraflugs á íslandi. Mikiil hiti
var í fundarmönnum og bullandi
óánægja minni flugrekstraraðila
með þetta útboð.
„Bullshit", handónýtt mála-
myndaútboð og kolrangar forsend-
ur voru orð sem notuð voru á
fundinum. Bent
Pétur Pétursson
verkefnastjóri
hjá Ríkiskaup-
um.
var m.a. a
óraunhæfa kröfu
um GPS-tæki og
einnig kröfu um
tvo flugmenn í
sjúkraflugi.
Beindu fundar-
menn þeirri
spurningu til
Péturs Péturs-
sonar, fulltrúa
Ríkiskaupa, og
Einars Arnar
Héðinssonar,
fulltrúa Flug-
málastjórnar, hvort með útboðinu
væri verið að setja nýjar flug-
rekstrarreglur í landinu.
Leifur Hallgrímsson, fram-
kvæmdastjóri Mýflugs, var
hvassyrtur í garð útboðsins. „Það
eru mjög skiptar skoðanir um
þetta útboð. Þá hefur útboðinu
verið breytt í veigamiklum atrið-
um á síðustu dögum. Ég sé ekki að
minni rekstraraðilar á íslandi eigi
nokkra aðkomu að þessu útboði,
það er vonlaust fyrir þá að gera til-
boð.“ Leifur vildi ekkert segja um
það hvort útboðið væri sniðið að
þörfum Flugfélags íslands. Hann
benti hins vegar á að menn gætu
lesið i gegnum útboðsgögnin og
séð hvað þar væri á ferðinni.
Jón Grétar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri flugfélagsins Jórvík-
ur, var sama sinnis. „Þessu er
greinilega stillt upp fyrir ákveðinn
aðila, það vantar bara einkennis-
stafma á vélunum inn i útboðið.
Þetta er hannað
þannig að það er
mjög erfitt fyrir
aðra að bjóða í
þetta. Menn
skipta ekki um
flugvélaflota á
tveim mánuð-
um, þjálfa starfs-
menn og hvað þá
að finna þá.
Krafan um 1.500
flugtíma er mjög
há fyrir þessi
minni félög.
Krafan um tvo flugmenn hefur
hins vegar ekki verið í gildi í
sjúkrafluginu samkvæmt reglum í
landinu. Á minni vélunum er bara
krafa um einn flugmann en síðan
fer það eftir flugvélategundum.
Þarna eru Ríkiskaup greinilega að
setja nýjar reglur fyrir íslensk
flugmálayfirvöld. Þá er krafa um
GPS-tæki um
borð í vélunum
sem er alveg út í
hött. Það er ekk-
ert GPS-aðflug í
gangi á landinu i
dag. Þetta er því
algjört mála-
myndaútboð."
Pétur Péturs-
son hjá Ríkis-
kaupum segist
oft heyra þetta
að útboð séu ætl-
uð ákveðnum
aðilum og það
taki því ekki fyrir aðra að gera til-
boð. „Það er ekkert við svona
skoðunum að gera. Menn eru með
kröfumar fyrir framan sig og vægi
þáttanna í útboðinu sem ekki er
oft gert. Þetta er því mjög niður-
njörvað og gegnsætt. Kröfumar
endurspegla þá þörf sem menn
telja sig hafa.“
- Hvaðan kemur t.d. krafan um
tvo flugmenn?
„Þessi krafa hefur með öryggið
Kynning á útboði Ríkiskaupa
Það var nokkuö þéttskipaður bekkurinn í sal Ríkiskaupa en ekki voru allir
ánægöir með hvernig útboösskilmálar voru settir upp
að gera og þar eru menn að horfa
á að oft er verið að fara í sjúkra-
flug við mjög erfiðar aðstæður.
Það var mat okkar í samráði við
umsagnaraðila að þetta yrði að
vera í útboðinu," sagði Pétur Pét-
ursson.
-HK
Kársnesbrautin
íbúar á varöbergi og mörgum órótt.
Gluggagægir
í Kópavogi
- kíkti á konu í
sturtu á Kársnes-
braut
Gluggagægir leikur lausum hala í
Kópavogi og hræddi nær því líftór-
una úr ungri konu sem fór í sturtu
heima hjá sér á Kársnesbrautinni
um hálfellefuleytið í fyrrakvöld:
„Konan mín fékk nær því tauga-
áfall," sagði eiginmaður konunnar
sem hefur tilkynnt lögreglunni í
Kópavogi um atburðinn. „Hún var
að koma úr sturtu og var að þurrka
sér þegar hún sá karlmannshönd
sem hélt baðherbergisgardínunum
frá. Andlitið sá hún hins vegar
aldrei."
Ungu hjónin á Kársnesbrautinni
búa á jarðhæð og þeim er ekki rótt
eftir atburðinn, sérstaklega ekki
konunni sem enn skelfur við til-
hugsunina um gluggagæginn:
„Mér finnst ástæða til að vara
Kópavogsbúa við þessum manni
sem í skjóli myrkurs liggur á bað-
herbergisgluggum fólks sem telur
sig óhult innan fjögurra veggja
heimilisins," sagði eiginmaðurinn
sem ætlar að herða gormana á bað-
herbergisgardínunum og hafa sér-
staka gát á mannaferðum við hús
sitt næstu dagana. -EIR
Læknaskortur í
Eyjum
Skortur er á læknum á heilsu-
gæslustöðinni i Vestmannaeyjum
um þessar mundir og jafnvel dæmi
um að fólk bíði í meira en viku eft-
ir tíma hjá lækni. Að sögn Gunnars
K. Gunnarssonar, framkvæmda-
stjóra heilsugæslustöðvarinnar,
eiga að vera fjórir læknar starfandi
þar hverju sinni, en erfltt hefur
reynst að manna stöðurnar. Lækn-
amir hafa verið þrír síðan í vor og
aðeins tveir nú þar sem einn er í
leyfi. -MT
Veðrið i kvold
Léttskýjað suðvestanlands
Norðan og norðaustan 8 til 13 m/s. Súld eöa
rigning um landið noröan- og austanvert en
léttskýjað suðvestanlands.
H
: Veðrið a niorgun
Sólarlag í kvöld 19.07 18.54
Sólarupprás á morgun 07.31 07.16
Síðdegisflóö 18.47 23.20
Árdegisflóð á morgun 07.10 11.43
Skýrlngar á veðurtákiuun
^VINDATT 10°— HITl -io° XVINDSTYRKUR Vcdact i rootrum á sekúndu 'VÞKUSI HÐOSKÍRT
c> O
IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
w ©
RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA
ÉUAGANGUR RRUMU- VEOUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Ágætisfærð
Greiðfært er um alla helstu þjóövegi
landsins. Hálendisvegir eru flestir færir
stærri bílum ogjeppum.
Minnkandi norðanátt
Minnkandi norðanátt á morgun. Dálitil rtgning noröaustanlands og skúrir
við suöausturströndina en skýjað meö köflum suðvestan- og vestanlands.
Hiti 5 til 13 stig aö deginum, mildast sunnanlands.
ummmu SiiitmuUi£ui
Vindur: V Ov 5-10 \J Hiti 5° tii 10” Vindur: J 'x-v 5-10,„/»J X f Hiti 3° til 8°
Suðvestanátt og skúrir
Suölægátt, 5 tll 10 m/s. vestant il á landlnu en
Rignlng eða skúrir en að snýst í nor&læga átt meö
mestu þurrt austanlands. rigningu austanlands. Hlti
Hlti 5 tll 10 stlg. 3 tll 8 stlg.
ftl.imul.ii-'iii
Víndur. 40
5-8 m/r*
Hiti 3° tii 8°
Norðaustlæg e&a
breytlleg átt og víba
rlgnlng.
AKUREYRI rigning 8
BERGSTAÐIR skýjaö 8
B0LUNGARVÍK skýjaö 8
EGILSSTAÐIR 8
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 10
KEFLAVÍK léttskýjaö 9
RAUFARHÖFN rigning 8
REYKJAVÍK léttskýjaö 5
STÓRHÖFÐI skýjaö 9
BERGEN rigning 15
HELSINKI léttskýjaö 8
KAUPMANNAHÖFN þoka 13
ÓSLÓ þokumóöa 12
ST0KKHÓLMUR rigning 12
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 10
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 13
ALGARVE skýjaö 17
AMSTERDAM rigning 14
BARCEL0NA léttskýjaö 16
BERLÍN þokumóöa 14
CHICAGO léttskýjaö 11
DUBLIN skúrir 9
HAUFAX heiösklrt 8
FRANKFURT rigning 15
HAMB0RG þokumóöa 14
JAN MAYEN rigning 7
LONDON skýjaö 14
LÚXEMB0RG rigning 14
MALLORCA léttskýjaö 18
M0NTREAL alskýjaö 4
NARSSARSSUAQ léttskýiaö 1
NEWY0RK heiöskírt 16
0RLAND0 heiöskírt 24
PARÍS rigning 15
VÍN skýjaö 11
WASHINGTON heiöskírt 8
WINNIPEG heiöskírt 4
mmmsmmæmmmomm