Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Side 6
6
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
Viðskipti
DV
Umsjön: Viöskiptabiaðid
Olgerðin til solu
- verðmætið nálægt þremur milljörðum króna
Aðaleigendur Ölgerðarinnar Eg-
ils Skallagrímssonar ehf. hafa
ákveðið að selja öll hlutabréf sín í
fyrirtækinu, eða tæp 98% af skráðu
hlutafé. Fyrirkomulag sölunnar
verður með þeim hætti að einungis
er leitað til fjögurra fjármálafyrir-
tækja eftir tilboði en þau eru:
Landsbanki íslands hf., Búnaðar-
banki íslands hf., Íslandsbanki-FBA
hf. og Kaupþing. Að sögn Jóns
Snorra Snorrasonar, framkvæmda-
stjóra Ölgerðarinnar, eru viðræður
við fjármálafyrirtækin þegar hafnar
við hvert þeirra um sig. Þeim er gef-
inn kostur á að senda inn kauptil-
boð í allan hlutinn sem í boði er.
Stofnuð 1913
Ölgerðin var stofnuð árið 1913 af
Tómasi Tómassyni og er eitt
stærsta fjölskyldufyrirtæki lands-
ins, með um 140 starfsmenn. Núver-
andi eigendur eru afkomendur
Tómasar, bræðumir Jóhannes og
Tómas Agnar og fjölskyldur þeirra,
og er Jóhannes stjórnarformaður.
Afkoma fyrirtækisins hefur á und-
anfomum árum verið með ágætum.
Nam ársveltan árið 1999 rúmum 2,4
milljörðum króna og jókst um 10%
frá árinu á undan. Hagnaður fyrir-
tækisins var 150 milljónir
króna og jókst um tæpar
30 milljónir. Bókfært eig-
ið fé fyrirtækisins nam í
árslok síðasta árs 887
milljónum króna og eigin-
fjárhlutfallið var 39%.
í Viðskiptablaðinu sem
kom út í gær segir að
miðað við þær rekstrar-
upplýsingar sem blaðið
hefur undir höndum,
þann jafna vöxt sem fyrir-
tækið býr við og ekki síst
þá staðreynd að fyrirtæk-
ið er til sölu í heilu lagi
megi ætla að verðmæti
þess sé í námunda við
þrjá milljarða króna.
Jón Snorri Snorrason framkvæmdastjóri
Olgeröar Egils Skallagrímssonar.
Fjárhagslega sterkt fyrirtæki
Að sögn Jóns Snorra hefur fjár-
hagur fyrirtækisins verið traustur
um árabil og hann býst við að ölf
umrædd fjármálafyrirtæki hafi
áhuga á að eignast hlut í fyrirtæk-
inu. Fastlega má búast við því að í
kjölfar sölunnar verði hlutabréf
Ölgerðarinnar skráð á hlutabréfa-
markað. Jón Snorri leggur þó
áherslu á að engin skilyrði um
skráningu félagsins fylgi sölu
hlutabréfanna. „Þegar fyrirtækið
hefur verið selt verður félagið í
eigu kaupendanna sem ráðstafa
því með þeim hætti sem þeir
kjósa.“
Utanríkisráðherra fundar með
stjórnendum Alþjóðabankans
Halldór Ásgrimsson utanríkisráð-
herra situr nú ársfúnd Alþjóðabank-
ans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
Prag. Samhliða ársfúndinum hefur
utanríkisráðherra átt fundi með
sendinefndum annarra þátttökulanda
og stjómendum Alþjóðabankans.
tilboð
Gólfíiís Genova
kr. 1.695 nT
stærð 33,3x33,3
HÚSASMIOJAN
Sími 525-3000 • www.husa.ls
Fram kemur i frétt frá ut-
anríkisráðuneytinu að Hall-
dór átti fund með Jose
Ramos-Horta um þátttöku
íslands í uppbyggingar-
starfinu á Austur-Tímor.
Fundinn sat einnig Marie
Alcatiri, sem fer með yfir-
stjóm efnahagsuppbygging-
ar í landinu fyrir hönd
Sameinuðu þjóðanna. í fjár-
hagsáætlun Þróunarsam-
vinnustofnunar íslands (ÞSSÍ) fyrir
árið 2001 verður gert ráð fyrir fjár-
framlagi til að heíja samstarf við
Austur-Tímor.
Utanríkisráðherra og Gerald M.
Ssendaula, fjármálaráðherra Úg-
anda, skrifuðu undir samstarfs-
samning um þróunarsamvinnu
landanna. Með þessum samningi
bætist nýtt land í hóp samstarfs-
landa ÞSSÍ. Á næstu mánuðum
verða lögð drög að verkefnum á
sviði fiskveiða, menntunar og
heilsugæslu. Auk þess ræddu ráð-
herramir um möguleika á sviði nýt-
ingar jarðvarma og vatnsorku. Gert
er ráð fyrir að verkefnisstjóri ÞSSÍ
muni hefja störf í Kampala, höfuð-
borg Úganda, síðar á þessu ári.
160 milljóna framlag
Islands
Þá skrifuðu utanríkisráð-
herra og Motoo Kusakabe,
varaforseti Alþjóðabank-
ans, undir samning um
tveggja milljóna Banda-
rikjadala framlag íslands til
alþjóðlegs átaks sem miðar
Halldór aö niðurfellingu skulda fá-
Ásgrímsson. tækustu rikja heims. Þegar
hefur verið gengið frá lækk-
un skulda tíu þróunarríkja og búist
er við að tíu ríki til viðbótar fái
skuldalækkun fyrir lok þessa árs.
Utanríkisráðherra fundaði einnig
með Ian Johnson, varaforseta Al-
þjóðabankans, sem fer með verkefni
á sviði fiskveiða. íslendingar hafa
tekið þátt í samstarfsverkefni Al-
þjóðabankans, Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sþ. (FAO) og
nokkurra fleiri ríkja um ábyrga
fískveiðistjóm þróunarlanda.
Ráðherrar Norðurlanda og
Eystrasaltsríkja áttu fund með
James D. Wolfensohn, forseta Al-
þjóðabankans, þar sem ræddar vom
lánveitingar bankans til Eystra-
saltsríkjanna og framtíðarhorfur og
áherslur í verkefnavali bankans.
Draumurinn um hátækni-
væddan tilraunamarkað
- úttekt Financial Times á íslenska
upplýsingatækniðnaðinum
Sendlar óskast
Sendlar óskast
á blaðadreifingu DV
eftir hádegi.
Æskilegur aldur 13-15 ára.
Upplýsingar í síma 550 5746.
Ör vöxtur íslensks upplýsingatækni-
iðnaðar og góður árangur fyrirtækja
innan hans gegnir mikilvægu hlut-
verki í að auka fjölbreytni í atvinnulíf-
inu og minnka vægi sjávarútvegs.
Þannig sér breska stórblaðið The Fin-
ancial Times (FT) upplýsingatækniiðn-
aðinn hér á landi fýrir sér í grein sem
birtist í blaðinu í síðustu viku.
Bent er á að hér á landi sé farsíma-
eign mest í heiminum og jafhframt sé
engin þjóð jafii netvædd og íslending-
ar. Með þá staðreynd að leiðarljósi sjá
landsmenn íslenska markaðinn sem
tilvalinn tilraunamarkað fyrir margs
konar nýjar vörur og þjónustu.
Sú grein sem vex hraðast
Bent er einnig á að tæknivæðing og
mikill áhugi íbúa sé sameiginlegt ein-
kenni flestra Norðurlandanna og vikið
að Svium og Finnum í þvi sambandi. í
FT kemur fram að sem stendur eigi
um 5% þjóðartekna íslendinga rætur
sínar aö rekja til upplýsingatækniðn-
aðarins og aðallega tU þjónustu- og
hugbúnaðarfyrirtækja. FT segir grein-
ina á hinn bóginn vera þá sem vex
hraðast hér á landi og vísar í því sam-
bandi til sérfræðinga Kaupþings hf. og
eftir þeim er haft að 10% útflutnings-
tekna íslendinga muni tengjast upplýs-
ingatækni innan fárra ára.
FT rekur að mörg öflugustu upplýs-
ingatæknifyrirtækja landsins komi
fyrst og fremst úr þjónustugeiranum
og þar er bent á Tæknival, Opin kerfi
hf., Nýherja hf„ Skýrr hf. og EJS hf.
Sum þessara fýrirtækja segir FT rétti-
lega beina sjónum sínum fýrst og
fremst að íslenska markaðnum.
FT segir það samt ekki leiða af sér
að fýrirtækin þrói ekki athyglisverðar
lausnir sem erindi geta átt út fýrir
landsteinana þegar fram líða stundir.
Aftur er vikið að Tæknivali, sem FT
segir að sé að vinna að verkefni sem
felist í því að færa Intemetsamskipti
út á ólgusjó til sjómanna á Norður-Atl-
antshafi.
Útflutningur í formi
hugbúnaðar
FT segir á hinn bóginn upplýsinga-
tækni sem útflutningsiðnað snúa fýrst
og fremst að hugbúnaðarfýrirtækjum.
Fram kemur að útflutningur á hug-
búnaði hafi vaxið úr nánast engu árið
1990 í 25 milljónir dollara (tvo millj-
arða króna) árið 1998. Þessi fjárhæð
muni aukast, enda sé heimamarkaður
fýrirtækjanna of lítill, og því horfa
hugbúnaðarfyrirtæki til útílutnings.
Haft er eftir Kaupþingi að smæð mark
aðarins hafi krafist þess af hugbúnað
arfýrirtækjunum að þau heijuðu á er
lenda markaði mun fýrr en samkeppn
isaðilar þeirra á meginlandinu.
{ HEILDARVIÐSKIPTI 222 mkr.
i - Hlutabréf 81 mkr. ;
- Ríkisbréf 142 mkr.
j MEST VIÐSKIPTI
© Össur 27 mkr.
I © Baugur 22 mkr.
| © Íslandsbanki-FBA 12 mkr.
1 MESTA HÆKKUN
; © Össur 1,5%
; © Pharmaco 1,4% 1
: © Húsasmiðjan 1,2% ;
MESTA LÆKKUN
1 ©Tryggingamiðstöðin 2,1% .
© Delta 1,9%
;©ÚA 1,7%
ÚRVALSVÍSITALAN 1514,9 stig
- Breyting O -0,279%
8% hagvöxtur í
Suður-Kóreu
Landsframleiðsla í Suður-Kóreu
ætti að aukast um 8% á þessu ári en
neysluverðsvisitalan ætti að hækka
um 2,5%, samkvæmt fjármálaráð-
herra Suður-Kóreu, Jin Nyum. Þess-
ari miklu hækkun er spáð vegna
þess að það hafa orðið miklar efna-
hagslegar umbætur á síðustu tveim-
ur árum. Neysluverðsvisitalan jókst
aðeins um 0,8% í fyrra, sem var
einnig talið eiga þátt í þessum
mikla vexti. í fyrra var hagvöxtur í
landinu 10,7%.
TU VIOSKIPTI
j © Islandsbanki-FBA 874.727
Össur 485.836
Q Eimskip 301.042 :
: Baugur 285.337
ísl. hugb.sjóðurinn 275.547
Jsröastliöna 30 daga
; © íslenskir aöalverktakar 25 %
; © Vaxtarsjóðurinn 16% ;
; © Jarðboranir 15 % :
© ísl. járnblendifélagiö 13 %
j © SR-Mjöl 8%
1 MESTA LÆKKUN ▼ W',7T’I—T
©SÍF -18 %
j © Fiskiðjus. Húsavíkur -17 %
©ísl. hugb.sjóöurinn -17 % j
© Haraldur Böðvarsson -16 %
QKEA iw -12 %
Fjármálastjóri T-online
segir af sér
Christian Hoening, fiármálastjóri T-online, sem er stærsta netfýrirtæki í Evrópu á sviði þjónustu, hefur sagt af sér. Deutsche Telekom, móðurfyr-
irtæki T-online, tilkynnti ákvörðun-
ina og tekur Rainer Beaujean við sem
fiármálastjóri. Hoening er þriðji
stjómarmaðurinn í mánuðinum sem
yflrgefur fýrirtækið.
HELSTU HLUTA8REFAV!SfT01.U»
DOW JONES
Enikkei
S&P
NASDAQ
FTSE
DAX
10628,36
15626,96
1426,57
3656.30
6257.30
6768,27
6308,93
o
o
o
o
o
o
o
0,03% |
0,08% I
0,04%
0,89%
0,19%
0,67%
0,17%
KAUP SALA j
!K§f Dollar 82,460 82,880
jgSPuHd 120,890 121,510
1*1 Kan. dollar 55,050 55,400
figlDönskkr. 9,7710 9,8250
|-j”lNorsk kr 9,0690 9,1190
í tSSænsk kr. 8,5580 8,6050
!(4HR- mark 12,2621 12,3358
IjFra. franki 11,1146 11,1814
IjsjBolg. franki 1,8073 1,8182
j Q Sviss. franki 47,7800 48,0400
E3hoH. gyliini 33,0838 33,2826
^Þýskt mark 37,2768 37,5008
Í I*L lira 0,037650 0,037880 j
pT^Aust. sch. 5,2984 5,3302 j
7~l Port. escudo 0,3637 0,3658
II 4 ISná. peseti 0,4382 0,4408
jprjjap.yen 0,765900 0,770500 ;
j iírskt pund 92,572 93,129
SDR 107,160000 107,800000 j
JgECU 72,9070 73,3451