Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
7
DV
Fréttir
Sandkorn
_ Umsjón:
Reynir Traustason.
netfang: sandkorn@ff.is
Notiði mig
Garðar Cortes,
frumkvöðull og eld-
: hugi, varð sextugur
á sunnudaginn og
var haldið upp á
það með þriggja
tíma tónlistarveislu
j í íslensku óper-
unni og síðan hefð-
bundinni kokkteil-
veislu á eftir.
Þama var margt valinkunnt tón-
listarfólk sem söng fyrir Garðar og
hann söng fyrir það og allir sungu
saman eins og ein stór fjölskylda,
sem er reyndar frekar fátítt í tón-
listarheiminum.
Garðar er um margt óvenjulegur
maður og lokaorð hans í afmælinu
þóttu mörgum sérstök, en þá gekk
hann fram á sviðsbrúnina, breiddi
út faðminn og horfði beint í augu
Ólafs Ragnars Grímssonar sem
sat á fremsta bekk uppi og sagði:
„Ég er bara sextugur. Ég á mikið
eftir ógert enn. Herra forseti og ís-
lenska þjóð, notiði mig.“ Þetta
töldu margir vera eina frumlegustu
styrkumsókn seinni tíma...
Fagurt á fjöllum
Þegar Friðrik
Sophusson er
ekki að hlaupa
uppi þjófa með
lögreglunni í
Reykjavík er
hann að sýna öllu
starfsfólki Lands-
virkjunar með
skipulegum hætti
allar dásemdir Austurlands sem
Landsvirkjun mun síðan sökkva
undir vatn. Allir starfsmenn LV
hér í Reykjavík hafa farið síðustu
tvær helgar í vel sóttar ferðir um
Kárahnjúka, Snæfell og fleiri perl-
ur. Veðrið um síðustu helgi var
sérlega gott og munu hafa runnið
tvær grímur á suma lykilstarfs-
menn þegar þeir áttuðu sig á feg-
urð og óravíddum þess svæðis sem
kemur i þeirra hlut að sökkva.
Gárungar í hópi starfsmanna sögðu
að þetta væri eins og bjóða böðlin-
um út að borða með fórnarlambinu
svo þeir geti kynnst áður en aftak-
an fer fram...
Hildur Helga í Spegil
Sjónvarpskonan
i góðkunna, Hildur
Helga Sigurðardótt-
ir frá Vigur í Isa-
fjarðardjúpi, sem um
þriggja ára skeið
tryggði Ríkissjón-
varpinu metáhorf
með þætti sínum,
Þetta helst, verður
ekki á skjánum í vetur þar sem
þátturinn var af ókunnum ástæð-
um sleginn af. íslenska þjóðin fer
þó ekki alveg á mis við skemmti-
legan frásagnarstíl hennar þar sem
hún hefur nú verið ráðin til að
halda vikulega pistla í Speglinum á
Rás 2. Hildur Helga fór vel af stað í
gær þar sem hún fjallaði um sígilt
efni; samskipti karla og kvenna....
Grétar@Mar
Varla er nokkur
maður með mönn-
um nema hafa yfir
að ráða veglegri
heimasíðu með
alls kyns tengi-
möguleikum.
Einn þeirra sem
nú hugar að
tölvumálum sín-
um er Grétar Mar Jónsson, for-
seti Farmanna- og fiskimannasam-
bands íslands. Grétar Mar er sagð-
ur vera kominn á fremsta hlunn
með að kaupa heimasíður af Sig-
urjóni M. Egilssyni og félögum
hjá vefmiðlaranum mar.is. Það sem
einkum heillar Grétar Mar er
veffangið sem hann fengi en það
yrði væntanlega Grétar@Mar.is...
Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra til bjargar í sláturtíðinni:
Undanþága fyrir kjöt-
mjölsverksmiðju
- var lokað í vor vegna óverjandi lyktarmengunar
Borgarnes
Daunilla kjötmjölsverksmiðjan í Borgarnesi hefur fengið undanþágu
í sláturtíðinni.
Siv Friðleifsdóttir um-
hverfisráðherra hefur
veitt Sláturfélagi Vestur-
lands undanþágu til rekst-
urs kjötmjölsverksmiðju
AB-mjöls ehf. sem Heil-
brigðiseftirlit Vesturlands
lét loka í vor vegna óþol-
andi dauns frá starfsem-
inni.
Að sögn Helga Helga-
sonar, heilbrigðisfulltrúa
Borgarbyggðar, hófst starfræksla
kjötmjölsverksmiðjunnar að nýju
nú á mánudaginn en undanþágan
frá umhverfisráðherra gildir að-
eins í sláturtíðinni, eða til október-
loka.
Helgi segir undanþáguna veitta
með ákveðnum skilyrðum sem
m.a. lúti að því að aðeins sé unnið
óskemmt hráefni í verksmiðjunni
en að lyktarmengun hafi verið að-
alástæða þess að yfirvöld bundu
enda á starfsemina á sínum tíma.
Verksmiðjan er ekki með nauðsyn-
legan búnað til lyktareyðingar.
Sendu ráðuneyti
bókanir
Sláturfélagið hafði sótt
leyfi til rekstursins til heil-
brigðisyfirvalda í Borgar-
byggð en þeim er óheimilt
að veita bráðabirgðaleyfi
fyrir slíkum rekstri og vís-
uðu því umsókninni til um-
hverfisráðuneytisins.
„Ráðuneytið leitaði síðan
umsagnar okkar og við
sendum því meðal annars þær bók-
anir sem gerðar hafa verið hér um
kjötmjölsverksmiðjuna á undan-
fornum árum. Það var því mælt
gegn starfsleyfi fyrir þessu sem
slíku en bent á að kvartanir vegna
verkmiðjunnar hefðu aðallega verið
bundnar við að mikla ólykt legði frá
henni. Auk þess sem þar var unnið
hráefni frá sláturhúsunum á staðn-
um var unnið talsvert af utanað-
komandi efni, meðal annars frá
Sorpu, og það var oft mjög illa lykt-
andi,“ segir Helgi.
Helgi segir heilbrigðiseftirlitið þó
f raun ekki hafa sett sig á móti
tímabundnu undanþágunni. „Við
töldum þetta í lagi, að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum, meðal annars
þeim að eingöngu yrði unnið nýtt
hráefni og aðeins frá Sláturfélaginu.
Ef kemur stopp í verksmiðjuna má
ekki geyma hráefnið til næsta dags
heldur verður að urða það strax á
viðurkenndan hátt,“ segir Helgi
Helgason. -GAR
Hraðamæling
Lögreglumenn verða að vera tveir ef
sanna á hraðakstur.
Hraðaksturssýknun:
Lögreglan
skoðar sinn
gang
- orð gegn orðum
Hæstiréttur sýknaði á fimmtudag-
inn þrítugan mann af ákæru um of
hraðan akstur vegna ónógra sannana,
en einungis einn lögreglumaður sá um
að mæla hraða mannsins og stöðvaði
hann. Ekki hafði maðurinn heldur
staðfest með undirskrift sinni að hon-
um hefði verið sýnd ratsjáin eftir
hraðamælinguna.
Samkvæmt skýrslu lögreglumanns-
ins var hann stöðvaður í október á síð-
asta ári á 124 km/klst. hraða á Hellis-
heiðinni, þar sem leyfilegur hámarks-
hraði er 90 km/klst. Maðurinn sagðist
hins vegar hafa verið á 95 tO 100
km/klst. hraða og að lögregluþjónninn
hefði ekki sýnt honum hraðann í rat-
sjánni.
í Héraðsdómi Suðurlands fyrr á ár-
inu var maðurinn fundinn sekur, en
Hæstiréttur taldi sannanir ekki nægar
fyrir sakfellingu og sýknaði manninn.
Hæstiréttur ákvað einnig að allur sak-
arkostnaður, þar með talin málsvam-
arlaun skipaðs verjanda ákærða, greið-
ist úr ríkissjóði.
Þótt lögreglumaðurinn i umræddu
máh hafi verið úr lögreglunni á Sel-
fossi getur þetta mál sett alla þá lög-
regluþjóna landsins sem stunda um-
ferðarvörslu einir í bíl eða á mótor-
hjóli í ankannlega stöðu.
Ríkislögreglustjóri er yflrmaður lög-
regluembættanna og sagði Hjálmar
Björgvinson, aðalvarðstjóri umferðar-
deildar ríkislögreglustjóraembættis-
ins, að þetta mál verði skoðað innan
veggja embættisins. Hann gat ekkert
frekar tjáð sig um málið þar sem hann
hafði ekki kannað það enn. -SMK
NSF-10 hljómflutningstæki
• 2x50W RMS-útvarpsmagnari með 24 stöðva minni
• Einn diskur • Aðskilinn bassi og diskant
• Stafræn tenging • Tvískiptur hátalari (2 way)
• Djúpbassi
Ný og skemmtilega hönnuð
stæða frá Pioneer sem hverfur
léttilega í landslagið heima hjá
þér, festist hæglega á vegg og er
kraftmikil prýði hvar sem er.