Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Qupperneq 8
8
Utlönd
r>v
Hundruð þúsunda
í miðborg Belgrad
Þrátt fyrlr tilraunir Slobodans
Milosevics Júgóslavíuforseta til að
koma í veg fyrir fjöldagöngu stjóm-
arandstæðinga í gær streymdu
hundruð þúsunda manna til mið-
borgar Belgrad í Serbíu til að fagna
kosningasigri. Þeir fáu lögreglu-
menn sem sáust á ferli gengu um og
röbbuðu við vegfarendur. Nokkrir
lögreglumannanna tóku við merkj-
um stjórnarandstöðusamtakanna
Otpor. Aldraðar konur keyptu flaut-
ur til þess að geta tekið þátt í
flautukómum gegn Milosevic.
Margir höfðu óttast að stjómvöld
myndu hindra fjöldafund stjómar-
andstöðunnar með ofbeldi. Það eina
sem geröist var að lögreglan neyddi
síðdegis skipuleggjendur fjöldafund-
Stjðrnarandstæöingar fagna
Hundruö þúsunda stjórnarandstæö-
inga fögnuöu í gær í Belgrad kosn-
ingasigri sínum.
arins til að breyta um fundarstað.
Ummæli yfirmanns júgóslav-
neska hersins juku á gleði stjómar-
andstæðinga í gær. íviðtali við
franska sjónvarpsstöö sagði Nebojsa
Pavkovic: „Herinn virðir val
Júgóslava á forseta."
Stjórnarandstaðan lagði á það
áherslu á fjöldafundinum í gær-
kvöld að frambjóðandi hennar, Voj-
islav Kostunica, hefði fengið 55 pró-
sent atkvæða í kosningunum á
sunnudaginn en Milosevic forseti
aðeins 35 prósent. Þar með hefði
Kostunica náð kjöri í fyrstu umferð.
Yfirkjörstjóm fullyrðir að Kostun-
ica hafi fengið 48 prósent og þess
vegna þurfi aðra umferð.
Kjörstjórnin hefur boðað aðra
umferð forsetakosninganna 8. októ-
ber næstkomandi. Kosningabanda-
lag stjórnarandstæðinga hefur hvatt
til allsherjarverkfalls til að mót-
mæla opinberum úrslitum kosning-
anna.
„Við hvetjum þjóöina til að verja
réttindi sín, sýna andstöðu, hafna
kerfinu, fara út á götur og torg og
loka öllu þar til Milosevic hefur sagt
af sér,“ sagði stjómarandstöðuleið-
toginn Zoran Djindjic í gær.
Á fjöldafundinum í Belgrad í gær-
kvöld lýstu margir því yfir að þeir
myndu ekki yfirgefa svæðið fyrr en
Milosevic hefði viðurkennt ósigur
sinn. Fjöldafundir voru einnig
haldnir í mörgum öðrum borgum
Serbíu í gærkvöld.
Fundi Alþjóðabankans slitið:
Mótmæíendur eigna sér
heiðurinn af fundarlokum
Árlegum fundi Alþjóðabankans
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF)
lauk í gær í Prag. Fundinum lauk
degi fyrr en ráð var gert og segir
talsmaöur IMF ástæðuna vera að
fundarhöld voru styttri án áætlað
var. Mótmælendur vildu hins vegar
eigna sér heiðurinn.
Starfsmenn stofnananna hafa
reynt að leggja áherslu á baráttuna
við fátækt. Með því vilja þeir draga
úr staöhæfingum um að
stofnanirnar séu leppar þeirra ríkja
sem flest atkvæði hafa. Á fundinum
geta aðildarþjóðirnar látið í ljós
skoðanir sínar en ekki er mikið um
ákvarðanir. Stofnanimar hafa verið
skotmörk þeirra sem vOja að
skuldir þróunarlanda séu feUdar
niður.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættlsins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, sem hér segir á eftir-
_________farandl eignum:__________
Asparfell 4, 0501, 54,9 fm 2ja herb. íbúð
á 5. hæð m.m., merkt A, ásamt geymslu í
kjallara, merkt A-5 (0035), Reykjavík,
þingl. eig. Jón Bjömsson, gerðarbeiðend-
ur Ibúðalánasjóður og Sparisjóður Rvíkur
og nágr., úíib, mánudaginn 2. október
2000 kl. 10.00.
Asparfell 8,0303, 72,83 fm 3ja herbergja
íbúð á 3. hæð m.m., merkt C, ásamt
geymslu íkjallara, merkt C-3, Reykjavík,
þingl. eig. Ester Gísladóttir og Jón Viðar
Bjömsson, gerðarbeiðendur íbúðalána-
sjóður, íslandsbanki hf., höfuðst. 500, og
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis, útibú,
mánudaginn 2. október 2000 kl. 10.00.
Gaukshólar 2,010707, 138,5 fm íbúð á 7.
hæð m.m., íbúð 7G, ásamt geymslu í
kjallara, merkt 0059, og bílageymsla
030106 (áður tilgreint 070701 og
030101), Reykjavík, þingl. eig. Sveinn
Óli Jónsson, gerðarbeiðandi Ibúðalána-
sjóður, mánudaginn 2. október 2000 kl.
10.00.____________________________
Grenibyggð 11, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Andrea Eyvindsdóttir, gerðarbeiðandi
íbúðalánasjóður, mánudaginn 2. október
2000 kl. 10.00.
Rauðarárstígur 22, 0202, 3ja herbergja
íbúð á 2. hæð í norðurenda, Reykjavflc,
þingl. eig. Hafþór Guðmundsson, gerðar-
beiðandi Búnaðarbanki íslands hf.,
mánudaginn 2. október 2000 kl. 13.30.
Rofabær 31, 0302, 50% ehl. í 2ja herb.
íbúð á 3. hæð f.m., Reykjavík, þingl. eig.
Una Þorbjömsdóttir, gerðarbeiðandi
Samvinnusjóður íslands hf., mánudaginn
2. október 2000 kl. 10.00.________
Skeljagrandi 6, 0201, Reykjavík, þingl.
eig. Kristinn L. Matthíasson og Droplaug
G. Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur íbúða-
lánasjóður og Olíuverslun íslands hf.,
mánudaginn 2. október 2000 kl. 10.00.
Skúlagata 46, 72,2 fm íbúð á 2. hæð
m.m., merkt 0204, bílastæði nr. 15 og
geymsla í kjallara, merkt 0004, Reykja-
vík, þingl. eig. Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir,
gerðarbeiðandi Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf„ mánudaginn 2. október 2000 ld.
10.00.
Völvufell 26, Reykjavík, þingl. eig.
Kristín S. Högnadóttir, gerðarbeiðandi
Vátryggingafélag íslands hf„ mánudag-
inn 2. október 2000 kl. 10.00.
Völvufell 46, 0302, 50% ehl. í 4ra herb.
íbúð, 92,2 fm, á 3. hæð t.h„ m.m„
Reykjavík, þingl. eig. Brynjólfur Viðar
Júlíusson, gerðarbeiðandi Islandsbanki
hf„ höfuðst. 500, mánudaginn 2. október
2000 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Álakvísl 7c, 0101, 3ja herb. íbúð hluti af
nr. l-7d og stæði í bílskýli, Reykjavík,
þingl. eig. Herdís Karlsdóttir, gerðarbeið-
endur Álakvísl 1-7, húsfélag, Bílskýli
Álakvísl 2-22, íbúðalánasjóður og Toll-
stjóraskrifstofa, mánudaginn 2. október
2000 kl. 14.00.
Álakvísl 13, 0101, 3ja herb. íbúð hluti af
nr. 9-19 og stæði í bílskýli, Reykjavík,
þingl. eig. Þóra Bjamadóttir, gerðarbeið-
andi Tollstjóraembættið, mánudaginn 2.
október 2000 kl. 14.30.
Hólaberg 4, Reykjavík, þingl. eig. Ragn-
ar Sverrir Ragnars óg Margrét Ragnars
Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur íbúða-
lánasjóður og Tollstjóraembættið, mánu-
daginn 2. október 2000 kl. 15.00.
Spilda úr landi Esjubergs (Stekkur),
austasti hluti, 12,5%, 1/3 hluti lands Esju-
bergs mínus 1500 fm, Kjalamesi, þingl.
eig. Ólafur Guðmundsson, gerðarbeið-
andi Tollstjóraembættið, mánudaginn 2.
október 2000 kl. 11.00.
Tungusel 8, 0301, 4ra herb. íbúð á 3.
hæð, Reykjavík, þingl. eig. Hildur Kol-
brún Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur
íbúðalánasjóður, Sparisjóður Rvíkur og
nágr., útibú, Sparisjóður vélstjóra og
Tungusel 8, húsfélag, mánudaginn 2.
október 2000 kl. 13.30.
SÝSLUMAÐURINN f REYKJAVÍK
Slappað af eftir fund
Tony Biair, forsætisráöherra Bretiands, og eiginkona hans, Cherie, slöppuöu
af í gærkvöld eftir fundahöld fyrr um daginn á iandsfundi
Verkamannaflokksins í Brighton. Heitar umræöur uröu um ellilífeyri á
fundinum.
Hnífjafnt uppgjör
Dana um evruna
Mikil spenna var í Dan-
mörku i gær fyrir þjóðarat-
kvæðagreiðsluna um aðild-
ina að myntbandalagi Evr-
ópu i dag. Samkvæmt
þremur nýjum könnunum
eru andstæðingar evrunnar
með nauman meirihluta.
Samkvæmt tveimur öðrum
eru fylgjendur evrunnar
með örlítinn meirihluta.
Niðurstöður tveggja kann-
ana til viðbótar sýna jafnt
fylgi. Þegar munurinn er
svo lítill skiptir hvert at-
kvæði máli og baráttan um
kjósendur stendur þar til
kjörstöðum verður lokað í kvöld.
í gær fullyrti leiðtogi stjómarand-
stöðunnar, Anders Fogh Rasmussen,
að stjómin myndi hækka skattana
sigruðu andstæðingar evrunnar.
Danska sjónvarpsstöðin
TV2 sætir harðri gagnrýni
fyrir þá ákvörðun að birta
útgönguspár þegar frá
klukkan 14 í dag af ótta við
að þær hafi áhrif á atkvæða-
greiðsluna. Karen Jepsersen
innanríkisráðherra neitaði í
gær að grípa til aðgerða
gegn TV2 og vísaði til tján-
ingarfrelsis.
Margir höfðu enn í gær
ekki tekið afstöðu. Sam-
kvæmt skoðanakönnun
Jyllands-Posten mun tíundi
hver kjósandi taka afstöðu í
dag. Tuttugasti hver mun
ekki taka ákvöröun fyrr en í kjör-
klefanum. Einnig sýndu kannanir
að margir kynnu að skipta um skoð-
un á síðustu stundu.
Poul Nyrup
Forsætisráöherr-
ann fór út á göt-
ur og torg i gær
til afla evrunni
fylgi.
ummmimmM
Róstur í Jakarta
Hundruð náms-
manna og íbúa
Jakarta réðust i
morgun á stuðn-
ingsmenn Suhartos,
fyrrverandi forseta,
og kveiktu í strætis-
vagni utan við dóm-
húsið þar sem rétt-
arhöld yfir honum fara fram. Lækn-
ar úrskurðuðu í morgun að Suharto
væri of veikur til að mæta til réttar-
haldanna.
Skotið á Palestínumenn
ísraelskir lögreglumenn skutu í
morgun gúmmíkúlum að Palestínu-
mönnum við Musterishæðina í Jer-
úsalem. Lögreglumaður særðist í
átökunum.
Barnaklámhringur
Lögreglan á Ítalíu og í Rússlandi
handtók í gær 11 menn í bamaklám-
hring. Bamaníðingar frá mörgum
löndum höfðu greitt allt að 600 þús-
und íslenskra króna fyrir myndir
af bömum sem var nauðgað, mis-
þyrmt og þau jafnvel myrt.
Hillary með 50 prósent
Hillary Clinton, forsetafrú Banda-
ríkjanna, sem sækist eftir að vera
öldungadeildarþingmaður fyrir
New York, nýtur nú fylgis 50 pró-
senta kjósenda. Keppinautur henn-
ar og frambjóðandi repúblikana,
Rick Lazio, er með 43 prósenta fylgi.
Mafíuforingi skotinn
Mafiuforinginn Francis Vanver-
berghe var skotinn til bana í París í
gær. Árásarmaðurinn komst undan
á mótorhjóli.
Friðhelgi fyrir flóttann
Rannsókn vegna
spillingar njósna-
foringjans Vla-
dimiro Montesions
í Perú var hætt í
síðustu viku áður
en hann sótti um
hæli í Panama.
Stj órnmálafræðing-
ar segja lok rannsóknarinnar geta
hafa komið í veg fyrir valdarán
hersins. Umboðsmaður Perú krafð-
ist í gær framsals Montesinos frá
Panama.
Samvinna við Gaddafi
Gerhard Schröder Þýska-
landskanslari og Gaddafi Líbýuleið-
togi hétu því í gær að auka sam-
vinnu sína á efnahagssviðinu. Leið-
togamir ræddust við í síma í gær.
Öruggar skólastofur
George Bush, for-
setaframbjóðandi
repúblikana í
Bandaríkjunum,
hét því í gær að
gera skólastofur í
Bandaríkjimum ör-
uggar. Bush vill að
kennarar fái að
beita aga án þess að eiga á hættu
lögsókn. Bush var á kosningaferða-
lagi í Los Angeles þar sem oft hefur
verið gripið til skotvopna.
Rússar ekki óvinir
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, hvatti í gær
repúblikana til að gera ekki Rúss-
land að óvinaþjóö þrátt fyrir áhyggj-
ur af stefnu Pútíns Rússlandsfor-
seta.