Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Page 9
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
9
DV
Útlönd
Allt að 65 manns hafa fundist látnir eftir ferjuslysið í Grikklandi
Skipstjórinn var meðal
fyrstu í björgunarbáta
Jacques Chirac
Forsetinn er sakaöur um aö hafa
veriö viöstaddur er flokki hans var
veitt fé ólöglega.
Leit hófst aftur í morgun að þeim
sem enn er saknað eftir að grísk
ferja sökk við innsiglinguna í höfn
eyjarinnar Paros í Eyjahafi á þriðju-
dagskvöldið. Allt að 65 lík hafa
fundist og telja yflrvöld í Grikk-
landi að allt að 80 manns hafi látist
í slysinu.
Óljóst er hve margir farþegar
voru með ferjunni en grísk yfirvöld
telja að á milli 525 og 530 manns hafl
verið um borð. 448 mönnum var
bjargað úr sjónum og höfðu sumir
þeirra komist upp á sker nálægt
slystaðnum. Grísk yflrvöld vinna
nú að því að fmna orsök slysins.
Hvorki almenningur né yfirvöld
i Grikklandi skilja hvernig feijan
gat sokkið þar sem hún var aðeins
eina og hálf mílu frá landi. Skerið
sem ferjan rakst á er vel merkt á
sjókortum og allir skipstjórar sem
sigla á svæðinu áttu að vita um það.
Dómsmálaráðherra Grikklands,
Michalis Stathopoulos, hefur skipað
að fram fari rannsókn á því hvort
um glæpsamlega vanrækslu hafi
verið að ræða. Ef það kemur í ljós
geta þeir sem bera ábyrgð á slysinu
átt yfir höfði sér að verða ákærðir
fyrir manndráp. Farþegar á ferj-
unni hafa haldið því fram að skip-
stjórinn hafl verið að horfa á knatt-
spyrnuleik þegar slysið varð. Hann
hefur verið handtekinn ásamt
fyrsta stýrimanni ferjunnar og
þremur öðrum úr áhöfninni. Skip-
stjórinn hefur einnig verið sakaður
um að hafa verið meðal þeirra
fyrstu sem komust í björgunarbáta.
Sumir farþegar segja að ferjan
hafi sokkið á aðeins nokkrum mín-
útum og margir farþegar þvi ekki
haft tíma til að fara í björgunar-
vesti. Líklegt er talið að ferjan hafi
sokkið á rúmlega hálftíma. Meðal
þeirra sem létust í slysinu voru
nokkur börn sem ekki fengu neina
hjálp við að komast í björgunar-
vesti.
Ferjan var 34 ára gömul og átti að
hætta siglingum á næsta ári. For-
maður sambands grískra siglinga-
fræðinga sagði í grískum fjölmiðl-
um að sambandið hefði bent á að
skipið væri ekki haffært og því sent
kvörtun til yfirvalda.
Hlúð að farþegunum
Breskir hermenn um borö í HMS Invincible hlúa aö einum farþega grísku ferjunnar sem fórst í Eyjahafi en hann var
einn þeirra 448 sem bjargaö var úr sjónum eftir slysiö. Þrjú bresk herskip tóku þátt í björguninni ásamt fiskibátum.
Að minnsta kosti 70 útlendingar
voru um borð í ferjunni og sam-
kvæmt upplýsingum frá farþegum
sem komust lífs af voru þeir meðal
annars frá Ástraliu, Kanada, Bret-
landi, Frakklandi, Þýskalandi og og
Ítalíu.
Slysið er það mannskæðasta á
Grikklandi frá því 1965 en þá fórust
217 manns í ferjuslysi. 100 ferjur
sigla um grísku eyjurnar daglega og
eru þær oft yfirfullar á sumrin.
Bandamenn
heimta játningu
Leiðtogar gaullistaílokks Jacques
Chiracs Frakklandsforseta hvöttu
hann í gær til að viðurkenna opin-
berlega ólöglega fjármögnun flokks-
ins til að binda enda á hneykslið
sem eitrað hefur stjórnmálalífið í
Frakklandi undanfama daga.
Sósíalistar vilja ekki hætta við
rannsókn vegna málsins.
MÆLINGAVÖRUR I
.allt til mælinga!
Málbönd
ÞRÍFÆTUR
STIKUR
MÆLIHIÚL
Armúli 17, WB Reykjavík
Bimi: 533 1234 fax: 5EB 0499
..það sem
fagmaðurinn
nntar!
W W W . I S
Opnum á
memun
Thai Express
Laugavegi 126
105 Reykjavfk
Sími 561 -29-29 Fax 561 -11 -10
e-mail: tomasb@simnet.is
Vegna mikillar eftirspurnar á Banthai
(fær góða dóma; besti taílenski
matsölustaðurinn) um heimsendingu
opnum við annan stað með meira úrvali
af skemmtilegum réttum.
i Exþfess
Opnunartilboð
föstudaginn 29. sept.
Frá kl. 9.00-11.00: Frá kl. 11.00-16.30:
1 réttur á 199,- -4500;- 3 réttir fyrir tvo á 999,-
Laugavegi 126, ofan við Hlemm (gamli Kínamúrinn).
Opið 11.00-22.00 alla daga.
Pantanir, matseðill eða tilboð dagsins á e-mail:
tomasb@simnet.is
Sími 561-29-29
Fax 561-11-10
ISFUGL