Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Qupperneq 10
10
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
Hagsýni
I>V
Garðshorn:
Meðferö
pottaplantna
FaUegar pottaplöntur lífga upp á
heimilið, gera það hlýlegt og bæta and-
rúmsloftið. Til þess að blómunum líði
vel verðum við að búa þeim góð skilyrði
og það er auðveldara en flesta grunar.
Flestir hafa heyrt talað um blómakonur
sem allt virðist vaxa og dafna hjá og,
það sem meira er, þær virðast ekkert
hafa íýrir því.
Við hin, sem ekki erum svo heppin
að hafa græna fmgur, verðum að reiða
okkur á leiðbeiningar eins og þær sem
hér fara á eftir. Ailt sem þarf er viljinn
því flest pottablóm drepast vegna þess
að eigandinn er of latur eða sinnulaus
til að hugsa um þau.
Vökvun
Flestar pottaplöntur drepast vegna
rangrar vökvunar - þær eru vökvaðar
of mikið eða of lítið. Það er ekki til nein
ákveðin regla um það hvenær á að
vökva og þættir eins og stærð potta,
birta og hitastig hafa allir áhrif. I gróf-
um dráttum má segja að blómstrandi
Alltaf nýbakað og ferskt fyrir fólk í
önnum dagsins
/ bakaríum er gjarnan góö lykt og
margt sem freistar svangra og þá
ekki bara kökur og kruöirí.
Smáréttir og
smurt brauð
Neysluhættir fólks hafa tekið örum
breytingum á undanfómum árum. Með
meiri hraða í samfélaginu aukast kröfúr
um þægilegan, góðan og hollan mat og
keppast matvælaframleiðendur um að
verða við þessum kröfum. Bakarar em
engir eftirbáta annama á þessu sviði en
þeir bjóða í auknum mæli upp á alls
konar smurt brauð og eftirrétti, bökur
og fyllt stykki í einstaklingsstærðum.
Landssamband bakarameistara efnir
til kynningarátaks dagana 20. -29. sept-
ember. Með átakinu vill félagið vekja at-
hygh á framlagi bakara til skyndirétta-
markaðarins. í tilefni átaksins munu fé-
lagsmenn skreyta búðb* sínar með vegg-
spjöldum sem vísa til skyndirétta og
birta sameiginlegar auglýsingar í út-
varpi.
plöntur þurfi meira vatn en blaðplöntur
og blaðplöntur meira vatn en kaktusar.
Séu plöntumar látnar standa í vatni er
hætt við að rætumar rotni og ef vökvun
er spömð um of þoma þær upp. Ein
besta leiðin til að meta hvort þurfi að
vökva er að skoða moldina í pottinum.
Litur og áferð moldarinnar segir mikið
um rakastig hennar. Þurr mold er ljós-
ari en blaut og hún á það til að losna frá
pottinum. Vatnsskortur sést greinilega
á plöntum þegar blöðin fara að hanga og
þær verða slappar.
Venjulegt kranavatn hentar prýði-
lega og mjög gott er að setja i það áburð
annað slagið, sérstaklega á vorin og
sumrin. Gætið þess að vatnið sé volgt
svo að rætumar ofkólni ekki. Það má
hvort sem er vökva ofan á moldina eða
í skálina sem potturinn stendur í. Þeir
sem kjósa að vökva ofan á ættu að nota
könnu með mjóum stút og gæta þess að
bleyta moldina þar til vatn fer að renna
út um gatið á botninum. Það verður svo
að tæma undirskálina svo rætumar
standi ekki í vatni. Með þvf að vökva
neðan frá er tryggt að moldin blotni í
gegn. Þægilegasta aðferðin til að vökva
svona er að fylla fötu af vatni og dýfa
plöntunum í. Þegar moldin er blaut í
gegn þarf potturinn að fá að standa í
smátíma svo umframvatn renni burt
áður en potturinn er settur á sinn stað.
Blómapottar eiga alltaf að vera með
gati á botninum til þess að vatn safnist
ekki fyrir í þeim. Plastpottar em betri
en leirpottar vegna þess að ekki þarf að
vökva eins oft og þeir gefa ekki frá sér
sölt eins og leirpottar. Rætumar eiga
það til að vaxa inn f leirinn og getur það
Kaktusar
Kaktusum líöur best í suöurglugga
og þaö er í lagi aö gleyma aö
vökva þá.
valdið rótarskemmdum við umpottun.
Birta, hita- og rakastig
Allar plöntur þurfa birtu til að vaxa
og dafna. Sumar þurfa mikla birtu en
aðrar þrífast best í hálfskugga. Blóm-
strandi plöntur sem ekki fá næga birtu
fá gul blöð, vaxtarsprotamir verða lang-
ir og mjóir og blómin litlaus. Blómstr-
andi plöntur þurfa mikla birtu en ekki
Drekatré
Drekatré eru ræktuö vegna blaöfeg-
urðar og þola ágætlega skugga og
lítinn loftraka.
beina sól og ættu því að standa í glugg-
um sem snúa í austur eða vestur. Glugg-
ar sem snúa í súður henta best fýrir
kaktusa og þykkblöðunga. Þar sem birta
er lítil er aÚtaf hægt að grípa til lýsing-
ar og setja upp sérstakar perur sem gefa
frá sér blárri birtu en við eigum að venj-
ast. Þeir sem nota gróðurperur verða að
gæta þess að perumar séu í um tíu
sentímetra fjarlægð frá blómunum því
annars teygja þau sig of mikið átt að
ljósinu og verða veikluleg.
Plöntur með stór blöð, eins og t.d. rif-
blaðka, em með mikið yfirborð og þola
þvf meiri skugga en plöntur með lítil
blöð. Gott er að snúa pottaplöntum ann-
að slagið þannig að sama hliðin snúi
ekki alltaf af birtunni.
Hentugt hitastig fyrir flestar potta-
plöntur er á bilinu 18-24° C á daginn en
13-16° C á nóttunni og það á að vera
lægra á vetuma en sumrin vegna lítill-
ar birtu.
Æskilegur loftraki fyrfr pottaplöntur
er á bilinu 40-60% en það er nánast
ómögulegt að halda svo háu rakastigi á
venjulegum heimilum. Því er nauðsyn-
legt að úða reglulega yfir blóm eins og
orkideur, burkna og gardeníur sem
þurfa mikinn raka. Skálar með vatni
gera mikið gagn séu þær látnar standa
nálægt blómunum og svo er einnig hægt
að koma sér upp rakatæki ef mikið ligg-
ur við. Svo má einnig rækta rakakær
blóm í eldhúsinu eða á baðherberginu.
Áburðargjöf
Blóm sem keypt em í gróðrarstöðv-
um em ræktuð við kjöraðstæður og
þurfa því ekki áburð fýrstu vikumar. Á
sumrin er hæfilegt að vökva heimilis-
blómin með áburðarlausn á þriggja til
fjögurra vikna fresti en sjaldnar yfir
vetrarmánuðina og það er vita gagns-
laust að gefa plöntum sem ræktaðar em
við slæm skilyrði áburð. Það er hægt að
fá góðan blómaáburð í hvaða blómabúð
sem er. Áburðurinn er misjaöflega
sterkur og því ætti fólk að lesa leiðbein-
ingamar og fara eftir þeim. Of mikill
áburður brennir rætur plantnanna og
dregur úr vexti.
Þeim sem vilja ekki nota tilbúinn
áburð er bent á að ósaltað kartöflusoð er
ágætur áburður og einnig er hægt að
nota vatn sem mulin eggjaskum hefúr
staðið í. Gangi ykkur vel. -Kip
Það er gott...
... aö setja ofurlitiö af ediki í pottinn
ef rétturinn hefúr oröið of sætur.
... aö setja smávegis af skyndikart-
öflustöppu i soð til að þykkja þaö.
... aö hrista egg til aö athuga hvort
þaö er nýtt. Ef heyrist i því „skrölt" eöa
hljóö er líklegt að eggið sé orðið gamalt.
... að setja egg i vatn til aö athuga ald-
urinn á þvi. Gamalt egg flýtur en nýtt
sekkur.
... að láta smávegis af vatni í egg sem
þeyta á til að búa til eggjaköku. Árang-
urinn er létt og góð eggjakaka.
... að setja edik í
soövatniö þegar egg em
soðin. Það gerir að verk-
um að minni líkur eru á
þvi að eggin springi.
... að frysta egg í klakaformi til að
geyma langtímageymslu. Þegar eggin
em alveg frosin er best að pakka þeim
vel í plast og geyma þau þannig.
... að snúa eggi hratt á borði til að
fmna út hvort það er soðið eða hrátt.
Soðið egg snýst vel, hrátt ekki.
... aö geyma seflerí og salat í skál með
köldu vatni og nokkrum sneiðum af
hrárri kartöflu. Þannig helst grænmetið
ferskt og stinnt.
... að setja nokkur korn af sykri í pott-
inn þegar gulrætur, baunir eða maískom
era soðin. Bragðið helst betur þannig.
... aö sleppa saltinu þegar maískorn
em soðin því það gerir að verkum að
kornin veröa seig.
... að geyma tómata með
stilkinn niður á við því
, þannig haldast þeir
, lengur ferskir.
Æk
'•‘W'
... að setja græna, óþroskaða
ávexti í plastpoka með götum. Göt-
in leyfa loftinu að komast að ávöxtunum
en plastið heldur ethyleninu (gasinu)
inni og það veldur því að ávextimir
þroskast hraðai'.
... að mýkja harðan púöursykur með
því að láta sneið af mjúku brauði í ílát-
ið og loka vel. Eftir nokkrar klukku-
stundir verður púðursykurinn mjúkur
aö nýju. Munið bara að taka brauöið úr
svo það mygli ekki.
... að blanda saman 1 bolla af mjúku
smjöri og 1 bofla af hveiti. Hræra vel og
skipta svo í klakaform og frysta. Þannig
er alltaf til mátulega mikið af
hveiti/smjörblöndu til að þykkja sósuna.
... að láta nokkrar teskeiðar af sykri
og kanfl á bökunarplötu og hita við lág-
an hita í ofninum svo heimflið ilmi
notalega. (Svo má lika baka köku ...)
... að fjarlægja stflkana af guhótum og
öðra rótargrænmeti áður en það er sett í
geymslu. Þannig geymist það betur.
... að frysta banana sem era aö verða
eöa era orðnir of þroskaðfr. Takið af
þeim hýðið og setjið þá í plast. Þegar
þeir era frosnir er upplagt að skella
þeim í blandarann ásamt ýmsum ávöxt-
um og búa til heilsudrykk sem líkist
mjólkurhristingi.
Gulrætur eru hollar, um það þarf
enginn að efast, bæöi hráar og
soönar, og gott að venja börn
snemma við að borða þær.
Hrátt eða soðið?
Yfirleitt er talið að ferskt græn-
meti sé hollara en soðið en I sumum
tilfellum er það ekki alveg rétt. Ef
grænmeti er soðið og smávegis af
olíu eða fitu haft með gerir það aö
verkum að hærra hlutfall er fyrir
hendi af andoxunarefnum. Rann-
sókn sem gerð var í ágúst sýndi að
soðnar stappaðar gulrætur hafa
hærra hlutfall af beta karótíni og
öðrum andoxunarefnum en hráar
svo nemur einum þriöja. Það dugar
vikuna en eftir þann tíma fer magn-
ið minnkandi en þó aldrei niður fyr-
ir það sem hráar gulrætur inni-
halda.
Tilboö verslana
Tilboöin gilda til 11. október.
Q Perur 89 kr. kg
Q) Gular melónur 69 kr. kg
Q Matarlaukur 39 kr. kg
Q Fersklr kjúklingaleggir 699 kr. kg
0 Pizza Uitimate, 3 teg. 339 kr.
0 Reykt folaldakjöt 399 kr. kg
0 London lamb 798 kr. kg
0 Findus Oxpytt 489 kr.
0 Svínabógur 1/1 359 kr. kg
0 Léttur Twist/Tango mambo 899 kr.
10-11
Tilboöin gilda tll 5. október.
0 Brauösklnka 598 kr. kg
0 Beikonbúöingur 398 kr.
0 Nól Tromp, 4 pk. 79 kt
0 Broccollblanda (fr. grænm.) 149 kr.
0 Sumarmtx (fr. grænm.) 99 kr.
0 Wheetablx 99 kr.
0 Frutibix 249 kr.
0 IVeefos 219 kr.
0 Egils Orka 89 kr.
©
Samkaun
Tilboöin gilda til 1. október. |
0 Lambahjörtu 279 kr. kg
0 Lambanýru 69 kr. kg
0 Rúgmjöl 68 kr.
0 Lambalifur 129 kr.
0 Haframjöl, 1 kg Q Q Q Q © 55 kr.
Cffl?
ritt-verslanir Olis
0 Risahraun Septembertiiboö. 50 kr.
0 Mentos Mint 45 kr.
0 Mentos Frult 45 kr.
0 Mentos lakkrís 45 kr.
0 Yankie Gigant 65 kr.
0 Fresca 1/21 plast 95 kr.
0 Langlokur Sóma 195 kr.
0 Arinkubbar 3 Ibs 139 kr.
0 Arlnkubbar 5 ibs 199 kr.
0 Mottusett 1990 kr.
Tilboöin gilda til 25. október.
0 Júmbó samloka lax/grænm .159 kr.
0 Eln rós 169 kr.
0 1/21 kók í pl. og Snlckers 159 kr.
0 Rúöuskafa, lítil 99 kr.
0 Lásaspray Luk-op 159 kr.
0 Startkaplar, 16 mm, 3 m 1899 kr.
0 Loöhúfa, „Trapper hat“ 1259 kr.
0 Bagles bites smápitsur 349 kr.
0 Tex Mex Enchiladas 379 kr.
0 Mc Vites ostakaka m/súkk 379 kr.
Gildir á meöan blrgöir endast.
Hafnar klndabjúgu 398 kr. kg
Nóa kropp 129 kr.
1944 hakkbollur í sósu 262 kr.
1944 kjöt í karrý 334 kr.
Nablsco Oreo kremkex 89 kr.
Little Cook núölur, 3 teg. 19 kr.
Tilboöin gilda til 4. október.
0 Búkonu reykt./graf. lax 899 kr. kg
0 KJarnafæöi rauövínslæri 799 kr. kg
0 MH fjölskyldubrauö 99 kr.
0 Bökunarkartöfíur 149 kr. kg
0 Chiquita Ace, 11 139 kr.
o Haribo snuö 89 kr.
0 Pizza deeo pan pepperoni 9“ 299 kr.
0 Pizza deep pan deluxe 299 kr.
0 Durardin gutar baunlr, 450 g 129 kr.
0 MS dreitlll, 11 79 kr.
Tilboöln gilda á meöan birgölr endast.
0 Kavll Baco ostur, 150 g 199 kr.
0 Kavli salami ostur, 150 g 199 kr.
0 Kavll pepperonl ostur, 150 g 199 kr.
0 Kavll mexicana ostur, 150 g 199 kr.
0 Kavli kavíar, 150 g 119 kr.
0 Kavll kavíar mix, 140 g 89 kr.
0 Cloetta konfekt blanda
Q
Q
©
249 kr.