Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aðstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Óeirðir í Seattle og Prag
Alþjóðavæðing og þjónusta við gráðug fjölþjóðafyrir-
tæki er ekki alvarlegasta vandamál stofnana á borð við
Alþjóðabankann, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Heimsvið-
skiptastofnunina, sem sæta núna óeirðum, hvar sem þær
halda fundi sína, fyrst í Seattle og síðast í Prag.
Vandinn felst fyrst og fremst í þeim misskilningi, að
þriðja heiminum beri að endurgreiða slikum stofnunum
einhverjar fjárhæðir, sem þær hafa lánað valdhöfum í
þriðja heiminum, í fullri vissu þess, að þeir og skjólstæð-
ingar þeirra stælu meira eða minna af lánunum.
Minnisstætt skólabókardæmi um ruglið í lánveitingum
er fjárausturinn til Rússlands. Þeim peningum var nánast
öllum stungið undan í skjóli Jeltsíns, sem þá var forseti
landsins. Þeim var sumpart sóað og sumpart voru þeir
fluttir á einkareikninga í vestrænum bönkum.
Þegar fénu var mokað í skjólstæðinga Jeltsíns, vissu
ráðamenn þessara stofnana af fyrri reynslu um gervallan
þriðja heiminn, að miklu af þvi yrði stolið, þótt sjálft um-
fang glæpsins í Rússlandi hafi komið þeim á óvart. Þeir
geta ekki vikizt undan samábyrgð á glæpnum
Ef James Wolfensohn í Alþjóðabankanum og Horst
Köhler í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum lána glæpamönnum,
sem víðast hvar ráða ríkjum í þriðja heiminum, vita
bankastjórarnir, að mikið af fénu fer á einkareikninga, en
ekki til þeirra þarfa, sem höfð eru að yfirvarpi.
Þeir geta ekki ætlazt til, að eymdarþjóðir þriðja heims-
ins, sem ekki hafa hagnazt neitt á þessum lánum, endur-
greiði fj ármálastofnunum neitt af því fé, sem þannig hef-
ur verið ráðstafað. Þeir geta ekki heldur neitað vitneskju
um ástand, sem þekkt hefur verið áratugum saman.
Þess vegna er óþarfi að fjölyrða mikið um, hvort Wolf-
ensohn og Köhler séu orðnir svo meyrir út af óeirðum i
Seattle og Prag, að þeir vilji sem óðast gefa eftir mikið af
skuldum þriðja heimsins. Til þessara skulda var stofnað á
siðlausan hátt og þær ber allar að afskrifa.
Auðvitað eiga Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn ekki að lána, án þess að tryggt sé, að allir pening-
arnir skili sér í tilskilin verkefni. Sú trygging fæst ekki,
nema stjórnarfar í viðkomandi landi fylgi vestrænum
reglum um gegnsæi, réttaröryggi og valddreifingu.
Ofan á bjánaleg útlán hafa slíkar stofnanir gerzt sekar
um afturhaldssamar kröfur til þriðja heimsins í efnahags-
og fjármálum. Þessar kröfur eru framleiddar af „annars
flokks hagfræðingum“, samkvæmt orðum Josephs
Stiglitz, sem lengi var aðalhagfræðingur Alþjóðabankans.
Stiglitz hefur til gamans bent á, að efnahagsleg og pen-
ingaleg velgengni Bandaríkjanna á síðasta áratug stafaði
af, að í hvívetna gerðu stjómvöld nákvæmlega það, sem
hagfræðingar Alþjóðabankans sögðu þeim að gera ekki,
allt frá skattalækkunum yfir í aukin ríkisútgjöld.
Hitt er svo minna mál, hvort fjölþjóðafyrirtæki hafi
makað krókinn óhæfilega mikið í skjóli þeirra stofnana,
sem predikað hafa svokallaða alþjóðavæðingu í markaðs-
málum. Það er ljóður á ráði þessara stofnana, en er ekki
sjálfri hugmyndafræði alþjóðavæðingar að kenna.
Siðferðilegt hrun Heimsviðskiptastofnunar, Alþjóða-
banka og Alþjóðagjaldeyrissjóðs stafar ekki af, að opinn
heimsmarkaður sé röng stefna, heldur af siðferðilega
rangri útlánastefnu og óviðurkvæmilegum stuðningi for-
stjóranna við stórglæpamenn í þriðja heiminum.
Ofangreindar alþjóðastofnanir eiga því fyllilega skilið
þær óeirðir, sem þær hafa sætt, allt frá Seattle til Prag, og
munu væntanlega um síðir læra af mistökum sínum.
Jónas Kristjánsson
DV
Ofbeldi er pólitískt
„Það er eins og það sé of viðkvœmt mál að nokkuð sem teng-
ist kynferði geti verið pólitískt mál. Það virðist ekki skiljast,
þó að til hafi verið kvennaflokkur hér lengi. “
Nýlega var hér á landi
sænski verðlaunarithöfund-
urinn Kerstin Ekman sem
fyrst skrifaði sögur af því
tagi sem nú kallast stundum
„tryllar“ en fór síðan að
skrifa sálfræðilegar spennu-
sögur með grafalvarlegum
undirtón sem bera eins og
sögur P.D. James og Ruth
Rendell ýmis einkenni af-
þreyingarbókmennta en eru
þó annað og meira. Nú er enn
ein konan, Minette Walters,
orðin fræg í Evrópu fyrir
svipaðar sögur þar sem ofbeldið er tek-
ið til alvarlegrar skoðunar.
Ópólitískt í eðli sínu
Það hlýtur að vekja athygli hversu
margar konur hafa hlotið skáldfrægð
fyrir að skrifa sögur um hro.ttaskap og
grimmd. í fyrstu virðist sem hér sé um
að ræða arftaka Agöthu Christie,
Dorothy Sayers og fleiri kvenna sem
réðu ríkjum í sakamálasagnaritun
lengst af aldarinnar. Munurinn er að
sögur Agöthu Christie snerust um gátu
og lausn hennar en í sálfræðilegum
spennusögum er ofbeldið sjálft til skoð-
unar.
í öllum vestrænum samfé-
lögum er ofbeldi fyrst og
fremst meðhöndlað af dóms-
kerfinu. Litið er á það sem
einkamál sem verður opin-
bert mál en er í eðli sínu
ópólitískt.
Oft er ofbeldi hins vegar
allt annað en það. í sögum
Agöthu Christie eru glæpir
persónulegir og beinast að
einstaklingi; lykillinn að gát-
unni liggur í einstaklingum.
Fórnarlambið er myrt fyrir
að vera það sjálft, þessi ein-
staklingur. Slík mál eru fyrir réttar-
kerflð eitt.
Kynferði of víðkvæmt
I sumum tilvikum verða fórnarlömb
ofbeldisglæpa ekki endilega fyrir of-
beldinu vegna þess hver þau eru held-
ur vegna þess hvers kyns þau eru; kon-
um er nauðgað fyrst og fremst vegna
þess að þær eru konur. Það er hættu-
legt í vestrænu samfélagi að vera kona.
Og það hlýtur að vera pólitískt mál.
Það er eigi að síður tregða að líta á
ofbeldisglæpi gagnvart konum sem
pólitíska en fæstum dettur annað í hug
en að tengja það samfélagsástandinu
þegar saklaust fólk er ofsótt fyrir það
eitt að vera útlendingar eða af öðrum
kynþætti.
En það er eins og það sé of við-
kvæmt mál að nokkuð sem tengist kyn-
ferði geti verið pólitískt mál. Það virð-
ist ekki skiljast þó að til hafl verið
kvennaílokkur hér lengi.
Karlar foröast málin pólitískt
Á íslandi hafa jafnréttismál aldrei
verið tekin- alvarlega. Oft er talað um
Ármann
Jakobsson
íslenskufræöingur
Loddari eða græðari?
Margir sem starfa að andlegum mál-
efnum virðast gera það á vafasömum
forsendum. Einn þeirra gæti verið
Paul Welsh, Navin, Holmes Hinkley
Welch samkvæmt viðtali við DV ný-
lega. En þetta eru nöfnin sem hann
hefur notað hér á landi. Hann segist
vera sálfræðingur og græðari og hafa
17 ára menntun hjá ýmsum meisturum
í andlegum málum sem við íslendingar
þekkjum ekkert til. Því miður finnst
mér hann ekki trúverðugur.
Sex tíma hugleiðsla ruglar
Hann segir I viðtalinu að hann komi
fram sem græðari/heilari en ekki sem
sálfræðingur, sem þó sé hans mennt-
un. Nafnið Navin segir hann að sé and-
legt nafn sem einhver gúrú á Indlandi
hafi gefið honum og nafnið Paul sem
hann hefur líka notað segist hann hafa
fengið eftir 6 klst. hugleiðslu.
Ég spyr: hvaða heilvita maður fer í
6 tíma hugleiðslu? Ég þekki hugleiðslu
ágætlega og tel að enginn geti verið
með virka dómgreind í svo langri hug-
leiðslu til að taka á móti skilaboðum.
Þetta sýnir augljóslega öfgarnar sem
mér sýnist þessi maður lifa í. Hug-
leiðsla er góð bæði til að tæma hugann
„Annaðhvort er þessi maður Jesús sjálfur endurborinn
eða maður sem er ekki í miklum tengslum við sjálfan
sig og veruleikann og glepur auðtrúa fólk með sér. “ -
Paul Welsh, umdeildur grœðari.
frá vandamálum dagsins, til
að fá frið og til að komast
nær sjálfum sér. En 6 klukku-
stunda hugleiðsla hlýtur að
gera hvem mann ruglaðan,
hann hlýtur að hafa sofnað
oft á verðinum og ímyndun-'
araflið hlýtur að hafa verið
virkt.
Líka kemur fram í grein-
inni að þrjár konur hafi lent
inni á spítala eftir reynslu
sína með þessum manni, sem
er þremur konum of mikið.
Fyrir utan þá sem hafa valið sér það að
þegja vegna hræðslu við hann, sem
sýnir hvað hann hefur mikið vald yfir
fólki. Hann segir líka í viðtalinu að
hann sé ekki fullkominn og geri sin
mistök sem mér þykir vænt um að
hann skuli geta viöurkennt.
jesús endurborinn?
Helga Oladóttir
verslunarmaöur
sína nema i gegnum aðra,
sem þessi sami maður virðist
ætla að gera að ævistarfi
sínu, enda líka góð laun i
boði.
En hann segir líka i viðtal-
inu að hann reyni að koma
fram sem vinur og jafningi
þeirra sem á námskeiðin
koma. Samt borðar hann
ekki með fólkinu og lætur
það taka til í herberginu
sinu. Hvers konar jafningi er
........ þetta?
Hann segir einnig að hann geri eng-
ar sjúkdómsgreiningar en láti fólk
fylla út eyðublað þar sem spurt er
hvort það hafi verið á lyfjum og hvort
það hafi verið undir læknishöndum.
Miðað við vinnuna sem hann lýsir,
sem hefst kl. 9-10 á morgnana og stend-
ur til kl. 2-3 á næturnar, er ég ekki
hissa þótt einhver brotni saman.
En af hverju segir fólk þá að hann
þoli enga gagnrýni? Það kemur líka
fram í DV að til sé fólk í þjóðfélagi okk-
ar sem er hrætt við að láta nafn síns
getið í tengslum við að upplýsa það
sem það telur vafasamt við vinnu
þessa manns. Það segir líka að hann
trúi því að hann sé sá eini sem sé í
tengslum við sitt æðra sjálf og þar af
leiðandi geti hann náð sambandi við
æðra sjálf annarra. Þetta segir ansi
mikið. Annaðhvort er þessi maður
Jesús sjálfur endurborinn eða maður
sem er ekki 1 miklum tengslum við
sjálfan sig og veruleikann og glepur
auðtrúa fólk með sér.
Það virðist vera til fólk sem þarf á
svona „gúrúum“ að halda til að stjóma
sínu lífi, eins og hefur sýnt sig hjá
mörgum öfgahópum, hvort sem það er
trúarlegt eða eitthvað annað. Það er
sorglegt að geta ekki fundið lífsfyllingu
Mikið ólært
Maður þessi hlýtur með menntun
sinni að sjá að við mannfólkið eram
mjög misjafnlega gerð og með misjafna
reynslu úr lífinu og það sem hentar
einum þarf ekki endilega að henta öðr-
um. En ætli hann að setja alla undir
sama hatt og ætla fólki að koma öllum
sínum tilfinningum út á 11-13 klst, á
dag, hvort sem það er helgamámskeið
eða tíu daga námskeið, og að lækna
það sem er kannski búið að hrjá þetta
sama fólk allt lífið, þá á þessi maður
mikið eftir ólært.
Þetta er nokkuð sem ég get ekki þag-
að yfir og bið fólk um að hugsa sig
tvisvar um áður en það lætur glepja
sig út í svona vafasama vinnu. Fólk
skyldi hafa að leiðarljósi máltækið
„góðir hlutir gerast hægt“.
Helga Óladóttir
Með og á móti
Ríkið vill ekki fyrir dómstóla
J „Að sjálfsögðu ber
ríkisvaldinu að
|jj greiða viðkomandi
■SPBp einstaklingum bið-
laun. Við hjá Starfsmannafélagi
ríkisstofnana fullyrðum, og það
eru líka skýr skilaboð frá BSRB
og BHM, að við fhitning starfa
milli byggðarlaga þá er það sama
og niðurlagning þeirra gagnvart
starfsmanni sem fyrir þessu verð-
ur. Hann getur ekki lengur sinnt
starfinu nema ýmsar ytri aðstæð-
ur gangi upp, og þá er ég að skír-
skota til fjölskyldumála og þess háttar.
Starfsmaðurinn flytur ekki bara sjálfan
sig því hann verður að flytja alla sina
fjölskyldu. Það eitt þýðir þvílíka breyt-
Jens
Andrésson
formaöur Starfs-
mannafélags rík-
isstofnana.
ingu á högum að ríkinu er ekki
stætt á öðru en að borga starfs-
manninum biðlaun.
Það er svo merkilegt að aldrei
hefur reynt á þetta fyrir dómstól-
um, ríkið hefur aldrei viljað láta
reyna á þetta fyrir dómi. Þegar
Landmælingar fluttu upp á Akra-
nes var ígildi biðlauna greitt til
starfsmanna sem áttu rétt til
þeirra. Ríkið hefur viðurkennt
þetta í praxis og á því verður
engin breyting. Okkar fólk hefur
lent í þessum flutningavandamál-
um, Landmælingar, Skógræktin og fleiri.
Og klárlega á starfsfólk Byggðastofnunar
fullan rétt á biðlaunum, á því er ekki
nokkur minnsti vafi.“
Vandaðir opinberir álitsgjafar
r„Rökin fyrir þvi
að við munum
ekki greiða bið-
laun eru einföld.
Þau byggjast á áliti þeirra að-
ila hjá ríkinu sem við leitum
álits hjá, þeim sem hafa mest
að segja um svona mál, iðn-
aðarráðuneyti og fjármála-
ráðuneyti, auk ríkislög-
manns. Þeir eru einhuga um
að ekki sé um rétt til bið-
launa að ræða í þessu tilviki.
Þegar svona álitsgjafar eru
einhuga í máli er ekki nema eðlilegt
að farið sé eftir því.
Kristinn H.
Gunnarsson
alþingismaöur og
stjörnarformaöur
Byggöastofnunar.
Ég efast ekki um að ráðu-
neytin hafa skoðað öll þau
rök sem fram voru færð og
dæmt eftir því. Sjálfur er ég
ekki lögfræðingur og get ekki
annað en farið að ráðlegging-
um þeirra. Ég fullyrði þó að
það er ekki verið að leggja
niður störf i Byggðastofnun,
við höfum ekki lagt niður
neitt starf. Aftur á móti höf-
um við boðið starfsmönnum
áframhaldandi störf á nýjum
vinnustað."
-JBP
Ríkisvaldið viðurkennir ekki að um sé að ræða niðurlagningu starfa þegar verið er að ftytja Byggðastofnun frá Reykjavík til Sauðárkróks. A biðlaunaréttur
til 12 starfsmanna rétt á sér eða ekki?
þau sem „mjúk mál“ þó að i raun séu
jafnréttismál iðulega mun ómýkri en
bisnessleikirnir sem teljast vera „hörð
mál“ á íslandi. Dómskerfið á engar
leiðir til að taka á ofbeldi gegn konum
nema samkvæmt sínum venjum, hvert
mál fær sína meðferð. Þó að dómstól-
arnir viðurkenni oft ekki að þeir
stjórnist af félagslegu umhverfi hefur
réttarstaða kvenna batnað mikið með
breyttum anda í samfélaginu. En í
hinu stóra samhengi er ofbeldi gegn
konum pólitískt mál sem því miður er
alltof sjaldan tekið alvarlega. Lítið hef-
ur að minnsta kosti verið um að karl-
ar í pólitík bryddi á því.
Þar sem þjóðmálaumræðan bregst
taka listamennirnir oft málin í sínar
hendur. Það er ekki furða að flestir
fremstu höfundar sálfræðilegra
spennusagna eru konur þar sem konur
eru stöðugt i hættu í vestrænu samfé-
lagi. Þær eiga mun fremur en karlar á
hættu að verða fyrir ofbeldi vegna þess
eins að það eru konur. Fyrsta skrefið
til að breyta því er að viðurkenna það
að ofbeldi sé rammpólitískt og tengist
iðulega kynferði.
Ármann Jakobsson
Ummæli
Tekjutengingar og
skerðingar mestar hér
„Menn hafa verið
að fuUyrða að tekju-
tengingar bóta vegna
eigin tekna eða maka
væru léttvægar á ís-
landi í samanburði
við nágrannalönd. En
það er rangt. Komið
hafa fram upplýsingar bæði frá nor-
rænu tölfræðinefndinni og norræna
hagfræðihópnum og þar kemur fram
að tekjutengingar eru mestar á íslandi
og þar af leiðandi skerðingar mestar
miðað við nágrannalönd."
Ólafur Ólafsson, form. Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni, i Degi 27. sept.
RÚV skaðlegt einkaaðilum
„Öryggis- og menn-
ingarlegu rökin fyrir
því að ríkið eigi að
standa í rekstri
fjölmðils tel ég haldlít-
il. Öryggisþáttinn má
leysa í samvinnu við
einkaaðila sem þegar
eru á markaðnum....Þar sem RÚV er
beinlínis skaðlegt einkaaðilum og
skattgreiðendum tel ég að einkavæða
eigi Rás 1, Rás 2 og Sjónvarpið."
Sigurður KSri Kristjánsson, formaður SUS
EMU-þátttaka er vandamál
„Bæði Noregur og ísland eru með
umtalsverða hlutdeild utanríkisvið-
skipta við Norður-Ameríku og Bret-
land er þeirra stærsti útflutnings-
markaður. Þátttaka í EMU er því
nokkuð vandamál fyrir þessi ríki svo
lengi sem Bretland stendur fyrir
utan..Það eru hins vegar að óbreyttu
viss efnahagsleg vandamál varðandi
aðild íslands og Noregs að evrusvæð-
inu sem verður ekki auðveldlega litið
fram hjá.“
Már Guðmundsson, aðalhagfr.
Seðlabankans, í Mbl. 27. sept.
Skoðanalausir
Reykvíkingar
„Nú hafa forráða-
menn Reykjavíkur beð-
ið valdstjómina í Kópa-
vogi að vera svo væna
að hlífa umhverfi El-
liðavatns, og árinnar
sem úr því rennur, við
reisulegri og fjölmennri.
blokkabyggð. Eigendur Kópavogslands
svara skætingi einum og benda á með
nokkrum rétti, aö Reykvíkingum
farist ekki að tala um hreinleika nátt-
úrannar, svo subbulega sem þeir hafa
sjálfir leikið Elliðaárdalinn.Fátt
verður um svör af hálfu Reykvíkinga,
sem ávallt bregðast viö sem skoðana-
lausir og þjónustuliprir aumingjar."
Oddur Ólafsson blm. í Degi 27. sept.
27 '
Skoðun
Bush er með
litla reynslu...
... og notar fiölskyiau-
nafnið sitt óspart.
Afhverju cetti hann
að vera forseti?
.-.■ *
Ruslpóstur
eða fræðsla?
Maður nokkur sem helst
er kunnur fyrir að hafa
einu sinni týnt skíðum lét
taka mynd af sér á dögun-
um með stafla af upplýs-
ingaritum sem hann kall-
aði ruslpóst. Hann var bú-
inn að vigta þennan póst
og helst var á honum að
heyra að honum þætti hið
versta mál að til hans
skyldu vera bomar upplýs-
ingar með þessum hætti.
Svo er að heyra sem hann
sé að vinna í því að póstur
af þessu tagi verði bannaður.
Gagnrýnislaus söngur
Einhvem veginn komast sumir
hlutir í tísku á einhvern óskiljanleg-
an máta og étur þá hver eftir öðrum
og heldur að hann sé að hugsa sjálf-
stætt. Við getum nefnt dæmi: ein-
hver fann upp á því að ákveða að bíl-
ar og önnur verkfæri sem vegna ald-
urs eða annarra aðstæðna eru ekki
lengur í notkun væru þar með
„drasl" og „mengun" og væri um að
gera að koma þvílíku fyrir kattamef
sem allra fyrst. Með þessu móti hafa
ómetanleg menningarverðmæti farið
í súginn að ósekju.
Einhverjir aðrir hafa fundið upp á
því að hafa allt á hornum sér gagn-
vart köttum, segja þá óargadýr hin
mestu sem slasi saklaus börn og
drepi elsku vesalings fuglana sem
annars skíta á þvottinn okkar og bíl-
ana, róta upp beðunum og gera ýms-
an annan óskunda sem óæskilegt
virðist vera að fara á mis við. Enn
má nefna að hver étur eftir öðrum að
mesta loftmengun í landi voru stafi
af einkabílum og svo keppast menn
út í loftið við að lofsyngja brothætta
reiðhjólahjálma sem einhverjar ger-
semar.
Þessi sami gagnrýnislausi söngur
heyrist líka um upplýsinga- og
fræðslupóstinn, sem með lítilsvirð-
ingu er kallaður ruslpóstur. Svo er
að skilja sem það sé allur póstur sem
ekki er merktur tilteknum móttak-
anda með nafni, ekki sendur sem
vinarkveðja eða ekki hefur verið
beðið um.
Misjafnlega skemmtilegur
póstur
Vissulega er þessi póstur misjafn-
lega skemmtilegur. Það á við um all-
an póst. Ég gæti vel verið án ýmissa
gluggaumslaga sem koma
inn um bréfalúguna heima
og em mun kröfuharðari en
upplýsingapósturinn. Ég hef
ekki lagt á mig að vigta
gluggaumslög og aðrar
rukkanir en staðhæfi að
þess háttar sendingar skipta
kílóum yfir árið, fyrir utan
önnur og verri óþægindi.
Hins vegar væri afar gott ef
einhver vildi beita sér fyrir
því að banna rukkanir og
aðra innheimtu.
Aftur á móti vil ég ekki
missa af upplýsingapóstinum. Mér
þykir gott að fá að vita hvenær Nóa-
tún er með tilboðsverð á laxinum
svo að hann er ódýrari en ýsan. Ég
hef ekkert á móti því hvenær ég get
keypt tvö brauð fyrir eitt í 11-11 eða
Bónus er með svínakjötsveislu á
gjafverði.
Mér þykir gott að fá sjónvarpsdag-
skrána fyrir næstu viku eða hálfan
mánuð í litlu og hentugu formi svo
ég þurfi ekki að leita uppi dagblað
dagsins til að vita hvort eftir ein-
hverju bitastæðu er að bíða í útvarpi
eða sjónvarpi.
Fremur hagnaöur en tap
Mér finnst ágætt þegar kirkjan í
sókninni minni sendir mér yfirlit
yfir hvað þar er að gerast og hvað
hún er að bjóða upp á. Ég tala nú
ekki um þegar ég fæ glæsilegar, lit- ••
prentaðar bækur eins og Ikea á til að
senda manni fyrir ekkert eða ein-
hver tískuverslunin lætur bera til
mín úrval af glansandi myndum af
fallegu fólki í finum fötum eða stund-
um næstum engu. Sem minnir mig á
bæklinga ferðaskrifstofanna og Flug-
leiða, sem ævinlega gleðja augað og
gefa stundum efni í góða dagdrauma.
Það væri mikifl skaði ef gerð væri
aðför að upplýsingapóstinum með
þeim sorglegu afleiðingum að hann
legðist af.
Ég vil beina þeim eindregnu til-
mælum til þeirra sem hafa látið telja
sér trú um að hann sé engan veginn
áhugaverður eða jafnvel af hinu
vonda að taka hann nú upp með já-
kvæðum huga, skoða hann vel og sjá
hvað margar myndirnar eru fallegar,
já og prentunin oft mjög góð. Ég er
viss um að sá sem handfjatlar upp-
lýsingapóstinn sinn af velvild hefur
frekar hagnað af þvi en tap.
En þetta prentverk á þaö sameig-
inlegt með dagblöðunum að það úr-
eldist. Þess vegna á ekki að geyma
það nema skamma hríð. Þegar það
hefur gert sitt gagn má það fara. Það
er óskynsamlegt að geyma það þang-
að til það fer að skipta kílóum.
Sigurður Hreiðar
„Það vœri mikill skaði ef gerð væri aðför að upplýs-
ingapóstinum með þeim sorglegu afleiðingum að hann
legðist af. “