Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Side 22
34
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
95 ára
Þorleifur S. Kristjánsson,
Gilsárstekk, Breiödalsvík.
Þórunn Jónsdóttir,
Húsatóftum 1, Selfossi.
85 ára
Sigrún Þórey Hjálmarsdóttir,
Kárdalstungu, Blönduósi.
Hún verður að heiman.
80 ára
Grímur Jónsson,
fyrrv. héraðslæknir,
Fjarðargötu 17, Hafnarfirði.
Eiginkona hans er Gerda M. Jónsson.
Þau eru aö heiman.
Halldóra Margrét Reimann,
Hringbraut 50, Reykjavík.
75 ára
Haukur Bjarnason,
Markarvegi 10, Reykjavík.
Hjörleifur Jónsson,
Safamýri 23, Reykjavík.
Hann verður að heiman.
70 ára
Arnfinnur Ingvar Sigurðsson,
Flétturima 38, Reykjavík.
Eina Laufey Guðjónsdóttir,
Miðleiti 1, Reykjavík.
Guðmundur Helgi Ágústsson,
Grýtubakka 14, Reykjavík.
Guðrún Árnadóttir,
Skeggjastöðum 1, Egilsstöðum.
Sigurlaug Kristjánsdóttir,
Tjaldanesi 3, Garðabæ.
Stefán Þórarinn Þorláksson,
Ásabyggö 17, Akureyri.
60 ára
Ester Þorsteinsdóttir,
Suðurhólum 6, Reykjavík.
Indriði Haukur Þorláksson,
Nökkvavogi 60, Reykjavik.
Magnús Kristjánsson,
Hrafnakletti 1, Borgarnesi.
Hann er að heiman.
Ragnhildur Jónsdóttir,
Klukkubergi 21, Hafnarfirði.
Þórdís Haraldsdóttir,
Skúlagötu 40b, Reykjavík.
50 ára
Adda Hólmfríður Sigvaldadóttir,
Bragagötu 25, Reykjavík.
Bergljót S. Kristjánsdóttir,
Vörðustíg 7, Hafnarfiröi.
Elín Sigvaldadóttir,
Ljósheimum 4, Reykjavík.
Ingólfur Árni Jónsson,
Heiðarholti 4g, Keflavík.
Jens Sturla Jónsson,
Mjallargötu 8, ísafirði.
Sólveig Þórðardóttir,
Baldursbrekku 8, Húsavik.
40 ára
Ari Páll Kristinsson,
Látraströnd 42, Seltjarnarnesi.
Dröfn Snæland Pálsdóttir,
Fjallalind 95, Kópavogi.
Kristín Þórarinsdóttir,
Grænugötu 8, Akureyri.
Linda Brá Hafsteinsdóttir,
Melgeröi 2, Kópavogi.
Prapasiri Sareekhad,
Bólstaðarhlíð 13, Reykjavík.
Sigrún Kristjánsdóttir Lyngmo,
Holtaseli 28, Reykjavík.
Sólveig Þórisdóttir,
Keilugranda 2, Reykjavík.
Þórhallur Gunnlaugsson,
Vallargötu 2, Þingeyri.
Örn Falkner,
Vesturholti 16, Hafnarfirði.
Andlát
Gunnar Bachmann Sigurðsson,
Lækjarsmára 6, Kópavogi, lést fimmtud.
14.9. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Helgi Guðlaugsson, Hamrahlíð 17, lést
á Sjúkrahúsi Reykjavíkur mánud. 25.9.
Smáauglýsingar
DV
Þjónustu-
auglýsingar
►I550 5000
DV
Rmmtugur
Eyjólfur Þór Sæmundsson
forstjóri Vinnueftirlits ríkisins
Eyjólfur Þór Sæmundsson, for-
stjóri Vinnueftirlits ríkisins, Fagra-
hvammi 7, Hafnarfirði, er flmmtug-
ur í dag.
Starfsferill
Eyjólfur fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Hafnarflrði. Hann lauk
stúdentsprófi frá MR 1970, fyrri
hlutaprófi í efnaverkfræði frá HÍ
1972, prófi i efnaverkfræði frá Verk-
fræðiskóla Noregs í Þrándheimi
1974 og hefur sótt ýmis námskeið í
umhverflsfræði og stjómun.
Eyjólfur var verkfræðingur og
deildarverkfræðingur mengunar-
varna hjá Heilbrigðiseftirliti ríkis-
ins 1975-79, öryggismálastjóri
1979-80 og hefur verið forstjóri
Vinnueftirlits ríkisins frá 1981.
Eyjólfur kenndi stærðfræði við
MR með námi 1971-72 og hefur ver-
ið stundakennari og fyrirlesari í
umhverfisfræði og vinnuvistfræði
við HÍ og Tækniskóla íslands frá
1975.
Eyjólfur sat í stjóm efnaverk-
fræðideildar Verkfræðingafélags ís-
lands 1976-79, hefur verið virkur í
störfum Alþýðuflokksins í Hafnar-
firði frá 1978, m.a. verið formaður
Alþýðuflokksfélagsins, gjaldkeri og
formaður fulltrúaráðsins, varabæj-
arfulltrúi í Hafnarfirði 1986-98, sat í
hafnarstjóm Hafnarljarðar 1990-98
og var formaður hennar í sjö ár, í
heilbrigðisráði Hafnarfjarðar
1978-90 og formaður þess síðustu
fjögur ár, í stjórn Heilsugæslustöðv-
arinnar á Sólvangi 1987-99 og for-
maður hennar i átta ár, situr í
stjórn Vatnsveitu Hafnarfjarðar, sit-
ur í stjórn Samfylkingarfélags
Reykjaness, gjaldkeri Samfylkingar-
innar og er félagi í Rótaryklúbbi
Hafnarfjarðar.
Fjölskylda
Eyjólfur kvæntist 29.7. 1972 Gerði
Sólveigu Sigurðardóttur, f. 14.7.
1949, kennara. Hún er dóttir Sigurð-
ar Skarphéðinssonar, sem er látinn,
og Helgu Jónsdóttur.
Böm Eyjólfs og Gerðar Sólveigar
eru Helga, f. 18.8. 1973, læknanemi í
Hafnarfirði; Baldur Þór, f. 31.5.1978,
nemi í rafeindavirkjun í Hafnar-
firði.
Systkini Eyjólfs eru Gunnar
Hörður Sæmundsson, f. 28.11. 1956,
tæknifræðingur í Hafnarfirði; Sæ-
mundur Sæmundsson, f. 7.1. 1961,
verkfræðingur í Reykjavík; Þórey
Ósk Sæmundsdóttir, f. 27.9. 1971,
kennari í Hafnarfirði.
Foreldrar Eyjólfs: Sæmundur
Hörður Björnsson, f. 31.10. 1926,
flugumsjónarmaður, búsettur í
Hafnarfirði, og Hrefna Eyjólfsdóttir,
f. 16.11. 1928, d. 27.12. 1993, banka-
starfsmaður.
Ætt
Alsystkini Sæmundar: Sveinn
listmálari; Knútur læknir; Bryndís,
sjúkraliði og myndlistakona og El-
ín, veflistakona og kaupkona,
Björnsbörn. Hálfbróðir Sæmundar,
sammæðra, er Baldur Johnsen,
fyrrv. forstöðumaður Heilbrigðiseft-
irlits ríkisins. Sæmundur er sonur
Bjöms, útgerðarmanns á Skálum á
Langanesi, Sæmundssonar, b. á
Brimnesi og trésmiðs á Þórshöfn,
Illugasonar, og Kristínar Guð-
brandsdóttur af Guðbrandsætt.
Móðir Sæmundar var Sigurveig,
systir Júliönu listmálara, systur-
barn við Guðjón Samúelsson, húsa-
meistara ríkisins. Bróðir Sigurveig-
ar var Sveinn, framkvæmdastjóri
Völundar, faðir þeirra Sveins, fyrrv.
forstjóra Völundar, Leifs lögfræð-
ings og Haralds, fyrrv. fram-
kvæmdastjóra Árvakurs. Sigurveig
var dóttir Sveins, trésmiðameistara
í Reykjavfk, Jónssonar, b. á Stein-
um undir Eyjafjöllum, Helgasonar.
Móðir Sveins Jónssonar var Guð-
rún, systir Ólafs gullsmiðs, langafa
Georgs Ólafssonar, framkvæmda-
stjóra Samkeppnisstofnunar. Guð-
rún var dóttir Sveins, b. á Ytri-
Skógum, ísleifssonar, b. þar, Jóns-
sonar. Móðir Isleifs var Vigdís, syst-
ir Þuriðar, langömmu Jensinu,
móður Ásgeirs Ásgeirssonar for-
seta.
Hrefna var dóttir Eyjólfs, sjó-
mann í Hafnarfirði, Bjarnasonar, b.
i Katrínarkoti í Garðahverfi, bróður
Jóns, afa Stefáns Júlíussonar rithöf-
undar. Bjarni var sonur Eyjólfs, b. í
Katrínarkoti, Jónssonar, og Ingi-
bjargar Þórarinsdóttur. Móðir Eyj-
ólfs sjómanns var Jónína Eysteins-
dóttir frá Hraunsholti, systir Krist-
mundar, langafa Sigríðar Dúnu
mannfræðings. Önnur systir Jón-
ínu var Ingibjörg, móðir Friðriks
Hafberg, kaupmanns og kafara á
Flateyri.
Móðir Hrefnu var Þuríður, systir
Magnúsar, hafnarvarðar í Hafnar-
firði, og dóttir Bjarna Markússon-
ar, verkamanns þar, og Guðlaugar
Þorsteinsdóttur frá Stokkseyri.
Eyjólfur og fjölskylda munu
gleðjast með ættingjum og vinum í
safnaðarheimili Hafnarfjarðcir-
kirkju í kvöld frá kl. 18.00.
Níræö
Dalrós Hulda Jónasdóttir
Sjötugur
Haukur Guðbjartsson
bifreidarstjóri í Reykjavík
Haukur Guðbjartsson
bifreiðarstjóri, Nesvegi
66, Reykjavík, er sjötugur
í dag.
Starfsferill
Haukur fæddist í
Hvítadal í Saurbæ í Dala-
sýslu en ólst upp i Mikla-
garði. Hann hóf bifreiða-
akstur 1956 og hefur
stundað akstur síðan.
húsmóðir á Húsavík
Dalrós Hulda Jónasdóttir hús-
móðir, Baldursbrekku 8, Húsavík,
er níræð i dag.
Starfsferill
Dalrós Hulda fæddist að Móbergi
á Húsavík og ólst upp á Húsavík.
Hún var í barnaskóla þar.
Eftir að Dalrós Hulda gifti sig
helgaði hún starfskrafta sína hús-
móður- og heimilisstörfum.
Fjölskylda
Dalrós Hulda giftist 1.3. 1930
Þórði Friðbjamarsyni, f. 7.11. 1898,
verkamanni. Foreldrar hans voru
Friðbjöm Jónsson og Rósa Sigur-
bjömsdóttir, bændur á Rauðu-
skriðu, Kaðalstöðum og viðar.
Böm Dalrósar og Þórðar eru
Kristín Aðalheiður, f. 6.12. 1930, gift
Kjartani Jóhannessyni og eiga þau
tíu böm, tuttugu og sjö barnaböm
og fjögur barnabarnabörn; Kristján
Sigurður, f. 14.12.1932, d. 31.12.1997,
var kvæntur Friðriku Jónasdóttur
og eignuðust þau eitt bam og fjögur
barnaböm; Njáll Trausti, f. 12.10.
1934, kvæntur Kolfinnu Ámadóttur
og eiga þau fimm böm, fimmtán
bamaböm og þrjú bamabarnaböm;
Rósa, f. 15.3. 1937, gift Hermanni
Bjamasyni
og eiga þau
ijögur börn
og fimm
barnabörn;
Jónas Þór, f.
4.7. 1940,
kvæntur
Guðnýju
Björnsdóttur og eiga þau þrjú börn
og fjögur bamabörn; Jónasína
Kristjana, f. 7.8. 1942, gift Jónasi
Guðlaugssyni og eiga þau fimm
börn og sjö bamaböm; Friðbjöm, f.
6.7. 1943, kvæntur Sigurrósu Þórar-
insdóttur og eiga þau tvö böm og
tvö barnaböm; Vigdís Guðrún, f.
16.10. 1946, gift Haraldi Guðmunds-
syni og eiga þau þrjú böm og þrjú
barnabörn; Skarphéðinn, f. 11.12.
1948, d. 21.3. 1974; Sólveig, f. 28.9.
1950, var gift Aðalsteini Jónassyni
sem er látinn og eru böm þeirra
fjögur og barnabömin tvö.
Foreldrar Dalrósar Huldu voru
Jónas Bjarnason, f. 4.5. 1884, d. 21.7.
1968, vegaverkstjóri á Húsavík, og
Kristjana Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
f. 15.11. 1886, d. 18.9. 1960, húsmóðir
og verkakona.
Dalrós verður með heitt á könn-
unni á afmælisdaginn.
Fjölskylda
Eiginkona Hauks er Stefanía
Kristjánsdóttir, f. 8.4. 1933, ríkis-
starfsmaður. Hún er dóttir Krist-
jáns Bjarnasonar, bónda á Tindum,
og Unu Bjömsdóttur húsfreyju.
Börn Hauks og Stefaníu eru Ásdís
Hauksdóttir, f. 16.6. 1955, sjúkraliði,
gift Emil Haraldssyni, f. 28.2. 1954,
húsgagnasmið, og eru böm þeirra
Benedikt, Haraldur og Eyrún; Karit-
as Hrönn Hauksdóttir, f. 25.5. 1957,
nemi, gift Böðvari Magnússyni, f.
31.1.1956, rafsuðumanni, og eru syn-
ir þeirra Haukur, Magnús, Benja-
mín og Samúel; Kristján Hauksson,
f. 7.5. 1958, málari, kvæntur Björgu
Guðmundsdóttur, f. 13.11. 1960, hús-
móður, og eru dætur þeirra Stefan-
ía og Eva Lind; Una
Hauksdóttir, f. 30.6. 1963
en dóttir hennar er Sunn-
eva Ósk.
Systkini Hauks eru
Reynir Guðbjartsson, f.
21.10. 1934, bóndi á Kjar-
laksvöllum i Saurbæ;
Halldóra Guðbjartsdóttir,
f. 24.9. 1936, húsfreyja á
Stóra-Múla í Saubæ;
Hreinn Guðbjartsson, f. 4.7. 1938,
ýtumaður í Garði í Gerðum; Hrafn-
hildur Guðbjartsdóttir, f. 2.3. 1941,
húsmóðir í Reykjavík; Svanhildur
Guðbjartsdóttir, f. 7.12. 1942, dag-
móðir í Reykjavík; Margrét Guð-
bjartsdóttir, f. 9.6. 1948, bóndi í
Miklagarði; Jóhannes Smári Guð-
bjartsson, f. 11.9.1953, verkstjóri hjá
Rækjunesi í Stykkishólmi.
Foreldrar Hauks: Guðbjartur
Jónas Jóhannsson, f. 9.11. 1909, d.
5.5.1997, bóndi í Miklagarði, og k.h.,
Karitas Hannesdóttir, f. 16.10. 1908,
d. 19.1.1980, húsfreyja.
Guðbjartur verður að heiman á
afmælisdaginn en tekur á móti gest-
um á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar að Bjamastaðavör 4,
Bessastaðahreppi, laugard. 30.9. kl.
18.00-22.00.
Jarðarfarir
Halldór Magnússon bifreiöarstjóri, Borg-
arbraut 65, Borgarnesi, veröur jarösung-
inn frá Borgarneskirkju 30.9. kl. 14.00.
Konráð Bergþórsson, Nökkvavogi 1,
veröur jarösunginn frá Langholtskirkju
föstud. 29.9. kl. 13.30.
Sigrún Arnardóttir, Æsufelli 2, Reykja-
vík, veröur jarðsungin frá Fella- og Hóla-
kirkju föstud. 29.9. kl. 13.30.
Halldór Eyjólfsson, Espigeröi 2, verður
jarösunginn frá Bústaöakirkju föstud.
29.9. kl. 13.30. Jarðsett verðurí Gufu-
neskirkjugaröi.
Hafliöi Sigurösson, Laugavegi 1, Siglu-
firöi, verður jarösettur frá Siglufjarðar-
kirkju laugard. 30.9. kl. 14.00.
Jón Helgason veröur jarösunginn frá
Seltjarnarneskirkju fimmtud. 28.9. kl.
13.30. Minningarathöfn veröur ?
Höföakapellu, Akureyri, 29.9. kl. 14.00.
Merkir Islendingar
Finnur Jónsson ráðherra fæddist 28. sept-
ember 1894 að Harðbak á Sléttu, sonur
Jóns Friðfinnssonar, bónda þar, og k.h.,
Þuríður Sesselja Sigurðardóttur hús-
freyju. Finnur var faðir Birgis Finns-
sonar, fyrrv. alþingisforseta.
Finnur lauk gagnfræðaprófi á Akur-
eyri 1910. Hann var póstmaður á Akur-
eyri 1910-1918, verslunarmaður þar
1919-1920 og póstmeistari á ísafirði
1920-1932. Þá var hann framkvæmda-
stjóri Samvinnufélags ísfirðinga
1928-1944.
Finnur sat í bæjarstjóm ísafjaröar
1921-1942, var formaður verkalýðsfélagsins
Baldurs á ísafirði 1921-1932, beitti sér fyrir
stofnun verkalýðsfélaga á Vestfjörðum og
Finnur Jónsson
stofnun Alþýðusambands Vestfjarða og var
forseti þess í mörg ár. Hann var alþingis-
maður ísfirðinga 1933-1951 og var félags-
mála- og dómsmálaráðherra fyrir Al-
þýðuflokkinn í Nýsköpunarstjórninni
1944-1947.
Magnús Stormur segir um Finn í
Ráöherrum íslands að hann hafi verið
duglegur maður, greindur og notið
trausts, verið málafylgjumaður og get-
að verið harður í hom að taka en and-
stæðingar hans, a.m.k. sjálfstæðis-
menn, hafi borið honum vel söguna. Þá
segir Magnús: „Finnur var einn þeirra
manna, sem uxu við ábyrgðina og þótti
hinn nýtasti maður, þótt ekki væri hann af-
burðamaður á neinu sviði.“ Hann lést 1951.