Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Page 24
36
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
Tilvera
DV
Hugleikur sýnir
Bíbí og Blakan
Síðastliðinn íostudag frum-
sýndi Hugleikur nýja gamanóp-
eru, Bíbí og Blakan, í Kafíileik-
húsinu. Óperan er skopstæling á
hefðbundnum óperum og farið
vitt og breitt yfir tónlistarsög-
una. Höfundar eru Þorgeir
Tryggvason, Ármann Guðmunds-
son og Sævar Sigurgeirsson.
Sýningin hefst kl. 21.
POPP____________
■ OVÆNTIR BOLFELAGAR Til-
raunaeldhúsið og menningarborgin
kynna: Óvænta bólfélaga. Orgelkvar-
tettinn Apparat og Félag radíóama-
töra ásamt Ingarafni Steinarssyni í
Listasafni Reykjavíkur (Cafe 9, Hafn-
arhúsinu) í kvöld, kl. 21.00.
Krár
■ PALU 17 Á PRIKINU Helgin nálg-
ast sem óö fluga og þeir sem ekki
hafa gert ráðstafanir fyrir kvöldið
ættu ekki að örvænta. Páll Stein-
arsson, Palli í 17, er tónlistaráhuga-
mönnum að góðu kunnur og ætti
enginn að veröa svikinn af því sem
hann framreiðir á Prikinu í kvöld.
■ MILES DOWLEY OG RÓMANTÍK-
!N Enskí píanósnillingurinn Miles
Dowley slær vart feilnótu á Café
Romance.
Klassík
■ SONGTONLEIKAR MEÐ
DJOSSUÐU IVAFI I kvöld verða
söngtónleikar með djössuöu ívafi í
Salnum í Kópavogi kl. 20. Margrét
Siguröardóttir syngur og leikur göm-
ul djasslög í bland við frumsamið
efni ásamt hljómsveit sem skipuð er
Hjörleifi Jónssyni, slagverk, Hlyni
Aöils Vilmarssyni, slagverk, Valdi-
mar Kolbeini Sigurjónssyni, kontra-
bassa, Þórhalii Sigurössyni, slag-
verk, o.fl.
■ CAMERATA Á TÓNLEIKUM
Danski kammerkórinn Camerata,
sem að undanförnu hefur verið viö
þlötuupþtöku í Skálholti, heldur tón-
leika í Langholtskirkju í kvöld kl. 20.
Kórinn flytur fimm ný Stabat Mater-
verk eftir dönsk og sænsk tónskáld,
öll sérpöntuð af kórnum.
Leikhús
■ SHOPPING AND FUCKING EG6
leikhúsið sýnir í samvinnu við Leikfé-
lag Islands f Nýlistasafninu verkið
Shopping and Fucking í kvöld, kl.
20. Það eru G-kortin sem blíva í
kvöld.
Síðustu forvöð
■ GÁLLERI SÆVARS KARLS I dag
lýkur sýningu á verkum listamann-
anna Guörunar Einarsdóttur, írisar
Elfu Friöriksdóttur, Jóns Axels, Þor-
valds Þorsteinssonar, Ragnhildar
Stefánsdóttur og Vignis Jóhanns-
sonar. Sýningin er í Gallerii Sævars
Karls. Þetta er sölusýning.
■ KRISTÍN PÁLMADÓTTIR Sýningu
Krístín Pálmadóttur hjá Islenskri
grafík, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu
17 (hafnarmegin) lýkur 8. oktober.
Feröir
■ HAUSTUTIRNIR SKOÐAÐIR Fri-
kirkjan í Reykjavík stendur fýrir
haustlitaferð í dag fyrir eldri borgara
T söfnuöinum. Lagt verður af staö
kl.13 frá Fríkirkjunni. Farið verður
um Þingvöll og haustlitirnir skoðaðir.
Þeir sem vilja taka þátt í feröinni eru
vinsamlegast beðnir um að skrá sig
í síma 552-7270 fyrir kl. 12 þriöju-
daginn 26. seþtember.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Rat-
S
Fiðlutónar í kvikmyndahúsi
inn þakkaði fyrir og kvaddi án þess
að gefa mikið út á uppástungu Ró-
berts. Tveim dögum seinna hringdi
svo maðurinn og bað Róbert að
senda sér rúmið. „Hann hafði þá
farið að mínum ráðum og keypt sér
annað hús.“
-ÞGK/-SS
Ungir fiöluleikarar
Fjöldi nema í Suzuki-tónlistarskólanum lék klassísk verk í Regnboganum.
Tuttugu böm á aldrinum sex til
fjórtán ára, sem öll stunda flðlunám
í Suzuki-tónlistarskólanum í
Reykjavík, spiluðu nokkur
skemmtileg lög á flðlu 1 Regnbogan-
um síðastliðinn sunnudag, í tengsl-
um við sýningu myndarinnar Music
of the Heart, meðal annars eitt af
þeim verkum sem leikin eru í
myndinni, fiðlukonsert i D-moll eft-
ir Bach fyrir tvær fiðlur.
Tónleikarnir í Regnboganum
voru liður í söfnunarátaki flðlu-
hópsins fyrir námskeið á Englandi
næsta sumar og gaf kvikmyndadeild
Skífunnar út boðskort á myndina
sem bömin seldu foreldrum og öðr-
um aðstandendum. Og að sjálfsögðu
fengu krakkamir frítt inn og popp
og kók. Tónleikamir tókust mjög
vel.
Music of the Heart fjallar um
fiðlukennara, sem Meryl Streep
leikur, sem tekur að sér að kenna
ungum bömum í skóla í skugga-
hverfi Bronx-hverfisins í New York
á flðlu og urðu mörg þeirra fram-
bærilegir tónlistarmenn. -HK
VIS
hjón
Dregið hefur verið úr inn-
sendum lausnum í Ratleik
Hafnarfjarðar sem Upplýsinga-
miðstöð ferðamanna í Hafnar-
firði bauð upp á í fimmta sinn
nú í sumar. Leikurinn skiptist
í Léttan leik og Þrautagöngu
og voru þrír vinningshafar
dregnir út í hvorum hluta.
Það voru heppin hjón sem
hrepptu fyrsta vinning i báð-
um leikjunum: Ritva Jouhki
fékk hestaferö fyrir fjölskyld-
una og Reynir Ingibjartsson
hlaut veiðiútbúnað. Þau hjón-
in hafa tekið þátt í leiknum
frá upphafi og hefur Reynir
áður hlotið vinning í honum.
Önnur verðlaun i Létta leikn-
um voru reiðhjólahjálmar og
þá hreppti Valgerður Hróð-
marsdóttir. Tómas Björn Guð-
mundsson fékk þriðju verð-
laun, pitsuveislu. Erla Svein-
björnsdóttir fékk önnur verð-
laun I Þrautagöngunni, kvöld-
verð á veitingaskipinu Thor
og Jóhann Davíðsson fékk síð-
an göngubakpoka í þriðju
verðlaun. Hin heppnu ratleiks-
hjón sögðust ákveðin í að taka
aftur þátt I þessum skemmti-
lega ratleik næsta sumar.
Vinningshafarnir
Hinir heppnu vinningshafar eru hér ásamt Pétri Sigurðssyni sem
hannaði leikinn.
Húsgagnaverslunin Bústoð fagnar 25 ára afmæli:
Keypti hús undir
hjónarúmið
í Keflavík er rekin húsgagna-
verslunin Bústoð. Eigendur hennar
fagna því um þessar mundir að 25
ár eru nú liðin frá stofnun fyrirtæk-
isins en það voru hjónin Róbert
Svavarsson og Hafdís Gunnlaugs-
dóttir sem hófu reksturinn og hefur
hann vaxið jafnt og þétt frá byrjun.
Góð þjónusta lykilatriði
Verslunin var fyrst til húsa að
Vatnsnesvegi en árið 1985 flutti hún
í nýtt húsnæði að Tjarnargötu. Nú
er svo verið að flytja lager verslun-
arinnar annað og stækka verslun-
ina sem verður þá nálægt 3000 fm.
Róbert segir að lykillinn að vel-
gengninni sé að veita góða þjónustu
og vera með betra úrval og verð en
keppinautarnir, enda sýni reynslan
að fólk heldur tryggð við verslun-
ina. Róbert og Hafdís selja húsgögn
um allt land en boðið er upp á akst-
ur heim að dyrum á suðvesturhom-
inu. „Við erum með betra verð en
gerist á höfuðborgarsvæðinu,“ full-
yrðir Róbert, en þau Hafdís flytja
sjálf inn húsgögnin frá Norðurlönd-
unum, Þýskalandi, Ítalíu og Banda-
ríkjunum.
Sérverslanir hafa oft átt erfitt
uppdráttar á landsbyggðinni en það
á ekki við i þessu tilviki. „Við höf-
um verið allt frá því að vera eina
húsgagnaverslunin hér í Keflavik
upp í að þær væru fjórar og nú eru
hér tvær,“ segir Róbert og bætir við
að það sé verulega til bóta að hafa
samkeppni þannig að fólk geti borið
saman vöruúrval og verð. „Það er
betra að fólk þurfi ekki að fara til
Reykjavíkur til að bera saman.“
Samhent hjón
Þau hjónin hafa unnið saman frá
18 ára aldri og er óhætt er að kalla
verslunina Bústoð fjölskyldufyrir-
tæki því sonur þeirra, Reynir Þór,
og bróðir Róberts, Herbert, vinna
hjá þeim hjónum, auk annara, og
segir Róbert ómetanlegt að hafa haft
gott starfsfólk f gegnum tiðina. Um
þessi tímamót er verið að bæta við
deild sem verður með sérvalin
gæðahúsgögn í dýrari kantinum.
Stöðugt hefur færst 1 vöxt að fyrir-
tæki versli í Bústoð og sá verslunin
til dæmis um öll húsgögn i nýbygg-
ingu grunnskóla Grindavíkur.
Viöskiptavinir Bústoðar hafa
alltaf verið af öllu landinu og Róbert
rifjar upp að einu sinni hafi hann
verið að selja itölsk hjónarúm sem
þá voru vinsæl, með speglum og
öllu mögulegu. „Það kom inn kúnni
vestan af fjörðum og langaði afskap-
lega mikið í svona rúm.“ Maðurinn
pantaði rúm hjá Róbert en hringdi
nokkrum dögum síðar og bar sig
illa vegna þess að rúmið kæmist
ekki inn i hjónaherbergið. „Ég sagði
honum að það væri náttúrlega ekki
hægt að breyta rúminu en hann
gæti keypt sér annað hús.“ Maður-
Saman í rekstrinum
Róbert Svavarsson og Hafdís Gunnlaugsdóttir hafa unnið saman frá átján ára aldri.