Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2000, Qupperneq 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FIMMTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2000
Samgönguráðherra:
Sjóslysanefnd
út á land
w- Haraldur Blöndal hættir
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra hefur skipt út formanni sjó-
slysanefndar og skipað Inga
Tryggvason, lög-
fræðing í Borgar-
nesi, í stað Har-
aldar Blöndal,
lögmanns í
Reykjavík.
„Þetta er allt í
sátt og sam-
lyndi,“ sagði Har-
aldur Blöndal í
gær. „Mér skilst
að ráðherrann
ætli að flytja
nefndina út á land þannig að það
gengi ekki að ég væri formaður
hennar þar.“
Haraldur Blöndal hefur verið for-
maður sjóslysanefndar samtals í sjö
ár. Nýr formaður nefndarinnar
kemur úr kjördæmi samgönguráð-
herra og er talið víst að nefndin
verði einnig staðsett þar þegar hug-
myndir ráðherrans um flutning
hennar verða að veruleika. -EIR
Haraldur Blöndal
Hættir sáttur.
Kvikmyndir og drag
I Fókusi á morgun er meðal ann-
ars að flnna viðtal við Skjöld Ey-
fjörð sem sigraði í dragkeppninni
um síðustu helgi, Barði Jóhannsson
segir frá framavonum BangGang í
Frakklandi og tekinn er púlsinn á
félagslífinu í skólum borgarinnar.
Spáð er í hverjar af ungu stjömun-
um okkar muni í framtíöinni líkjast
þeim sem eldri eru, Áslaug Baldurs-
dóttir ræðir um ferðalög sín með
Rolling Stones og U2 og nokkrir
ungir kvikmyndagerðarmenn
spjalla um framtíðina í greininni.
Sérblað um Kvikmyndahátíð í
Reykjavik fylgir Fókusi og þá er Líf-
*^ið eftir vinnu á sínum stað, ná-
kvæmur leiðarvísir um skemmtana-
og menningarlífið.
„Þaö er bara eins og það séu aö koma jól!“
Guörún Guðmundsdóttir tók brosandi á móti afsökunarbeiöni Línu.net en skrifstofustjórinn, Elín Margrét Gunnarsdótt-
ir, færöi Guörúnu biómakörfu í gær. Guörún slasaði sig er hún datt ofan i ómerkta holu þar sem Lína.net
var aö ieggja Ijósleiðara.
Níræð datt í óvarða holu:
Lina.net
biðst af-
sökunar
„Ekki ætlaðist ég til þessa. Það er
bara eins og það séu að koma jól,“
sagði Guðrún Guðmundsdóttir,
reykvísk kona á níræðisaldri, þegar
hún tók við blóma- og ávaxtakörfu
frá Elínu Margréti Gunnarsdóttur,
skrifstofustjóra Línu.nets, í gær.
Karfan var afsökunarbeiðni
Línu.nets til Guðrúnar en í síðustu
viku datt hún ofan í ómerkta og
óvarða hnédjúpa holu á homi Tún-
götu og Garðastrætis, eins og fram
kom í DV. Þar er verktaki
Línu.nets var að leggja ijósleiðara.
Guðrún og 12 ára gamalt barna-
bam hennar voru úti að ganga með
hundinn þegar slysið varð. Þau
voru á gangi eftir Túngötunni, á
leið út á Landakotstúnið, þegar
Guðrún, sem er orðin sjóndöpur, sá
ekki holuna og datt ofan í hana.
„Ég vissi ekkert af mér fyrr en ég
bara lá þama í holunni," sagði Guð-
rún. Tvær konur sem áttu leið hjá
stöðvuðu bíl sinn og aðstoöuðu
hana. Guðrún vildi þakka þessum
tveim ókunnu konum hjartanlega
fyrir aðstoðina. „Þær eiga þakklæti
skilið, þær flýttu sér til mín og
keyrðu mig svo heim. Það er mín
reynsla að íslendingar eru svo
hjálpsamir," sagði Guðrún sem er
enn marin og skrámuð eftir fallið.
Lina.net gaf verktakanum sem
láðist að merkja holuna áminningu.
-SMK
Salmonellubakterían illræmda greinist nú víðar í Evrópu:
ESB gefur út viövörun
- Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna kunnugt um málið
Salmonella af sama stofni og sú
sem hefur valdið faraldri hér hefur
greinst víða í Mið-Svíþjóð undan-
farna daga. Tegundin er Salmonella
tythimurium DT 204. Þessi sama
baktería hefur nú einnig greinst í
Hollandi, samkvæmt upplýsingum
sem Haraldi Briem sóttvamarlækni
bárust í gær. Það virðist því ljóst að
salmonellubakterían hefur dreifst
víða um Evrópu að undanfomu, því
eins og kunnugt er hefur hún einnig
greinst víöa á Suður-Englandi og
norðausturströnd Englands.
Evrópusambandið hefur ákveðið
sóttvamarkerfi innan sinna vébanda.
Það mun gefa út viðvörun vegna
salmonellufaraldurs, sem virðist hafa
komið upp í fleiri en einu landi. Þess-
ari viðvömn er dreift til heilbrigðis-
Hráðuneyta allra
fimmtán aðildar-
landanna og
landanna, að sögn
Haraldar. Þá er
matvæla- og lyfja-
stofnun Banda-
ríkjanna kunnugt
Haraldur um málið.
Samvinna leysi „Það hjálpar
gátuna okkur að þetta
skuli vera svona
óvenjuleg baktería," sagði Haraldur,
en þessi stofn er sjaldgæfur, eins og
fram hefur komið og fjölónæmur fyr-
ir sýklalyfium. „Úr því að svo er get-
um við ef til vill fundið einhvem
samnefnara með víðtækri samvinnu.
Þetta segir okkur væntanlega að það
er einhver matvara sem er í býsna
mikilli dreifingu sem veldur þessu.
Við vonumst til þess að öll þessi sam-
ræmda vinna muni geta leyst gátuna
um uppruna bakteríunnar."
Haraldur sagði að Bretar hefðu að
undanfórnu rannsakað orsakir sýk-
ingarinnar þar í landi. Boðleiðimar
þar væru þó miklu lengri en hér og
Bretamir hefðu enn ekki getað sýnt
með órækum hætti fram á upptök-
in. -JSS
Samið í deilu ófaglærðra á Selfossi:
Launin tosuðust upp
Samningar tókust í gærkvöld í
kjaradeilu verkalýðsfélagsins Bárunn-
ar Þórs fyrir hönd ófaglærða starfs-
manna á Sjúkrahúsi Suðurlands og
samninganefhdar ríkisins. Að sögn
Ingibjargar Sigtryggsdóttur, formanns
Bárunnar Þórs, „tosuðust launin að-
eins upp“ frá fyrra samningi sem ófag-
lærðir felldu fýrr í mánuðinum.
Atkvæðagreiðsla um nýja samning-
inn fer fram í síðasta lagi 6. október
nk. Verkfalli félagsins, sem koma átti
til framkvæmda á miðnætti í kvöld,
var frestað til 13. október. Samninga-
nefhd ríkisins hafði efast um lögmæti
verkfallsboðunarinnar og skotið mál-
inu til félagsdóms. Er niðurstöðu hans
að vænta í dag. -JSS
Forstjóri Norsk Hydro sagður efast um ágæti Austfirðinga:
Vonbrigði og áhyggjur
- segja Smári Geirsson og Hrafnkell A. Jónsson
„Ég veit ekki hvaða fólk þessi for-
stjóri hefur umgengist ef hann hefur
komist að þessari niðurstöðu. Ég veit
að Austfirðingar eru vel hæfir til að
vinna öll þau störf sem til falia í tengsl-
um við byggingu þessa álvers. Það er
bara spuming hvort þeir séu nógu
margir," sagði Hrafnkell A. Jónsson
um fréttir þess efnis að forsfióri Norsk
Hydro í Noregi hafi áhygaur af því að
ekki sé til nógu hæft fólk til að þjón-
usta fyrirhugað álver á Reyðarfirði. Til
dæmis efist hann um að Austfirðingar
geti rekið þvottahús og mötuneyti af
Hrafnkell A. Smári
Jónsson Geirsson.
þeirri stærðargráðu sem þarf.
„Norðmenn voru með vissar efa-
semdir um getu samfélagsins til að
taka að sér svona verkefni en þeir ef-
ast ekki lengur. Enda er það fráleitt að
Austfirðingar geti ekki boðið upp á
þvottahúsaþjónustu eða mötuneyti,“
sagði Smári Geirsson, formaður Sam-
taka sveitarfélaga í Austurlandskjör-
dæmi. „Svona fréttir vekja áhyggjur
meðal fólks hér.“
Hraftikell A. Jónsson sagði að þess-
ar fréttir væru gifurleg vonbrigði fyrir
Austfirðinga: „En þetta hef ég óttast
lengi; að Norsk Hydro hafi aldrei verið
að tala í alvöru um byggingu álvers á
Reyðarfirði." -EIR
Tilboðsuerð kr. 4.444
Lítil en
5 leturstærðir
9 leturstillinpar
prentar í 2 linur
borði 6, 9 og 12 mm
4 gerðir af römmum
Rafport
P-touch 1250
ki
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
SYLVANIA
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4