Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 Fréttir Mikil ólga á Dalvík vegna fyrirhugaðrar kjúklingaframleiðslu: Fæ kjúklingaslát- urhús á tröppurnar - segir sáróánægður íbúi við aðalgötu bæjarins Kjúklingasláturhús á tröppurnar DVMYND GK Björgúlfur Lúövíksson fyrir framan heimili sitt á Dalvík, en þar er fyrirhugaö aö setja niöur kjúkiingasiáturhús viö aðalgötu bæjarins. Þessar fyrirætlanir hafa valdiö mikilli óánægju meöal íbúa og hefur veriö hætt viö byggingu vistvæns hótels í bænum af þessum sökum. „Ég er að fá kjúklingasláturhús á tröppurnar hjá raér og það líst mér mjög illa á,“ sagði Björgúlfur Lúðvíks- son, íbúi að Hafnarbraut 10 á Dalvík. Fyrirhugað er að setja niður kjúklingasláturhús við aðalgötu Dal- víkur. Það verður beint á móti heim- ili Björgúlfs. Þessar fyrirætlanir hafa valdið mikilli óánægju meðal íbúa. M.a. hefur verið hætt við byggingu vistvæns hótels í bænum af þessum sökum. Rögnvaldur S. Friðbjörnsson, bæj- arstjóri á Dalvík, sagði við DV að fyr- irhugað væri að hafa hænsnabúgrein- ina á fjórum stöðum. Varphænur yrðu í ónotuðu rækjuvinnsluhúsi á Árskógsströnd , eldishús yrðu á landi Ytraholts í nágrenni Dalvíkur og kjúklingasláturhúsið við Hafnarbraut á Dalvík. Hið ,síðastnefnda yrði til húsa í gömlu rækjuverksmiðjunni sem staðið hefði auð. Fyrirhugað væri að byggja við núverandi húsnæði og hefðu bæjaryfirvöld gefið vilyrði fyrir lóð við rækjuverksmiðjuna. Ekki hefði verið tekin ákvörðun um stað- setningu útungunarstöðvar enn. Eigendur þessara nýju fyrirtækja verða íslandsfugl, Samherji, Dalvíkur- byggð og nokkrir einstaklingar. Sam- herji lagði til rækjuverksmiðjuhús- næðið og kom inn í reksturinn í stað- inn. Rögnvaldur sagði viðbrögð Dal- víkinga skipast í tvö horn, sumir væru mjög óhressir með þessar fyrir- ætlanir en aðrir fógnuðu þeim. Heil- brigðisyflrvöld hefðu gefið grænt Ijós á staðsotninguna. Umrædd fyrirtæki yrðu búin nýjustu tækni og búnaði. „Campylobacter og salmonella hafa verið landlægar pöddur í kjúklingabú- um,“ sagði Björgúlfur. „Það er að bjóða hættunni heim að taka þetta inn í miðjan bæ. Ég sé fyrir mér að ferða- menn steinhætti að koma hingað ef farið verður að slátra kjúklingiun í stórum stíl í miðbænum. -JSS Framkvæmdir hafnar við breikkun Miklubrautar: Nýlagðar grasþökur rifnar upp - reynt var aö halda kostnaði niöri, segir gatnamálastjóri Nýverið tóku vinnuhópar til starfa við breikkun Miklubrautarinnar á milli Háaleitisbrautar og Grensásveg- ar. Það hefur vakið undrun margra að þarna er um að ræða svæði sem grætt var upp í sumar. Ný er búið að rífa upp nýju grasþökurnar og fram- kvæmdir við breikkun eru á fullu. „Þarna var illfært svað i vor og það var lagfært jafnvel þótt menn vissu af þessum framkvæmdum sem nú eru hafnar,“ sagði Sigurður Skarphéðins- son, gatnamálastjóri Reykjavikur- borgar. Ástæðan var sú að ekki var víst hvenær hægt yrði að taka til við breikkun Miklubrautar. Sigurður út- skýrði að vegaáætlunin hefði verið ákveðin seint og í vor var enn óvíst hvort áætluð breikkun götunnar þyrfti að fara í umhverfismat sem tek- ur að minnsta kosti þrjá mánuði. Þeg- ar í ljós kom að umhverfismat þurfti ekki, þar sem Skipulagsstofnun taldi Nýgrætt svæði riflð upp DV MYND GVA Svæöið viö Miklubraut, á milli Háaleitisbrautar og Grensásvegar, var grætt upp snemma í sumar og brá því vegfarendum í brún þegar þeir sáu þetta ný- grædda svæöi allt rifiö upp aftur þar sem veriö er aö breikka brautina. breytinguna ekki nógu stórvægilega, var farið í skipulagsbreytingu sem kynnt var fyrir íbúum og öðrum sem hiut eiga að máli og svo var byrjað á framkvæmdunum. „Snemma í sumar var verið að ganga frá eftir framkvæmdir Raf- magnsveitunnar og Orkuveitunnar á þessum slóðum og þá var kannski ekki með öllu víst að við gætum hafið þessar framkvæmdir í haust og mönn- um þótti hreint og beint ekki verjandi að vera með götuna í því uppnámi sem þá var í allt sumar og, í versta falli, í vetur líka,“ sagði Sigurður. „Þess vegna var byrjað mjög snemma í vor að lagfæra götuna, jafnvel þótt menn vissu af þessari framkvæmd." Hann bætti því við að reynt heíði verið að halda kostnaði við uppgræsl- una í sumar niðri en var ekki með töl- ur á reiðum höndum yfir það hversu mikið lagfæringarnar kostuðu. -SMK Sigurður Einars- son látinn Sigurðxu Einarsson, forstjóri Isfélags Vest- mannaeyja, er látinn 49 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein. Sigurður var þjóð- þekktur fyrir afskipti sín af sjávarútvegi og var framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja eftir útskrift úr lagadeild Háskóla íslands allt til ársins 1991. Þá tók Sigurður við starfi forstjóra ísfélags Vestmannaeyja, eins stærsta sjávarútvegsfyrirtækis landsins, og gegndi því til dauðadags. Sigurður tók að auki virkan þátt í stjórnmálum. Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er Guðbjörg Matthíasdóttir og eignuðust þau fjóra syni. -EIR Sigurður Einarsson Lada brann Eldur kom upp í Lada fólksbíl sem stóð við Hátún í Reykjavík skömmu eft- ir klukkan 1 í nótt. Bíilinn var alelda þegar lögregla og slökkvilið mættu á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva en bíllinn er töluvert skemmdur. -SMK Hundruð milljóna í hreinsun vegna E1 Grillo: Olíustuldur heimamanna firrir Breta ábyrgð - málið rætt í ráöuneytum en ekkert aöhafst „Þetta er þjóðréttarlegt mál og við fórum ítarlega yfir þetta hér í ráðu- neytinu á sínum tíma. En það kom aldrei til álita að krefja Breta um skaðabætur eða láta þá hreinsa þetta upp,“ sagði Einar Sveinbjömsson, að- stoðarmaður umhverfisráðherra, um hugsanlegar kröfur á hendur Bretum vegna olíumengunarinnar af E1 Grillo í Seyðisfirði. „Það hefði verið vonlaust að vera með kröfur uppi um slíkt og mér skilst að MarshaÚaðstoðin hafi verið skilyrt því að slikar kröfur kæmu ekki fram.“ Samkvæmt heimildum DV skiptir þó mestu í þessu sambandi sú stað- reynd að Seyðfirðingar sóttu og fluttu í land hluta af olíubirgðum E1 Griilo til eigin nota og í verksmiðjur á staðn- um fyrir áratugum og þaö eitt firrir Seyöisfjöröur Heimamenn sóttu olíu niöur f skips- flakiö og notuöu til eigin þarfa. Breta ábyrgð á flakinu og ööru sem því fylgir á botni Seyðisfjarðar. Að auki ráði pólitísk sjónarmið miklu því litið sé svo á að Bretar hafi verið hér á landi í þágu íslensku þjóðarinnar en málið hefði horft öðruvísi við ef um þýskt skip hefði verið að ræða: „Bretarnir skildu eftir ýmislegt hér á landi sem komið hefur í góðar þarfir, til að mynda Reykjavíkurflugvöll. Þeir hafa ekki gert kröfu til hans og því ætt- um við þá að gera kröfu á þá vegna E1 Grillo? Við vorum saman í stríðinu," sagði ráðuneytismaður sem sat fundi þar sem reynt var að finna ílöt á að- gerðum vegna mengunarinnar úr E1 Grillo. „Ef Seyðfirðingar hefðu ekki nýtt olíuna úr E1 Grillo til eigin þarfa á sínum tíma hefði verið mögulegt að gera einhverjar kröfur á hendur Bret- um. En ekki eftir að það gerðist." Sem kunnugt er hefur rikisstjómin veitt 100 milljónir af aukafiárlögum til olíuhreinsunar úr E1 Grillo en var- fæmustu áætlanir gera ráð fyrir að sú upphæð geti þrefaldast áður en verkið er allt. -EIR Au pair í beitningum Vaxandi þátttaka útlendinga í at- vinnulífi hérlendis á sér ýmsar hliðar. Nú stendur styr í Bolungarvík um störf taílenskrar au pair-stúlku sem kom til Vestfiarða fyrir skömmu á þeim for- sendum að um starf í heimilishjálp væri að ræða en hún hefur verið sett í beitningavinnu. Dagur greindi frá. Dæmdar bætur Ríkissjóður hefur verið dæmdur til að greiða fyrrverandi slökkviliðsmanni rúmar 8,6 milljónir króna í skaðabætur vegna meiðsla sem hann hlaut á íþróttaæfmgu. Maðurinn var að spila fótbolta í vinnutíma. Barnahús í uppnámi Hlutverk Bama- húss verður æ minna þar sem gert er ráð fyrir nýrri aðstöðu hjá þeim héraðsdóm- um sem helst hafa notað húsið til þessa. Framtíö hússins er „afskaplega tvisýn" eins og starfsmenn bamayfirvalda orða það í samtali við Dag. Minni hagnaður Hagnaður fyrirtækja er mun minni á fyrri hluta þessa árs en á sama tima- bili í fyrra og hefur lækkað úr 6% í að- eins 2,5%. Ástæður verri afkomu í ein- stökum greinum em mismunandi sam- kvæmt niðurstöðum athugunar Verð- bréfaþings Islands. Kosta miiljarð Laxeldiskviar í Reyðarfirði, sem Samheiji stefnir að því að koma upp, kosta ekki undir einum milljarði króna. Stöðin myndi skapa að minnsta kosti 40 ný störf, að sögn stjómarformanns Samherja. Mbl. greindi frá. Átök um félagsmenn Átök em milli Verzlunarmannafé- lags Reykjavíkur og Verslunarmannafé- lags Hafnarfiarðar um verslunarmenn á svæðinu. Formaður VR segir úrelt að hafa tvö verslunarmannafélög á höf- uðborgarsvæðinu. RÚV greindi frá. Mesta virkni í áratug Skjálftavirkni í Goðabungu í vestan- verðum Mýrdalsjökli var óvenjumikU í september og mæld- ust þar um 200 skjálft- ar, flestir á bilinu 2-3 á Richter. Að sögn Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræðings er þetta mesta virkni sem mælst hefúr þama í meira en áratug. Mbl. greindi frá. Ódýrastir til mennta Samkvæmt útreikningum mennta- málaráðuneytisins er langódýrast að mennta guðfræðinga, lögfræðinga og fé- lagsfræðinga en tannlæknar em meira en fimmfalt dýrari samkvæmt fiárlaga- frumvarpi. Menntamálaráðuneytið hef- ur gefið út reglur um fiárveitingar til kennslu í háskólum. Dagur greindi frá. Samkeppnisstofn- un mun á næstu dög- um afla gagna hjá ol- íufélögunum vegna síðustu verðhækkana þeirra á olíu og bens- íni. Viðskiptaráð- herra hefur farið þess á leit við stofnunina að hún skoði verðmyndun hjá ohufélög- unum og forsendur þessara hækkana. Mbl. greindi frá. Aflar gagna Gæti skapaö 20 ný störf Kalkþömngavinnsla úr Amarfirði gæti skapað 15-20 störf. Nú standa yfir athuganir á hvort kalkþörungamir séu hæfir til vinnslu en talið er að um 18-20 milljónir tonna af þeim sé að finna í botni Amarfiarðar. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.