Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000 Viðskipti J>V Umsjön: Viðskiptablaðió Lausn Símans valin i hóp þeirra bestu í Evrópu AIIM, sem er helstu alþjóðlegu samtök notenda og framleiðenda skjalastjórnunarlausna, hefur valið hópvinnulausn, sem notuð hefur verið hjá Símanum undanfarna mánuði, eina af átta bestu skjala- og verkefnastjórnunarlausnum í Evr- ópu í ár. Um er að ræða hugbúnað- arlausn sem Síminn þróaði og setti upp í samstarfi við Hugvit, IBM Software Group, Lotus Professional Services og Scio Consulting. Önnur fyrirtæki sem tilnefnd eru til viðurkenningar fyrir „Lausn árs- ins í Evrópu“ (European Solution of the Year Award) eru Tele Danmark, Telia, Axel Springer Verlag, Avon Products, CORGI, UCAS og Distri- gas. Hugbúnaðarlausnirnar átta verða kynntar á ráðstefnu AHM í Bella Center í Kaupmannahöfn á morgun, 5. október, og dómnefnd velur þá bestu lausnina. Lyfjaverslunum fjölgar Ekkert lát er á harðri samkeppni á íslenskum lyf- sölumarkaði en stærstu lyfsölu- keðjur landsins hyggja á opnun fleiri lyfja- og heil- brigðisvöruversl- ana. í vikunni tók Lyfja yfir rekstur Garðabæjarapóteks við Garðatorg sem hún keypti nýver- ið. Þá hyggst Lyfja opna nýja verslun í Smáranum í lok þessa árs. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu sem kom út í gærmorgun. í verslun Lyfju í Smáranum verður m.a. boðið upp á ak-inn-þjónustu þannig að viðskiptavinir geta fengið afgreidd lyf og aðrar vörur í gegnum lúgu í bílinn. Við svo búið verða verslanir Lyfju á höfuðborgarsvæðinu fimm talsins og tvær á landsbyggð- inni. Hjá Lyf & heilsu stendur einnig til að fjölga verslunum en á næstunni hyggur Lyf & heilsa á opnun lyfja- verslunar á Glerártorgi á Akureyri og aðra í miðborg Reykjavíkur. Lyf & heilsa rekur nú um tvo tugi verslana víða á landinu. I samtölum við stjórn- endur bæði Lyf & heilsu og Lyfju kemur fram að báðar keðjurnar hyggja ennfremur á frekari vöxt í þjónustu á vefnum. Fram kemur í frétt frá Síman- um að við skil- greiningu þeirra þarfa sem hóp- vinnulausnin þurfti að upp- fylla tók Síminn m.a. miö af nýju samkeppnisum- hverfi og flóknu tæknilegu um- hverfi, þar sem mikil þörf er á að hafa sem besta yfirsýn um sam- skipti við viðskiptavini, óskir þeirra og þarfir, og jafnframt nauð- syn þess að starfsmenn hafi í dag- legum störfum aðgang að öllum þeim upplýsingum sem þeim eru nauðsynlegar til að veita góða þjón- ustu. I GoPro-skjalastjómunarkerfí Þórarinn V. Þórarinsson. Símans em nú samskipti við við- skiptavini, hvort heldur er munnleg eða skrifleg, skráð jafnóðum og þau verða til og þannig er hægt að fylgj- ast t.d. með stöðu þjónustubeiðnar eða ábendingar þótt mismunandi starfsmenn verði fyrir svörum. Föx, bréf og tölvupóstur til viðskiptavina skrást sjálfkrafa í kerfið. Erindi við- skiptavina sem berast á pappír eru skönnuð inn með aðstoð IBM Content Manager, tengd máli eða viðfangsefni í GoPro og send raf- rænt rétta boðleið um fyrirtækið í stað þess að nota innanhússpóst. Með skjalastjórnunarkerfinu hefur Siminn því tekið stórt skref í átt til þess að verða pappírslaust fyrir- tæki. Hægt er að stýra aðgangi að sérhverju skjali í kerfinu og upp- fylla þannig m.a. kröfur samkeppn- islöggjafarinnar um trúnað gagn- vart keppinautum. Innan hópvinnulausnarinnar eru mörg „torg“. Á Gæðatorgi er t.d. gæðahandbók fyrirtækisins, þar sem allir ferlar og verklagsreglur eru skilgreindar og aðgengilegar öll- um starfsmönnum um vefviðmót. Áætlað er að þar birtist jafnframt rafrænar niðurstöður reglubund- inna gæðakannana. Ábendingatorg er vettvangur fyrir starfsmenn að koma á framfæri hugmyndum og ábendingum frá eigin brjósti eða sem berast frá viðskiptavinum. Hver ábending fer eftir fyrir fram skilgreindri leið til gæðadeildar, þar sem hún er afgreidd og send réttum aðila til úrlausnar. Á Vöru- torgi eru upplýsingar um allar vör- ur og þjónustu Símans aðgengilegar starfsmönnum um vefviðmót. Breyttar reglur VÞI - áhrifa NOREX-samstarfsins farid aö gæta Verðbréfaþing hefur sent til um- sagnar nýjar reglur um aðild að Verðbréfaþingi íslands hf. og reglur um viðskipti á Verðbréfaþingi ís- lands hf. Hinar síðamefndu munu leysa af hólmi eldri reglur um við- skipta- og upplýsingakerfi þingsins. Þá er einnig óskað athugasemda við samning um sjálfvirka skráningu tilboða sem þingaðilar hafa kost á að gerast aðilar að. Vegna aðildar þingsins að NOR- EX-kauphallarsamstarfinu og með hliðsjón af nýju viðskiptakerfi þingsins, SAXESS, er nauðsynlegt að gera breytingar á viðskiptaregl- unum til samræmis við þær reglur sem gilda í Svíþjóð og Danmörku. Er hér fyrst og fremst um að ræða reglur um framkvæmd viðskipta, utanþingsviðskipti og slíkt. Einnig er sú breyting á viðskiptareglunum að viðaukar við reglurnar hafa ver- ið felldir inn i meginmál þeirra. Þá er einnig að finna ný ákvæði í reglum um aðild að þinginu er snúa að skilyrðum notenda til að mega eiga viðskipti í kerfinu. Ákveðið var að fara þá leið að færa þessi skilyrði vegna notendanna úr viðskiptaregl- unum í aðildarreglurnar enda um Þá er einnig aö finna ný ákvæði í reglum um aðild að þinginu er snúa að skilyröum notenda tii að mega eiga viðskipti í kerfinu. Thai Express Laugavegi 126 105 Reykjavík Sími 561-29-29 Fax 561-11-10 e-mail: tomasb@simnet.is Góður taílenskur matur að ræða veigamikinn þátt í skilyrð- um þingaðila fyrir aðild að þinginu. Auknar kröfur Sú krafa er gerð til notenda nú að þeir séu a.m.k. tveir hjá hverjum þingaðila og að þeir hafi að minnsta kosti sex mánaða reynslu í verð- bréfaviðskiptum, staðfesta þekk- ingu á regluverki á fjármagnsmark- aði og hafi staðist próf í notkun við- skiptakerfisins svo eitthvað sé nefnt. Er það í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í aðildar- kauphöllum NOREX. Að lokum skal þess getið að á stjómarfundi 11. september sl. var samþykkt breyting á ákvæðum þingsins um markaðsmyndun. Sett er inn ákvæði er lýtur að því hvern- ig þingaðili taki að sér að gegna hlutverki viðskiptavaka og er breyt- ingin svohljóðandi: „Þar skal m.a. koma fram lág- marksfjárhæð kaup- og sölutilboða og lágmarksfiárhæð heildarvið- skipta sem hann er reiðubúinn að eiga á degi hverjum. Skal hún vera a.m.k. tífóld lágmarsfiárhæð til- boða. Jafnframt skal koma fram hver verður hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum viðskiptavakans (verðbil)." Marel selur eigin bréf fyrir 75 milljónir - tengist væntanlegu hlutafjárútboði fyrirtækisins Sendlar óskast Sendlar óskast á blaðadreifingu DV eftir hádegi. Æskilegur aldur 13-15 ára. Upplysingar í síma 550 5746. Marel hf. seldi í dag eigin bréf fyrir að nafnvirði 1,5 milljónir króna á genginu 50 eða fyrir 75 milljónir að sölu- virði. Eignarhlutur Marels eftir söluna er enginn. Að sögn Harðar Arnarson- ar, forstjóra Marels, tengist sala bréf- anna nú hlutafiár- útboði sem fram undan er hjá Marel og samþykkt var á síðasta aðalfundi. Þar sem styttist í Þetta helst HEILDARVIÐSKIPTI 2.007 m.kr. Hlutabréf 160 m.kr. Húsbréf 768 m.kr. IVIEST VIÐSKIPTI 0 Frjálsi fjárfestingarb. 36 m.kr. Q Eimskipafélagið 29 m.kr. 0. Össur 26 m.kr. MESTA HÆKKUN 0 Nýherji 5,7% 0 SR-Mjöl 4,6% 0 Guðmundur Runólfsson 3,5% MESTA LÆKKUN 0 Stáltak 13,3% 0 Frjálsi fjárfestingarbankinn 6,7% 0 Tangi 3,7% ÚRVALSVÍSITALAN 1.485stig - Breyting Q 0,28 % Hörður Arnarson, forstjóri Marels. útboð nýs hlutafiár telur Hörður eðlilegt að fyrirtækið liggi ekki með bréf í sinni eigu. Hann segir að þau bréf sem nú hafa verið seld hafi m.a. verið hugsuð til þess að bjóða starfsmönnum upp á valréttar- samninga. Þegar hefur verið sam- þykkt að hluti þess nýja hlutafiár sem safnast mun í útboð- inu verði varið í val- réttarsamninga. Forstjóri Pepsi hyggst hætta Roger Enrico, stjómarformaður og forstjóri gosdrykkjaframleiðand- ands Pepsico, hefur sagst ætla að hætta sem forstjóri fyrirtækisins í lok ársins 2001 og hætta sem stjórn- arformaður ári síðar. Steve Reine- mund, sem hefur verið yfirmaður rekstrarsviðs fyrirtækisins, hefur verið nefndur sem arftaki Rogers á báðum þessum sviðum. í yfirlýs- ingu frá Roger segir: „Ég er viss um að það komi fáum að óvart að ég stígi niður af pallinum núna og hefii nýjan kaíla í minu lífi.“ síöastliöna 30 daga MESTU VIÐSKIPTI 0 Islandsbanki-FBA 776.576 0 Össur 491.620 0 Eimskip 306.336 0 ísl. hugb.sjóðurinn 226.860 @ Landsbanki 213.687 siöastliöna 30 daga 0 SR-Mjöl 0 Pharmaco Q Vaxtarsjóðurinn 0 íslenskir aðalverktakar 0 Jaröboranir 28 % j 17 % | 16 % j 14% 11 % j ',l4--W.ÍH(a:c<il.'^J siöastllöna 30 daga 0 Hampiðjan 0 fiskiðjus. Húsavíkur 0 Grandi 0 ísl. hugb.sjóðurinn 0 Haraldur Böövarsson -18 % -17 % -17 % -14 % -12% Guðjón ráðinn framkvæmdastjóri SL Guðjón Auðunsson, rekstrarhag- fræðingur, hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða-Land- sýnar hf. og tekur hann við starfmu í desember n.k. Guðjón hefur starf- að sem framkvæmdastjóri hugbún- aðarfyrirtækisins Landsteinar ís- land hf. frá 1. ágúst 1999. Samvinnu- ferðir-Landsýn hf. hefur jafnframt ákveðið að boða til hluthafafundar þar sem lögð verður fram tillaga stjórnar um aukningu hlutafiár í fé- laginu um 100 milljónir króna. HELSTU HLUTABREFAVÍSITÓLUR HHdow jones 10784,48 O 0,60% Enikke. 16120,49 O 0,18% BSs&p 1434,32 O 0,55% | BHnasdaq 3523,10 O 1,95% j^FTSE 6356,80 O 0,35% | P^DAX 6873,63 O 0,74% | B~BCAC40 6333,62 O 0,60% G^krahiÉÉÉÍ 5.10.2000 M. 9.15 - KAUP SALA BfPollar 83,330 83,750 EtSPund 121,350 121,970 8*1 Kan. dollar 55,590 55,940 Dönsk kr. 9,7820 9,8360 rH~ÁNorsk kr 9,0690 9,1190 CSsænsk kr. 8,5210 8,5680 flgFi. mark 12,2489 12,3225 M iiFra. franki 11,1027 11,1694 M iiBelg. franki 1,8054 1,8162 Jjfj Sviss. franki 47,9800 48,2400 CbÍHoII. gyliini 33,0483 33,2469 ^iÞýskt mark 37,2368 37,4606 Ujít. líra 0,037610 0,037840 HSAust. sch. 5,2927 5,3245 gjJjPort. escudo 0,3633 0,3655 tr:Spá. peseti 0,4377 0,4403 j 9 jjap. yen 0,762100 0,766600 ' írskt pund 92,473 93,029 SDR 107,580000 108,220000 SHecu 72,8289 73,2665

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.