Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.2000, Blaðsíða 24
28
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 2000
Tilvera ÐV
lí f iö
E F T I R V I N N U
Horfðu reiður
um öxl
Fyrsta frumsýning leikársins
á Litla sviði Þjóðleikhússins
verður á hinu þekkta leikriti,
Horfðu reiður um öxl, eftir
breska leikritahöfundinn John
Osbome. Leikendur: Hilmir
Snær Guðnason, Elva Ósk Ólafs-
dóttir, Rúnar Freyr Gíslason,
Halldóra Björnsdóttir og Gunnar
Eyjólfsson. Leikstjóri er Stefán
Baldursson. Sýningin hefst kl.
20.
Krár
1 GRASRÓTARBLUS POLLOCK-
BRÆÐRA Pollock-bræöur veröa
meö grasrótarbiús á Næstabar í
kvöld og hefst þetta allt saman kl
22. Sérstakur gestur kvöldsins er
hún Ellisabeth Belile frá Texas.
■ LIZ GAMMON Á NAUSTINU Liz
Gammon leikur fyrir matargesti
Naustsins öll kvöld.
■ MILES DOWLEY OG RÓMANTÍK-
JN Enski píanósnillingurinn Miles
Dowley slær vart feilnótu á Café
Romance. Ef þú ert í rómantískum
hugleiðingum þá er þetta eitthvað
fyrir þig.
■ STÓRTÓNLEIKAR Á GAUKNUM í
kvöld eru á Gauknum þvílíkir stór-
tónleikar í samvinnu við lágmenning-
arborgina Reykjavík. Þeir sem koma
fram í kvöld eru Trans Am, sem
kemur alla leið fráfyiinni stóru Am-
eríku, Stjörnukisi, Úlpa og Súri
gæinn.
■ SÓLEY Á PRIKINU Skvísan Sóley
ætlar að putta plöturnar á Prikinu í
kvöld og vonandi veröur dyravörður-
inn Ijósi ekki á svæðinu.
Djass
■ BLÚSKVÖLD } GERÐUBERGI
Slúskvöld í Geröubergi í tilefni að
25 ára afmæli FB. Tónelskir fyrrum
nemendur skólans munu spila, þar
á meðal Guömundur Pétursson.
Byrjað kl. 20.30.
Leikhús
■ MEÐ FULLRI REISN Leikritið
Meö fullri reisn er sýnt í Tjarnarbíói
kl. 20.30 í kvöld. Uppselt. Miða-
pantanir í síma 561 0280.
■ EINSTÖK VÖLUSPÁ Möguleik-
húsiö við Hlemm sýnir Völuspá eftir
Þórarin Eldjárn í kvöld, kl. 21. Gagn-
rýnendur eru á einu máli um ágæti
sýningarinnar. Traustur höfundur og
skemmtilegt leihús.
Fundir
■ RANNSOKNASTOFA I KVENNA-
FRÆÐUM I dag veröur Guörún Arna-
dóttir, MA í sálarfræði, með rabb á
vegum Rannsóknastofu í kvenna-
fræöum í Odda, stofu 201, kl.
12-13. Rabbið ber yfirskriftina
„Hvaö hindrar konur í aö mæta í
brjóstamyndatöku?". Allir velkomnir.
■ SLYSAVARNADEILD KVENNA Í
REYKJAVIK Fyrsti félagsfundur
Slysavarnadeildar kvenna í Reykjavík
veröur haldinn í kvöld kl. 20 í
Sóltúni 20. pjölbreytt dagskrá
veröur á fundinum, svo sem
upplestur, kaffiveitingar og fleira.
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
MH býður sérstaka íslenskukennslu fyrir nemendur með önnur móðurmál:
Komið til móts við nemendur
Bíógagnrýni
Buana Vista Social Club -★★★'Á
Tónlist frá hjartanu «H
í Menntaskólanum við Hamrahlíð
er nú í fyrsta sinn boðin kennsla í
áfanga sem heitir ÍSA 102 eða ís-
lenska sem annað mál. Halldóra S.
Sigurðardóttir sem kennt hefur ís-
lensku í MH í 6 ár annast kennsluna
í áfanganum og leitaði DV til hennar
til að forvitnast um námið.
Brýn þörf
„Þörfm var orðin mjög brýn að
gera eitthvað fyrir nemendur sem
eru af erlendu bergi brotnir. Þeir
passa ekki inn í hópa í venjulegri
móðurmálskennslu," segir Halldóra.
Kennslan er þó ekki eingöngu ætluð
erlendum nemendum eða nýbúum
heldur einnig íslenskum nemendum
sem verið hafa langdvölum erlendis,
jafnvel alla sína skólagöngu. „Þessir
nemendur eru heldur ekki í stakk
búnir til að fara inn í venjulega ís-
lenskúáfanga."
MH er ekki fyrsti skólinn sem býð-
ur kennslu í íslensku sem annað
tungumál, a.m.k. Iðnskólinn i
Reykjavík hefur um árabil boðið upp
á sérstaka íslenskukennslu fyrir ný-
búa enda er í reglugerð sem mennta-
málaráðuneytið gaf út árið 1997 kveð-
ið á um rétt allra framhaldsskóla-
nemenda, sem hafa annað móðurmál
en íslensku og hafa fasta búsetu á ís-
landi, til sérstakrar kennslu í ís-
lensku.
í MH var farið að koma til móts við
þarfir nemenda sem ekki hafa næga
undirstöðu í íslensku fyrir u.þ.b. fjór-
um árum. Námið var ekki metið til
eininga í upphafi heldur var litið á það
sem undirbúning undir að hefja nám í
almennum islenskuáfongum.
Ný aðalnámskrá
Á síðustu tveimm' árum hefur er-
lendum nemendum fjölgað mikið og
ekki lítur út fyrir að lát verði á þeirri
fjölgun. f nýrri aðalnámskrá fyrir
framhaldsskóla sem allir skólar eiga
að kenna eftir frá og með þessu hausti
er gert ráð fyrir einingabæru námi í is-
lensku fyrir útlendinga eða íslensku
sem annað tungumál. Nú eiga erlendir
nemendur skv. námskrá að geta lokið
stúdentsprófi með 15 einingum í ís-
lensku sem annað tungumál. í hópn-
um sem nú stundar nám í ÍSA 102 í
MH eru 12 nemendur en annar eins
fjöldi bíður eftir að fá að taka þennan
unnio meo aagmooin
Þegar Ijósmyndara bar aö garöi voru nemendur í áfanganum ÍSA 102 aö vinna meö dagblöö undir ieiösögn
Halldóru S. Siguröardóttur kennara.
áfanga á vorönn. Hvert framhaldið
verður er hins vegar ekki ijóst á þess-
ari stundu.
í MH er boðið upp á svokallað IB
nám sem er tveggja ára námsbraut til
alþjóðlegs stúdentsprófs þar sem öll
kennsla og allt námsefhi er á ensku og
nemendumir taka samræmt próf IB
skóla út um allan heim. „Eftir að þetta
nám var tekið upp í skólanum hefur
erlendum nemendum fjölgað og ÍSA
áfanginn er m.a. heppilegur fyrir þá.“
Mismunandi námsefni
ÍSA hópurinn hennar Halldóru er
því afar breiður, þar eru erlendir nem-
endur sem sumir hverjir munu aðeins
staldra stutt við á íslandi, íslendingar
sem hafa verið búsettir lengi erlendis
og íslenskir nýbúar.
„Þessum krökkum hentar í raun
alls ekki sama kennslan þannig að ef
vel ætti að vera þyrftum við að vera
með tvö til þrjú afbrigði af áfangan-
um.“ Haildóra reynir að sinna nem-
endunum eftir því hvar þeir eru á vegi
staddir í íslensku. „Þeim sem kunna
minnst er ég að kenna daglegt mál,
reyna að gera
þau fær um að hafa samskipti við
fólk dags daglega á íslensku. Hvað
heita hlutimir í kringum okkur?
Hvemig röðum við orðum í setningar?
Hvernig er eðlilegur íslenskur fram-
burður og óhjákvæmilega flýtur dálítil
málfræði með. Fyrir þá sem lengra em
komnir reyni ég að fmna létta texta og
útbúa ýmis
verkefni í tengslum við þá til þess
að auka orðaforða þeirra og styrkja
þar með undirstöðu
þeirra fyrir annað nám
í skólanum." -ss
Islenska sem annað tungumál er námsgrein fyrir nemendur sem
hafa ekki nægilegt vald á íslensku til að geta stundað nám í íslenskum
skólum til jafns við aðra nemendur. Þetta á jafnt við um nemendur af
íslenskum og erlendum uppruna.
(Úr Aóalnámskrá framhaldsskóla. íslenska. 1999)
Markmið með íslensku fyrir nemendur með annað mál en íslensku
að móðurmáli í framhaldsskólum er að veita þeim aðgang að menntun
í íslensku skólakerfi til jafns við aðra nemendur. íslenskukennslan er
því sérstaklega hugsuö fyrir þá nemendur sem stunda nám á öðru máli
en móðurmálinu. Nemendur með annað móðurmál en íslensku eru
mismunandi innbyrðis og standa misjafnlega að vígi menningarlega
og mállega.
(Úr Aóalnámskrá framhaldsskóla. íslenska. 1999)
Tónlist sem fengur er aö
Þeir eru ekki ungir tónlistarmennirnir i Buana Vista Sociai Club en eiga auö-
velt meö að ná til fólksins.
Buana Vista Social Club er ein-
stök upplifun, innihaldsrík og
skemmtileg heimildarmynd um tón-
list og tónlistarmenn á Kúbu sem
voru velflestir horfnir af sjónarsvið-
inu þegar blúsgítarleikarinn og
kvikmyndatónskáldið Ry Cooder
hafði upp á þeim árið 1997 og gerði
með þeim plötu sem ber sama heiti
og kvikmyndin, hlaut einróma lof
gagnrýnenda og hefur selst í millj-
ónum eintaka. Tæpum tveimur
árum síðar fór Ry Cooder aftur til
Kúbu til að gera aðra plötu og þá
var Wim Wenders með í förinni og
afraksturinn er ein besta heimildar-
mynd síðari ára, gefandi kvikmynd,
ekki eingöngu um tónlist og tónlist-
armenn heldur einnig lífið sjálft.
Það sem gerir Buana Vista Social
Club jafninnihaldsríka og raun ber
vitni eru fyrst og fremst persónum-
ar sem koma við sögu. Þetta er al-
múgafólk sem hefur lifað timana
tvenna, yfirleitt alist upp i fátækt,
haft tónlistina að viðurværi um
tíma en smátt og smátt fallið í
gleymsku eftir að Castro komst til
valda. Að heyra þetta fólk segja
sögu sína á meðan Wim Wenders
myndar það í nærmynd og sýnir
okkur í öngstræti Havana er eins og
að fá beint í æð einangrað þjóðfélag
sem hvarf augum alheimsins um
hríð en er nú að uppgötva tilvist
sína.
Segja má að hver einasta persóna
sem skipar hljómsveitina Buana
Vista Social Club setji sterkan svip
á myndina, það eru þó sumir sem
standa upp úr og það eru þeir elstu.
Company
Secundo er
fæddur 1905.
Hann er 92 ára
gamall
húmoristi þegar myndin er gerð,
segist hafa byrjað að reykja flmm
ára, vill fjölga börnum sínum úr
fimm í sex, spilar á gítar og syngur
og lætur sig ekki muna um að ferð-
ast til Amsterdam og New York.
Ibraham Ferrer er 72 ára og aðal-
söngvari hljómsveitarinnar. Hann
hefur ekki bara tilfinningaríka og
blíða rödd heldur er
hann góður sögu-
maður og hefur
mikla persónutöfra.
Dúett hans með
hinni 69 ára gömlu Omara
Portuondo er tónlist tilfinninganna
eins og hún gerist best. Ferrer hafði
áður fyrr verið vinsæll söngvari á
Kúbu en var skóburstari þegar Ry
Cooder hafði uppi á honum. Svo er
það snillingurinn Ruben Gonzales
sem heillaði mig mest. Hann er 80
ára þegar myndin er gerð, lítill og
visinn og á erfitt með gang. En þeg-
ar hans sest við píanóið er eins og
hann yngist um fimmtíu ár og hend-
ur hans renna yflr píaníóborðið af
ótrúlegri fimi auk þess sem tækni
hans og leikur eru einstök. Ruben
hafði ekki átt píanó í tíu ár þegar
Cooder hafði uppi á honum.
Buana Vista Social Club skiptist
að mestu á milli tónleikaatriða og
atriða á Kúbu og eru skiptin yfir-
leitt vel heppnuð þegar sjálf kvik-
myndin er höfð í huga en kannski
ekki jafnvel heppnuð tónlistarlega
séð. Andrúmsloftið í fátæklegu upp-
tökuveri í Havana er allt öðruvísi
en á tónleikum i tónlistarhöll i
Amstérdam og skilin í myndinni
eru stundum óþægilega skörp. Tón-
leikamir í lokin í Camegie Hall
voru í rauninni eingöngu þessu ein-
staka fólki til heiðurs, tónlist þeirra
á ekki heima í þessu umhverfi,
þetta er heit klúbbtónlist eins og
hún getur best orðið. Aftur á móti
er gaman að sjá ánægjusvipinn á
flytjendunum í þessu framandi um-
hverfi og athugasemdir þeirra um
New York, sem enginn þeirra hafði
áður komið til, eru bamslegar og
hrífandi. Hilmar Karlsson
Leikstjóri og handritshöfundur: Wim
Wenders. Kvikmyndataka: Robby Muller,
Lisa Rinzler og Jörg Widmer.
29. september - 12. október 2000
Kvikmyndahátíð
í Reykjavík